Íslendingur


Íslendingur - 10.01.1958, Side 8

Íslendingur - 10.01.1958, Side 8
Kaupendur vinsamlega beðnir að tilkynna af- greiðslunni strax, ef vanskil eru á blaðinu. Föstudagur 10. janúar 1958 íslendingur kemur næst út miðvikudaginn 15. janúar. GAMLIR GRIPIR. Ljósmynd þessa tók Gísli Ólafsson í byggðasafninu í Glaumbæ. Þar sjást nokkrir gamlir munir, sem nú eru vart lengur til á einka- heimilum. Gripirnir eru: askur, tréskór, snældustóll, skrín, brenni- vínskútur og halasnælda. Happdrættislán Flngfélags fslands Úr heimahögum >0000000000000000000000« Kirkjan. Messað í Akureyrarkirkju á sunnudaginn kemur kl. 2 e.h. Sálm- ar: 4 — 201 — 105 — 59 — 584. — P. S. — Messað í Lögmannshlíðar- kirkju n. k. sunnudag kl. 2 e.h. — K. R. Fundur í drengjadeild kl. 10.30 f. h. á sunnu- daginn. — Silfurhnappa- og Ljósberasveitir sjá um fundinn. 14 og 15 ára drengir vel- komnir. — Fundur í stúlknadeild í kapellunni n.k. sunnudag kl. 5 e.h. — Eyrarrósasveitin sér um fundarefni. I.O.O.F. — 139H08V2 — HULD, — 59581157 — VI — 2 : : Fcrmingarbörn. Börn, sem eiga að fermast í Akureyrarkirkju á komandi vori, eru beðin að koma til viðtals í kirkjukapellunni sem hér segir: Til séra Kristjáns Róbertssonar jjriðjudag- inn 14. jan. kl. 5 e.h. Til séra Péturs Sigurgeirssonar miðvikudaginn 15. jan. kl. 5 e.h. Karlakór Akureyrar fer ineð sam- söng sinn og Luciuhátíð að'Freyvangi n. k. laugardag, ef veður og færi leyfa. Skemmtiskráin mun óbreytt frá því sem var hér á Akureyri fyrir jólin. Má vænta þess að héraðsbúar sæti færi og njóti góðrar skemmtunar. Söngskemmt- unin mun byrja kl. 9, en dansleikurinn siðan um kl. 11. Slysavarnarkonur Akureyri. Hinn ár- legi söfnunardagur deildarinnar er 2. febrúar. Þá eru deildarkonur einnig vinsamlega beðnar að borga árgjöldin sem fyrst í Skóverzlun Hvannbergs- bræðra. — Stjórnin. Ikviknun. Laugardaginn milli jóla og riýárs var slökkviliðið kvatt upp að Lögmannshlíð, þar sem kviknað hafði í miðstöðvarklefa. Eldurinn varð slökktur, áður liann næði að breiðast út, og urðu þar ekki verulegar skemmdir. Nœturvörzlu hœtt í lyjjabúðum. — Eins. og auglýst er f blaðinu í dag, hættu lyfjabúðir bæjarins um síðast- liðin áramót að hafa næturvörzlu, og er sá siður víða kominn á erlendis. Verða þær hér eftir opnar frá kl. 9 að morgni til kl. 10 að kveldi. Hafa land- læknir og Læknafélag bæjarins sam- þykkt þessa breytingu. Næturlæknir mun þó framvegis hafa samband við lyfjafræðing, er afgreiðir nauðsynleg lyf eftir forsögn hans. Skíðaráð Akureyrar. Mótaskrá fyrir árið 1958. 12. jan. Stórhríðarmót. Svig allir flokkar. — 19. jan. Stórhríðarmót. Stökk allir flokkar. — 26. jan, Her- mannsmót. Svig allir flokkar. — 9. febr. Skíðamót Akureyrar. Svig allir flokkar. — 16. febr. Sama. Stórsvig allir flokkar. — 23. febr. Sama. Brun allir flokkar. — 2. marz. Sama. Stökk allir flokkar. — 16. marz. Firmakeppni. Svig. — 20. marz. 20 ára afmælismót Skíðaráðs Akureyrar. Svig. — Skíða- ráðið áskilur sér rétt til breytinga á mótskránni, ef þurfa þykir. Á þessu ári byrjaði Flugfélag íslands bið þýðingarmikla en kostnaðarsama starf að endur- nýja