Íslendingur - 05.07.1957, Blaðsíða 6
6
ÍSLENDINGUR
Föstudagur 5. júlí 1957
Kemur nt
hvern föstudag.
Útgefandi: Útgáfufélag islendings.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jakob Ó. Pétursson. Fjólug. 1. Siim 1375.
Skrifstofa og afgreiðsla í Gránufélagsgötu 4. Sími 1354.
Opin kl. 10—12, 1—3 og 4—6, á laugardögum 10—12.
Prenlsmiðja Björns Jónssonar h.f.
Tveir af hnndraði
Þá hefir niðurjöfnunarskráin
yfir útsvör borgaranna verið lögð
fram, og þar sjáurn við svart á
hvítu, að okkur er gert að greiða
hálfa átjándu milljón króna í
hæjarsjóð með útsvörunum ein-
um saman, en það er nær tvöfalt
hærri upphæð en við greiddum
fyrir þremur árum síðan.
Við erum ekkert óvanir háum
útsvörum hér í bæ, og væri að
sjálfsögðu fátt utn slíkt að segja,
ef bærinn stæði í stórfelldum
framkvæmdum til hagsbóta og
þæginda fyrir borgarana, svo
sem mikilli malbikun gatna. Svo
er þó ekki. Göturnar lengjast að
vísu ár frá ári um hið nýja
„dreifbýli“ bæjarins, en þær
batna ekki að sama skapi, enda
er hverfandi litlu fé varið til að
steypa eða malbika helztu um-
ferðargöturnar. Megnið af því fé,
sem varið er til vega og ræsa, og
áætlað er á þessu ári 2 milljónir
króna, fer í að leggja nýja vegi
og holræsi um ný byggðahverfi,
þótt mannfjölgun sé lítil sem eng-
in í bænum, og verður vi?hald
þessa óeðlilega langa vega- og
holræsanets því annaðhvort lélegt
eða dýrt, ef ekki hvorttveggja.
En þetta er þó aðeins önnur
hlið málsins. Hitt alriðið, sem er
öllu alvarlegra, er sú staðreynd,
að hér eru gjaldendurnir ekki
jafnir fyrir útsvarsálögunum, sem
byggist eins og kunnugt er á 36
ára gamalli sérréttindalöggj öf,
löngu úreltri. Og með tilkomu
veltuútsvaranna varð mismunun
við útsvarsálögurnar gerð meiri
en áður.
Hér á Akureyri er samvinnu-
reksturinn mun umfangsmeiri
hlutfallslega en í nokkru öðru
bæjarfélagi á landinu og fer jafnt
og þétt vaxandi í verzlun og iðn-
aði og fleiri greinum. Það fer því
að vonum, að því meiri hlut, sem
hann tekur af heildarverzlun og
iðnaði í bænum, þeim mun
þyngri verða útsvörin á einstakl-
ingunum.
Kaupfélag Eyfirðinga greiðir
nú 350 þús. króna úfsvar, en það
nemur 2% — fveimur af hundr-
aði — af heildarupphæð úfsvar-
anna. Ekki mun fjarri lagi að
felja það fyrirfæki hafa um helm-
ing verzlunar og verksmiðjufram-
leiðslu í bænum, þeim atvinnu-
rekstri, er í hverju bæjarfélagi
sfendur undir meginþunga útsvar-
anna. ffvernig mú slíkt vera?
spyrja menn.
Og það er von menn spyrji.
Nýlega var skýrt frá því í blöð-
um, að vörusala KEA sl. ár hefði
numið 220 millj. króna. Af sölu
þeirri er greitt frá 0.4.—0.75%
Útsvörin 11,5 lilljónir kr.
veltuútsvars, sé liún í höndum
einstalclinga. Það mun ekki frek-
iega áætlað, að meðalveltuálag
nemi hér 0.6%, og hefðu því ein-
staklingar orðið að greiða af
slíkri verzlunarveltu 1.320.000.00
krónur, eða nærfellt milljón krón-
um meira en allt útsvar KEA er.
