Íslendingur


Íslendingur - 11.10.1957, Page 6

Íslendingur - 11.10.1957, Page 6
6 ÍSLENDINGUR Föstudagur 11. október 1957 Miioioméður BMur Pétursdéttur Farþegatjöldi »Lottleiða« jókst verulega s.l. ár Vetraráætlun félagsins gengur í gildi 15. október. 1. nóv. lækka fargjöld ó leiðinni Island—Banda- ríkin. Vetraráœtlun LoftleiSa gengur í gildi 15. október n. k. og gildir til 17. maí 1958. Á þessum tíma verða farnar 8 ferðir í viku um Reykjavík jnilli Bandaríkjanna og meginlands Evrópu eða Bret- lands. Vikulegar ferðir verða til Lundúna, Gautaborgar, Glasgow og Stafangurs, tvœr ferðir í viku til Hamborgar og Oslóar, en þrjár til Kaupmannahafnar. Frá Reykjavík munu flugvél- arnar fara austur á bóginn nokkru fyrr en í sumar eða kl. hálfníu að morgni, en brottfarar- tíminn til Bandaríkjanna verður svipaður og í sumar, kl. átta að kvöldi. Lækkuð fargjöld. A tímabilinu frá 1. nóvember til 1. apríl lækka fargjöld Loft- leiða mjög á flugleiðinni milli Islands og Bandaríkjanna, en Loftleiðir munu vera eina flugfé- lagið, þeirra er heldur uppi föst- um áætlunarferðum yfir Norður- Atlantshafið, sem býður þessi sérstöku fargjöld. Nemur lækkun þessi rúmum 700 krónum fyrir hvern þann farseðil, sem keyptur er fyrir flugfar fram og til baka milli New York og Reykjavíkur og kostar hann því ekki nema rúmar 4 þúsund krónur á þessu tímabili. Fjölskyídufargjöld. Þá munu Loftleiðir einnig halda áfram að bjóða hin lágu fjölskyldufargjöld, er í gildi verða sömu vetrarmánuði og hin lágu almennu fargjöld. Helztu reglur um fjölskyldu- fargjöld eru þær, að fyrirsvars- maður fjölskyldu greiðir fullt gjald fyrir farmiða sinn, en frá andvirði hvers farmiða, sem hann kaupir að auki fyrir börn eða maka, dregst jafnvirði 160 Bandaríkjadala, sé farið fram og aftur milli New York og stöðva Loflleiða í Evrópu. 1 fyrravetur varð reyndin sú, að margar fjölskyldur völdu tímabil þessara lágu fargjalda til ferðalaga milli Bandaríkjanna og Evrópu, en í því sambandi má t. d. geta þess, að þau gjöld, sem Loftleiðir gera hjónum með tvö uppkomin börn að greiða fyrir farið fram og aftur milli Islands og Ameríku, eru ekki nema rúm- ar 10 þúsund krónur. Mikið annríki. Mikið annríki hefir verið hjá Loftleiðum í sumar og var far- þegatalan í s. 1. ágústlok orðin rúmlega þrem þúsundum hærri en á sama tíma í fyrra, en það samsvarar rúmlega 20% aukn- ingu. Þessi aukning, ásamt hinum mörgu bréfum, er stjórn félags- ins berst jafnan frá farþegum, er rórna fyrirgreiðslu alla, sannar að Loftleiðir eiga nú mjög vax- andi vinsældir að fagna í hinni hörðu samkeppni á flugleiðunum yfir Norður-Atlantshafið. IttrtMa íiuglRois !M Nær 100% aukning í ufanlandsfluginu í júlí miðað við síðasta ór. Um þetta leyti árs verða nokkur þáttaskipti í starfi Flugfélags ís- lands, er sumaráætlun lýkur og vetrarstarfið tekur við. Suinaráætl- un innanlandsflugs lauk 30. sept., en sumaráætlun ulanlandsflugs lauk 5. okt. Sumarstarfið hefir að þessu sinni gengið mjög vel. Veð- ur hefir verið hagstætt til flugs mestan hluta sumars, enda tafir fá- tíðar. Sumaráætlunin hófst að þessu sinni 1. maí. Flogið var til og frá tuttugu stöðum innanlands. Farþegafjöldinn á tímabilinu 1. maí lil 30. sept. var í innan- landsfluginu 41.643, en var á sama tíma í fyrra 37.436, svo að aukning er 9 af hundraði. Sýna þessar tölur greinilega hve geysi þýðingarmikill þáttur innanlands- flugið er. Með vetraráætlun, sem hófst 1. okt. fækkar ferðum nokkuð frá því sem var á sumaráætluninni. Vetraróætlunin. Til Akureyrar verða tvær ferð- ir á dag, þrjá daga vikunnar, en ein ferð alla aðra daga. Til Vest- mannaeyja