flugvélakost sinn. Síðast lið- ið vor festi félagið kaup á tveim- ur nýjum millilandaflugvélum af fullkomnustu gerð, sem, ásamt nauðsynlegum varahlutum, þjálf- un áhafna og öðrum tilkostnaði, kostuðu um 48 milljónir króna. Flugvélar þessar hafa reynzt mjög vel og hafa flutningar félagsins milii landa stóraukizt með til- komu þeirra. Til þess að geta ráðist í þessi kaup, varð félagið að taka tvö stórlán erlendis alls að upphæð um 33 milljónir króna, en það fé, sem þurfti til viðbótar, hugðist félagið fá með því að selja þrjár af eldri flugvélum sínum þ.e.a.s. tvær Dakota flugvélar og aðra Skymasterflugvélina. Auk þess var ráðgert að selja Skymaster- flugvélina „Sólfaxa“ á næsta ári. Önnur Dakotaflugvélin var seld á s.l. vori en Skymasterflugvélin „Gullfaxi“ er enn óseld og fyrir- sjáanlegt að söluverð hennar verður mun lægra en áætlað Frá Austjirðingajélaginu. Austfirð- ingamótið verður væntanlega haldið 1. marz n. k. Nánar auglýst síðar. Guðspekistúkan Systkinabandið. — Fundur verður haldinn þriðjudaginn 14. janúar kl. 8.30 síðdegis. — Erindi. Kvenjélagið Hlíf heldur fund mánu- daginn 13. jan. n.k. kl. 9 e.h. í Varð- borg. — Dagskrá: Kosning nefnda. — Onnur mál. — Skemmtiatriði. — Kon- ur taki með sér kaffi. — Stjórnin. Happdrœtti N.L.F.I. — Þessi númer komu upp: 15421, 29318, 8456, 9219, 6176, 2758, 1200, 2070. Bœjarjógeti hefir beðið blaðið að geta þess, að í ráði sé að halda nám- skeið fyrir lögreglumcnn í kaupstöð- um, í Reykjavík í vetur og hefst það 15__20. janúar n.k. Nánari upplýsingar um þetta geta menn fengið hjá bæjar- fógeta og yfirlögregluþjóni hér. hafði verið, og stafar það af stór- auknu framboði slíkra flugvéla á heimsmarkaðnum. Vegna stöðugrar aukningar á innanlandsflugi félagsins, er nú Ijóst orðið, að félaginu er mikil nauðsyn að geta haldið annarri Dakotaflugvélinni, sem ætlunin var að selja, og sömuleiðis að ekki þurfi að koma til sölu á Skymasterflugvélinni „Sólfaxa“, sem í vaxandi mæli hefir verið notuð til flugferðanna innan- lands. Sú flugvél hefir einnig ver- ið mikið notuð til flutninga milli Danmerkur og Grænlands fyrir erlenda leigutaka og þannig aflað þjóðinni gjaldeyris. Til þess að úr þessum fyrirætl- unum félagsins geti orðið, þarf það nú mjög á auknu fjármagni að halda — að öðrum kosti mun ekki hjá því komizt að selja verði flugvélar, sem nauðsynlegar eru ef félagið á að geta rækt þjón- ustuhlutverk sitt við þjóðina í þeim mæli, sem til er stofnað. Félagið efnir nú, að fengnu leyfi Alþingis og ríkisstjórnar, til sölu happdrættisskuldabréfa, alls að upphæð 10 milljónir króna, sem endurgreidd verða að sex ár- um liðnum með 5% vöxtum og vaxtavöxtum. Til þess að gera sem flestum Iandsmönnum kleift að veita félaginu stuðning, verð- ur láni þessu skipt í eitt hundrað þúsund hluti, hver að upphæð 100 krónur. Hvert skuldabréf kostar því í dag 100 krónur, en að sex árum Jiðnum verður það endurgreitt með 134 krónum. Auk þess að greiddir verða 5% vextir og vaxtavextir, eins og áð- ur er getið, gildir sérhvert skulda- bréfanna sem happdrættismiði og eru vinningarnir för með flugvél- um félagsins, eða