Íslendingur


Íslendingur - 17.05.1957, Blaðsíða 1

Íslendingur - 17.05.1957, Blaðsíða 1
Formannordðstefna Sjdlfs flohhsins um s.1. Rætt um þjóðmálin og skipulagsmál flokksins Dagana 11. og 12. þ. m. sat 3. formannaráðstefna Sjálfstæðis- flokksins á rökstólum í Reykjavík, en til hennar eru kvaddir for- menn Sjálfstæðisfélaga, héraðsnefnda og fulltrúaráða úr öilum kjördæmum landsins, en auk þeirra sækja þingmenn flokksins, fjár- málaráð, skipulagsnefnd og miðstjórn ráðstefnuna. Ráðstefnan hófst í Sjálfstæðis- húsinu síðdegis á laugardag. Formaður flokksins, Ólafur Thors fyrrv. forsætisráðherra, setti ráðstefnuna og kvaddi til fundarstjóra varaformann flokksins, Bjarna Benediktsson fyrrv. ráðherra, en hann tilnefndi sem fundarritara Baldvin Tryggvason skrifstofustj óra. Á ráðstefnunni voru mættir fulltrú- ar úr öllum kjördæmum landsins, nokkuð á annað hundrað, þar á meðal 5 fulltrúar héðan af Akur- eyri og tveir úr Eyjafjarðarsýslu. Fyrstur tók til máls formaður flokksins, Ólafur Thors, og ræddi í stórum dráttum stjórnmálavið- horfið og það ástand, er skapazt hefir við tilkomu núverandi rík- isstjórnar. Þvínæst talaði Birgir Kjaran, formaður skipulags- nefndar flokksins um skipulags- mál hans og starfsemi, en hann hefir nýlega tekið við því trún- aðarstarfi af Eyjólfi Jóhannssyni, sem nýlega baðst undan því eftir margra ára ötult starf. Að þesum tveim frumræðum loknum var fulltrúum gefið orð- ið, og söfnuðust þegar margir á mælendaskrá. Skýrðu fulltrúar þeir, er til máls tóku, frá félaga- starfsemi heima í héraði og við- horfum fólksins til aðgerða núver andi ríkisstjórnar. Á laugardags- fundinum tóku þessir fulltrúar til máls: Gunnar Bjarnason Hvanneyri, Guðmundur Erlendsson Núpi, Jónas G. Rafnar Akureyri, Ólaf- ur Bjarnason Brautarholti, Þor- valdur Garðar Kristjánsson Rvík, Páll Kolka Blönduósi, Baldvin Tryggvason Rvík, Sigurður Pálmason Hvammstanga, Ásberg Sigurðsson ísafirði og Sveinn Jónsson Egilsstöðum. Þegar allir þessir fulltrúar höfðu lokið máli sínu, var liðið á kvöld, en enn margir á mælenda- skrá. Var ráðstefnunni þá frestað til næsta dags, en þá tóku eftir- taldir fulltrúar til máls: Jón Bjarnason Akranesi, Stein- grímur Davíðsson Blönduósi, Gísli Jónsson Rvík, Jón ísberg Blönduósi, Birgir Kjaran Rvík, Bjarni Benediktsson Rvík, Jón Sumarliðason Dalasýslu, Sr. Jón- as Gíslason Vík, Gunnar Sigurðs- son Seljatungu, Karl Friðriksson Akureyri, Sigurður Bjarnason Rvík, Þórður Halldórsson Kefla- vík, Gunnar Helgason Rvík, Þorv. G. Kristjánsson Rvík, frú Kristín Sigurðardóttir Rvík, Friðrik Þórðarson Borgarnesi, Einar Reynis Húsavík, Magnús Jónsson alþm. og Gunnar Thor- oddsen borgarstjóri. Að lokum flutti Ólafur Thors ávarp til fulltrúa ráðstefnunnar, þakkaði þeim komuna og óskaði þeim góðrar heimkomu og vel- farnaðar. Um kvöldið komu flestir full- trúanna á ný saman í Sjálfstæðis- húsinu og horfðu á hinn bráð- snjalla gamanleik „Gullöldin okk- ar“, en að því loknu var dansað og ræðst við frarn yfir miðnætti. Var ráðstefna þessi öll hin á- nægjulegasta, og bundust margir þar kynnum, sem áður höfðu ekki hitzt. Ntjtía'fiiiuála fundBir Sjálfstæðismenn á Akureyri 09 í Eyjafjarðarsýslu Eialda almenn- an stjórnmálafund í Nýja Bíó n. k. sunnudag, 19. þ. m. kl. 2 e.h. RæSumenn á fundinum verSa al- þingismennirnir Cjarni Benedikts- son og Magnús Jánsson. Aðgangur a3 fundinum cr áll- um heimill, meðan húsrúm leytir. Lán til nýrrar Sogsvirkjunar Nýlega hafa verið undirritaðir samningar í Bandaríkjunum um lán til Sogsvirkjunarinnar nýju, er Vilhjálmur Þór bankastjóri hefir að undanförnu verið að leita eftir þar vestra. Lánið nem- ur um 118 millj. ísl. króna og tryggir það, að hafizt verði handa um virkjunina og lagningu háspennulínu til Keflavíkur, sem fyrirhuguð er í sambandi við ný- virkjun Sogsins. Áætlað hefir