Íslendingur - 11.10.1957, Side 7
Föstudagur 11. október 1957
í SLENDINGUR
7
Jarðarför móður minnar
Sigrúnar Sigurðardóttur
sem andaðist 7. þ. m. fer fram frá Akureyrarkirkju laugar-
daginn 12. þ. m. kl. 2 e. h.
Fyrir mína liönd og annara vandamanna.
Sigurður Jónsson.
Innilegt þakklœti fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför
Þórdísar Benjamínsdóttur.
Baldvin Púlmason. Valgarður Baldvinsson.
Jónína Guðmundsdóttir. Gunnar Baldvinsson.
i
■
' '
> :
..Ranða rnbíninn
en saga íljótastúlkunnar Evu Cravens
Vertii Itjá imér
— fæst hjá hóksölum —
Fataefui
Tókurn upp í gær mikið og gott úrval af dökkum
IIERRAFATAEFNUM. Tilvalið í vetrarfötin. —
Ensk, þýzk og hollenzk efni.
Verzlun Jóns M. Jónssonar s.f.
Viital vii séro Pétor
Framhald af 1. siðu.
er ríkti hjá unga fólkinu um það
að efla og styðja kirkjuna.
Æskulýðssambandið hefir
skrifstofu og 7 íasta starfsmenn
þar. Einn sunnudagur á ári
hverju er almennur æskufýðsdag-
ur, og liefir þá unga fólkið verk-
efni hinna eldri í kirkjunni, og
samskotin renna í þess sjóði til
eflingar kristilegri æskulýðsslarf-
NÝJA-BÍÓ
Sími 1285
1 kvöld kl, 9:,
Maðurinn, sem gekk
í svefni
Bráðskemmtileg og fjörug ný
frönsk gamanmynd með hinum ó-
viðjafnanlega
FERNANDEL
í aðalldutverkinu.
l'etta er iyrsta myndin, sem Fer-
nandel syngur í.
Aðalhliitverk:
FERNANDEL
GABY ANDREA.
Um helgina:
A P A C H E
Frábær, ný, amerísk stórmynd í
litum, er fjallar um grimmilega
baráttu frægasta Apache-Indíána,
sem uppi hefir verið, við allan
handaríska herinn, eftir að friður
hafði verið saminn.
Aðalhlulverk:
BURT LANCHESTER
og
JAN PETER
— Bönnuð innan 16 ára. —
Væntanlega eftir helgina:
Greifinn af Monte
Chrisfo
■(Seinni hluti.)
NÝKOMIÐ
TELPUKÁPUR
(Poplin), 4—16 ára.
*
Mjög falleg
DÖMUBELTI
margar gerðir.
Klsðflvenlufl
Jií. Goemu fldsícror b.|
IBÚÐ TIL SÖLU
Til sölu er neðri hæð húss-
ins Hlíðargötu 4 nú þegar.
Til sýnis eftir kl. 5 í kvöld
og annað kvöld.
Ensk-íslenzk orðabók
íslenzk-dönsk orðabók
Hinir margeftirspurðu
DÖMUJAKKAR
úr ullarjersey
margir litir,
koma á inorgun.
Verzl. DRÍFA
Sími 1521.
- Iþróttir
reynslu sinni og baráttu kirkj-
unnar í heimalandi sínu, og
“ bann. ^jög á Berggrav Sigurför tji Balkanlanda.
Nýlega fór fram frj álsíþrótta-
keppni í Aþenu milli Norður-
r
Sokkabuxur
verð frá 20.00.
Ungbarnapeysur
verð frá 17.50.
Bómullarföt
verð frá 38.00.
Drengjaföt
(ullar) 1-4 ára
Telpukjólar
(ullar) 1-4. ára
Verzl. DRÍFA
Sími 1521.
Auglýsið í íslendingi
ooooooooooooooooooooooo^
Kynþóttavandamól.
