Íslendingur - 22.03.1957, Side 1
Mikill skíðaálitagi var
fiiér fyrir 40—50 árum
Kirkjuhöfðinn var þá eftirsótt skíðabrekka.
Nú, meðan skiðalandsgangan stendur yfir, hafa margir gaman af
að rifja upp skíðasnilli sína frá gamalli tíð og bregða sér í gönguna,
enda virðist enginn vera orðinn of gamall til þátttöku (og jafnvel
enginn of ungur). Hvar sem tveir menn hittast, spyr annar hinn:
Ertu búinn að ganga? Og svarið er ýmist jákvætt eða neikvætt.
í fyrradag var Magnús Bjarna-
son skipaeftirlitsmaður staddur
inni í skrifstofu blaðsins, og var
þá að sjálfsögðu skipzt á spurn-
ingum dagsins. En áður en varði,
var rabbinu komið inn á skíða-
æfingar Akureyringa í ungdæmi
Magnúsar, og var þá ekki beðið
boðanna með aS spyrja hann
nánar um það efni.
— Voru ekki gömlu skíðin
með táböndunum notuð þá?
spyrjum vér.
— Nei, þau voru óðum að
leggjast niður, svarar Magnús.—
Flestir voru þá komnir með ein-
hverja bindinga aftur fyrir hæl-
inn, þótt ekki hafi þeir verið
jafn fullkomnir og þeir eru nú.
— Hvar fóru skíðaæfingar þá
fram?
— Þá var æft í brekkunni of-
an við Ráðhústorg, einkum
drengir á aldrinum 6—10 ára.
Ilinir eldri og færari æfðu í höfð-
anum neðan við kirkjugarðinn,
sem var þá éftirsótt skíðabrekka,
— og að sjálfsögðu víðar í bæn-
um og grennd við hann.
Skíðamóf- 1914.
eldri flokkanna, en liann var með
beztu skíðamönnum hér í bæ um
þær mundir. Þá voru synir séra
Bjarna Þorsteinssonar á Siglu-
firði í skóia hér, og fannst okkur
þeir skara fram úr öðrum í
skíðaíþróttinni.
-- —c. ,-x-^ i■rMT-'frr*-t .'r~ -
Annað móf
í kirkjuhöfðanum.
— Var þessi skíðaíþrótt þá
aðeins stundarfyrirbæri?
— Nei, bæði fyrir og eftir
þenna tíma var unga fólkið í
bænum oft á skíSum, og man ég
eftir öðru skíðamóti 2—3 árum
síðar. Fór það fram í kirkjuhöfð-
anum, og renndu keppendur sér
þá yfir þjóðveginn og fram á ís-
inn.
Yfirleitt var þessa vetur fullt
af börnuin og unglingum í brekk-
unum eftir skólatíma, þegar snjór
var, enda hvatti fröken Halldóra
skólastýra börnin til útivistar og
skíðaæfinga. Hafði hún kynnzt í-
þróttinni í Noregi, að mig minn-
ir og hafði mikinn áliuga fyrir
henni.
— Var þá nokkurn tíma efnt
til skíðamóla?
— Já, ég man eftir skíðamóti,
sem fór fram á vegum UMFA í
brekkum hér fyrir ofan bæinn 3.
marz 1914. Minnir mig, að norsk-
ur maður, Bertelsen, sem þá
mun hafa verið verksmiðjustjóri
á Gefjun, liafi verið aðal-hvata-
niaður að þessu móti, enda var
hann óþreytandi að leiðbeina
okkur unglingunum í skíðagöngu
og stíl.
Á móti þessu var keppt a. m. k.
