Íslendingur - 28.11.1958, Page 1
»Rétt 5por« eða »víta-
verð mistök«
Tveir stjórnarsinnar segja álit
sitt á bjargráðunum
Stjórnmálayfirlýsing Hræðslu-
bandalagsins vorið 1956 hófst á
þessum orðum: „Mikill vandi
steðjar nú að íslenzku þjóðinni.
— Höfuðatvinnuvegum lands-
manna er haldið uppi með bein-
um styrkjum af opinberu fé og
gífurlegu álagi á neyzluvörur al-
mennings.“
Og síðar í sömu ályktun segir:
„Nú verður að brjóta blað í ís-
lenzkum stjórnmálum. Ef ekki
verður gripið fast í taumana, mun
skapast algjört öngþveiti í efna-
hags- og fjármálalífi þjóðarinn-
ar. Af því hlytist stöðvun fram-
kvæmda, atvinnuleysi og upp-
lausn, sem reynast myndi gróða-
mönnum og einræðissinnum hinn
bezti jarðvegur fyrir stefnu sína.
Þess vegna ber nú brýna nauð-
syn til þess, að tekin sé upp ný
stefna í efnahagsmálum þjóðar-
innar.“
Þannig söng í tálknum þeirra
fyrir 2^2 ári, sem síðan hafa far-
ið með stjórn landsins.
„Nýja" stefnan.
Þar sem höfuðatvinnuvegunum
var haldið uppi með beinum
styrkjum af opinberu fé og „gíf-
urlegu álagi“ á neyzluvörur al-
mennings bar brýna nauðsyn til
að taka upp nýja stefnu í efna-
hagsmálunum.
En í hverju hefir hin nýja
stefna birzt?
Er búið að afnema styrkina til
atvinnuveganna eða lækka þá?
Hefir hið gífurlega álag á
neyzluvörur almennings verið
lækkað eða afnumið?
Mun ekki sönnu nær, að styrk-
irnir hafi aukizt og að hinar gíf-
urlegu álögur á neyzluvörur hafi
verið stórlega hækkaðar, ekki
einu sinni, heldur tvisvar?
Erlendir sérfræðingar hafa ver-
ið fengnir til að gera „úttekt á
þjóðarbúinu“. En sú úttekt hefir
ekki verið birt, þrátt fyrir ein-
dregnar áskoranir.
Stofnaður hefir verið nýr „rík-
issjóður“, sem ber nafnið Út-
flutningssjóður. í hann er dreg-
inn bróðurparturinn af kaupverði
„neyzluvöru almennings“, en síð-
an greiðir hann útflutningsat-
vinnuvegunum „uppbætur“ til að
lialda þeim á floti. Vísitalan tekur
risastökk á fám mánuðum.
Neyzluvörur hækka í verði um 30
■—50 af hundraði, og síðan laun
manria. Dýrtíðardraugurinn fitn-
ar eins og púkinn á fjósbitanum.
Tæpt á tillögum.
Ríkisstjórnin fær ekki við neitt
ráðið. Efnahagsmálin, sem hún
ætlaði að taka nýjum, föstum tök-
um, hafa aldrei verið í meira
öngþveiti en í dag. Blöð hennar
bollaleggja um, hvað beri að
gera. Sum ympra á því, að kom-
ið geti til greina að skera niður
fjárlögin og greiða dýrtíðina nio-
ur með því, sem við það sparast.
Strika út gjaldaliði til landbún-
aðar, vega, brúa, hafnargerða,
lendingarbóta o. s. frv. Stöðva
verklegar framkvæmdir á vegum
ríkissjóðs. Onnur tala um niður-
skurð á vísitölunni, kaupgjald-
inu og afurðaverðinu. En ríkis-
stj órnin hefst ekki að. Alþingi
hefir setið verklítið vikum sam-
an. Haldið 5—10 mínútna fundi
um lítilsverð mál. Ríkisstjórnin
bíður. Það er sagt, að hún bíði
eftir tillögum Alþýðusambands-
þings, sem nú situr að störfum.
En hví leggur ekki ríkisstj órnin
SÍNAR tillögur fyrir þing alþýðu-
samtakanna? Á það e. t. v. að búa
ríkisstjórn og Alþingi tillögurnar
í hendur?
Hvað sagði
þingmaðurinn?
Einn af þingmönnum Fram-
sóknarflokksins flutli ræðu í hófi
Framsóknarmanna hér í bæ s. !.
laugardag. Rekur Dagur efni
hennar í fyrradag. Þegar tal þing-
mannsins barst að efnahagsmál-
unum, á hann m. a. að liafa sagt:
„Á síðastliðnu vori var stigið
Framhald á 5. síðu.
í sumar var hafin bygging fyrstu raðhúsanna hér í bœnum á túnunum fyrir ofan Húsmœðraskólann. —
liér getur að líta eitt þeirra, en í húsunum eru 6—7 íbúðir. — Ljósmynd: vig.
Sjötugur:
Jón Pálmason
alþingismaður.
