Íslendingur - 22.03.1957, Qupperneq 7
FöstUclagur 22. marz 1957
ÍSLENDINGUR
7
Seljum ódýrt:
Hv. léreft
frá kr. 7.95 m.
Hv. flónel
frá kr. 9.90 m.
Vöruhúsið h.f.
Seljum ódýrt:
Gúmmíhanzkar
3 tegundir
á gamla verðinu.
Seljum ódýrt:
Karlmanna
flónelsskyrturnar
ódýru,
komnar aftur.
Odýru Mlðpörin
eru komin aftur.
Vöruhúsið h.f. Vöruhúsið h.f.
Vöruhúsið h.f.
Nýmalað
Heilhveiti — Rúgmjöl
Bankabygg.
Ennfremur skornir hafr-
ar, úrvals tegundir.
Vöruhúsið h.f.
NÝ FRÆÐSLUGREIN.
Húsnæðismálastjórn hefir beitt
sér fyrir Jftí, að tekin verði upp
fræðsla í útvarpinu urn húsabygg-
ingar. Mun þessari framtakssemi
verða vel tekið, þar sem almenn-
ingur vill kynnast nýjungum og
kunna skil á því, hvernig hag-
stæðast er að koma upp íbúðar-
húsnæði. Annars mun mörgum
Ieika hugur á því að fá upplýsing-
ar um það, hvað húsnæðismála-
stjórn hafi gert til þess að afla
fjár til veðdeildarinnar en treg-
lega hefir gengið að fá lán úr
deildinni undanfarna mánuði.
Lánsfjárskorturinn er mesta
vandamál allra, sem ráðast í
byggingar. Hvað sem öðru líður
er því mest aðkallandi að bæta úr
honum.
ERU VERÐLAG OG
KAUPGJALD ÓSKYLD MÁL?
í forystugrein Alþýðumannsins
12. þ. m. ræðir um sj ómannadeil-
una, er þá stóð sem hæst, og er
m. a. komizt svo að orði, að
heyrzt hafi, að skipafélögin vilji
„blanda inn í deiluna kröfum sín-
um til ríkisstjórnarinnar um
farmgjaldahækkanir, þ. e. leysa
tvö óskyld mál (lbr. hér) á einu
borði, og þá væntanlega ætla rík-
isvaldinu að skerast í leik um
lausnina“.
Hvernig má það vera, að jafn
glöggur maður og ritstjóri Alþm.
finnur ekkert sainband á milli
kaupgjalds og verðlags og nefnir
þetta tvö „óskyld mál“? Hir.gað
til hefir það þó verið viðurkennt
af öllum, að verðlag og kaup-
gjald sé svo nátengt livað öðru.
að hækkun annars hljóti að valda
hækkun á hinu. Allir eiga að vita,
að kapphlaupið milli kaupgjalds
og verðlags er höfuðorsök hinn-
ar geigvænlegu dýrtíðar, sem
skapað hefir það ástand í land-
inu, að nær engin atvinnugrein
verður rekin án opinberrar aðstoð
FRIÐRIK OG PILNIK
JAFNIR ENN
Lokið er fjórum af sex einvíg-
isskákum Friðriks og Pilniks, og
standa leikar þannig, að hvor
þeirra hefir tvo vinninga. Fjórðu
skákina vann Friðrik auðveld-
lega. Gaf Pilnik hana eftir 24
leiki, en þá var mát óumflýjan-
legt eftir 1 eða 2 leiki. Fimmta
skákin, sem þeir tefldu í fyrra-
kvöld, fór í bið eftir 43 leiki, og
er hún talin jafnteflisleg.
ar. Kaupgjaldið hefir í langflest-
um tilfelluin meiri áhrif en nokk-
uð annað á afkomu atvinnuveg-
anna, og ólíklegt má telja, svo að
dæmi sé tekið, að bændastéttin
mundi taka á sig verulegar kaup-
hækkanir, án þess að á móti
kæmi hækkað verð afurðanna.
Hér er því um að ræða nátengd
mál, en ekki óskyld, eins og Al-
þýðumaðurinn vill vera láta.
FULLNUMA
í FRÆÐUNUM.
Dagur skýrir frá því 13. þ. m.,
að Islendingi hafi ekki þótt mál
Húsmæðrakennaraskólans á Al-
þingi „í frásögur færandi“, og
mun enginn geta skilið þau orð
öðruvísi, en að íslendingur hafi
ekki minnzt á málið.
í síðasta blaði íslendings var
ritstjóra Dags bent á, að íslend-
ingur hefði gert málið að um-
ræðuefni 1. marz, en það mundi
hafa farið fram hjá ritstjóra
Dags.
í stað þess að biðja afsökunar
á að hafa farið með rangt mál,
segir síðasti Dagur, að ritstjóri
I íslendings verði að „sakast um
, það við sjálfan sig“(!), og gefur
enn í skyn, að íslendingur hafi
ekki á málið minnzt.