— Ég dvaldi í sumarbúðum
kirknanna og var m. a. vikutíma
í vinnuflokki ungs fólks, sem
hjálpaði negrakirkju í Fíladelfíu
við það að mála og hreinsa húsa-
kynni kirkjunnar. Negrar hafa
sínar sérkirkjur, þar sem þeir eru
mjög fjölmennir. En nú er sú
breyting orðin á, að víða í stór-
horgum á austurströndinni flytj-
ast negrar inn í þær, en liinir
hvítu taka sér bólfestu í útborg-
unum. Kynþáltavandamálið er
stórt og nær einnig inn í kirkju-
lífið. Nú er að skapast sú stefna,
að negrarnir sæki kirkjur livítra
manna, þar sem fjölskyldur
hvítra og svartra búa í nábýli.
Alheimsþing
lúthersku kirkjunnar.
— Hinum erlendu gestum
gafst kostur á að sitja 3. alþjóða-
þing lúthersku kirkjunnar í
Minneapolis dagana 15.—25. ág
úst sl., en til þess kirkjusambands
teljast 50 millj. manna. Fyrir
hönd íslenzku kirkjunnar sátu
þetta þing biskupinn yfir Islandi,
herra Ásmundur Guðmundsson
og séra Benjamín Kristjánsson
sem aðalfulltrúar, en séra Frið-
rik A. Friðriksson prófastur sem
áheyrnarfulltrúi, en hann er nú,
ásamt Gertrud konu sinni í or-
lofi, og mun dvelja við háskóla á
vesturströndinni í vetur. Við
hjónin og frú Gertrud sátum
þingið einnig í hópi hinna er-
lendu gesta.
— Og um hvaða mál var /jall-
að á jnnginu?
— Ilöfuðviðfangsefni kirkj u-
þingsins var: „Kristur frelsar og
sameinar“. Meðal þeirra, sem töl-
uðu, var hinn þekkti ungverski
biskup, Lajos Ordass. Hann var í
fangelsi konmiúnista í tvö ár, og
eill af því, sem haiin gerði í fang-
elsinu var að kynna sér Passíu-
sálma Hallgríms Péturssonar.
Hefir liann þýtt 19 fyrstu sálm-
ana á ungversku. Hann er mað-
ur 65 ára, hár og tilkomumikill
á velli og vakti óskipta athygli
þingheims. Sagði hann frá
biskup á kirkjuþinginu í Hann-
over eftir ógnaröld Þjóðverja í
Noregi.
Á lokasamkomu Jiingsins voru
um 100 þús. manna, og var það
talin stærsta samkoma Lúthers-
trúarmanna, sem haldin hefir ver-
ið á vesturhveli jarðar. Þá var
hitinn mjög mikill, og var hverj-
um fulltrúa séð fyrir sérstakri
sólhlíf, eins og sjá mátti síðar í
blaðamyndum hér heima.
Vestur-íslendingar
sóttir heim.
— Og hvar lágu leiðir ykkar
víðar?
— íslendingarnir á þessu
Jiingi heimsóttu landana vestan
hafs. Þeir komu fyrst í prestakall
séra Ólafs Skúlasonar, og biskup-
inn prédikaði í tveim kirkjum
hans. Séra Ólafur er ungur guð-
fræðingur héðan að heiman o;
vinnur mikið og gott starf.
Þaðan var lialdið til Winnipeg
og dvalið á fjórða dag við heim
sóknir til íslendinga, og þar fóru
einnig fram guðsjijónustur. Var
flult alíslenzk messa í fyrstu lút-
hersku kirkjunni hjá séra Valdi-
mar Eylands, en liann hefir eins
og kunnugt er gegnt langri
prestsjijónuslu og innt af hendi
mjög mikið og gott starf í trú'
ar- og J>j óðræknismálum. —
Þar prédikaði biskupinn, en ég
flutti prédikun í nýstofnuðum
söfnuði þar í borg, sem séra Erik
Sigmar þjónar, en hann er nú
ungur að árum orðinn forseti
lútherska kirkjufélagsins hjá
V estur- í slendingum.