verið, að þessi framkvæmd kosti allt að 200 millj. króna með núverandi gengi peninga, og mun því síðar verða að leita frekari lána til að ljúka henni. Uiafur Thors, formaður Sjálfstœðisflokksins, flytur rœðu. Samnorræna sundkeppnin hin 3. i röðinni, hófst hér á landi í fyrradag. Fyrsta keppnin fór fram árið 1951, og unnu íslend- ingar hana með yfirburðum, en þá var miðað við hæstu hlutfalls- tölu íbúafjölda þjóðanna. Önnur keppni fór íram árið 1954, og var þá sigurinn miðaður við mesta hlutfallslega aukningu þátttöku frá hinni fyrstu keppni. Unnu Svíar þá keppni með rúm 2%. í öðru sæti urðu íslending- ar með rúmlega 25% þátttöku. Nú verða lagðar saman úrslita- tölur frá hinum fyrri keppnum báðum, og verður hér ekki gerð grein fyrir þeim reglum, er þar um gilda, en hitt er víst, að til þess að íslendingar vinni keppn- ina, þarf talsverða þátttökuaukn- ingu. Akureyri hefir í hinum fyrri keppnum staðið sig slælega sam- anborið við önnur bæjarfélög í landinu, en nú eru sundskilyrðin mjög hötnuð, þar sem útilaugin er upphituð og á margan annan hátt bætt. Verður hún opin frá kl. 8—22 daglega, og ættu þeir, sem taka vilja þátt í norrænu keppninni, en lítið hafa æft sund undanfarið, að hefja æfingar sem allra fyrst. Sundkeppnin hér í hæ var há- tíðlega opnuð í fyrradag við Sundlaugina kl. 8 að kvöldi með ávarpi, er formaður ÍBA, Ármann Dalmannsson flutti. Fánar allra Norðurlandaþjóðanna blöktu á stöngum við enda laugarinnar. Um 100 manns syntu 200 metr ana þá um kvöldið. Grasgarður (Botanisk Have) í Lysiigarðinn Fegrunarfélagið kaupir »grasgarðinn« í Fífilgerði Fyrir skömmu síðan samþykkti stjórn Fegrunarfélags Akureyrar að hafa forgöngu um kaup á jurtasafni Jóns Rögnvaldssonar garð- yrkj umanns í Fífilgerði í þeim tilgangi að flytja það í Lystigarðinn á Akureyri. Hefir nú verið gengið frá kaupunum af hálfu félagsnns, svo að tryggt er, að þetta merkilega og sérstæða safn flyzt ekki úr héraðinu, eins og út leit fyrir um skeið. Leitað til bæjarstjórnar. Félagið hefir sent bæjarstjórn Akureyrar erindi um mál þetta og mælzt til þess, að hún legði fram fé til þessara kaupa. Fylgdi erindinu svohljóðandi greinar- gerð (nokkuð stytt hér): „Að frumkvæði Sigurðar Páls- sonar, kom stjórn Fegrunarfélags Akureyrar á fund 30. marz s. I., til þess að ræða möguleika á því að koma upp grasgarði á Akur- eyri. Þannig er mál með vexti, að Jón Rögnvaldsson, garðyrkju- fræðingur í Fífilgerði, hefur nú selt jörð sína og flytur til Akur- eyrar. Jón hefur komið sér upp gras- garði í Fífilgerði eins og kunn- ugt er og hefur hann unnið að því um 30 ára skeið í hjáverkum með einstökum myndarbrag og dugnaði. í garði hans eru um 636 tegundir af fjölærum plönt- um, trjám og runnum, allt af út- lendum uppruna. Það þarf ekki að taka það fram, að þessi garður Jóns er fyrir löngu orðinn kunnur bæði innan lands og utan. Má telja, að þessi garður sé í raun og veru einasti grasgarður á íslandi hvað skipulag og uppsetningu viðvíkur. Nú liggur það hinsvegar fyrir, að Jón verður að leggja garð sinn niður og selja úr honum all- ar jurtir og runna, og mun Jón þegar hafa fengið tilboð um kaup á jurtasafni sínu. Fegrunarfélag- ið lítur svo á, að nauðsynlegt sé að hefjast handa í þessu efni og tryggja það að þetta merka jurta- safn verði ekki selt burtu úr hér- aðinu. Þá viljum við vekja athygli á því, að þar sem Jón Röngnvalds- son er ráðinn hjá Akureyrarbæ, sem garðyrkjuráðunautur, mundi hann að sjálfsögðu vinna að því að flytja safnið og koma því fyr- ir í Lystigarðinum og á þann hátt gæti hann fylgt því eftir og nyti þá við þekkingar hans á ræktun og meðferð þessara jurta og runna, sem hann hefir verið að fást við um árabil. Það er enginn efi á því að það yrði mikill menningarauki að Framh. á 6. siðu.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.