Íslendingur - 19.02.1960, Blaðsíða 2
ÍSLENDINGUR
Föstudagur 19. febrúar 1960
2
Kemur út hvern
föstudag.
Útgefandi: Útgáfufélag íslendings.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jakob Ó. Pétursson, Fjólugötu 1, sfmi 1375.
Skrifstofa og afgreiðsla í Hafnarstræti 81 (neðsta hæð), sími 1354. —
Opin kl. 10—12 og 13.30—17.30. Á laugardögum kL 10—12.
Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f.
Hvít bók um efnahagsmál
Ríkisstjórnin hefir gefið út svo-
nefnda „hvíta bók“ um efnahags-
málin, sem orðið hefir um all-
hörð rimma á Alþingi. Hafa
stjórnarandstæðingar líkt útgáfu
hennar við „frímerkjaþjófnað“
og önnur slík afbrot.
Þessi hvíta bók hefir að geyma
hagfræðilega greinargerð fyrir
þeirri þróun, — eða öllu heldur
öfugþróun, sem efnahagsmál
þjóðarinnar hafa verið háð á und-
anförnum árum með liinu al-
ræmda styrkja- og uppbótakerfi
og jafnframt þeim aðgerðum, sein
nú er gert ráð fyrir í frumvarpi
stjórnarinnar um efnahagsmál.
Eftir að rakin hefir verið í bók-
inni forsaga hinna væntanlegu
aðgerða segir þar svo:
„í Ijósi þess, sem sagt hefir
verið hér að framan, telur rík-
isstjórnin það ekki álitamál,
að nauðsynlegt sé að afnema
bóta- og gjaldakerfið og leið-
rétta gengisskráninguna að
fullu. Hitt er ríkisstjórninni vel
ljóst, að þetta verður ekki gert
nema með víðtækum breyting-
um í öllu efnahagslífinu. Þess-
ar breytingar eru erfiðar í
framkvæmd, vegna þess hve
víðtækar þær eru, og hversu
mjög þær snerta hagsmuni
allra stétta þjóðfélagsins. Eng-
in ríkisstjórn myndi gera til-
lögur um slíkar breytingar að
óþörfu. Það er vegna þess, að
ríkisstjórnin er sannfærð um,
að þjóðarvoði sé fyrir dyrum,
ef slíkar ráðstafanir séu ekki
gerðar, að hún gerir nú tillög-
ur um víðtækari ráðstafanir í
efnahagsmálum en gerðar hafa
verið hér á landi síðasta ára-
tuginn að minnsta kosti.“
Svo sem kunnugt er orðið, er
tilgangur ríkisstjórnarinnar sá
með tillögunum, að samræma hið
margvíslega gengi íslenzku krón-
unnar, draga úr styrkja- og upp-
bótakerfinu og gera allt hagkerfi
þjóðarinnar einfaldara í vöfum
og framkvæmd en verið hefir hin
síðustu ár. Með sérstökum mótað-
gerðum leitast hún við að láta
þessar aðgerðir koma sem jafn-
ast niður á þeim, sem bök hafa til
að bera óþægindin. 1 heild telja
hagfræðingar, að aðgerðir svari
til ca. 3% rýrnunar lífskjara.
Þeir, sem áður hafa búið við
skarðastan hlut, svo sem gamal-
menni við rýr elliiaun og rýrnandi
verðmæti samansafnaðs spari-
fjár, eiga að fá hlut sinn að fullu
bœttan í hækkuðum eliilaunum og
hækkuðum vöxtum af sparifé. Ör-
yrkjar og f j ölskyldumenn í hækk-
uðum bótum frá Almannatrygg-
ingum.
Sú kjararýrnun, sem vænta má
að hin nýja gengisskráning ísl.
