Íslendingur


Íslendingur - 22.03.1957, Side 8

Íslendingur - 22.03.1957, Side 8
KAUPENDUR vinsamlega beðnir að tilkynna af• greiðslunni strax, ef vanskil eru á blaðinu. Föstudagur 22. marz 1957 5. siðan í dag: öndvegisskáld, sem eldist vel. Þeim fœkkar óðum gömlu torfbœjunum, sem áður settu svip sinn á byggðir landsins. Af gömlum bœjum norðan- og austanlands eru bœirnir að Glaumbœ, Laufási, Grenjaðarslað og Burstarjelli þekkt- astir, enda eru þeir undir umsjá þjóðminjavarðar. Reisulegastur og einna bezt varðveittur er bœrinn að Burstarfelli í Vopnafirði, sem mynd þessi er af, en hann er jafnframt eina íbúðarhús jarðarinnar. IVf jjsir kvöldwöknr Kirkjan. Messað á Akureyri kl. 2 e. h. á sunnudaginn kemur. — Æsku■ lýðsmessa. — Prófasturinn, séra Sig- urður Stefánsson á Möðruvöllum, pré- dikar. — Akureyrarprestar þjóna fyr- ir altari. — Jafnframt því sem þelta er almenn safnaðarguðsþjónusta, er hún sérstaklega œtluð skólafólki og öðrum œskulýð í bænum. Félagar, mætið í æsku- lýðsmessunni á 6unnu- daginn kl. 2 og livetjið aðra til þess að koma. Iðjuklúbburinn er í Alþýðuhúsinu n.k. sunnudag kl. 8.30 síðdegis. Mætið stundvíslega. Fimmtugur varð 10. þ.m. Vigfús Ein- arsson skrifstofumaður, Brekkugötu 30 hér i bæ. Skagjirðingafélagið á Akureyri minntist 10 ára afmælis síns síðastlið- inn laugardag með hófi að Hótel KEA. Við það tækifæri var Þormóður Sveins- son skrifstofumaður kjörinn heiðurs- félagi Skagfirðingafélagsins. K.A. Skíðakeppni. Keppni í stökki fer fram við Miðhúsaklappir næstk. laugardag kl. 3 og sunnudag kl. 2. Keppt verður í eldri og yngri flokkum. A sunnudag kl. 4 verður keppt í svigi, öllum flokkum, og fer keppnin fram í brekkunni sunnan og ofan við Mið- húsaklappir, neðan við Fálkafell. — Keppendur eru frá Reykjavík, Siglu- firði, Ólafsfirði, Dalvík og Akureyri. Ferðir á mótsstað frá Ferðaskrifstof- unni. — K.A. Aðaljundur K. A. var lialdinn að Hótel' KEA mánudaginn 18. marz kl. 8 e.h. — Skýrsla og reikningar stjórn- arinnar voru lesnir upp og samþykktir, rætt var um væntanlegt skíðalandsmót, ýmis íþróttamál o. fl. — í stjóm voru endurkosnir: Hermann Sigtryggsson, formaður, Leifur Tómasson, varafor- maður, og með þeim í stjóm vom kosnir: ísak Guðmann, Einar Kristj- ánsson, Haraldur Sigurðsson, Halldór Ólafsson, Jón Ágústsson og Skjöldur Jónsson. Frá Rauða Krossi íslands, Akureyr- ardeild. Auk þess, sem áður var frá greint um merkjasöluna á öskudaginn, komu 2 flokkar barna þann dag og færðu Rauða Krossinum peningagjafir annar kr. 185.00 og hinn kr. 40.00. Fyrir þessa hugulsemi þakkar Rauði Krossinn kærlega. Hjáskapur. 16. marz voru gefin sam- an í hjónaband ungfrú Þórdís Tryggvadóttir, Munkaþverárstræti 5, Akureyri, og Guðmundur Ketilsson frá ísafirði. Heimili þeirra verður að Munkaþverárstræti 5. Hlífarkonur, takið eftir\ — Félags- fundur verður haldinn sunnudaginn 24. marz kl. 9 e. h. í Pálmliolti, cf veð- ur leyfir, annars í Ásgarði. Farið frá Ferðaskrifstofunni kl. 8.45. Aðrir viðkomustaðir: Höepfner og Sundlaug. Takið kaffi með. Stjórnin. Eins og áður hefir verið frá skýrt, urðu nú um áramótin eig- andaskipti að tímaritinu Nýjar kvöldvökur. Seldi Þorsteinn M. Jónsson ritið, en kaupendur voru Jónas G. Rafnar, Gísli Jónsson og Kristján Jónsson. Ritstjórar að Nýjum kvöldvökum eru nú Jónas Rafnar fyrrv. yfirlæknir og Gisli Jónsson menntaskólakennari