Íslendingur - 08.01.1960, Síða 1
XLVI. árg.
Föstudagur 8. janúar 1960
1. tbl.
lÉoihiir prentorí frd los Angeles
i stuttri heimsihn
Bömin hans sjá hér snjó í íyrsta sinn
Á mánudaginn hitti blaðið að
máli hér í bænum Eyjólf Eiríks-
son prentara í Los Angeles, en
hann er nú staddur hér heima í
sumarleyfi ásamt fjölskyldu, konu
og þrem börnum. Skrapp hann
hingað norður að heimsækja leik-
bróður sinn úr bernsku og síðan
starfs- og stéttarbróður, Karl
Jónasson prentsmiðjustjóra, en
mun bráðlega halda aftur vestur
um haf.
Eyjólfur er fæddur og uppalinn
í Reykjavík og nam ungur prent-
iðn. Vann fyrst í Acta og síðar í
Eddu nokkur ár, en auk þess í
Víkingsprenti, Gutenberg og Fé-
lagsprentsmiðjunni. Hér vann
hann í Prentsmiðju Björns Jóns-
sonar á árunum 1946—47.
Á árunum 1941-44 dvaldi Eyj-
ólfur í San Francisko við prent-
störf. Kynnti sér þá einkum lit-
prentun. Var síðan í skóla í Tenn-
essee, sem prentarafélög í Norð-
ur-Ameríku eiga og reka. Eftir
heimkomuna þá vann hann jöfn-
um höndum að verzlu'n og prent-
iðn.
Vér spurðum Eyjólf um vestur-
för hans og störf vestra.
— Það var árið 1950, sem ég
fluttist vestur, segir Eyjólfur. —
Var ég fyrst við ýmis störf í San
Diego, en árið eftir fluttist ég til
Los Angeles og hef unnið þar
síðan hjá Burrough Corporation,
en það er reikni- og bókhaldsvéla-
firma, er rekur prentsmiðjur víða
í Bandaríkjunum, þ. á. m. í Los
Angeles og Rochester. í prent-
smiðjunni sem ég vinn í, vinna
um 600 manns, en alls vinna á
vegum fyrirtækisins milli 40 og
50 þúsund.
— Hvað /com þér til að flytja
veslur?
— O, kannske einhvers konar
ævintýraþrá, löngun til að breyta
um atvinnu og dvalarstað. Ég
hafði kynnzt konu minni fyrst á
leið milli Danmerkur og íslands
árið 1946, og fórum við bæði j
vestur með stuttu millibili. Við
giftum okkur í Los Angeles eftir
að ég kom þangað og höfum búið
þar síðan.
— llver er kona þín, og hve
:stor er fjölskyldan orðin?
— Kona mín heitir Rut, fædd
.Jensen, og er uppalin í Kaup-
mannahöfn. Börnin eru þrjú:
Karl, sex ára, og tvíburarnir Elísa-
het og Marianne fjögurra ára.
Nöfnin skrifuð á íslenzku og
dönsku, og þykir skrítið þar
vestra.
— Hvernig láta börnin yfir
Jerðinni hingað?
— All-vel. Þau sjá hér margt
nýstárlegt, t. d. snjóinn, enda
finnst þeim í kaldasta lagi. Lítið
geta þau talað við börnin hér
heima, þótt þau kunni nokkur orð
í íslenzku. En heima hjá sér um-
gangast þau aðeins enskumælandi
börn og tala því ekki á öðrum
tungum. Við hjónin tölum saman
á íslenzku, ef við viljum ekki láta
börnin fylgjast með umtalsefn-
inu.
— Hvernig eru kjör prentara
vestra?
— Þau eru mjög viðunandi.
Sjálfur fékk ég í upphafi sérstök
kjör, eða betri laun en þar tíðk-
ast. Yfirleitt má telja kjörin góð.
Að vísu hafa aðrar iðnstéttir, svo
sem pípulagningamenn og múr-
arar hærra tímakaup, en þeir hafa
oft stopula vinnu og bera því
gjarna minna úr býtum en við
prentararnir, sem vinnum fasta
vinnu allt árið.
— Eru ekki fleiri íslendingar
en þú í Los Angeles?
— Jú, biddu fyrir þér. Það
munu vera milli 5 og 6 hundruð
Islendingar í Los Angeles og
næsta nágrenni. Hafa þeir með
sér félagsskap og koma saman á
2ja til 3ja mánaða fresti og gefa
út eigið fréttablað. Formaður fé-
lagsins nú er Hal Linker kvik-
myndatökumaður, kvæntur ís-
lenzkri konu, og munu flestir Is-
lendingar kannast við þau af við-
tölum og frásögnum í blöðum.
Margir íslendingar þar vestra fá
blöðin að heiman. Ég hef t. d.
alltaf fengið Morgunblaðið og
Tímann reglulega vestur, og fylg-
ist því all-vel með því, sem hér
gerist hverju sinni.
— Dveljið þið lengi hér heima
að þessu sinni?
— Nei, það getur ekki orðið.
Okkur langaði til að skreppa til
Hafnar um leið í heimsókn til
ættingja og kunningja konu minn-
ar, en af því getur ekki orðið,
I þótt ég tæki tveggja ára saman-
lagt sumarfrí til ferðarinnar.
15 millj. kr. lán til
íbuöabygginga
Ríkisstjórninni hefir tekizt að
útvega 15 millj. kr. bráðahirgða-
lán hjá Seðlabankanum vegna
Húsnæðismálastofnunar ríkisins.
Fékkst lánið fyrir jólin, og er út-
hlutun þessa fjár nú í undirbún-
ingi. Er þessi lántaka byggð á þvi
ákvæði í stefnuyfirlýsingu stjórn-
arinnar að greiða fyr.ir auknum
lánveitingum til íbúðabygginga.
