Íslendingur - 20.03.1959, Síða 8
ÍSLENDINtiUR
fæst í Sölutuminum Hverf-
isgötu 1, Reykjavík.
Föstudagur 20. marz 1959
AUGLÝSINGAR,
sem birtast eiga í blaðinu, þurfa aS ber-
ast afgreiSslunni eSa prentsmiSjunni
fyrir hádegi daginn fyrir útkomudag
blaSsins, þar sem blaSiS er prentaS aS
fullu þann dag.
Frá setningu 13. landsfundar SjálfstœSisflokksins í Gamla Bíó Reykjavík 11. marz.
\erwA ii imrineiin á Akur
eyri opna §krif§tofu
Verzlunarmannaíélagið á Akur-
eyri mun á næstunni opna skrif-
stofu í húsnæði sínu við Gránu-
félagsgötu.
Á skrifstofunni er ætlað að
frammi liggi allar upplýsingar,
sem félaginu berast, bæði að
heiman og erlendis frá. Þar á
meðal eru launasamningar, reglu-
gerðir um verðlag, verzlunar-
samningar milli ríkja, svo og
ýmsar tilkynningar, sem því
kunna að berast frá Verzlunarráði
íslands.
Félagið hefir ákveðið að hafa
sem nánast samband við meðlimi
sina meðal annars með því að
senda út dreifibréf um málefni
sem snerta verzlun og hagsmuna-
mál verzlunarmanna.
Núverandi stjórn Verzlunar-
mannafélags Akureyrar skipa:
Tómas Steingrímsson stórkaupm.,
Gunnar H. Kristjánsson kaupm.,
Helgi Pálsson framkvstj., Ólafur
Benediktsson frkvstj. og Jón E.
Sigurðsson verksmiðjueigandi.
-------□--------
Mildur vetur
Færð á vegum í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslum er víða sem á
vordegi. Bílfært er um allar sveit-
ir, og áætlunarbílar koma nú
tvisvar í viku frá Reykjavík. Fært
er einnig í Möðrudal á Fjöllum,
um Tjörnes og mestalla Norður-
Þingeyjarsýslu. Samkvæmt sam-
tali við Grímsstaði á Fjöllum,
telja elztu menn þar veturinn einn
þann bezta í manna minnum.
Mjög er orðið snjólítið og jörð
kemur græn undan snjónum. —
Mikið jökulhlaup varð í Jökulsá
fyrir nokkrum dögum síðan og
flæddi áin yfir nokkurn hluta veg-
arins vestan brúarinnar.
t
STEFÁN JÓNSSON
(frá Brimnesi)
sparisjóðsstjóri á Dalvík er ný-
lega látinn 74 ára gamall. Þessa
mæta manns verður minnst hér í
blaðinu síðar.
--------□--------
BmslMeniintUiii&
Nemendur Barnaskóla Akureyr-
ar héldu ársskemmtun sína um
síðustu helgi. Var hún fjölsótt og
mjög vel úr garði gerð. Þar var
til skemmtunar: Skólakórinn
söng nokkur lög undir stjórn Ás-
kels Jónssonar og var hann ó-
venju fjölmennur, fiðlusveit skól-
ans lék undir stjórn Gígju Jó-
hannsdóttur, lúðrasveit lék undir
stjórn Jakobs Tryggvasonar, leik-
rit og samtöl, upplestrar, dans,
píanóleikur og fiðlusamleikur.
Hafi börnin þökk fyrir góða
skemmtun.
--------□--------
SÍLDIN LEITAR í
LJÓSIÐ
Steinþór Helgason útgerðarm.
hefir að undanförnu verið að gera
tilraunir til að fá smásíldina í
Eyjafirði til að vaða. Hefir hann
búið út vatnsþétt ljósker og sökkt
þeim niður í sjóinn. Báru tilraun-
irnar strax þann árangur, að lóðn-
ingar komu fram á dýptarmadi
meiri en áður. Ljósaperurnar, sem
Steinþór notaði voru 40 og 100
kerla, og þeim sökkt niður á nokk-
urra faðma dýpi.
Tilraunir þessar eru allrar at-
hygli verðar.
Jtn Moinússon Jormoínr
Bloðomonnojél. íslonds
Blaðamannafélag íslands hélt
aðalfund sinn í veitingahúsinu
Nausti í Reykjavík s. 1. sunnudag.
Fráfarandi formaður, Sigurður
Bjarnason, stjórnaði fundinum
og flutti skýrslu stjórnarinnar.
Skýrði hann m. a. frá hinu
norræna blaðamannamóti, sem
háð var í Reykjavík s. 1. sumar og
samningum, sem stæðu yfir milli
blaðaútgefenda og blaðamanna
um stofnun lífeyrissjóðs fyrir
blaðamenn.