Þetta furðulega fyrirbæri er
þannig til komið, að samvinnu-
félögin hafa komizt undan álagn-
ingu veltuútsvars á viðskipti við
félagsmenn, en það þýðir, að
meginhluti vörusölunnar sé und-
anþeginn veltuútsvari.
ojan á þau jríðindi, er sam-
vinnulöggjöjin gatnla veitir
jélögunum í útsvarsálagningu.
Það er vegna þessa ástands í
bæjunum, að eftirfarandi tillaga
var samþykkt á kaupstaðaráð-
stefnunni á Isafirði sl. haust:
„Bæjarfélögum og sveitarfé-
lögum, þar sem samvinnufélög
eru staðsett, hcimilist að lcggja
vcltuútsvör á rekstur samvinnu-
félaga a sama hútt og rekstur
einstakfinga og hlutafélaga."
Ekkert hefir heyrzt um undir-
tektir ríkisstjórnarinnar við þessa
sanngjörnu og sjálfsögðu tillögu,
en nauðsynlegt er, að taka þegar
í stað upp baráttu fyrir því, að
allir beri byrðarnar að sínum
hluta. Þær forsendur, er á sínum
tíma voru fyrir skattaívilnunum
samvinnufélaganna eru löngu
fallnar fyrir borð, eftir að íélög-
in hafa safnað sér milljónasjóð-
um og gerst „ríki í ríkinu“. Og
sérstaklega verða Akureyringar
að fylgja fast eftir þeirri kröfu,
útsvarsgjaldendurnir, sem álög-
urnar eru að sliga, meðan um
helmingur verzlunar og iðnaðar-
framleiðslu í bænum greiðir að-
eins tvo af hundraði útsvarsupp-
hæðarinnar.
TOGARARNIR
Kal.dbakur kom til Reykjavík-
ur 19. júní og landaði þar 235
tonnum af ísvörðum fiski. Fór
þar i slipp og aftur á veiðar 27.
júní.
Svalbakur kom til Ólafsfjarðar
26. júní og landaði þar 283 tonn-
um af ísvörðum fiski. Fór aftur á
veiðar 28. júni.
Harðbakur kom til Akureyrar
1. júlí og landaði þar 180 tonn-
um af saltfiski. Landaði á Sauð-
árkróki í sömu ferð ca. 30—40
tonnum af karfa. Fór aftur á veið-
ar 2. júlí.
Sléttbakur fór á veiðar til
Grænlands 26. maí. Veiðir í salt.
Mun vera að ljúka við veiðina.
Niðurjöfnun útsvara í Akur-
eyrarkaupstað er nú lokið, og
liggur skráin yfir gjaldendur og
útsvarsupphæð hvers og eins
frammi í skrifstofu bæjarins.
Jafnað var að þessu sinni nið-
ur kr. 17.490.200 á 2581 gjald-
endur. (1 fyrra 13.6 millj.) Hefir
útsvarsupphæðin á einu ári liækk-
að um hartnær 4 millj. Niður-
jöfnunarnefnd notaði sama álagn-
ingarstiga og í fyrra. Þá varð hún
að leggja 8% ofan á hann til að
ná tilskilinni upphæð, en nú 10%.
Að ekki þurfti meiri hækkun á
stigann nú, stafar af því, að marg-
ir gjaldendur hafa haft nokkru
hærri tekjur að krónutölu árið
1956 en árið á undan (en það ár,
1955, var t. d. mánaðarverkfall
hjá verkamönnum i bænum).
Hér fer á eftir skrá yfir þá út-
svarsgjaldendur, sein hafa kr. 20
þús. og þar yfir:
Þás. kr.
350.900
132.000
130.900
108.400
81.100
63.400
55.100
, 52.450
51.400
48.950
47.300
i. 46.050
43.350
41.600
38.800
34.400
33.450
32.400
32.250
32.200
Kaupfélag Eyfirðinga
Utgerðarfélag Ak. h.f.
Samb. ísl. samvinnuf.
Amaro-klæðagerð h.f.
Súkkulaðiv. Linda h.f.
