Íslendingur - 23.09.1960, Page 1
Nýja Dalvíkurkirkjan. — Ljósm.: E. Sig.
Frá 9. þingi F.l .S.
á Morðurlandi
Níunda þing Fjórðungssam-
bands ungra Sjálfstæðismanna á
Norðurlandi var háð í Lands-
bankasalnum hér á Akureyri
sunnudaginnll. þ. m. Sóttu það
fulltrúar írá hinum ýmsu félög-
um ungra Sjálfstæðismanna á
Norðurlandi, og voru samþykktar
á þinginu stjórnmálaályktun, á-
lyktun í landhelgismálinu og
nokkrar fleiri ályktanir og tillög-
ur. Þá voru og fluttar skýrslur
um starfsemi félaganna á liðnu
starfsári.
I upphafi þingfundar flutti for-
maður sambandsins, Leifur Tóm-
asson, ávarp. Þá var Árni Guð-
mundsson Sauðárkróki kjörinn
forseti þingsins og Eggert Ólafs-
son sama stað ritari þess.
Þá flutti formaður skýrslu um
störf fjórðungssambandsins síð-
astliðið starfsár. Tók það mikinn
þátt í undirbúningi haustkosning-
anna. Síðan fluttu fulltrúar ein-
stakra félaga skýrslur um starf-
semi þeirra: Guðmundur Klem-
enzson frá „Jörundi“ í Austur-
Húnavatnssýslu, Indriði Hjartar-
son frá deild þess á Skagaströnd,
Árni Guðmundsson frá „Vík-
ingi“ á Sauðárkróki, Magnús
Stefánsson frá „Garðari“ í Ólafs-
firði, Leifur Tómasson frá
„Verði“ á Akureyri og Þórhallur
Snædal frá samtökum ungra
Sjálfstæðismanna á Húsavík og
Suður-Þingeyj arsýslu.
Síðan voru kjörnar þrjár nefnd-
ir: stjórnmálanefnd, skipulags-
nefnd og kjörnefnd, en framsögu-
menn þeirra síðar á þinginu voru
Kári Jónsson, Þórhallur Snædal
og Indriði Helgason. Formaður
SUS, Þór Vilhjálmsson, flutti er-
indi um starfsemi samtaka ungra
Sj álfstæðismanna, og tóku síðan
til máls Þórhallur Snædal, Leifur
Tómasson, Magnús Stefánsson
Ólafsfirði, Kári Jónsson og Stein-
þór Ólafsson. Að loknum þeim
umræðum flutti Jónas G. Rafnar
alþm. erindi um félagsmál ungra
Sjálfstæðismanna og stjórnmála-
viðhorfið, en síðan var fundar-
hlé, meðan kjörnar nefndir störf-
Báturinn sem jórst.
Akureyrarbátur ferst við Hrísey
í vikunni sem leið strandaði
m.b. Þórunn, eign bræðranna
Árna og Gunnars Ólafssona hér í
bæ við svonefnt Saltnes í Hrísey.
Var hann að koma frá Ólafsfirði,
og var Gunnar einn á bátnum.
Komst hann óskaddaður í land,
en báturinn brotnaði í spón um
nóttina, enda var mikil hvika á
strandstaðnum.
Þórunn var 15 lestir að stærð.
Hét áður Björgvin og var gerður
út á hrefnuveiðar af Páli A. Páls-
syni.
uðu og undirbjuggu ályktanir
þingsins.
í fundarlok fóru fram stjórnar-
kosningar. Formaður fjórðungs-
sambandsins var kjörinn Stefán
Á. Jónsson kennari að Kagaðar-
hóli A.-Hún., en meðstj órnendur
Stefán Friðbjarnarson Siglufirði,
Árni Guðmundsson Sauðárkróki,
Magnús Stefánsson Ólafsfirði,
Þórhallur Snædal Húsavík, Bjarni
Sveinsson Akureyri, Magnús Stef-
ánsson Fagraskógi, en í vara-
stjórn Jón Björnsson Skagafirði,
Erna Ingólfsdóttir Sauðárkróki,
Steinþór Ólafsson Skagaströnd,
Guðm. Þór Benediktsson Ólafs-
firði, og Leifur Tómasson Akur-
eyri.
Þá urðu loks nokkrar umræður
um þjóðmál, og tóku þá til máls
Þór Vilhjálmsson, Jónas G. Rafn-
ar, Þórhallur Snædal, Árni Guð-
mundsson, Leifur Tómasson og
Steinþór Ólaf sson.
Um kvöldið buðu ungir Sjálf-
stæðismenn hér í bæ þingfulltrú-
um til kvöldverðar að Hótel KEA,
og var þinginu slitið í því hófi.
Hlaut 200 þús.
króna sekt
í vikunni sem leið kom brezki
togarinn Wyre Mariner inn til
Seyðisfjarðar með annan brezk-
an togara í eftirdragi, er snögg-
lega hafði komið leki að úti á
miðunum. Kom í ljós, að Wyre
Mariner lá undir kæru frá land-
helgisflugvélinni Rán um að hafa
verið að veiðum 2—3 sjómílur
innan fiskveiðimarkanna hinn 7.
júlí sl. austur við Hvalbak. Var
mál skipstjórans tekið fyrir á
Seyðisfirði, og stjórnaði Erlend-
ur Björnsson bæjarfógeti yfir-
heyrslum. Skipstjórinn neitaði að
hafa orðið var nokkurrar aðvör-
unar frá flugvélinni og eins því,
að hafa verið innan 12 mílna, en
flugstjórinn á Rán vann eið að
framburði sínum.
Við dómsuppkvaðningu hlaut
brezki skipstjórinn 200 þúsund
króna sekt, en liann áfrýjaði.
X
Landbúnaðarafurðir hækka í
verði — nema mjólk
!
Sex-mannanefndin, er reiknar
út búvöruverð, komst að þeirri
niðurstöðu ágreiningslaust, að
verðlagsgrundvöllur þeirra skyldi
hækka um 7.55%. Hækkun þessi
stafar af auknum tilkostnaði við
búrekstur vegna gengisbreyting-
arinnar á sl. vetri og þar með
hækkaðs verðs á ýmsum vörum,
er til búreksturs heyra. í smásölu
verður hækkun þessara vara
nokkuð misjöfn, t. d. verður
mjólkurverð óbreytt, þar sem
verðhækkun á þeirri vöru verður
greidd niður af ríkissjóði. Hér er
um að ræða mjólk og mjólkur-
vörur, kjöt og kjötvörur. í sum-
um greinum er dregið úr niður-
greiðslum, og hækkar þá verðið
meira en nemur meðaltalshækk-
un. T. d. hækka skyr og ostar
meira en verðlagsgrundvöllurinn
segir til um, svo sem kg. af skyri
úr kr. 9.00 í kr. 10.20 og ostur
(45%) úr kr. 4-8.00 í kr. 55.40
kg., en niðurgreiðsla á honum er
felld niður.
Súpukjöt hækkar úr kr. 18.90 í
smásölu í kr. 22.00 og heil slátur
úr kr. 28.75 í kr. 30.50.