»Vörðer« heldur
stjórnmdlendntsheið
Vörður, Fél. ungra Sjólfstæðis-
manna, gengst fyrir stjórnmóla-
nómskeiði í vetur, svo sem hann
hefir gert oft ó undanförnum ór-
um. Hefst það n. k. mónudag, 11.
janúar, og eru væntanlegir þótt-
takendur beðnir að gefa sig þegar
fram við formann Varðar, Leif
Tómasson, símar 2280 og 1352.
BREYTTUR
LOKUNARTÍMI
Lokunartími sölubúða breytt-
ist nú um áramótin. Verður
verzlunum lokað kl. 1 á laugar-
dögum til 30. apríl, en opnar
verða þœr á sama tíma á föstu-
dögum til kl. 7 síðdegis.
Nýr bankastjóri
Nú um áramótin var Júlíus
Jónsson gjaldkeri við Utvegs-
bankaútibúið hér í bæ skipaður
bankastjóri þess, en hann hefir
gegnt bankastjórastarfi við útibú-
ið síðan Svavar Guðmundsson
flutti brott héðan í fyrra.
Júlíus er fæddur hér á Akur-
eyri 31. maí 1915 og tók ungur
gagnfræðapróf við Menntaskól-
Júlíus Jónsson.
ann hér. Dvaldi síðan 1 vetur við
nám í verzlunarskóla í Bristol.
Litlu síðar gerðist hann starfs-
maður við útibú Útvegsbankans
hér, fyrst í Hafnarstræti 88, en
síðan útibúið var flutt í Hafnar-
stræti 107 fyrir tveim áratugum
hefir hann starfað þar og verið
gjaldkeri síðastliðin 16 ár.
Júlíus er öllum sem til hans
þekkja kunnur að góðu einu, lip-
urmenni hið mesta og drengur
góður. Er hann eftir langa þjón-
ustu við útibúið orðinn gagn-
kunnugur bankastarfsemi, og
mun því þykja vel ráðin skipun
hans til starfsins. ■
Eyjólfur Eiríksson prentari og fjölskylda (sjá viðtal). Myndin tekin
liér í bœnum í fyrradag.
Frcinsnr
um iíriimoíin
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar var götulífið hér í bæ
rólegra nú um áramótin en oft áð-
ur, og gekk umferð hindrunar-
laust. Lítið var um sprengjur,
enda sala á þeim bönnuð, og tók
lögreglan í sínar vörslur það, sem
til spurðist af þeim, m. a. í einni
verzlun. Skemmdarverk voru
hverfandi, — þó brotin stór rúða
í sýningarglugga Yöruhússins, en
það mál mun upplýst.
Nokkuð bar á ölvun á áramóta-
fögnuðum og á götunum að þeim
loknum. Voru 8 menn teknir úr
umferð á nýársnótt vegna ölvun-
ar, en þar sem lögreglan getur að-
eins hýst 3 samtímis, varð að
fiytja nokkra heim til sín.
Sex áramótabrennur voru
haldnar á gamlárskvöld með sam-
þykki lögreglunnar. Veður var
gott, en þó fremur lítil umferð á
götum úti. Mikið flugeldaflóð var
yfir bænum á miðnætti, og horfðu
bæjarbúar á það úr gluggum húsa
sinna.
Kaiipfélögiii mjélknð í
,si>ilkomu‘ FraiiiNÓknar
Látin bera kostnað' af blöðum flokksins.
Eins og oft hefir veriS bent ó
hér í blaðinu, eru samvinnufélög-
in freklega notuð til framdráttar
pólitískum óróðri Framsóknar-
flokksins með því að láta auglýs-
ingar frá þeim bera uppi kostnað-
inn við útgáfu flokksblaðanna.
Þegar á þetta er bent, gera blöðin
hvorki að játa né ncita en bregða
gjarna fyrir sig þeim rökum, að
Framsóknarflokkurinn sé hinn
eini verndari samvinnufélaganna
og þvi eðlilegt, að samvinnuhreyf-
ingin og flokkurinn styðji hvort
við bakið á öðru! Flestir aðrir eru
þeirrar skoðunar, að þar sem sam-
vinnuhreyfingin sé að uppruna
og EIGI AÐ VERA óháð pólitisk-
um flokkum, hafi forráðamenn
cinstakra samvinnufélaga, sem
skipuð cru almcnningi úr öllum
stjórnmálaflokkum, enga sið-
fcrðilcga heimild til að mjólka
þau í fötu einstakra pólitiskra
flokka.
Vilji menn sjá, hvernig farið cr
að þvi að láta samvinnufélög bera
uppi málgagn Framsóknarflokks-
ins hér i bæ, þarf ekki annað en
lita yfir blaðið Dag í desember sl.
Komu út af honum sérstök aug-
lýsingablöð, mestmegnis með aug-
lýsingum frá samvinnufélögum.
I einu slíku 8 siðu blaði voru 511
síður þaktar slikum auglýsingum,
en þær gera eftir núgildandi aug-
lýsingaverði Akureyrarblaðanna
ca. 12 þúsund krónur.
Samkvæmt mælingum og mið-
að við venjulegt auglýsingaverð
hér hafa samvinnufélög og sam-
vinnustofnanir auglýst i Degi í
desembermánuði einum fyrir kr.
48000.00 — FJÖRUTÍU OG
ÁTTA ÞÚSUND KRÓNUR og eru
þó ekki meðtaldar jólakveðjur
einstakra félagsdeilda eða til—
kynningar, sem venjulega birtast
í öllum bæjarblöðunum. Má af
þcssu nokkuð ráða, hve purkunar-
laust samvinnufélög almennings
eru mjólkuð i „spilkomu" Fram-
sóknarf lokksins.