Íslendingur


Íslendingur - 17.05.1957, Side 8

Íslendingur - 17.05.1957, Side 8
KAUPENDU* vinsamlega beðnir að tilkynna af- greiðslunni strax, ef vanskil eru á blaðinu. J*. . Jk Föstudagur 17. maí 1957 5. síðan í dag: Æskan og framtíðin Messað í Akureyrarkirkju næstkom- andi sunnudag kl. 2 e. h. — Sálmar nr.: 17 — 404 — 223 — 226 — 241. — K. R. Kirkjan. I’erming í Lögmannshlíðar- kirkju kl. 2 e. h. á sunnudaginn kem- ur. x— Sálmar nr.: 594, 372, 590, 648, 596, 599, 603, 591. — P. S. — Ferm- ingarbörn: Drengir: Georg Bagguley, Ósi, Glerárþorpi. — Haukur Þor- steinsson, Blómsturvöllum. — Ingvar Bakeman Baldursson, Hlíðarenda. — Kristján Viðar Pétursson, Barði. — Nils Erik Gíslason, Lögmannshlíð 21. — Stefán Rafn Valtýsson, Melgerði. — Þórarinn S. Magnússon, Sunnu- hvoli. — Stúlkur: Hervör Jónasdóttir, Litlu-Hlíð. — Ilulda Lilly Árnadóttir, Lögmannshlíð 33. — Jakobína Þ. Gunnþórsdóttir, Steinkoti. — Kristín G. Gunnlaugsdóttir, Fögruvöllum. — Lilja Þ. Kristjánsdóttir, Hrauni. — Rósa Björg Guðbrandsdóttir, Föðru- hlíð 58. I. 0. 0. F. — 139517814 — III. Gróðursetning er nú að hefjast hjá Skógræktarfélagi Eyfirðinga og deild- um þess. Afgreiðsla á trjáplöntum frá félaginu er einnig að hefjast. Fer hún fram í Gróðrarstöðinni samkvæmt aug- lýsingu á öðrum stað hér í blaðinu. Hjónaejni. Nýlega opinberuðu trú- lofun sína ungfrú Hulda Ottósdóttir, hjúkrunarnemi, og Hreinn G. Þormar, litarefnafræðingur á Akureyri. Unglingar í sveit. Vinnumiðlunar- skrifstofa Akureyrarbæjar mælist til þess, að bændur, nær og fjær, sem hafa þörf fyrir unglinga á aldrinum 12—16 ára á næstk. sumri, hafi sam- band við skrifstofuna hið fyrsta. Sími skrifstofunnar er 1169. Akureyringar! Munið mæðradaginn á sunnudaginn. Kaupið blóm á götum bæjarins og styrkið hið góða málefni. Sextugur varð 14. þ. m. Stefán Ág. Kristjánsson framkvæmdastjóri Eiðs- vallagötu 6. ÞÓR. Frjálsíþróttamenn. Æfingar á öllum virkum dögum kl. 7.30 e. h. — Innanfélagsmót á hverjum miðviku- degi á sama tíma. Þórsjélagar! Munið samnorrænu sundkeppnina. Látið ekki ykkar hlut eftir liggja. — Stjórnin. Skógrœktarjélag Akureyrar fer næstu gróðursetningarferð í Kjarna næstk. þriðjudagskvöld. Farið verður frá Hótel KEA kl. 7.30 e. h. — Félagið væntir þess, að bæjarbúar verði, eins og áður, fúsir til aðstoðar við gróður- setningarstarfið, bæði með sjálfboða- vinnu og bifreiðaakstur að' og frá vinnustað. — Tryggvi Þorsteinsson, form. Skógræktarfélags Akureyrar, sér um ferðirnar og tekur á móti til- kynningum um sjálfboðavinnu. Sjötugur varð 12. þ. m. Tryggvi Jón- asson frá Kjarna. i dag eru liðin 10 ár frá komu Kaldbaks, fyrsta togarans, sem Akureyringar hafa eignazt. Með komu hans hófst togaraútgerð í þessum gamla útgerðarbæ, er á næstu árum færðist svo í aukana, að nú um margra ára skeið hafa 5 togarar verið reknir héðan úr bænum og haft óútreikanlega þýðingu fyrir atvinnulíf bæjar- ins og afkoniu bæjarbúa. Það var