Íslendingur - 20.03.1959, Page 2
2
ÍSLENDINGUR
Föstudagur 20. marz 1959
SJ ÖTUG :
Frú Elinborg
Jónsdóttir
Frú Elinborg Jónsdóttir, Munka-
þverárstræti 38 hér í bæ varð sjö-
tug í fyrradag.
Elinborg er fædd og uppalin í
Eyjafirði fram, og dvaldist þar til
fullorðinsára. En hingað til bæj-
arins fluttist hún fyrir hér um bil
40 árum með manni sínum, Sig-
urði Sölvasyni trésmið, sem um
árabil hefir verið einn af þekkt-
ustu byggingameisturum bæjar-
ins.
Frú Elinborg hlaut í vöggugjöf
góðar gáfur og listasmekk. Hún
var — og er — tónelsk og Ijóð-
elsk, og setti á æskuárum sínum
svip á kirkjukór Grundarkirkj u,
en að Grund dvaldi hún um nokk-
ur ár, áður en leið hennar lá til
Akureyrar.
Hér í bænum hefir frú Elinborg
komið flestra kvenna mest við
sögu mannúðar- og líknarmála,
og verður sú saga ekki rakin í
fám orðum.
Hún hefir árum saman verið
formaður Kvenfélagsins Hlífar,
og var á sínum tíma þar að auki
í bygginganefnd félagsins að
barnaheimilinu Pálmholti. Vinna
hennar, manns hennar og önnur
framlög þeirra í þágu þess heim-
ilis verða seint tölum talin, né að
fé metin.
Þá hefir frú Elinborg lagt
kristniboðsmálum mikið lið, og
fleira mundi telja mega, ef fara
ætti orðum um öll hennar störf,
umsvif og annir. En þrátt fyrir
allt er Elinborg þó fyrst og fremst
móðir og húsfreyja.
Þau hjón, Elinborg og Sigurð-
ur, hafa eignazt og komið upp 4
börnum, sem erft hafa gáfur og
mannkosti foreldra sinna.
Sjálfur vil ég að lokum þakka
frú Elinborgu gömul og góð kynni
frá bernskuárunum frammi í
Eyjafirðinum okkar og síðan hér
í bænum, og jafnframt árna
henni, manni hennar og börnum
allrar blessunar.
J. Ó. P.
-------□--------
ÍSLENDINGUR
kemur næst út mið-
vikudag 25. marz.
Utanfilr, sem oldrei vor lyrírhuðui
Finnur Björnsson útvegsbóndi
að Ytri-Á í Ólafsfirði lenti nýlega
í sjaldgæfu ævintýri, er hann ætl-
að að fljúga frá Reykjavík til Ak-
ureyrar. Á sömu stundu og Akur-
eyrarflugvélin skyldi halda norð-
ur var Viscount-vélin Hrímfaxi
að halda til Kaupmannahafnar
um Glasgow. Vegna einhvers mis-
skilnings fór Finnur um borð i
Hrímfaxa og áttaði sig ekki á mis-
tökunum fyrri en komið var nokk-
uð út yfir haf. Mun honum þá
hafa verið gefinn kostur á að
flugvélin sneri við með hann, en
annars að halda til Hafnar í boöi
Flugfélagsins. Valdi Finnur hinn
síðari kostinn, þar sem honum var
ekkert að vanbúnaði og lá ekki á
að komast heim þenna dag frek-
ar en verkast vildi.
í Kaupmannahöfn voru Finni
sýndir ýmsir merkisstaðir, meðan
flugvélin stanzaði þar, og kom
hann síðan heim til Reykjavíkur
með vélinni að morgni næsta dags
og flaug stundu síðar norður. í
viðtölum við blaðamenn lét Einn-
Séra Sigurður Stefánsson prófastur á-
varpar gesti kirkjuvikunnar. — Ljósm.
Hermann Ingimarsson.
ur mjög vel yfir þessari óvæntu
utanlandsreisu, enda hafði hann
ekki komið út fyrir ,,pollinn“ áð-
ur>-
---------□---------
Akureyrarniót
í körfuknattleik er nýlokið. Akur-
eyrarmeistarar urðu KA (a-lið).
Úrslit leikjanna:
Þór 46 stig. MA b-lið 30 stig.
MA a-lið 27 stig. KA b-lið 28
stig.
KA a-lið 54 stig. KA b-lið 39
stig.