krónu hafi í för með sér, kemur
að sjáifsögðu að einhverju leyti
við alla þegna þjóðfélagsins og
hiýtur svo að verða hjá hverri
þeirri þjóð, er miðar lífskjör sín
við hærri „gráðu“ en hún má og
getur. Islendingar hafa um aldir
búið við meira erfiði en aðrar
þjóðir og lélegri kjör vegna legu
og staðhátta landsins, og þótt ný
tækni létti mörgum starf og 6trit,
þurfum við aldrei að ætla okkur
þann hlut að geta lifað áhyggju-
lausu og áreynslulausu lífi. Harð-
býlt land hlýtur ætíð að krefjast
þess af íbúum sínum, að þeir þurfi
meira fyrir lífinu að hafa en
íbúar þeirra landa, er öll skilyrði
eiga til að lifa áhyggjulitlu og
rólegu lífi. En þótt við lifum á
„mörkum hins byggilega heims“,
eins og einhver spakur maður
hefir að orði komizt, þá eigum
v.ið ótæmandi möguleika til að
gera landið jafn byggilegt og önn-
ur lönd. Það votta hinir miklu
»
möguleikar okkar til nýtingar
jarðhita, orkubeizlunar fallvatna
og auðæfa hafsins, meðan þau
eru ekki ónýtt af ránsmönnum.
En ekki fæst allt unnið á einum
degi. Ilver sá heimilisfaðir, sem
sjá vill fjölskyldu sinni farboða,
gætir þess jafnan, að tekjur og
gjöld heimilisins standist á. Þessi
sjálfsagða regla hefir ekki verið
í heiðri höfð á þjóðarheimilinu
nokkur síðustu árin. En nú vilja
menn taka hana upp. Jafnvel
stjórnarandstæðingar, þó að þeir
segi annað.
Er þetta árás á æskuna?
Þess hefir orðið vart í stjórnar-
andstöðublöðunum, að með fyrir-
ætlunum ríkisstjórnarinnar í efna-
hagsmálum sé verið að krenkja
æsku landsins. Slíkt er hin mesta
bábilja. V.ið getum ekki ár eftir
ár eða áratug eftir áratug blekkt
unga fólkið með því, að hér sé
það Gósenland, sem það geti
erjað um langa framtíð áhyggju-
laust og erfiðislaust. Ekki vitum
við, nema að æskumenn okkar
mundu rísa upp að fám árum
liðnum, eða þegar þeir eiga að
taka við rekstri þjóðarbúsins, og
við hefðum í engu hagað okkur
eftir aðstæðum og horfst í augu
við veruleikann, — og sagt við
okkur:
— Hví voruð þið, feður okkar
og mæður, að blekkja okkur?
Þið sögðuð okkur, að hér væri
allt í lagi, — við skyldum lifa og
leika okkur eins og við gætum, —
og svo hrellið þið okkur með því,
um leið og þið afhendið okkur
þjóðarbúið, að á því hvíli skuldir,
sem okkur beri að greiða. Þetta
var okkur áfall, og
þið hefðuð bcfur gcrf oð scgja
okkur sannleikann ■ stað þess að
blekkja okkur.
I
tommu hœlarnir. — Skautasvellið.
OFT ER RÆTT um umferðamálin
og hættu þá, sem skapazt í sambandi
við umferðina, og þá ekki sízt, hve mik-
ið skortir enn á, að fótgangandi menn
sýni nauðsynlega varkárni í umferð-
inni. Yfirleitt eru bílstjórar hér í hæ
varkárir í akstri, og þá einkum leigu-
bílstjórar, og má furðu sæta, hve sjald-
an verða hér umferðaslys. Víða eru
hættuleg gatnamót, og má þar fyrst
nefna gatnamótin Geislagata, Glerár-
gata, Eiðsvallagata, svo og Smáragata, I
en þarna er alls staðar tvístefnuakstur.!
Með því að gera Geislagötu og Glerár-
götu að einstefnugötum, mætti veru-
lega draga úr hættunni á þessum víð-
áttumiklu vegamótum.
EN ÞAÐ var annað, sem ég vildi
vekja máis á eftir ábendingu frá öku-
manni. Sums staðar í bænum, og þá
sér í lagi við Ilelga-magra stræti, eru
járnhlið á lóðum, sem opnast jöfnum
höndum út á götu og inn í garð. Oft
vill það til, að barn hleypur á hlið-
grindina innan frá, hrindir henni út á
götuna og hleypur fram á veginn, án
þess að liuga að uinferð. Ef öll þessi
hlið opnuðust inn á lóð, væri hættan
tiltölulega lítil. Þá verða börnin fyrst
að draga grindina að sér, áður en
hlaupið er út á götuna.
