Íslendingur


Íslendingur - 11.10.1957, Side 1

Íslendingur - 11.10.1957, Side 1
Vaxandi safnaðarlíi í Bandaríkjnnum Passíusálmar Hallgríms þýddir á ungversku Séra Pétur Sigurgeirsson segir fró för til Vesturheims. l'au hjónin, frú Solveig Ásgeirsdóttir og séra Pétur Sigurgeirsson eru nýlega komin heim úr þriggja mánaSa kynnisför um Bandarík- in og Canada. Náði íslendingur tali af séra Pétri fyrir nokkrum dögum og bað hann segja lesendum eitthvað frá ferðalaginu. Var það auðsótl mál. í boSi lútherska heimssambandsins. — I Iwaða tilgangi var þessi jör farin? — Hún var þannig til komin, að biskupinn, herra Ásmundur Guðmundsson, íór þess á leit við mig, að ég tæki boði lútherska heimssambandsins og lúlhersku kirkjudeildanna í Bandaríkjunum að takast á liendur kynnisför til Ameríku ásamt öðrum fulltrúum frá 12 þjóðum auk lslands. Við hjónin lögðuin af stað í förina með flugvél Loftleiða 14. júní. Var flogið til New York með viðkomu á Ganderfiugvelli á Nýfundnalandi, og tók öll ferðin 15 klukkustundir. Er við komum lil New-York, voru þar óvenju miklir hitar fyrstu dagana, og liöfðu aðeins 4 sinnum áður ver- ið svo miklir í sögu borgarinnar. Heimsóknir til kirkjudeilda. — Þann 19. júní hófst kynnis- för með sameiginlegri guðsþjón- ustu fulltrúa í kirkju rétt hjá New York, en síðan dreiíðust þeir og ferðuðust á vegum hinna ýmsu lúthersku kirkjudeilda. Ég var á vegum Sameinuðu iúthersku kirkjunnar, en laún telur 2 Yi milljón manna í söfnuðum sínum víðs vegar um Bandaríkin. Fyrsta ferðin var farin um nokkur ríki á austurströndinni, og dvaldi kon- an mín á meðan í Minneapolis. Fyrst heimsótti ég söfnuð í Mount Kisco í New-York ríki. Dvaldi þar bæði á heimili organ- istans og prestsins. Ennfremur heimsótti ég sunnudagaskóla lians og kynntist hinu kirkjulega starfi. Allt fríkirkjur. — Hvernig er lárkjiimálum háttað vestur þar? — Allar kirkjudeildir í Banda- ríkjunum eru fríkirkjur, þ. e. hið opinbera styður þær ekki að neinu leyti. Það þýðir jafnframt, að söfnuðirnir verða sjálfir að borga sínum presti, byggja kirkj- urnar og sjá um hina fjárhags- legu hlið starfsins að öllu leyti. Meðalútgjöld hvers safnaðarmeð- lims til kirkjunnar eru 45 dollar- ar á ári, og ef við reiknum doll- arann á 20 íslenzkar krónur, sam- svarar þetta 900 krónum hér. Sú greiðsla fer þannig fram, Séra Pétur Sigurgcirsson. að hver safnaðarmeðlimur fær sérstök urnslög, sem liann setur framlag sitt í á hverjum sunnu- degi við guðsþjónustuna, en áð- ur hefir hann jaínað því niður á alla sunnudaga ársins. Eru þessi samskol fastur liður í hverri guðsþjónustu, og ákveðnir menn hafa þann starfa að ganga um meðal kirkjugesta og taka við framlögum þeirra og gjöfum. Séu utansafnaðarmenn staddir í kirkjunni, láta þeir alltaf eitlhvað af mörkum. Verður því sá, sem tekur þáll í guðsþjónustu, ætíð að muna eftir því að hafa ein- hverja aura meðferðis í kirkj- una. Þessi siður er ekki einungis viðhafður í Bandaríkjunum, heldur má lieita svo, að hann sé jafníramt þar, sem J)j óðkirkj u- fyrirkomulagið ríkir, t.d. á Norð- urlöndum. 70% sækja kirkjuna. — Er kirkjusóhn góð í söjn- uðunum? — Já. Gestir, sem koma til Bandaríkjanna og Canada veita því fljótt athygli, að kirkjulíf er þar með miklum blóma. Má lieila, að kringum 70% af þeim, sem kirkjudeildinni tilheyra, séu slöðugir kirkj ugestir. Var ég oft spurður um slærð safnaðarins hér á Akureyri, og eftir þeirra mælikvarða, ættu hér að sækja kirkju um 5 Jiúsund manns á hverjum sunnudegi. Sýnir Jielta m. a., hve safnaðarlíf þar er vak- andi meðal almennings. Æskulýðsstarfsemi. — Heldur kirkjan uppi starj- semi jyrir œ.skulýðinn? -— Já. Hér um bil hver kirkja hefir sitt æskulýðsfélag fyrir unglinga á aldrinum 13—20 ára. í sambandi æskulýðsfélaga