Íslendingur - 18.09.1959, Blaðsíða 1
XLV. árg.
Föstudagur 18. september 1959
34. tbl.
i Ddgs siimpldr Sjdlfstœ5tsmenn ínnen
sðBTimfilimM sem shemmdarverhamenn
oð (ettjortailuiro
Er oísóknarherferð að hefjast ?
Allt fró þvi, að samvinnuhreyfing-
in náði fótfestu, hafa menn af öllum
flokkum verið meðlimir hennar og
unnið henni gagn án tillits til þess,
hvar i flokki þcir hafa staðið. Þús-
undir Sjálfstæðismanna um allt land
cru þannig mcðlimir samvinnufélag-
anna, og þó að það sé ekki til siðs
i Kaupfélagi Eyfirðinga að kjósa þá
i stjórn og trúnaðarstöður, þá gegna
Sjálfstæöismcnn trúnaðarstörfum
innan samvinnufélaga viða um land
og hafa ekki reynzt lakari félags-
mcnn en aðrir. Lcngi hefir þó Fram-
sóknarf lokkurinn viljað telja sam-
vinnufélögin einkafyrirtæki sín, og
hafa Framsóknarmenn reynt að bola
þar frá trúnaði fylgismönnum ann-
arra flokka og utanflokkamönnum,
svo sem dæmin sanna. Alkunnugt er,
hvernig sjóðir samvinnufélaganna
eru notcðir til þess að halda uppi á-
róðri fyrir Framsóknarftokkinn með
því aö styðja málgögn hans með aug-
lýsingum, hvenær scm óskað er eftir
Nú þykir þetta ekki nóg. Ritstjóri
Dags skrifar í leiðara síðasta tölu-
blaðs furðuleg orð, scm tekin eru
upp orðrétt annars staðar hér i blað-
inu i dag, en ritstjórinn ber það blá-
kolt fram, að við Sjálfstæðismönnum
innan samvinnufélaganna beri að
gjalda varhug og likir þeim við
skemmdarverkamenn og þjóðsvikara.
Og þá ber að svipta öllum trúnaði
innan félaganna. Verður ekki annað
séð en hér sé beinlínis að því stefnt
að hrekja fylgismenn annarra flokka
en Framsóknar — svo og utanflokka-
menn — úr samvinnufélögunum —
og geta menn hugleitt, hvort það
muni veikja þau eða styrkja, svo sem
nánar er að vikið í lciðara blaðsins.
Óliklegt er, að ritstjóri Dags skrifi
þessi orð án þcss að hafa að bak-
hjarii valdamenn Framsóknarflokks-
ins, en skýrara þarf ekki að tala.
Ofsóknarherferð skal hafin inn-
an samvinnufélaganna gegn öllum
þeim þúsundum Sjálfstæðismanna,
sem þar eru meðlimir eða starfs-
menn, þeir skulu sviptir öllum
trúnaði og stimplaðir sem
skcmmdarvcrkamcnn og svikarar.
Þessi ummæli verða enn eftirtekt-
arverðari nú, þegar þess er gætt, að
Bjartmar Guðmundsson, þingeyski
bóndinn sem skipar baráttusætið á
lista Sjálfstæðismanna i Norðurlands-
kjördæmi eystra, hefir haft mikinn
trúnað þingeyskra samvinnumanna
eg er nú stjórnarmeðlimur Kaupfél.
Þingeyinga. 'Nú kcmur „Dag"-skip-
unin frá Framsóknarforingjunum á
Akureyri til Þingeyinga: Sviptið
Bjartmar Guðmundsson öllum trún-
aði innan K. Þ., af þvi að hann hefir
gerzt svo djarfur að taka sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins.