í 2—3 aldursflokkum og verð-
laun gefin í hverjum flokki fyrir
stíl. Urðu menn fyrst og fremst
að standa brekkuna til að komast
í úrslit. Ég var þá innan við
fermingu og keppti þarna í
yngsta flokki. Fékk ég bók með
skrautáritun að verðlaunuin, sem
mér þótti mikið varið í, og mun
þessi bók valda því, að mér er
mól þetta ininnisstætt. Eg man,
að Garðar Jónsson, sem lengi var
bátsmaður á skipum Ríkisskips,
hlaut verðlaun í öðrum hvorum
Stérsiflor [ýðroeMssinna
í Hreyfli
Nýlega fóru fram stjórnarkosn-
ingar í deild sjálfseignarbílstjóra
í Bifreiðastjórafélaginu Hreyfli í
Reykjavík. Unnu lýðræðissinnar
þar saman, báru fram sameigin-
legan lista, en kommúnistar ann-
an. Fékk listi lýðræðissinna 279
atkvæði en listi kommúnista 177.
I fyrra voru tölurnar 208 og 179.
í launþegadeild félagsins varS
listi lýðræðissinna sjálfkjörinn,
þar eð koinmúnistar sáu tilgangs-
laust að stilla upp á móti.
Þegar kosið var til Alþýðusam-
bandsþings á s.l. hausti í deild-
inni, unnu konnnúnistar og fengu
sína fulltrúa kjörna á þingið.
Mun það hafa ráðiS úrslitum um
það, að kommúnistar náðu yfir-
höndinni í stjórn ASÍ, en við
Hreyfilskosningarnar þá var full-
yrt, að Hermann Jónasson for-
»»ti»ráðherra hefði stutt við bak-
38. ársþing Þjóðræknisfélags
íslendinga í Vesturheimi
í hinni miklu snjókomu undanjarið
hefir klaki mjög setzt á þakbrúnir húsa
víðs vegar um bœinn. Er að þessu mik-
il slysahœtta, en húseigendur reyna að
jjarlœgja klakann ejtir jöngum. Er
þetta miklum erjiðleikum bundið ú
háum húsum, og hejir þá stundum ver-
ið leitað til slökkviliðsins um lán <í
brunastiga, sem nœr upp uð þakbrún
hinna hœrri húsa. — Ljósm.: Gísli Ól-
ajsson.
HreindMninn í voíifl
Þær fréttir hafa borizt austan
af landi, að mjög sverfi nú að
hreindýrunum á Austur-öræfum
vegna snjóþyngsla og jarðbanna,
og leiti þau hópurn sainan til
byggða, en þar sé sama bjargar-
leysið. Hafi a. m. k. milli 50 og
100 hreindýr, einkum kálfar,
fundizt fallin niðri í byggðum
eða í nánd við þær.
Stungið hefir verið upp á aS [
flytja gott útliey loftleiðis austur
á öræfin og varpa því niður í
nánd við hreindýrahjarðirnar, en
ekkert mun liafa orðið úr fram-
kvæmdum. Er því mjög bætt við,
að hreindýrin falli unnvörpum
úr fóðurskorti, ef engar ráðstaf-
anir verða gerðar og snjóinn tek-
ur ekki upp mjög bráðlega.
ið á kommúnistum og aflað þeim
stuðnings þeirra bílstjóra í félag-
inu, er talizt liafa til Framsókn-
arflokksins.
En nú hafa lýSræðissinnar
komið á heilbrigðum samtökum
gegn kommúnistum í íjölda stétt-
arfélaga með miklum og ánægju-
legum árangri.
Hið 38. ársþing Þjóðræknisfé-
lags íslendinga í Vesturheimi var
haldið í Winnipeg 18.-20. febrú-
ar við góða aðsókn, einkum voru
samkomurnar í sambandi við
þingið prýðisvel sóttar. Margar
deildir félagsins áttu fulltrúa á
þinginu, og var þeirra lengst að
kominn fulltrúi deildarinnar
„Ströndin“ í Vancouver, séra Ei-
ríkur Brynjólfsson, sóknarprest-
ur íslendinga þar í borg. Ýmsir
aðrir fulltrúar og þinggestir voru
einnig langt að komnir.