Heilmjölsvinnsla
i Kroisanesi
í dag er Jón Pálmason bóndi
og alþingismaður á Akri sjötug-
ur. Borinn er hann og barnfæddur
að Ytri-Löngumýri í Austur-
Húnavatnssýslu og hefir alið all-
an aldur sinn í sýslunni. Eftir bú-
fræðinám að Hólum hóf hann bú-
skap á föðurleifð sinni um 8 ára
skeið. Tvö ár bjó hann að Mörk
í Laxárdal en óslitið að Akri frá
árinu 1923, en þá jörð hefir hann
gert að höfuðbóli. Jón var
snemma kjörinn til margvíslegra
trúnaðarstarfa fyrir sveit sína, og
1933 var hann kjörinn alþingis-
maður Austur-Húnvetninga, og
það hefir hann verið óslitið síðan
um aldarfjórðungsskeið. Á Al-
þingi hefir hann notið mikils
trausts. Gegndi um árabil æðsta
virðingarstarfi þingsins, forseta-
starfi Sameinaðs Alþingis og hefir
frá 1937 verið yfirskoðunarmað-
ur landsreikninga. Þá var hann
landbúnaðar- og samgöngumála-
ráðherra í þeirri ríkisstjórn, er
Ólafur Thors myndaði í desember
1949, um langt skeið í fjárveit-
inganefnd og á sæti í Bankaráði
Búnaðarbankans og Nýbýla-
stjórn.
Jón á Akri er höfðingi í lund
og raun og hrókur alls fagnaðar á
Afköst verksmiðjunnar jafnframt aukin.
Fyrir dyrum standa nú breyt-
ingar og endurbætur á síldarverk
smiðju bæjarins í Krossanesi með
heilmj ölvinnslu að takmarki, og
verður verksmiðjan við breyting-
una fær um að taka á móti 3500
málum síldar á sólarhring (í stað
2500—3000 áður), og síldarsoð-
ið, sem áður fór forgörðum, nýt-
ist jafnframt við heilmjölsvinnsl-
una.
Það er Vélsmiðjan Héðinn í
Reykjavík, sem tekur verkið að
sér og er þegar byrjuð á smíði
hinna nýju véla, er til þurfa, en
samningur um verkið var undir-
ritaður í vikunni sem leið. Búizt
er við að heildarkostnaður verði
um eða yfir 2 millj. króna.
Með tilkomu hraðfrystihúss Ú.
A. hafa afkomuskilyrði Krossa-
nesverksmiðjunnar mjög batnað.
Á þessu ári hefir hún fengið það-
an til vinnslu 9238 tonn af úr-
gangsfiski, og úr því hráefni hefir
hún unnið 10107 sekki af karfa-
mjöli, 7495 sekki af fiskimjöli og
356 af ufsamjöli. Auk þess hefir
verksmiðjan unnið 8207 sekki af
síldarmjöli úr 28587 málum af
hafsíld og smásíld og 663 tonn af
lýsi.
Foreldradagurinn í Barnaskólanum
gaf mjög góða raun
Föstudaginn 21. nóvember var
haldinn svonefndur foreldradag-
ur í Barnaskóla Akureyrar. Hann
var með þeim hætti, að öll kennsla
í skólanum var felld niður þenn-
an dag, en í stað þess var foreldr-
um skólabarnanna boðið að koma
í skólann og ræða við kennara
barna sinna. Þar sem þetta er ný-
lunda hér, þótti kennurum senni-
legt, að þetta myndi verða róleg-
ur dagur, en voru þó allir á einu
máli um að reyna þetta.
Kennarar voru svo til viðtals í
skólastofum sínum frá 9—12 og
1—4 síðdegis. Heimsóknir for-
mannfundum. Hagmæltur í bezta
lagi og liefir unun af kveðskap
og lestri góðra bóka. Hann er einn
af skeleggustu málafylgjumönnum
Sjálfstæðisflokksins og hefir oft
reitt hirtingarvöndinn hátt í við-
ureign við andstæðinga á Alþingi.
íslendingur árnar honum allra
heilla.
eldra voru ekki mjög örar árdeg-
is, en því fleiri síðdegis, svo að
alltaf þurftu einhverjir að bíða,
og sumir nokkuð lengi.
Þótt viðtalstími kennara væri
ekki auglýstur nema til kl. 4 síð-
degis, fór þó svo, að sumir kenn-
arar höfðu ekki lokið viðtölum
fyrr en kl. 5 og jafnvel kl. 6 síð-
degis.
Alls mættu þarna til viðtals á
fjórða hundrað foreldrar, og er
það miklu meira en nokkur bjóst
við.
Skólastjóri og kennarar eru
mjög ánægðir með þennan for-
eldradag og þykir sem þessi til-
raun hafi tekizt afburða vel.. Þeir
eru foreldrum mjög þakklátir fyr-
ir kornuna og alla góðvild í garð
skólans, er þarna kom fram. Eru
kennarar á einu máli um, að þess-
um degi hafi verið vel varið, þótt
hann væri strangari en þeir
bjuggust við.