Þessi furðuiegu ofstækisskrif munu
raunor hafa þveröfug áhrif við það.
sem til er ætlazt, og þingeyskir sam-
vinnumenn, sem gert hafa Bjartmar
Guðmundsson að trúnaðarmanni sin-
um vegna mannkosta hans og góðra
starfa innan samvinnuhreyfingarinn-
ar, munu kunna að svara fyrir sig,
enda berast nú þær fréttir, að hann
muni verulcga efla fylgi Sjálfstæðis-
flokksins í Þingeyjarsýslu, svo að
sókn flokksins þar verður ekki minni
en í öðrum hlutum Norðurlandskjör-
dæmis eystra.
Það er fullkomið clvörumál fyrir
samvinnuhreyfinguna, ef Framsókn-
armönnum á að takast með ofsókn-
um að hrekja þaðan fylgismenn allra
annarra flokka og gera samvinnufé-
lögin að hreinum flokksfyrirtækjum.
Þing Fjórðungssamb. ungra Sjálf-
stæðismanna haldið á Blönduósi
Leifur Tómasson kosinn formaður sambandins
Síðastliðinn laugardag var hald-
ið á Blönduósi áttunda þing
FjórSungssambands ungra Sjálf-
stæðismanna á Norðurlandi, en í
sambandinu eru nú 7 félög. Þing-
forseti var kjörinn Stefán Á.
Jónsson, KagaSarhóli A.-Hún. og
þingritari Arngrímur Isberg,
Blönduósi. Sigmundur Magnús-
son, Hjalteyri, flutti skýrslu frá-
farandi stjórnar, og formenn
hinna einstöku félaga fluttu
skýrslur um starfsemi félaga sinna
á liðnu ári. Þingið sátu sem gestir
Magnús Oskarsson og Þór Vil-
hjálmsson varaformenn Sambands
ungra SjálfstæSismanna.
Nefndastörf og
álykfanir.
Á þinginu störfuðu fjórar
nefndir, stjórnmálanefnd, atvinnu-
málanefnd, skipulagsmálanefnd
og kjörnefnd. LögSu þær fyrir
þingfund ályktunartillögur, sem
samþykktar voru, og verða þær
birtar á öðrum stað.
Úr garði frú Guðlaugar Þorsteinsdóttur og Gests Olafssonar kenn-
ara Goðabyggð 1, er hlaut verðlaun Fegrunarfélagsins í sumar. —
Ljósm.: Gísli Ólafsson.
Fcgursti g'arður bæjarins
vid Cjoðub^g’gð 1
SíðastliSiS föstudagskvöld
efndi stjórn Fegrunarfélags Akur-
eyrar til hófs aS Hótel KEA, þar
sem skýrt var frá starfsemi félags-
ins á sumrinu og framtíðarverk-
efnum þess, og verðlaun og við-
urkenningarskjöl vóru afhent fyr-
ir fegurstu hirðingu garða og
lóða í bænum. Formaður félags-
ins, Jón Kristjánsson, stjórnaði
hófinu og afhenti verðlaun og
viðurkenningarskj öl.
Garðurinn viS Goða-
byggð 1 hlaut verðlaun.
Verðlaunagarðurinn að þessu
sinni var við húsið Goðabyggð 1,
eigendur hjónin Guðlaug Þor-
steinsdóttir og Gestur Ólafsson
kennar.i. Voru verðlaunin stór
blómavasi, fylltur hinum fegurstu
blómum.
ViSurkenningarskjöl fyrir góSa
hirðingu garða hlutu ennfremur:
Þorsteinn Davíðsson, Brekkugötu
41, hjónin Margrét Ingimarsdótt-
ir og Vilhjálmur Jóhannesson,
Ægisgötu 27, hjónin ValgerSur
Kristjánsdóttir og Júlíus Oddsson,
Sólvöllum 9 og hjónin ASalheiS-
ur Gunnarsdóttir og Hallur Sig-
urbjörnsson skattstj. ÁsabyggS 2.
Dómnefndina skipuðu: Árni
Jónsson tilraunastj óri, Jón Rögn-
valdsson garðyrkjuráðunautur og
Helgi Steinarr verkstjóri.
