Íslendingur - 05.07.1957, Blaðsíða 3
Fostudagur 5. júlí 1957
ÍSLENDINGUR
3
Magntis Jónsson, alþingismaður:
Áígreiðsla Alþingis á málelnun
Eylirðinga
Góð samvinna þingmanna Eyfirðinga
um málefni héraðsins
Mér þykir hlýða, nú að loknu þingi, að gera Eyfirðingum, eins
og undanfarin ár, grein fyrir afgreiðslu Alþingis á þeim málum, er
sérstaklega varða Eyfirðinga.
Er þar þá fyrst og fremst um að ræða fj árveitingar til ýmissa
framfaramála í héraðinu, en auðvitað eru svo ýmis önnur löggjaf-
aratriði, sem beint og óbeint snerta Eyfirðinga, eins og aðra lands-
menn, en það yrði of viðamikið að rekja öll þau mál.
Þótt freistandi væri að gera einnig að umtalsefni þau nýju við-
horf, sem skapazt hafa í sambandi við tilkomu hinnar svokölluðu
vinstri stjórnar og hina kynlegu og nýstárlegu starfshætti hennar
á ýmsum sviðum, þá mun ég einnig láta það bíða betri tíma og
snúa mér beint að hinu sérstaka viðfangsefni þessarar yfirlits-
greinar.
Eins og oft áður eru hafnar-
gerðirnar þurftarfrekastar þeirra
opinberu framkvæmda, sem ætl-
unin er að vinna að í Eyjafirði í
sumar, enda hljóta hafnargerðir
að vera mikilsvert viðfangsefni í
héraði, þar sem eru svo mörg
sjávarpláss, sem eiga afkomu sína
undir sjávarútvegi og samgöng-
um á sjó. Er ætlunin að vinna í
sumar að liafnargerðum á sex
stöðum og er víða um töluvert
átak að ræða.
Heildarfjárveiting til hafna í
Eyjafirði hefir hækkað allveru-
lega frá því í fyrra og er nú
1.050.000 kr. en var í fyrra
578.000. Stafar þessi hækkun að
verulegu leyti af því, að nú er
gert ráð fyrir meiri framkvæmd-
um en í fyrra.
Ólafsfjörður. — Á undanförn-
um árum hefir miðað vel áleiðis
með Olafsfjarðarhöfn, en þó er
þar enn mikið ógert. Mikilvægast
er nú að ganga frá bátalegunni
í innri höfninni, því að það hefir
verið mesta vandamál bátaeig-
enda í Ólafsfirði, að geta ekki
haft báta sína óhulta í höfninni
í vondum veðrum.
í fyrra var unnið allmikið við
bátakvína, en lokaátakið er eftir.
Veittar eru til hafnarinnar í ár
150 þús. kr. Þar sem þessi fjár-
veiting er nokkru lægri en til
ýmissa annara hafna við Eyja-
fj örð, þykir mér rétt að taka
frain, að orsökin er ekki sú, að
hlutur Ólafsfjarðar hafi verið
fyrir borð borinn, heldur hefur
hluti ríkissjóðs að undanförnu
verið greiddur það jafnóðum,
að ekki er um neina teljandi
skuld að ræða.
Grímsey. — Grímseyingar hafa
hvað eftir annað orðið fyrir
mj ög alvarlegum áföllum með
hafnargerð sína. í fyrst lagi varð
hafnargerðin meira en helmingi
dýrari en gert hafði verið ráð
fyrir. I öðru lagi brotnaði hafn-
argarðurinn í fyrravetur, og
munu þær skemmdir hafa valdið
um 250 þús. kr. aukakostnaði við
hafnargerðina, og í þriðja lagi
varð það undarlega óhapp í vet-
ur, að undirstaðan gliðnaði und-
an kerinu fremst í hafnargarð-
inum, svo að það sprakk frá
garðinum. Má gera ráð fyrir, að
viðgerð kosti allt að því jafn mik-
ið og tjónið, sem varð á garðin-
um í fyrravetur. Er hér augljós-
lega um svo alvarlegt áfall að
ræða fyrir lítið sveitarfélag, að
til verður að koma alveg sérstök
aðstoð ríkisvaldsins. Vonandi
reynist auðið að gera nú í sumar
við þær skemmdir, sem urðu á
garðinum í vetur, og eru í sam-
bandi við þetta mikla vandamál
Grímseyinga skylt að þakka hæði
fyrrverandi hafnarmálaráðherra
og fyrrverandi og núverandi fjár-
málaráðherra, sem nú fer einnig
með hafnarmál, fyrir góðan skiln-
ing.