en frainkvæmdastjóri Kvöldvökuút- gáfunnar Kristján Jónsson full- trúi, og annast hann fjárreiður útgáfunnar, auglýsingar og af- greiðslu. Fyrsta hefti ritsins undir stjórn hinna nýju eigenda kemur út í þessari viku í sama broti og áð- ur, en forsíðu þess hefir frú Alice Sigurðsson teiknað. í ávarpi frá útgefendum er m. a. sagt: I. O. O. F. — 1383228% — Sp.k. 9Vz Spilakvöld heldur Starfsmannafélag Akureyrarbæjar í Landsbankasalnum annað kvöld (23. marz) kl. 20.30. — Félagsvist (frú Helga Jónsdóttir stjórn- ar). Dans á eftir. Námskeið fyrir hifreiðastjóra til meira prófs stendur yfir hér í bænum, og sækja það 53 bílstjórar. Norrœnafélagið. Aðalfundur verður haldinn að Hótel KEA n.k. sunnudag kl. 8.30 síðdegis. Eftir venjuleg aðal- fundarstörf, satneiginleg kafíidrykkja og kvikmyndasýning. Sunnudagaskóli Akureyrarkirkju er á sunnudaginn kemur. 13. mynd. 5—6 ára hörn í kapellunni, 7—13 ára hörn í kirkjunni. Mætið stundvíslega kl. 10.30 f. h. Skógrœktarfélag Tjarnargerðis held- ur félagsvist og dans miðvikudaginn 27. þ. m. kl. 8.30 e. h. í Landsbanka- salnum. Félagskonur fjölmenni og taki gesti með. Hafið með ykkur spil. Iljónaefni. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Lilja Frímanns- dóttir frá Dvergsstöðum og Eggert Ól- afur Jónsson, rafvirki, Þingvallastr. 14. Mœnusóttarbólusetning á fullorðnu fólki fer fram í Heilsuverndarstöðinni innan 6kamms, sjá auglýsingu héraðs- læknis í blaðinu í dag. „Tilgangur og stefna tímarits- ins verður óbreytt í höndum hinna nýju eigenda. Þeir munu eftir megni auka á fjölbreytni í efnisvali, þannig að sem flestir finni þar eitthvað, er til gamans og fróðleiks má verða, án þess þó, að hvikað verði frá hinni þjóðlegu slefnu, setn er og á að vera höfuðmarkmið tímaritsins. Lögð verður sérstök rækt við að leita uppi menn, er búa yfir sér- stæðri lífsreynslu og fá þá til að leysa frá skjóðunni. — Nýjar kvöldvökur telja sér og lesendum það mikið happ að hafa fengið hinn dulskyggna og listræna mann, Olaf Tryggvason í Hamra- borgum við Akureyrf, til þess að ríða á vaðið með frásögn af sinni lífsreynslu og dulrænuin fyrir- burðum .... “ Auk upphafsgreinarinnar, sem Ólafur í Hamraborgum skrifar af óvenjulega hugnæmum og leiftr- andi stíl, og væntanlegt er fram- hald af í næstu heftuin, flytur rit- ið þetta efni: Grein um Þorstein Þ. Þorsteins- son rithöfund og skáld, eftir Björn R. Árnason, fr-ásögn af við- ureign varðskipsins Ægis við brezka togarann York City í landhelgi, eftir Kristján Jónsson, kvæði eítir Hjört Gíslason og Þorstein Þ. Þorsteinsson, vísna- þátt, bridgeþátt (Halldór Helga- son), skákþátt (Júlíus Bogason), syrpu úr göinlum fræðum, upp- haf að framhaldssögum og niður- lag einriar, og margs konar smælki til gamans og fróðleiks. Er rit þetta í öllu hið ákjósanleg- asta lesefni. NÝ BÓK Þættir úr endurminningum Jóns Sveinssonar eru nýlega komnir í bókabúðir. Eru það æskuminningar Jóns Sveinssonar hdl., fyrrv. bæjarstjóra, frá Borg- arfirði eystra. Verður rits þessa nánar getið hér i blaðinu síðar. Ársskemmtun i Barnaskólans íór fram um síð- ustu helgi. Er skemmtun þessi, sem haldin er til ágóða fyrir ferðasjóð skólabarna orðinn fastur, árlegur liður í skemmt- analífi bæjarbúa. Skenuntiatriði voru að þessu sinni í svipuðum stíl og undan- farna vetur. Barnakór skólans söng undir stjórn Björgvins Jörgenssonar, börnin