Þór 59 stig. MA a-lið 43 stig.
KA a-Iið 52 stig. MA b-lið 26
stig.
KA b-lið 38 stig. Þór 27 stig.
KA a-lið 72 stig. MA a-lið 38
stig.
KA b-lið 36 stig. MA b-lið 17
stig.
MA a-lið 43 stig. MA b-lið 34
stig.
KA a-Lið 109 stig. Þór 26 stig.
Þór sá um mótið.
------X--------
Frá stariinu i Zion
Stórmyndin Marteinn Lúther
verður sýnd á laugardagskvöldið
kl. 9. Er hér um að ræða mestu
og frægustu kvikmynd, sem gerð
hefir verið um kirkjusögulegt
efni. Börn fá ekki aðgang, þar
sem myndin er full löng og þung-
skilin fyrir þau. Aðgangur er ó-
keypis.
Á krislniboðssamkomunni á
pálmasunnudag, kl. 8.30 síðdeg-
is, talar Ólafur Ólafsson kristni-
boði. í upphafi samkomunnar
verður sýnd litkvikmynd frá
Konsó. Tekið á móti gjöfum til
kristniboðs.
Endurbœtt rukarostofu
í vikunni sem leið komu rit-
stjórar Akureyrarblaðanna saman
á rakarastofu Jóns Eðvarðs við
Skipagötu, er hún var opnuð á ný
eftir gagngerðar endurbætur. Auk
þess sem stofan var máluð, hafði
lýsingu verið breytt til mikilla
bóta og nýir stólar settir þar nið-
ur. Eru þeir eftir allra nýjustu
tízku og einkar þægilegir jafnt
fyrir viðskiptavininn sem rakar-
ann.
Jón Eðvarð hefir rekið rakara-
stofu hér í bæ síðan árið 1937. —-
Á myndinni sjást feðgarnir Jón
og Reynir vinna að iðn sinni. —
Ljósmyndina tók Sigtryggur
Ilelgason.
•----------------®
Dragtir
N Ý SENDING.
Markaðurinn
Sími 1261.
•----------------•
Valhnetur
NÝKOMNAR.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Nýlenduvörudeild og útibúin.
Döimiiu féfbu0iðl
Skórnir frá Feldinum koma nú með hverri ferð.
VOR- og SUMARTÍZKAN.
Póstsendum.
Skóverzlun M. II. Lyngdal & Co. h.f.
PdrÉeppni Iridf-
fdogsins loi
Firmakeppni í undir-
búningi
Síðastliðinn þriðjudag lauk
parakeppni Bridgefélags Akureyr-
ar, og urðu úrslit þessi:
1. Margrét Ingimarsdóltir —
Baldur Árnason 363 stig.
2. Elínborg Einarsdóttir —
Magnús Tryggvason 339 stig
3. -4. Sigrún Bergvinsdóttir —
Þórður Björnsson 338 stig.
3.-4. Dísa Pétursdóttir — Guð-
jón Jónsson 338 stig.
5. Rósa Sigurðardóttir — Þor-
valdur Jónsson 326 stig.
6. Margrét Jónsdóttir — Ragn-
ar Skjóldal 322 stig.
7. Guðbjörg Ólsen — Þor-
steinn Halldórsson 321 stig.
8. Soffía Guðinundsdóttir —
Björn Einarsson 314 stig.
Alls tóku 14 þátt í keppninni.
Verið er að undirbúa firma-
Landhelgisgæzla
Utanríkismála- og landhelgis-
nefnd á Landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins flutti eftirfarandi álykt-
un, er samþykkt var samhljóða:
Landsfundurinn þakkar varð-
skipsmönnum og öðrum starfs-
mönnum landhelgisgæzlunnar ár-
vekni og ötulleik í hinni vanda-
sömu vörn þeirra undanfarna
mánuði gegn erlendri valdbeit-
ingu. Jafnframt vítir fundurinn,
að óhæfilega var látið dragast að
hefjast handa um smíði nýs,
hraðskreiðs varðskips, þvert ofan
í samþykkt Alþingis vorið 1956,
enda er auðsæ þörf á stöðugri
endurnýjun og aukningu tækja
landhelgisgæzlunnar, eftir því
sem til hennar eru gerðar meiri
kröfur.
-----X------
keppni og virðist þátttaka ætla að
verða mikil.