ÉG SÁ í einhverju sunnanblaði ný-
lega útreikning á því, hve mikiJl þungi
kæmi á livern fersentimetra af mjóu 6
tommu-hælunum, sem kvenfólkið viJI
nota nú til dags, og mér krossbrá. Það
er út af fyrir sig að fá þessa hæla ofan
í ristina í dansi, sem alltaf getur komið
fyrir, þar sem þröngt er. Hætt er við,
að hællinn gangi þá í gegn og þurfi að
reka liann með hamri eða sleggju til
baka. En sýnilega verður ekki með töl-
utn talið, hvert tjón þessir hælar vinna
á gólfteppum og jafnvel gólfdúkum, —
ég tala nú ekki um, hvernig þeir fara
með göturnar. Malbikið spænist upp,
svo að nýjar malbikunarvélar fá þar
ekki rönd við reist, — svo að maður
tali nú ekki um skemmdir á grónum
lendum, þar sem gengið er á nöglum
þessum.
íÞRÓTTABANDALAGIÐ hefir sýnt
lofsverða viðleitni að viðhalda skauta-
svelli á íþróttasvæðinu undanfarna vet-
ur, og eins og vitað er, sótti fjöldi fólks
á svellið dag hvern meðan það hélzt nú
fyrir nokkrum vikum. Síðan kom hlák-
an og eyðilagði svellið. Nú hefir skipt
um og hörkufrost hafa verið marga
undanfarna daga. — Vilja forráðamenn
IBA nú ekki ganga fram í því, að vatni
verði sprautað aftur á svæðið, svo að
áframhald megi verða á iðkun skauta-
íþróttarinnar, meðan tíð leyfir.
--------x----------
Leiðrélting. Sú villa varð í grein á 2.
síðu blaðsins 12. febrúar á 2. dálki, að
þar stóð: „Samkvæmt binni nýju geng-
isskráningu mundi íslenzk króna fram-
vegis jafngilda 38 dollurum", en átti að
sjálfsögðu að vera: að 38 íslenzkar kr.
jafngiltu bandarískum dollar.
Frá
Húsavík, 12. febr.
Síðastliðiö ár var Húsvíking-
um fremur hagstætt. Atvinna yfir-
leitt næg og jafnvel skortur á
v.innuafli yfir sumarmánuðina. —
Byggingar voru með mesta móti,
svo að um áramót var um 40
íbúðarhúsum og öðrum viðbótar-
byggingum ýmist lokið eða kom-
ið nokkuð á veg.
Síidarsöltun var minni en vonir
stóðu til, eða um 6000 tunnur —
olli þar um aðallega tvennt —
síldarafli lítill á miðveiðisvæð-
inu og síldarbræðslan algjörlega
ófullnægjandi. Um fyrra atriðið
verður við engan deilt, en stækk-
un síldarverksmiðjunnar er í at-
hugun. Fiskafli var lítill s. 1. vor,
kom ekkert vorhlaup, en er leið
á sumarið glæddist aflinn, og
haustvertíð var góð, svo heildar-
afli var svipaður og árið áður.
Frá höfninni.
Sjósett var eitt 15 m. kar og
komið fyrir á sínum stað og ann-
að var fullsmíðað, er ganga skal
frá í sumar. Er þá lokið lengingu
hafnargarðsins a. m. k. í bili.
Byggð var á s. 1. vori staura-
bryggja utan á hafnarbryggjuna
til athafna fyrir smærri báta. Er
nú þessa dagana unnið að leng-
ingu þessa mannvirkis og verður
þegar lokið er tæpir 60 metrar.
Verkstjórn og umsjón með þess-
um framkvæmdum hefir Sveinn
Júlíusson haft. Dýpkunarskipið
Grettir gerði hér í sumar tilrauna-
dýpkun í höfninni, til að fá úr
því skorið, hvort dýpkun væri
möguleg. Var tilraunin jákvæð.
Landbúnaður.
Heyskapur var mikill og góður,
og feitt kom fé af fjöllum í haust.
Ilúsvíkingar eru fjármargir, —
Vísnabálknr
Morgunn við Astjörn.
Morgunn fagur rís úr rúmi,
rekur brottu þögla nótt,
sviptir burtu svölu húmi,
sveipar Ijóshjúp jörðu fljótt.
Sól á tindum, sól á fjöllum,
sól á hóli og úti um sæ,
sól á grundum, sól á völlum,
sól í dal, á hverjum bæ.
Hefja fuglar hvellan róminn,
hendast, sendast grein af grein.
Sólin vermir blessuð blómin,
bakar rakan sand og stein.