Af þessum „heiðarlegu“ við-
brögðum Dagsritstjórans verður
ekki annað séð, en að hann hafi
verið undra fljótur að tileinka
sér hina gömlu kenningu eins
gamals Framsóknarritstjóra, að
„ef lygin er endurtekin nógu oft,
hlýtur einhver að verða til að
trúa henni“.
Sjálfsagt getur Erlingur þegar
gengið undir próf í þessum fræð-
um með góðum vitnisburði.
8uniarȾUuii
* Loftleiða
hefir blaðinu borizt. Verða dag-
legar ferðir milli New York og
Reykjavíkur í sumar, en til Ev-
rópulanda verður flogið:
Á mánudögum: Osló, Gauta-
borg, Hamborg.
Á miðvikudögum: Glasgow,
London.
Á fimmtudögum: Gautaborg,
Kaupmannahöfn, Hamborg.
Á föstudögum: Osló, Stafang-
ur.
Á laugardögum: Glasgow,
Luxemborg.
Á sunnudögum: Stafangur,
Kaupmannahöfn, Hamborg.
Þessi sumaráætlun flugfélags-
ins gildir frá 11. maí til 15. októ-
ber.
Dánarfregn
Þann 18. þ. mán. andaðist í
Kristneshæli Benedikt Svein-
björnsson, sem um ára skeið bjó
í Grænhól í Kræklingahlið.
Benedikt var fæddur í Leifs-
húsurn á Svalbarðsströnd 17. maí
1871, sonur hjónanna Ásgerðar
Þorkelsdóttur og Sveinbjörns
Þorsteinssonar, sem síðar varð
hreppstjóri Hrafnagilshrepps og
bjó á Stokkahlöðum. Um ferm-
ingaraldur missti Benedikt föður
sinn og var eftir það lengi í
vinnumennsku á Akureyri, Grís-
ará, Hrafnagili, Stokkahlöðum og
víðar, en síðan gerðist hann
lausamaður í allmörg ár. Rosk-
inn að aldri kvæntist hann ekkj-
unni Kristínu Sigurðardóttur í
Grænhól, sem nú er látin fyrir
þremur árum. Eignuðust þau
hjón eina dóttur, Sveingerði, sem
er gift kona að Egilsstöðum í
Flóa.
Benedikt var burðamaður að
upplagi, en brjóstþungur frá
barnæsku. Hann var hinn ötulasti
til allra starfa, enda eftirsótt hjú
vegna dugnaðar og frábærrar
trúmennsku. Hann ótti hvarvetna
miklum vinsældum að fagna
vegna glaðlyndis síns, trygglynd-
is og hjálpsemi. — Síðustu sjö
árin dvaldist hann í Kristneshæli,
Styhhu tveir yfir 40 m.
Ólafsfirði í gœr.
Um helgina síðustu var Skíða-
mót Ólafsfjarðar haldið hér á
vegum barnaskólans og íþrótta-
félagsins Leifturs, en að undan-
förnu hefir Matthías Gestsson frá
Akureyri annazt hér skíða-
kennslu.
Mótið fór vel fram, og var á-
rangur yfirleitt sæmilegur. Sér-
staka athygli vakti skíðastökk
drengja, 15—16 ára. Einn þeirra,
Björn Þór Ólafsson stökk 43 m.
og annar, Sveinn Stefánsson 41 x/»
m. Var stíll þeirra ágætur og þeir
öruggir í stökkinu, og höfðu þeir
þó sama og ekkert æft sig í svo
stórum bakka.
Þá var keppt í stórsvigi, svigi
og bruni, og náðust þar sæmileg-
ir árangrar.
í nótt var hér allhvöss norð-
austanátt með bleytuhríð og er
svo enn. Snjór hefir nokkuð sig-
ið vegna blotans.
Norðlendingur landaði hér á
mánudag og þriðjudag 182 lest-
um af fiski í söltun og frystingu
og Gunnólfur 16 tonnum á mánu-
daginn.
S.M.
þótt ekki væri hann berklaveikur,
enda var hann þá alveg íarinn að
heilsu og var nauðsynlegt að
vera undir læknis hendi. Er það
talandi vottur um vinsældir
Benedikts, að honum einum
manna gaf sveitar- og heilbrigð-
isstjórn fúslega leyfi sitt til, að
hann fengi athvarf í Kristneshæli
ævilangt, þótt ekki ætti hann
kröfu til þess að lögum.
Gott er gömlum að hvílast eft-
ir langt og að ýmsu leyti erfitt
ævistarf, og margur Eyfirðingur
mun minnast Benedikts með vin-
semd og þakklæti fyrir liðnar
samverustundir og frábærlega
góða viðkynningu.