verður flogið alla daga. Til ísafjarðar er flogið alla daga nema sunnudaga og þriðju- daga. Til Egilsstaða er flogið alla daga nema sunnudaga og mið- vikudaga út október en frá 1. nóv. verður flogið þangað á þriðj udögum, fimmtudögum og laugardögum. Náðst hefir sam- komulag um bílferðir í sambandi við komu flugvélanna á Egils- staðaflugvelli, þannig að eftir komu flugvélanna á mánudögum og fösludögum, verða bílferðir til Reyðarfjarðar, Eskifjarðar og Norðfjarðar. Þannig verður þessu hagað út októbermánuð en eftir 1. nóvember falla þessar ferðir niður en í stað þeirra verð- ur sams konar ferð alla fimmtu- daga. Til Þingeyrar og Flateyrar verður flogið á þriðjudögum. Til Bjargey Pétursdóttir, eigandi Sportvöru- og hljóðfæraverzlunar Akureyrar, var ein af þeim ungu konum, sem settu svip á bæinn, með starfi sínu og broshýru við- móti, enda var hún mjög vin- sæl. Bjargey Pétursdóttir og Anna Snorradóttir, sem báðar voru Zontakonur, áttu mestan þátt í því, að Zontaklúbbur Akureyrar eignaðist Nonnahús — bernsku- heimili pater Jóns Sveinssonar. Nú er iangt komið lagfæringu á húsinu og stendur til, að safn- ið með verkum hans o. fl. verði opnað núna 16. nóv., á hundrað ára afmæli Nonna. Um síðustu áramót, er Bjargey hvarf til æðri heima, stofnaði Zontaklúbbur Akureyrar minn- ingarsjóð með hennar nafni, til styrktar þeim menningarmálum, sem Z. A. liefir áhuga á, á hverj- um tíma, en sem í náinni fram- líð mun verða bundið Nonna- safni. Minningarspjöldin, sem talin eru mjög smekkleg, verða til sölu í Hannyrðaverzlun Ragn- heiðar 0. Björnsson í Hafnar- stræti 103, Akureyri. Zonlaklúbbur Akureyrar. Patreksfjarðar og Bíldadals á fimmtudögum og til Siglufjarðar Sauðárkróks þriðjudaga og laug- ardaga og til Fagurhólsmýrar og Hornafjarðar mánudaga og föstudaga. Til Kirkjubæjarklaust- urs er flogið á föstudögum. Rétt er að vekja athygli á því að brottfarartími fiugvéla breyt- ist með vetraráætluninni. Millilandaflugið. Sumaráætlunin í millilanda- fluginu hófst einnig 1. maí. Dag- inn eftir komu hinnar nýju Vis- count miliilandaflugvélar til landsins og hóf önnur þeirra þeg- ar áætlunarflug en hin var notuð til þjálfunar flugmanna í mánað- artíma. Frá 1. júní hafa þær svo annast millilandaflugið. íslendingar hafa sýnt það í sumar að þeir, ekki síður en aðr- ir, kunna að meta kosti Viscount flugvélanna því farþegafjöldi hef- ir farið fram úr því sem bjart- sýnustu menn gerðu sér vonir um í vor. Þess má geta í þessu sam- bandi að í júlí flutti Gullfaxi og Hrímfaxi 4171 farþega inilli landa. A sama tíma í fyrra voru millilandafarþegar 2187, svo aukning er hér 90.71%. Með vetraráætluninni milli landa fækkar ferðum nokkuð. í’arnar verða fimm ferðir fram og til baka vikulega. Til Kaup- mannahafnar eru fjórar ferðir. Tvær um Glasgow og tvær um Osló. Ein ferð vikulega lil Lon- don og komið við í Glasgow i heimleiðinni. Til Hamborgar verða tvær ferðir í viku um Osló og Kaupmannahöfn. JÓN SVEINSSON (Nonni) : Glæfrareið (Ur sögusafninu Á Skipalóni) „Jæja, en hvað voruð þið að vilja yfir ána, Nonni?“ „Gatan lá beint yfir hana, og þetta var vaðið. Og við ætluðum að skoða okkur dálítið um á eynni úti í ánni. Þar var svo mikið af fuglum, bæði svönum og gæsum og öndum, og við höfðum aldrei komið þangað fyrr.“ „Það cr fallegt þar, og ég hef ekkert á móti því, að þið skoðið ykkur um. En þið verðið að fara varlega yfir vötnin.“ „Við fórum varlega og gættum eins vel að öllu og við gátum. En hesturinn var svo viljugur. Það var allt honum að kenna.