Jjess- arar kirkjudeildar eru 56 Jjúsund unglingar, en hún er ein af 16 kirkj udeildum, er telja sig lút- // flugvellinum hjá Machinac-eyjunni. Frá hœgri: biskupinn, lierra Ásmundur Guðmundsson, frú Solveig Ásgeirsdóttir og Hreinn Jón- asson frá Akureyri. M gretðir TMhMiiii í ðtsvir hér! Gerir sjálí ráð fyrir 2,75 millj. kr. í iitsvarsgreiðslur í sumar var á það bent hér í blaðinu, að Olíufélagið h.f. væri ekki sérstakur útsvarsgreiðandi hér í bæ eins og í öðrum bæjar- félögum, heldur væri útsvar Jress innifalið í útsvari KEA. í fram- haldi af því hafa margir skatt- greiðendur í bænum velt því fyr- ir sér, hvaða útsvar einkasölurn- ar Tóbakseinkasalan og Við- tækjaverzlunin beri hér, en hvor- ug þeirra er hér sjálfstæður út- svarsgreiðandi. Kaupfélag Ey- firðinga hefir eitt söluumboð hér um slóðir á vörum þeirra, og verður því enn að álykta, að út- svarshlutur bæjarins af söluhagn- aði þessara tveggja einkasala hér, sé einnig innifalinn í útsvari KEA. Áfengisverzlun ríkisins hefir greitt til Akureyrarbæjar vegna hagnaðar af útsölu hér 250—300 þús. krónur í útsvar. Á fjárlögum fyrir yfirstandandi ár er hagnað- ur af Áfengisverzlun ríkisins á- ætlaður brúttó nál. 97 millj. kr. en Tóbakseinkasölunnar 67,2 millj. (og Viðtækjaverzlunar 1.56 millj.). Á hinum sömu fjár- lögum er gert ráð fyrir 2.75 millj. kr. útsvarsgreiðslum hjá Tóbakseinkasölunni og 3,8 millj. hjá ÁVR. Sölusvæði fyrir áfengi og tó- bak liér mun vera næstum hið sama, og er því augljóst, að tóbakssalan nemur hér milljónum króna. Ef útsvar af þeirri veltu er innifalið í útsvari KEA auk veltu Olíufélagsins h.f., hve hár mun þá hlutur KEA í útsvörun- um af þess eigin verzlun, iðnaði, gistihúsa- og frystihúsarekstri o. s. frv.? Gervitung:l á íerðalagi umliverfis jörðina Sl. föstudagskvöld skutu rúss- neskir visindamenn gervihnetti út í himingeiminn frá norður- strönd Kaspíhafs með flugskeyti. llnöttur þessi er aðeins 58 sm. að þvermáli og 83.6 kg. að þyngd. Er hann útbúinn sendi- tækjum, er senda á 15 og 7.5 m. bylgjulengd. Hraði hnattarins er 8 km. á sekúndu, og fer hann á rúml. 1% klst. umhverfis jörð- ina. Fyrst fór hann í 900 km. fjarlægð frá jörðu, en síðan hef- ir hann færst nær. Er gert ráð fyrir, að hann eyðist smám sam- herskar. Sátum við hjónin 62. J)ing Jipssara æskulýðsfélaga, sem haldið var í háskóla Kansas-ríkis, og voru Jiar saman komnir uin 2000 fulltrúar frá hinum ýmsu deildum. Eitt af J)ví markverð- asla fyrir okkur var það, að inn í þetla samband voru tekin 2 æsku- lýðsfélög Vestur-íslendinga frá Mounlain og Garðar í Norður- Dakota. Voru liinir ungu fulltrú- ar þaðan færir um að skilja — og tala lítillega íslenzka tungu. Æskulýðsfélögin kallast á enskri tungu Luther Leaque og eru ómissandi þáttur í starfinu. Gleðilegt var að sjá ])ann áhuga, Framhald á 7. síðu. an, eftir því sem innar kemur í gufuhvolfið. Radió-merki frá gervitunglinu hafa heyrst í Gufunesi, og er tal- ið hugsanlegt, að J)að geti sézt héðan með berum augum, en það fer tvisvar á nóttu yfir ís- land og eitt skipti rétt sunnan við landið. Menn hafa jafnvel talið sig sjá það frá Reykjavík og Suðurnesjum. Vísindamenn um allan heim fylgjast af áhuga með þessari fyrstu „geiinför“, enda er hér uin að ræða einstæðan viðburð. Húsfylllr á fyrsta spilakvöldinn Fyrsta spilakvöld Sjálfstæðis- félaganna á Jiessu hausti var hald- ið að llótel KEA fimmtudaginn 3V þessa mánaðar. Spilastjóri var Karl Friðriks- son. Var aðsókn mjög góð og spil- að á nær 50 borðum. Kvöldverð- laun fyrir hæstan slagafjölda hlutu Jónas H. Traustason og frú Halldóra Ingimarsdóttir. Dansað var af miklu fjöri til kl. 1 e. m. n. Næsta spilakvöld verður á fimmtudaginn kemur, 17. okt.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.