Kafíibrennsla Ak. h.f.
Byggingav. T. Bj. h.f.
Kristján Kristjánsson
Thorarensen, Oddur
Laxdal, Bernharð
Guðm. Jörundsson
Atli véla- og plötusm. h,
Slippstöðin h.f.
Þórshamar h.f.
Útgerðarfél. KEA h.í.
Olíuverzlun Islands h.f.
Kr. Jónsson Þingv.str.
Valhöll h.f.
Valbjörk h.f.
Bernharð Stefánsson
Sig. Jónsson Skólastíg 31.750
Brynj. Sveinsson Skólastíg 30.800
Bílasalan h.f. 30.600
Tómas Björnsson 29.400
Guðm. K. Pétursson 27.200
Jónas Traustason Asveg 26.950
Friðjón Skarphéðinsson 26.550
Jakoh Frímannsson 26.500
Helgi Skúlason 26.350
Valtýr Þorsteinsson 26.050
Herrabúðin s.f. 26.050
I. Brynjólfsson & Kvaran 25.750
Steinsteypuv.st. Ak. s.f. 25.750
Sigurður Ólason læknir 24.900
Steinsen, Steinn 24.500
Thorarensen, Ólafur 23.250
Hermann Stefánsson 23.100
Ragnars, Sverrir 23.100
Verzl. Eyjafjörður h.f. 22.800
Finnur Daníelsson Ng. 22.550
Oddi vélsmiðja h.f. 21.950
Tómas Steingrímsson 21.700
London h.f. 21.600
Sig. Sölvason Munkaþv. 21.550
Prentverk Odds Bj. h.f. 21.250
1 Friðrik Magnússon 21.100
Ásgeir Markússon 21.000
Vöruhúsið h.f. 21.000
Einar Sigurjónss. Aðalstr. 20.850
Vilh. Þorsteinsson Ránarg. 20.850
Laxdal, Anna 20.800
Einar Guðmundss. Klettab. 20.700
Netagerðin Oddi h.f. 20.650
Jónas Þorsteinsson Strg. 20.600
Skarphéðinn Ásgeirsson 20.600
Rafnar, Bjarni 20.550
Árni Árnason Lögm.hl. 20.400
Jóhann Þorkelsson 20.400
Otterstedt, Knut 20.350
Olíuf. Skeljungur h.í. 20.350
Klæðav. S. Guðm. 20.300
Steindór Jónsson Eyrarveg 20.300
I Nýja Bíó h.f. 20.150
i Jónas Snæbjörnsson kenn. 20.100
Eyþór Tómasson 20.000
NÝR FORMAÐUR
L. A.
Á aðalfundi Leikfélags Akur-
eyrar, sem nýlega var haldinn,
baðst formaður þess, Guðmund-
ur Gunnarsson, eindregið undan
endurkjöri, og var Jóhann Ög-
mundsson kosinn í hans stað.
Gjaldkeri baðst einnig undan end-
urkjöri, en í stað hans var kjör-
inn Einil Andersen. Að öðru
leyti er stjórnin óbreytt.
Vestur-íslendingar
í hcimsókn
Vestur-lslendingurinn Páll
Guðmundsson frá Rjúpnafelli í
Vopnafirði er nýkominn í orlofs-
ferð heim til íslands og var stadd-
ur bér á 70 ára afmæli sínu, 25.
júní, á heimili bróður síns,
Björgvins tónskálds, og var þar
þá boð inni fyrir nokkra vini
Páls.
Páll fór vestur 1911 og hefir
síðan aldrei komið heim fyrri en
nú. Dvaldi hann fyrst í Winni-
peg við trésmíðar en flutti síðan
til Leslie Sask. árið 1915 og hef-
ir stundað þar búskap af miklum
inyndarskap síðan. Páll hefir
tekið mikinn þátt í félagsinálum
íslendinga vestra. Páll er ókvænt-
ur. Hann er nú á ferð um æsku-
stöðvarnar austanlands.