J.R.
Aði!d verhalýðiféldainna
oð verðlðgseftirliti
Nýlega óskaði Alþýðusamband
íslands eftir því við verkalýðsfé-
lögin um land allt, að þau til-
nefndu fulltrúa af sinni hálfu til
að starfa að verðlagseftirliti í
samvinnu við hið opinbera verð-
lagseftirlit, en í lögum frá 22.
desember síðastliðinn er svo á-
kveðið, að verðlagseftirlit ríkis-
ins leiti samvinnu við verkalýðs-
félög og önnur hagsmunasamtök
neytenda.
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna
á Akureyri ræddi mál þetta á
fundi 6. þ. in. og samþykkti að
fela starfsmanni félaganna ásamt
tveimur konum, sem stjórn Full-
trúaráðsins fengi til að starfa
með honum að þessum málum,
að koma frarn sem fulltrúar allra
verkalýðsfélaganna í bænum á
þessuin vettvangi.
Eftirlitsnefnd þessi, eða sam-
starfsnefnd verðlagseftirlitsins, er
nú fullskipuð, og eiga sæti í
henni:
Jón Ingimarsson, Byggðaveg
154, sími 1544,
Guðlaug Jónasdóttir, Glerár-
götu 18, sími 2077,
Margrét Magnúsdóttir, Hrís-
eyjargötu 8, sími 1794.
Gert er ráð fyrir, að fulltrúar
þessir verði m. a. eins konar
tengiliður milli meðlima verka-
lýðsfélaganna og verðlagseftirlits-
ins, komi umkvörtunum á fram-
færi og gefi upplýsingar, eftir því
sem unnt er á hverjum tíma.
(Fréttatilkynning frá Fulltrúaráði
verkalýðsfélaganna.)
Hjónaefni. Nýlega hafa opinberað
trúlofun sína ungfrú Jónína Maggy
Þorsteinsdóttir Norðurgötu 50 og Axel
Clausen Jónasson iðnnemi Þingvalla-
Þnrf gerfiliendi
Eins og mörgum mun vera
kunnugt varð aóttir þeirra hjón-
anna Sigurbjargar Hlöðversdótt-
ur og Áskels Jónssonar fyrir því
slysi að missa aðra hendina. Þarf
hún því síðar meir að fá gervi-
hendi. Verður það áreiðanlega
kostnaðarsamt, þar sem leita
verður til erlendra sérfræðinga.
Undir svipuðum kringumstæð-
um og þessum hafa oft margir
viljað hlaupa undir bagga, ekki
hvað sízt, þegar ungbörn hafa átt
hlut að máli, en litla stúlkan er á
2. árinu.
„íslendingur“ mun því fúslega
taka á móti gjöfum frá þeim, 6em
eitthvað vilja leggja af mörkum
vegna þessa slyss.
FYRSTA LÍFSMARK
EFTIR 44 ÁR
Skipverji á danska skipinu m.s.
Patagonia, Georg H. Petersen
frá Rudköbing, skýrði nýlega frá
því í bréfi til ættingja síns heima,
að hann hefði rekizt á gamlan
samborgara sinn í indversku
hafnarborginni Vizagapatam. —
Maður þessi heitir Thöger Jen-
sen, og fór til sjós frá Langalandi
árið 1913. Hefir hann síðan ekk-
ert látið frá sér heyra.
Fregn þessi hefir orðið tveim
bræðrum hans heima á Langa-
landi hin mestu gleðitíðindi. Þeir
höfðu ekki frétt neitt til bróður
síns undanfarin 44 ár og hugðu
hann löngu idauðan.
FÍNT HÖRUND. — Það var í
hirðveizlu og W rangel gamli
hajði jyrir sessunaut kornunga
prinsesfu. Hann dáðisl mjög að
því, hversu hendur hennar vœru
jíngerðar og mjukar. Hún gckkst
upp við gullhamrana og sagði, að
það kœrni af því, hversu vel hún
fœri með þœr. „Ég liirði þœr tel
og t. d. nota ég aldrei öðruvísi
hanzka en úr hjartarskinni.“
Þá muldraði hershöjðinginn:
„Það er stórmerkilegt. Ég hefi nú
í 30 ár aðeins notað buxur nr
hjartarskinni. Þó hefi ég ekki
svona fínt hörund!!“
Stytzt gagnrýni, sem við höf-
um heyrt, er eignuð frönskum
bókmenntagagnrýni. Allt og sumt,
sem liann skrifaði fyrir blað sitt
um verk ungs rithöfundar var:
„Má ég heldur fá símaskrána?“
□ Rún 59573277 = Frl:.
Hjónaefni. Ungfrú Heiða Þórðar-
dóttir skrifstofumær og Jón Ágústsson
starfsmaður hjá bæjarverkfræðingi.