Til Grímseyjarhafnar eru veitt-
ar í fjárlögum 280 þús. kr. Er þá
gert ráð fyrir, að greiddur sé að
mestu leyti lögboðinn hluti ríkis-
sjóðs af kostnaði við hafnargerð-
ina, og er upphæð fjárveitingar-
innar miðuð við það sérstaka
vandamál, sem þarna hefir skap-
azt.
Dalvík. — Nú um skeið hefir
ekki verið unnið nema að minni-
háttar aðgerðum á Dalvíkurhöfn,
en nú er mikill áhugi hjá sveitar-
stjórn og hafnarnefnd að gera
stórt átak, til þess að bæta að-
stöðu í höfninni. Er hér um mik-
ið nauðsynjamál að ræða, þótt
hætt sé við, að hinn mikli láns-
fjárskortur kunni að tefja eitt-
hvað þessar framkvæmdir. Veitt-
ar eru til hafnarinnar í ár 200
þús. kr.
að heimila ríkisstjórninni að taka
allt að 25 millj. kr. lán til þess að
greiða vangoldin framlög ríkis-
sjóðs til hafnargerða og til þess
að lána sveitarfélögum eftir nán-
ari ákvörðun ríkisstjórnarinnar.
Mun sennilega hafa vakað fyrir
þessum þingmönnum að prófa á-
huga ríkisstjórnarinnar á mál-
inu.
Af einhverjum duldum ástæð-
um kom tillaga þessi aldrei ti) at-
kvæða. Við fulltrúar Sjáifstæðis-
flokksins í fjárveitinganefnd tók-
um þá tillöguna upp efnislega lít-
ið breytta, en stjórnarliðið sarn-
einaðist um að fella hana. Er
næsta kynlegt, að ríkisstjórnin
skuli ekki einu sinni vilja fá
heimild til lántöku þessarar, ef á
hugi er á að leysa málið.
Magnús Jónsson alþm.
Hrísey. — Gagngerðar endur-
bætur voru gerðar á bryggjunni í
Hrísey á sl. sumri. Var þar um
mikið átak að ræða, og mun
kostnaður hafa orðið um 1.2
millj. kr. Enn er þó allmikið ó-
gert og er gert ráð fyrir að fyrir-
hugaðar fj;amkvæmdir j. ár muni
kosta allt að % millj. króna. Er
mikilvægt að geta lokið þessuin
fyrirhuguðu framkvæmdum. Til
Hríseyjarhafnar eru veittar í ár
200 þús. kr.
Hauganes. — Byrjað var lítið
eitt á hafnargerð að Hauganesi í
fyrra sumar, en hin litla bryggja
þar er orðin algerlega ófullnægj-
andi fyrir bátana. Áhugi er á því
heima fyrir að ljúka í sumar við
næsta áfanga, sem mun kosta allt
að 700 þús. kr. Veittar eru í fjár-
lögum 170 þús. kr. til hafnargerð
ar á Hauganesi.
Litli-Árskógssandur. — Mikil
þörf er á, að lengjia nokkuð
hryggjuna á Litla-Árskógssandi,
en til hafnarbóta þar hefir ekki
verið lagt fé ,um langt skeið.
Veittar eru nú í ár 50 þús. kr. til
hafnarbóta að Litla-Árskógs-
sandi.
Lán fil hafnargerða.
Eins og nú er ástatt á lána-
markaðinum má heita ógerlegt
fyrir sveitarfélögin að fá lán til
þess að greiða sinn hluta af
kostnaði við hafnargerðirnar, auk
þess sem sveitarfélögin verða oft
um sinn að leggja fram hluta rík-
issjóðs að meira eða minna leyti.
Núverandi ríkisstjórn hefir
lýst því yfir, að hún hefði mik-
inn áhuga á að taka lán til hafn-
argerða í landinu. Við 2. umræðu
fjárlaga fluttu þrír af þingmönn-
um Sósíalistaflokksins tillögu um
Vegir.
Vegirnir eru ekki síður nauð-
synlegar samgönguleiðir en hafn-
irnar, og fyrir sveitirnar hafa
vegirnir sömu þýðingu atvinnu-
lega og hafnirnar fyrir sjávar-
plássin.
Eyjafjarðarsýsla má teljast
sæmilega vel veguð, en þó vantar
enn allmikið á að viðunandi
vegasamband sé um héraðið, og
ennfremur er sá galli á gjöf
Njarðar, að tveir aðalvegir hér-
aðsins, Dalvíkurvegur og Eyja-
fjarðarbraut, eru það gamlir veg-
ir, að nauðsynlegt ei að endur-
byggja þá á stórum köflum. Að
því hefir nokkuð verið unnið a
síðustu árum, en þó má betur, ef
duga skal.