Þingið fjallaði um þau málin,
sem löngu eru orðin fastir liðir á
starfsskrá félagsins, svo sem
fræðslumál, útbreiðslumál, sam-
vinnumál við ísland og útgáfu-
mál. Einnig var rætt um nauðsyn
sameiginlegs heimilis fyrir ís-
lenzk félagssamtök í Winnipeg,
og var það mál selt í milliþinga-
nefnd til frekari athugunar, ásamt
ýmsum öðrum málum.
Forseti félagsins var kosinn dr.
Richard Beck prófessor í stað dr.
Valdimars J. Eylands, er baðst
undan endurkosningu. Ritari var
kosinn prófessor Haraldur Bessa-
son í stað frú Ingibjargar Jóns-
son, er einnig baSst undan end-
urkosningu, en vararitari Walter
J. Lindal, dómari. Hafði prófess-
or Finnbogi Guðmundsson skip-
að þann sess, er hann hvarf heim
til íslands. Aðrir embættismenn
félagsins, sem allir voru endur-
kosnir eru þessir: varaforseti sr.
Philip M. Pétursson, féhirðir
Grettir L. Jóhannsson ræSismað-
ur, varaféhirðir frú Hólmfríður
Daníelsson, fj ármálaritari GuS-
mann Levy, varafjármálaritari
Ólafur Hallsson, skjalavörður
Ragnar Stefánsson.
Heiðursfélagar Þjóðræknisfé-
lagsins voru þeir kjörnir Gunnar
Thoroddsen, borgarstjóri í
Reykjavík, og Valdimar Björns-
son, fjármálaráðherra Minnesota-
ríkis.
Kveðjur bárust þinginu meðal
Iívöldvaka
Sjálfstæðisfélögin á Akureyri efna
til kvöldvöku að Hótel KEA föstu-
dagskvöldið 29. þ. m. kl. 9 e. h.
Gísli Jónsson og Sverrir Pálsson
lesa upp stuttar frásögur, sem Jónas
Rafnar læknir hefir valið. Árni Ingi-
mundarson leikur nokkur lög á pianó.
Kvöldvökunni mun Ijúka kl. 11.30.
Aðgöngumiðar verða seldir á skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins i Hafnar-
stræti 101 (simi 1578) n.k. fimmtu-
dag og föstudag kl. 5—7. Verð að-
göngumiða er tíu krónur.
annars frá dr. Ásmundi Guð-
mundssyni, biskupinum yfir ís-
landi, Árna G. Eylands, stjórnar-
ráðsíulltrúa, íormanni Þjóðrækn-
isfélagsins á íslandi, Steindóri
Steindórssyni, yfirkennara á Ak-
ureyri og ríkisháskólanum í
Norður-Dakota, er Richard Beck
flutti.
Ræðumenn á kvöldsamkomum
þingsins voru þeir séra Ólafur
Skúlason, sóknarprestur íslend-
inga í NorSur-Dakota, á Fróns-
mótinu, William Benedicktsson,
sambandsþingmaður frá Ottawa,
á samkomu Icelandic Canadian
Club og Björn Sigurbjörnsson
og prófessor Haraldur Bessason
á lokasamkomu þingsins.
Landsgangan
Vel hefir viðrað að undan-
förnu til þátttöku í skíðalands-
göngunni, og hafa um 2500
manns gengið hér í bænum á
aldrinum 3—84 ára. Um síðustu
helgi var bætt við göngubraut á
íþróttasvæðinu á Oddeyri, og
gekk þar fjöldi manns, m. a. tveir
menn á níræðisaldri, Páll Jóna-
tansson 84 ára og Kristján Ein-
arsson 82 ára. Elzta konan, sem
tekið hefir þátt í göngunni, er
Jónasína Helgadóttir, 72 ára.
Ennfremur hafa 3 þriggja ára
börn lokið göngunni.
Alhnargir starfsmannahópar
keppa innbyrðis um þátttöku í
göngunni, og hefir Jón M. Jóns-
son klæðskerameistari gefið verð-
launabikar til að keppa um á
þeiin vettvangi.
Kristján Einarsson kemur að marki,
ejtir að haja lokið skíðalandsgöngunni
á lþróttavellinum sl. laugardag. Hann
er 82 ára.