Njólinn versti óvinurinn.
framsöguræðu formanns veitt-
Framhald á 2. síðu.
Stjórnarkjör og
þingslit.
Sigmundur Magnússon lýsti til-
lögum kj örnefndar. í stjórn fjúrð-
ungssambandsins voru kosin:
Formaður: Leifur Tómasson
(Akureyri). ASalstjórn: Stefán
Friðbjarnarson (SiglufirSi), Guð
mundur Þór (Ólafsfirði), Kári
Leifur Tómasson.
Hallgrímsdóttir (Blönduósi),
Magnús Stefánsson (Fagraskógi,
Eyjafjarðarsýslu), Páll Þór Krist-
insson (Ilúsavík).
Varastjórn: Jón Björnsson,
(Skagafirði), Bjarni Sveinsson
(Akureyri), Árni Guðmundsson,
(SauSárkróki), Þórarinn Þor-
valdsson (Þóroddsstöðum, Vest-
ur-Húnav.s.), Magnús Stefánsson
(Ólafsfirði).
AS stjórnarkjöri loknu fluttu
þeir Sigmundur Magnússon og
Stefán Á. Jónsson stutt ávörp, en
Leifur Tómasson þakkaði f. h.
hinnar nýkjörnu stjórnar og
minntist starfa Sigmundar Magn-
ússonar í þágu fjórðungssam-
bandsins.
Á laugardagskvöldið bauS
sljórn fjórðungssambandsins og
stjórn F. U. S. Jörundar þingfull-
trúum og nokkrum öðrum gest-
um til kvöldverðar. Veizlustjóri
Jónsson (Sauðárkróki), Gerður var Stefán Á. Jónsson.
Tweir vitnisbnrðir
Ritstjóri Dags,
Erlingur Davíðsson.
„— — hljóta samvinnumenn
að gjalda varhuga við Sjálfstæð-
isflokknum og mcðhjálpurum
hans. Sá, sem vill vera heilsteypt-
ur samvinnumaður, gctur ekki
stutt þann flokk með atkvæði
sinu.
Sjálfstæðismaður getur hins
vcgar verið í samvinnufélagi og
notið hagnaðarins af því. Þetta
getur hann af þvi að samvinnufé-
lögin eru ekki „auðhringur", eins
og boðberar Sjálfstæðisflokksins
básúna, heldur fjöldasamtök, sem
standa öllum opin til þátttöku.
Hins vegar er siikur maður ó-
heill samvinnustefnunni og ófær
til að verðskulda trúnað hennar
— álika óheill og ísendingur væri
þjóð sinni, ef hann veitti Bretum
stuðning til hcrnaðar á miðunum
okkar."
(Dagur, 16. sept. 1959.)
Frv. forstj. KEA og SÍS,
Vilhjálmur Þór.
„— Hvað segið þér um það, á
ekki samvinnuhreyfingin að vera
ópóiitiskur félagsskapur?
— Jú, auðvitað. Eg hef cldrei
verið mjög pólitiskur maður og
taldi það bæði æskiiegt og nauð-
synlegt, meðan ég var forstjóri
S. I. S., að hafa ekki afskipti af
stjórnmálum. Eg vildi t. d. ekki
fara í framboð á þeim árum. Sam-
vinnufélögin eiga að vera opin
öllum, hvar í flokki sem þeir
standa. Þau eiga að vera ópólitisk.
Ef póiitikin nær undirtökunum í
samvinnufélögunum, cru þau sjálf
i mikilli hættu.
— Þér álitið sem sagt ekki
nauðsynlegt að vera Framsóknar-
maður til að vera samvinnumaður
eða forstjóri i kaupfélagi?
— Nei, auðvitað ekki."
Úr afmælisviðtali Matthías-
ar Jóhannessen, ritstjóra, við
Vilhjálm Þór sextugan.
(Morgunbl. 1. sept. 1959.)