Það munu hafa orðið mörgum
mikil vonbrigði, þegar núverandi
ríkisstjórn, sem þó lelur sig sér
staklega vilja berjast fyrir hags
munum strj álbýlisins, sá sér ekki
fært að hækka fjárframlög til ný-
byggingu vega að neinu ráði. í
fyrra var fj árveitingin til vega-
gerða hækkuð um tæpar 4 millj.
kr. miðað við árið áður, en nú í
ár er hækkunin aðeins um 1
millj. kr., og engin hækkun er á
fjárveitingu til endurbyggingar
þjóðvega, sem er mjög mikið
hagsmunamál þessa héraðs. Fjár-
veitingar til annarra verklegra
framkvæmda hækkuðu yfirleitt
um 20% í meðförum fjárveit-
inganefndar, þó að fj árveitingar
til verklegra framkvæmda í fjár-
lagafrumvarpinu hefðu verið
skornar niður um fullar 8 millj.
kr. Treysti stjórnarliðið sér ekki
til að lialda þeirri lækkunarstefnu
til streitu með hliðsjón af aug-
lýstum áhuga sínum á hag strjál-
lög lil verklegra framkvæmda, en
sú tillaga okkar var felld. Niður-
staðan er því sú, að fjárveiting
til vega í Eyjafirði, svo sem í
öðrum héruðum, er nú að mestu
leyti sú sama og á sl. ári og þv'í
sýnt að framkvæmdir verða nú
minni en þá með hliðsjón af
hinni stórauknu dýrtíð.
Fjárveitingar til einstakra vega
í Eyjafjarðarsýslu nú eru sem
hér segir (talið í þús. kr.):
Múlavegur ............. 200
Lágheiðarvegur ......... 85
Olafsfjarðarv. (eystri) 40
Hrísavegur ............. 30
Ilörgárdalsv. (ytri) .. 100
Hörgárdalsv. (innri) . . 25
Vatnsendavegur ......... 85
Laugalandsvegur .... 35
Djúpadalsvegur ......... 30
Samtals eru fj árveitingar til
vega í Eyjafjarðarsýslu í ár 630
þús. kr., en að auki er svo fram-
lag til ræktunarvegar 1 Grímsey
10 þús. kr. og ræktunarvegar í
Hrísey 8 Jiús. kr.
Stærsta framkvæmdin í vega-
málum Eyfirðinga nú er Múla-
vegur. Er það mikið hagsmuna-
mál að ljúka þeirri vegagerð sem
fyrst, eigi aðeins fyrir Ólafsfirð-
inga, heklur einnig Dalvíkinga og
raunar fleiri nærliggjandi sveit-
ír. Á s.l. ári voru veittar til Múla-
vegar 200 þús. kr. í fjárlögum og
auk Jiess 50 Jnis. kr. af fjallvega-
fé, sem var loforð frá árinu áður.
Fjárveiting til þessa vegar í ár er
óbreytt, en samtímis er íjárveit-
ing til Siglufjarðarvegar ytri
liækkuð úr 100 Jiús. kr. í 500 þús.
kr. Er Jiar um nauðsynjamál að
ræða fyrir Siglfirðinga, sem eigi
skal eftirtalið. Lítil sanngirni
virðist þó í Jiví að hækka þá ekki
einnig fjárveitingu til Múlavegar.
Bar ég fram tillögu um, að fjár-
veiting til hans yrði einnig 500
þús. kr., en stjórnarliðið samein-
aðist um að fella þá tillögu.
Við Jiingmenn Eyfirðinga höf-
um lagt á það áherzlu við vega-
málastjórnina, að veitt verði fé af
benzíngjaldi til Múlavegar og enn-
fremur verði í ár veitt fé til end-
urbyggingar þeirra kafla á göml-
um vegum í Eyjafirði, sem mesl
þörf er að endurbyggja.
Brýr.
Veitt er til brúar á Hafraá 115
þús. kr. Er það síðari fjárveiting
og gert ráð fyrir, að hægt -verði
að byggja brúna fyrir það fé,
sem þegar er veitt.
Skólar.
Veittar
býlisins og þeirri miklu hækkun,
sem sýnileg var á útgjöldum rík- barnaskóla
issjóðs á öðrum sviðun#.
Við Sj álf stæðismenn í fjár-
veitinganefnd bárum frani tillögu
um það, að fjárveitingar til ný-
byggingar vega, endurbyggiugar
vegar og fjallvega yrðu hækkað-
ar hlutfallslega við önnur fram-
eru 105 Jiús. kr. til
á Dalvík
og 40 Jiús. kr. til byggingar
barnaskóla í Svarfaðardal. —
Er hér að sjálfsögðu um ó-
fullnægjandi fjárveitingar að
ræða, en þaðr eru í samræmi við
fjárveitingar til annarra skóla.
Framhald á 9. síðu.