Þá voru tveir blaðamenn heiðr-
aðir á fundinum með „Penna
B. í.“, þeir Bjarni Guðmundsson
blaðafulltrúi, sem unnið hefir
mikið fyrir samtök íslenzkra
blaðamanna og Jón Bjarnason
fréttaritstjóri Þjóðviljans, sem
árum saman hefir átt sæti í stjórn
B. í. — en þeir áttu báð.ir merkis-
afmæli á liðnu starfsári. Þá mætti
á fundinum Skúli Skúlason rit-
stjóri, sem undanfarin ár hefir
verið búsettur í Noregi, en var nú
staddur í Reykjavík. Flutti hann
í fundarlok ávarp til íslenzkra
blaðamanna.
Við stjórnarkjör var Jón Magn-
ússon fréttastjóri Ríkisútvarpsins
kjörinn formaður félagsins fyrir
næsta ár, en með honum í stjórn:
Atli Steinarsson (Morgunbk),
Andrés Kristjánsson (Tíminn),
Jón Bjarnason (Þjóðv.) og Gísli
Ástþórsson (Alþbl.).
8 blaðamenn voru teknir inn í
félagið á þessum aðalfundi.
-------------□----:----
Karlakór Ak.
minntist 29. ára afmælis síns s. 1.
laugardag, með veglegu hófi í Al-
þýðuhúsinu. Formaður kórsins,
Ingvi Rafn Jóhannsson, rafvirki,
setti hófið, Daníel Kristinsson,
verzlunarmaður flutti ferðaþátt,
að nokkru í ljóðum, úr söngför
kórsins til Suðurlandsins á síðast-
liðnu vori, Páll Helgason, skrif-
stofumaður las upp mergjaða
draugasögu, og voru Ijós slökkt í
salnum að mestu á meðan og Sig-
urveig Jónsdóttir söng gamanvís-
ur með undirleik Áskels Jónsson-
ar, söngstjóra. Þá söng Jóhann
Konráðsson einsöng. — Milli
skemmtiþálta var almennur söng-
ur.
Að borðhaldi loknu söng
Karlakórinn nokkur lög, en að
Iokum var stíginn dans til kl. 3
um nóttina. Hóf þetta fór í alla
staði prýðilega fram.
Var það persónufylgi?
I mjög furðulcgri ritsmið, sem
Jón á Yztafelli skrifar nýlcga i
Timann um kjördæmamólið, scg-
ir m. a.:
„Einmenningskjördæmin knýja
menn til að finna sér frambjóð-
endur og siðan þingmenn, sem
þcir þekkja persónulega og
treysta."
Það er crfitt að ótta sig ó,
hvað Jón ó við með þessum orð-
um. Telur hann það líklegt eða
jafnvel sjólfsagt, að Framsóknar-
menn í Austur-Húnavatnssýslu
hafi verið svo hrifnir af PERSÓNU
Braga Sigurjónssonar fró Akur-
eyri vorið 1956, að þeir þess
vegna kysu hann allir? Eða krat-
arnir a Patreksfirði hefðu af per-
sónuiegum óstæðum kosið Sigur-
vin Einarsson? Eða að Framsókn-
armenn ó Siglufirði hafi svo
snögglcga fengið óhuga fyrir
PERSÓNU Áka Jakobssonar, að
ekki kæmi annað til móla en
koma honum ó þing?
Nei, —- í kosningunum 1956
var Framsókn — eða Hræðslu-
bandalagið í heild — ekki að
spyrja um pcrsónur. Þar rikti það
flokkavald, sem Jón ó Yztafelli
óttast að magnist við breytingu ó
kjördæmaskipuninni, í þvi AL-
MÆTTI, að lengra verður ekki
komizt. Enda er það staðreynd,
oð sé nokkurt flokkavald til, þó
er það hjó Framsóknarflokknum,
sem um tugi óra hefir heimtað að
fó oð sitja yfir annarra hlut.
Verður Akureyri svipt
þingmanni sínum?
„Samvinnublaðið" Dagur spyr
að því í fyrradag, hvort það verði
ekki „ókaflega ónægjulegt, ef
svo fer, að Akureyri verður lagt
niður sem sérstakt kjördæmi".
Akureyri hefir hingað til haft
einn þingmann. Með tillögum
Sjólfstæðisflokksins í kjördæma-
mólinu er gert róð fyrir, oð Akur-
eyri, Eyjuf jarðarsýsla og Þing-
eyjarsýslur myndi eitt samcigin-
legt kjördæmi með 7 ÞING-
MÖNNUM, ÞAR SEM FIMM
HAFA VERIÐ AÐUR. Þessi fjölg-
un þingmanna í Nor6-Austur-
landskjördæmi er cingöngu til
komin vcgna vaxtar Akureyrar.
Hitt er svo annað mól, hvort Dag-
ur vill telja hlut Akureyringa, Ey-
firðinga og Þingcyinga minni en
óður, cf þcir fó 7 þingmenn ■
stað 5.
----------□----------
Akureyrarmeistarar í körfuknatfleik
Frá vinstri: Hermann, Axel, Skjöldur, Jón, Hörður, GarSar.