fjölmennt á Torfunefs- bryggju, er Kaldbak var lagt að henni 17. maí 1947. Við það tækifæri flutti Þorsteinn M. Jóns- son, þáverandi forseti bæjar- stjórnar ávarp af stjórnpalli skipsins, en Guðmundur Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Út- gerðarfélags Akureyringa h. f. lýsti gerð togarans. Um kvöldið var komu togarans fagnað að Hótel KEA, og eitt af skáldum bæjarins, Friðgeir H. Berg, fagn- Fréttir úr A-Húnavatass. Blönduósi, 13. maí. Fimmtugsafmæli átti frú Ingibjörg Stefánsdóttir Ijósmóðir hér á staðnum þann 8. þ. m. Margir heimsóttu hana af þessu “tilefni og færðu henni heilla- óskir og góðar gjafir. Frú Ingibjörg er ein af þeim manneskjum, sem öllum verður hlýtt til, strax við fyrstu kynn- ingu. Silfurbrúðkaup áttu þann 8. þ. m. hjónin Þóra Sigurgeirsdóttir og Snorri Arnfinnsson hinu landskunni og vin- sæli hóteleigandi á Blönduósi. Sama dag voru gefin saman í hjónaband í Blönduóskirkju af séra Þorsteini Gíslasyni prófasti í Steinnesi ungfrú Kolbrún Ingjaldsdóttir frá Akureyri og Kári Snorrason, Arnfinnssonar hót- eleiganda. Þann 8. þ. m. átti frú Friðrikka Steingrímsdóttir á Kagaðarhóli 80 ára afmæli. Árshátíð Kvennaskólans var haldin hér í samkomuhúsinu þann 11. þ. m. G.J. aði honum í ljóði, er endaði með þessum orðum: B "ó* K ,-n á * n5 2 (#» I? <t, Eigðu jafnan örugga — og aflasæla formenn og forstjóra — á flæði og landi, aldrei setjist úlfúð á þinn bekk. Og þetta varð að áhrínsorðum. Fyrstur skipstjóra á Kaldbak varð einmitt aflasælasti togara- skipstjóri landsins, Sæmundur Auðunsson, og fór hann með skipstjórn togarans fram í nóv- ember 1950, er hann tók við tog- aranum Harðbak. Þá var bróðir hans, Gunnar, með togarann fram að 1. ágúst 1956, en síðan hefir Jónas Þorsteinsson verið skipstjóri hans. Fram til síðustu áramóta hafði Kaldbakur aflað ísvarins fiskjar á erlendan markað og í herzlu og íshús innanlands, er nam 35 þús- und tonnum, en auk þess 6300 tonnum af saltfiski. Loftlei5ir fjölgi ferðum í vetur hafa Loftleiðir haldið uppi fjórum ferðum í vilcu hverri frá Reykjavík til Banda- ríkjanna og flugstöðva Loftleiða á meginlandi Evrópu og í Bret- landi. Starfsemi félagsins á mjög auknum vinsældum að fagna, og hafa flutningar aukist verulega yfir vetrarmánuðina miðað við sama tímabil í fyrra. Fjöldi þeirra, sem ferðast með flugvélum félagsins vex nú óð- fluga með viku hverri, einkum frá Bandaríkj unum, en ferða- menn eru nú teknir að streyma þaðan til þess að verja sumar- leyfum sínum í Evrópu. Loftleiðir hófu nýlega ferðir samkvæmt hinni nýju sumgráætl- un, en með henni verður sú breyting á, að teknar verða upp daglegar flugferðir milli Banda- ríkjanna og flugstöðva félagsins í Evrópu. Happdrætti SjúWii Miðar í happdræM-i Sjólfstæð- isflokksins fóst í skrifstofu fiokksins Hafnarstræti 101, ó af- grciðslu íslendings, Verxl. Vísi og Verxl. Höfn. Dregið verður 12. júni um 10 yinningc. 