“ „En þú máttir vita það, að Bleikur var viljugur, og það verður að vara sig á því. Það er vissasl að velja sér hest, sem ekki er ólm- ur, og gæta vel að öllu. En hvernig stóð á því, að þú skyldir detta af baki?“ „Nonni komst aldrei alveg á bak,“ greip Manni fram í, „og þegar Bleikur tók sprettinn, datt hann af honum.“ „Já“, sagði ég. „Ég komst ekki á bak til fulls, og svo datt ég, þegar hann stökk með Manna út í ána.“ „Þú áttir að vara þig á því, Nonni, úr því að hesturinn var svona viljugur. Þú hefir verið alltof nærri ánni, þegar þú varst að reyna að komast á bak.“ „Já, mamma, það sá ég allt á eftir.“ „Og hvernig stóð annars á því, að Manni skyldi detta í ána?“ spurði mamma nú. „Þegar Bleikur var kominn út í miðja á,“ svaraði Manni, „fleygði hann sér allt í einu á hliðina, og þá datt ég af honum.“ „Hvernig stóð á því, að hann skyldi fleygja sér á hliðina?“ „Það veit ég ekki,“ sagði Manni. „Tókst þú í tauminn á honum?“ „Já“, svaraði Manni. „Hann sneri allt í einu upp í strauminn, eins og hann ætlaði að vaða upp eftir álnum, í staðinn fyrir að halda áfram yfir að bakkanum. Þá tók ég í snærið til þess að stýra honum að landi. En þá lagðist hann allt í einu á hliðina.“ „Það áttir þú ekki að gera, Manni,“ sagði mamma. „Hesturinn hefir snúið sér upp í strauminn til þess að standast betur á móti honum. Og þá má ekki taka í tauminn. Það verður að láta hestinn ráða sér sjálfan í vatninu.“ „Ef ég hefði vitað það,“ sagði Manni og kippti í eyrnasnepilinn. „Þið farið varlegar næst, drengir, og látið ykkur þetta víti að varnaði verða.“ „Það ætlum við að gera,“ sögðum við báðir. „Ég veit að þið gerið það“, svaraði mamma. „Guð hefir haldið verndarhendi sinni yfir ykkur í þessari hættu eins og ævinlega ann- ars. Og þið megið ekki gleyma að þakka honum fyrir það.“ „Við skulum gera það í kvöld, þegar við lesum bænirnar okkar,“ sagði Manni. „En báðuð þið ekki til guðs í hættunni?“ „Jú“, svaraði ég. „Þegar ég sá Manna detta í ána, bað ég guð um hjálp. Og þegar við vorum úr allri hættu, þökkuðum við guði fyrir.“ „Og þegar ég datl í ána,“ sagði Manni, „þá kallaði ég: Guð minn góður hjálpi mér. En meira gat ég ekki sagt, af því að ég sökk á kaf. En ég hélt mér fast í toppinn á hestinum. Þá komst ég aftur með höfuðið upp úr.“ Mamrna sagði ekki neitt, en þrýsti drengnum að hjarta sér.. Nú setlist ég hjá henni og sagði: „Okkur hefur alltaf gengið vel í allri hættu hingað til. Guð hcfur alltaf verndað okkur, eins og þú sagðir áðan.“ „Já, og alveg eins var það, þegar við fórum hérna út á höfnina og Frakkar björugu okkur. Og eins var það uppi í fjöllunum, þegar Halldór Helgason hafði okkur í hellinum hjá sér,“ bætti Manni við. „Það er satt, drengir, ykkur hefir alltaf farnast vel hingað til. En einu megið þið ekki gleyma, menn mega ekki freista guðs. Hann vill, að við förum eins varlega og skynsamlega og okkur er auðið. Aðeins ef það er gert, getum við reitl okkur á hjálp hans.“ „Við skulum alltaf gera það, mamma. En þá þarft þú ekki að vera hrædd um okkur, þegar við erum úti,“ sagði Manni. Mamma brosti og strauk hendinni um hár hans. Því næst sagði hún: „Það er rélt hjá þér, Manni. Ég vona, að guð annist okkur öll.“ „Já, það gerir hann áreiðanlega," kallaði Manni. „Og þú mátt þá aldrei vera hrædd um okkur.“ „Það er ég heldur ekki, góði minn,“ sagði mamma og reis á fæt- ur, „á meðan þið eruð góðir og guðhræddir drengir, verð ég aldrei hrædd um ykkur, og banna ykkur ckki að fara og vera hvar sem þið vilj ið.“ Nú koin Gunna inn og sagði, að kvöldmaturinn væri tilbúinn. „Það er gott, Gunna,“ sagði mamma. „Við komum undir eins. Viltu ekki hita tvo bolla af mjólk handa drengjunum?“

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.