Þá er stödd hér í bænum öldr-
uð, vestur-íslenzk kona, Kristín
Thorsteinsson frá Gimli, ekkja
Guðna Þorsteinssonar póstmeist-
ara á Gimli, sem var kunnur ís-
lendingur vestra.
Reglur um áiagningu útsvara
á Akureyri 1957
Tekjur.
Útsvarsskyldar tekjur eru
hreinar tekjur til skatts, samkv.
lögum nr. 46, 1954, um tekju- og
eignaskatt, sbr. lög nr. 37, 1957.
Hefir því við ákvörðun útsvara
verið leyfður allur sá frádráttur,
sem heimilaður er eftir þeim lög-
um, þar með talinn fæðis- og
hlífðarfatakostnaður sjómanna á
fiskiskipum og aukafrádráttur
sömu aðila, ferðakostnaður
þeirra, er fara langferðir vegna
atvinnu sinnar, kostnaður vegna
heimilisaðstoðar, ef gift kona
vinnur utan heimilis, kostnaður
við stofnun heimilis og náms-
kostnaður hjá gjaldanda. Til
tekna eru ekki taldir, fremur en
til skalls, vextir af skattfrjálsu
sparifé né sá eignaauki, sem staf-
ar af aukavinnu, sem einstakling-
Siglir væntanlega með aflann til
Esbj erg.
Norðlendingur er væntanlegur
af veiðum um helgina. Óákveðið
hvar hann landar.
ar leggja fram ulan venjulegs
vinnutíma við byggingu íbúða til
eigin afnota.
Persónufrádráttur til útsvars
er kr. 5.000.00 fyrir konu og
livert barn innan 16 ára aldurs,
sem er á framfæri gjaldanda.
Af tekjum eins og þær eru á-
kvarðaðar samkv. ofanrituðu
greiðast útsvör samkv. sama út-
svarsstiga og í fyrra, að viðbættu
10% álagi, þó er þeiin gjaldanda
veittur frekari frádráttur á út-
svar, sem á hefir fallið kostnaður
vegna veikinda eða slysa, enn-
fremur ef starfsgeta þeirra er
skert vegna aldurs eða örorku. Á
barnalífeyri og meðlög hjá ein-
stæðum mæðrum er ekki lagt út-
svar. Ennfremur var foreldrum,
sem kosta börn sín til framhalds-
náms utanbæjar veittur frádrátt-
ur í útsvari, ef nemendur höfðu
ekki aflað verulegra tekna á ár-
inu. Frá útsvari af tekjum giftra
kvenna var dregið sem svarar
10% af tekjum konunnar, þó
ekki yfir 2000.00 kr.
Eign.
Eign lil útsvars er skuldlaus
eign til skatts samkv. 1. nr. 46,
1954, um tekju- og eignaskatt, að
viðbættu þreföldu fasteignamati.
Hlutafjáreign er ekki útsvarslögð
hjá einstaklingum, heldur á hana
lagt hjá viðkomandi hlutafélög-
um.
Félög.
Útsvarsskyldar tekjur félaga
eru hreinar tekjur til skatts.
Lægstu tekjuútsvör eru kr.
550.00. — Af tekjum 20—200
þús. greiðast 4000 af 20 þús. og
25% af afgangi.
Velfuúísvör.
Gjaldendur, er hafa með hönd-
um alvinnurekstur eða sjálfstæða
starfsemi er gert að greiða útsvar
af heildarumsetningu, og voru
reglur nefndarinnar um reksturs-
útsvar þessar:
1. Útgerð, heildverzlun, kaffi-
brennsla, kolaverzlun 0.4%.
2. Iðnaður 0.5%.
3. Af smásölu og annað ótalið
0.75%.
4. Akstur fólksbifreiða kr.
800.00 og vörubifreiða kr.
500.00 á bifreið.
5. Ennfremur voru lögð stofn-
útsvör á þá aðila, sem
liafa leyíi til að reka kvöld-
verzlun, allt að kr. 5000.00.
Á öll útsvör ákvörðuð samkv.
framanskráðu var bætt 10% á-
lagi.