1. vinningur er Vollcs- Wagen, modcl 1957, aðrir vinn- ingar flugferðir til ýmissc landa. Aðeins fáir miðor eru til sölu hér ó staðnum. Lágheiði mokað Ólafsfirði í gær: Hér hefir verið norðaustan kuldanæðingur undanfarið, en úrkomulítið. Fer gróðri hægt fram. Bátar hafa ekki róið síðan á mánudag, og var afli þá tregur. Þó kom Stígandi þann dag með 9 tonn, er hann hafði fengið aust- ur undir Rauðunúpum. Verið er að moka Lágheiði, og er snjór þar minni en við var bú- izt. Gengur verkið vel, og verður því væntanlega lokið upp úr helg- inni og heiðin þá opnuð fyrir bif- reiðaumferð. S. M. Suðurlandafcrðir |Páls Arasonar Ferðaskrifstofa Páls Arasonar efnir til tveggja utanlandsferða í júnímánuði. í fyrri ferðina verð- ur lagt af stað 5. júní og komið heim 27. eða 28. s. m. Viðkomu- staðir verða: England, Frakkland, Þýzkaland, Sviss, Ítalía, Austur- ríki og Danmörk. Síðari ferðin er 16 daga ferð til Bretlands, Frakklands, Ítalíu, Monaco og Þýzkalands. í þá för verður lagt 15. júní og komið heim um æstu mánaðamót. Ferðalög þessi eru miðuð við að þátttakendur geti fengið sem bezta innsýn í líferni og háttu þeirra staða, sem komið verður til og kynnzt lífi þeirra af eigin raun. Ferðaskrifstofa Páls Arasonar hefir umboð fyrir ferðaskrifstof- ur í öðrum löndum og skipulegg- ur hópferðir suður um lönd í samráði við þær. N. k. föstudag og laugardag verður staddur að Hótel KEA hér í bæ fulltrúi frá skrifstoíunni og mun hann veita fólki allar upplýsingar um ferðalögin, b'æði utan lands og innan. NÝJA-BÍÓ Fallhlífarhersveítin Spennandi amerísk litkvikmynd, byggð á sögunni The Red Beret. Myndin gefur glögga hugmynd um þátt fallhlífarhersveitanna í sfðasta stríði. ASalhlutverk: ALAN LADD og SUSAN STEPHEN Bönnuð jyrir börn. DOROTHY EIGNAST SON Bráðskemmtileg og fjörug ensk gamanmynd, gerð eftir hinum al- kunna, samnefnda gamanleik, er Leikfélag Reykjavíkur sýndi fyrir nokkrum árum. ASalhlutverk: SHELLEY WINTERS JOHN GREGSON. BORGARBÍÓ Sími 1500 Aðalmynd vikunnar: Árásin á Tirpitz Brezk, sannsöguleg stórmynd, er fjallar um eina mestu hetju- dáð síðustu heimsstyrjaldar. Aðalhlutverk: JOHN MILLS DONALD SINDEN JOHN GREGSON Iúííbs Bogason varð tiraðsháhmeistari Hraðskákmóti Akureyrar er ný- lokið. Þátttakendur voru alls 28. Keppt var fyrst í 2 riðlum, og kepptu síðan 7 efstu menn úr hvorum riðli saman til úrslita, eða 14 talsins. Hæstur að vinningum og þar með Hraðskákmeistari Akureyrar varð Júlíus Bogason skákmeist- ari. Hlaut hann ÍO1/^ vinning. — Næstir urðu Margeir Steingríms- son með 10 vinninga, Kristinn Jónsson og Halldór Helgason með 8^/2 vinning hvor og Snorri Rögn valdsson með 8 vinninga. Ingi- mar Jónsson skákmeistari Norð- urlands var fjarverandi, er mótið var háð. Leiðrétting. í lista yfir brautskráða nemendur úr Iðnskóla Akureyrar, mis- ritaðist Kristinn Árnason, ketil- og plötusm., átti að vera Kristján Árna- son, og leiðréttist þetta hér með.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.