Golan vex, og báran bláa
bökkum tjarnar gjálfrar hjá.
Ondin leiðir unga smáa
út á vatnið, landi frá.
Kvöld við Astjörn.
Sólarlagið sindrar eldi
sanda, strendur, fjöll og sæ,
reifar himin rósafeldi,
rauðum, gullnum töfrahlæ.
Bjarkagreinum blærinn vaggar,
bærir lauf í skógarhlíð,
grasið væta dropar daggar,
drúpa höfði blómin íríð.
Söngur fagur þrasta þrotnar,
þungur ymur vatna gnýr,
annars kyrrðin einvöld droltnar,
ys og þys á brottu flýr.
Sœmundur G. Jóhannesson.
ári
kannske um of, finnst þeim, er
enga eiga ána og þurfa að víg-
girða lóðir sínar og garða fyrir
ágang.i búfjár. Einnig eru bænd-
ur hér í kring ekkert hýrir yfir
fjárbúskap Húsvíkinga, er herjar
lönd þeirra. Stendur þar um styr,
og finnst sitt hverjum. Gott er að
eiga von í lambi, en stór fjárbú-
skapur á ekki við inni í bæjum.
Vert er að geta þess, að sand-
græðslan gerði hér í vor tilraun
með dreifingu fræs og áburðar
úr flugvél. Mátti sjá, er leið á
sumarið, græna geira um mela og
börð hér í kring, svo ekki er um
að villast árangur. Þó að sumir
væru ekki ánægðir með hvar
dreift var, fyndist fara of mikið
á tún nágrannans, þá er þetta
starf, sem sýnilega ber ávöxt.
Húsavíkurbær 10 ára.
Húsavík hélt upp á 10 ára af-
mæli sitt sem kaupstaður þann 30.
des. sl. Var boðið til samsætis að
Hótel Húsavík um 50—60 manns,
bæjarfulltrúum, varabæjarfull-
trúum, starfsmönnum bæjarins o.
fl. Hófinu stjórnaði varaforseti
bæjarstjórnar, Jóhann Iiermanns-
son.
Ekki verður sagt um Húsvík-
inga, að þeir liafi verið við eina
fjölina felldir, því þeir hafa hald-
ið við fjóra bæjarstjóra á þessum
10 árum. Þeir eru: Karl Kristjáns
son, er var oddviti Húsavíkur-
hrepps, hann var bæjarstjóri um
eins árs skeið. Þá tók við Frið-
finnur Árnason, síðan Páll Þór
Kristinsson, og núverandi bæjar-
stjóri er Áskell Einarsson.
Hér hefir verið stiklað á stóru
með annál ársins 1959 — mörgu
gleymt og öðru gerð ófullnægj-
andi skil.
Joðge.
Ársrit
Skógræktarfélags íslands 1959,
hefir blaðinu borizt. Flytur það
þetta efni: Hákon Bjarnason skóg-
ræktarstjóri: Fólksfjölgun og
framtíðarnytjar lands, — Sögu-
leg mynd, — Skjólgrindur, —
Minnzt látinna skógræktarmanna,
— Starf Skógræktar ríkisins 1958.
Arngr. Fr. Bjarnason: Stórar hug-
sjónir þurfa miklar fórnir, Eyþór
Einarsson: Gróðurathuganir í
Hallormsstað, í Vaglaskógi og
Haukadal, Skógrækt í Nordlands-
fylki, skýrslur skógræktarfélag-
anna 1957—58, o. fl.
------o------
Heima er bezt,
2. hefti, 10. árg. flytur m.a. þetta
efni: Hafmey og hakakrossar, rit-
stj óraspj all; Jón Tómasson, tón-
skáld eftir Pál Halldórsson; Tæpt
í klettum fyrir nær 60 árum eftir
Björn Guðmundsson; Jólaþankar
farkennarans, smásaga eftir Odd-
nýju Guðmundsdóttur; Þokuvilla
á Hágangaheiði eftir Hólmstein
Helgason; Eyðibýlið Pálssel eftir
Jóh. Ásgeirsson; Vísur og smá-
kvæði eftir Auðun Br. Sveinsson;
framhald Æviminninga Bjargar
Dahlmann; framhaldssögurnar
og þáttinn Hvað ungur nemur;
Bókahillan; Myndasagan o. fl.
--------------□--------- .
liðnu