Við heimsóttum ræðismenn ís-
lands í Grandforks, Winnipeg og
Chicago. Þeir eru hinir virðuleg-
ustu fulltrúar, og vinna fórnfúst
og gott starf fyrir heimaland sitt.
Akureyringur
ó Mackinac-eyju.
— Á heimleið var komið við
á Mackinac-eyjunni í Michigan-
vatni, þar sem alþjóðahreyfing
MRA hefir aðsetur sitt, en þang-
að var rétt áður boðið 50 Islend-
ingum, og hefir áður verið sagt
frá því í blöðum. Þar hittum við
Akureyring, Ilrein Jónasson
(Kristjánssonar), en hann starf-
ar nú á vegum þessarar hreyfing-
ar og nýtur trausts og álits leið-
toganna þar. Þessi hreyfing liefir
Jiað takmark að efla bróðurhug
og sáttfýsi milli stétta, stjórn-
málaflokka og þjóða, og hefir
henni Jiegar orðið töluverl ágengt
í því efni hjá ýmsum Jijóðum.
Heim flugum við hjónin 14.
sept. með flugvél Loftleiða frá
landa og Balkanlanda, og unnu
Norðurlönd keppnina með mikl-
um yfirburðum, 243 stigum gegn
177. Þrír íslendingar voru í hópi
norrænu íþróttamannanna: Vil-
hjálmur Einarsson, Ililmar Þor-
björnsson og Valbjörn Þorláks-
son. Var frammistaða Jieirra með
meiri ágætum en nokkurra ann-
arra, og komu þeir heim með 4
gullverðlaun og 2 silfurverðlaun.
Sigraði Vilhjálmur í þrístökki,
stökk 15.95 m., Valbjörn varð
annar í stangarstökki, stökk 4.30
m., sömu hæð og sigurvegarinn,
og Hilmar sigraði í 100 m. hlaupi
á 10.6 sek., varð 2. í 200 m.
hlaupi á 21.6 sek. og hljóp auk
þessa lokasprettinn í 1000 m.
boðhlaupi á landakeppni þessari,
og sigraði sveit Norðurlandanna.
NÝR MARAÞON-
HLAUPARI
Ungur hlaupari frá Selfossi,
Ilafsteinn Sveinsson, vann þáð
afrek s. 1. sunnudag að hlaupa
fyrstur Islendinga hið lengra
Maraþonhlaup, 42.2 km., og
hljóp hann vegalengdina á
3:01.12 klukkustundum. Hófst
hlaupið á Kambabrún en endaði
í nokkrum hringum á Melavellin-
um í Reykjavík. Rigning var og
stonnur, er Hafsteinn háði þraut
þessa, og léttist hann um 4 kg. á
leiðinni.
Magnús Guðbj örnsson lang-
hlaupari liljóp hið skemmra
Maraþonhlaup árið 1928 (40.2
km.) á 2:53.06 klst., en þá vega-
hljóp Hafsteinn nú á
lengd
2:49.01 klst. Síðasta hringinn á
Melavellinum hljóp Magnús við
lilið Ilafsteins, en fjöldi manns
var viðstaddur til að fagna hin-
um unga hlaupara.
Akranes vann
bæjakeppnina.
Síðastliðinn sunnudag fór fram
bæjakeppni í Lnattspyrnu milli
Akraness og Reykjavíkur á
Melavellinuin í Reykjavík. Unnu
Akurnesingar með 5 mörkum
gegn 0. Var þetta 8. keppnin milli
nefndra bæja og 5. sigurleikur
Akurnesinga í henni.
New-York lil Reykjavíkur við-
komulaust á 12 stundum. Hafði
ferðalagið allt orðið okkur til á-
nægju og blessunar.