fluttu á- vörp, lásu upp, sýndu leikþætti o. s. frv. Nokkuð af dagskránni var helgað 100 ára minningu Páls J. Árdal. Var fluttur samtalsþáttur um skáldið, lesið upp úr verkum hans og sýndur þáttur úr einu leikrita hans. Allt fórst börnunum þetta vel úr hendi, en einna mesta athygli vakti flutningur Guðríð- ar Þórhallsdóttur k ávarpi til Fjallkonunnar eftir Davíð Stef- ánsson. Að liaki þessari ársskemmtun barnanna Hggur mikil vinna þeirra sjálfra og kennara þeirra, en bæjarbúar launa fyrirhöfnina með góðri aðsókn. Farmanoa- deilan ley«i —□— Skipin komin í siglingor á ný. Farmannadeilunni er nú lokið, en s. I. laugardag greiddu far- menn atkvæði um nýja miðlunar- tillögu, er samþykkt var með 76 atkvæðum gegn 67, og var verk- fallinu aflýst s. 1. sunnudag. Fóru sum hin bundnu farmskip þá þeg- ar úr höfn, en önnur strax úr helginni. Alþýðublaðið telur, að far- menn hafi fengið „miklar og mik- ^ ilvægar kjarabætur“ í hinuin nýju samningum, en þær eru einkum fólgnar í auknum fríum, aukinni áhættuþóknun á olíuskip- um, styttri vinnutíma, hækkuðuin launum fyrir yfirvinnu og greiðslu í slysatilfellum. Eru breytingar þessar í mörgum lið- um og verða ekki raktar hér. Alþýðublaðið ásakar Þjóðvilj- ann s. 1. þriðjudag fyrir að hafa „fjandskapast við farmenn í deilunni í stað þess að veita þeim stuðning í erfiðu verkfalli“, og vissulega hefðu það þótt tíðindi fyrir tveim til þrem árum, ef Þjóðviljinn hefði verið jafn þög- ull og hann hefir verið í sam- bandi við undanfarin verkföll. En kommúnistar eru nú einu sinni í ríkisstjórn, og svo eru verkföll bönnuð í þeirra andlega f öðurlandi! t Dánardægur Síðastliðinn þriðjudag lézt i Fjórðungssjúkrahúsinu frú Guð- rún Björnsdóttir Ilafnarstræti 86, kona Gunnars H. Kristjánssonar f ramkvæmdastj óra. Að kvöldi sama dags lézt að heimiii sínu Bjarmastí^2 Eggert St. Melstað, fyrrv. slökkviliðs- stjóri, 77 ára að aldri. Starlsmannaíél. Akureyrarbæjar hélt nýlega aðalfund sinn. — í stjórn félagsins voru kjörnir: Jón Norðfjörð, formaður, Gunnar Sleindórsson, ritari, Sigurður Halldórsson, gjaldkeri. Með- stjórnendur Þorsteinn Stefánsson og Steinunn Bjarman. Stórhríðdrmót Ahoreyror hófst s. 1. sunnudag með svig- keppni í Knararbergsgili, og voru keppendur 31 í 3 flokkum. í A- flokki sigraði Hjálmar Stefáns- son KA á 95.3 sek., annar varð Birgir Sigurðsson Þór á 100.5 sek. og þriðji Bragi Hjarlarson Þór á 100.6 sek. í B-flokki varð fyrstur Krist- inn Steinsson Þór á 96.5 sek. og í C-flokki Viðar Garðarsson KA á 77.4 sek. f eldri drengjaflokki vann ívar Sigmundsson KA, en í yngra flokki Magnús Ingólfsson KA. Sexlugur varð 15. þ. m. Tryggvi Hallgrímsson afgreiðslumaður Hría- eyjargötu 6. Stiórncirhlflð hælist yfir hauphshhonum í Alþýðublaðinu síðastlið- inn þriðjudag er íyrirsögn þvert yfir forsíðu, svohljóð- andi: „Farmenn fengu miklar og mikilvægar kjarabætur.“ Það hefir vakið nokkra furðu, að stjórnarblað skuli gera svo mikið úr verkfalls- árangri farmanna, eftir að stjórnarblöðin öll hafa hrósað ríkisstjórninni fyrir að hafa náð samkomulagi við stéttar- samtökin í landinu um, að eng- ar kauphækkanir skuli við- gangast fyrst uin sinn. Og mörgum kann að þykja vafa- sarnt, að flugmenn og farmenn hafi verið í brýnni þörf fyrir kauphækkanir og kjarabætur en sumar aðrar launastéttir hér á landi.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.