afslættir af flugförum. Heildar verðmæti vinninga nemur kr. 300.000.00 á ári og verður dregið um þá í april mánuði ár hvert. Fé fennir í Grímsey Þann 16. des. s. 1. gerði aftaka- veður í Grímsey með mikilli fann- komu. Allt fé var úti og fennti það unnvörpum. Voru menn lengi dags að draga það úr fönn, og drápust nokkrar kindur. Elzti innfæddi Grímseyingurinn kveðst ekki muna til þess, að fé hafi fennt þar, enda festir þar sjaldan mikinn snjó. Engir Grímseyingar fara að þessu sinni suður á vertíð eins og venja hefir verið. FraœlioDiii d ioreyri í síðasta blaði var skýrt frá framboðum Sjlfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins til bæjar- stjórnarkosninganna hér á Akur- eyri. Framsóknarflokkurinn hefir [birt lista sinn, og eru þessir 5 menn í efstu sætum: Jakob Frí- mannsson kaupfélagsstjóri, Guð- mundur Guðlaugsson framkv.stj., Stefán Reykjalín byggingameist- ari, Gísli Konráðsson, framkvslj. og Sigurður Oli Brynjólfsson, kennari. Á lista kommúnista, er nú bjóða fram í nafni Alþýðubanda- lagsins, eru þessir 5 menn efstir: Björn Jónsson alþm., Jón B. Rögnvaldsson bifreiðarstjóri, Jón Ingimarsson, bifreiðarstjóri, Þor- steinn Jónatansson, ritstjóri og Tryggvi Helgason útgerðarmað- ur. Þjóðvarnarflokkurinn býður ekki fram hér að þessu sinni, og er blaðinu ekki kunnugt um framboð hjá honum nema í Reykjavík. x D-listinn. AnnálS íslendings JANÚAR 1958. Ibúðarhúsið að Draghálsi í Svínadal Borgarfjarðarsýslu brennur á áramót- um. Bóndinn, Sveinbjörn Benteinsson var staddur í Reykjavík, en hjón með ungt barn gættu búsins. Nokkuð bjarg- aðist af inr.anstokksmunum. Miklar skemmdir urðu hjá Gólf- teppagerðinni í Reykjavík, er bragga- samstæða, þar sem hún hafði starfsemi sína, brann innan ásamt munum og hráefnum, er þar voru inni. Fjárhúskofi brennur í Reykjavík og þar með 15 kindur, er gamall maður átti. Hafði hann skilið eftir gasljós í kofanum, meðan hann sótti vatn, en kom aftur að kofanum logandi. Tókst honum að bjarga tveim hrútum, er voru í stíu næst dyrum. Elzti borgari Húsavíkur, Sigurlaug Sigurjónsdóttir, andast, 101 árs að aldri. Kosiitsig'ar I I)ag:§Rmfiii Stjórnarkjör fer fram í Verka- mannafélaginu Dagsbrún í Reykjavík dagana 18.—19. þ. m. Bera lýðræðisflokkarnir fram sameiginlegan lista gegn komm- únistum, sem ráðið hafa stjórn þessa stærsta verklýðsfélags landsins mörg undanfarin ár. Hafa lýðræðissinnar fullan hug á að hnekkja valdi kommanna þar, sem þeir hafa misnotað á áber- andi hátt í hagsmunaskyni fyrir hinn fjarstýrða flokk, sem geng- ið hefir undir ýmsum nöfnum við allar kosningar en lýtur ætíð fyr- irmælum Kreml-búa, hverju nafni sem hann nefnist. Sjdlfstdtiíslélag Ahurejrrar heldur fund n. k. sunnudag, 12. janúar, í Landsbankasalnum, er hefst kl. 16 (4 síðd.) Fundarefni: Fjúrhagsáætlun bæjarins. Frummælandi Jón G. Sólnes, bæjar- fulltrúi. í næstu viku verður sameiginlegur fundur Sjálfstæðisfélaganna um bæjarmál og bæjar- stjórnarkosningarnar, og verður hann nánar auglýstur í næsta blaði. er út kemur miðviku- daginn 15. janúar. Stjórnin.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.