Íslendingur - 23.09.1960, Blaðsíða 5
Föstudagur 23. september 1960
ÍSLENDINGUR
5
SkrifstifiKiir, sem 0 »140 hausa á fjallk
— Mætt við Pál frá (írænavatiii, sfötng:an. —
Páll Jónsson frá Grænavatni
varð 70 ára 3. þ. m. I tilefni af
því heimsótti ég hann að Hring-
braut 8 Húsavík og lagði fyrir
hann nokkrar spurningar, er hann
góðfúslega svaraði.
— Ertu ekki Þingeyingur í
húð og hár og þá ögn drjúgur yf-
ir því, eins og fleiri eru sagðir
þaðan úr sveit?
Páll kímir og segist ekki vilja
viðurkenna, að Þingeyingar séu
montnari en aðrir. — T. d. hefi
ég setið við gleðskap með bænd-
um úr fjarlægri sýslu, þar sem
svo var tekið til orða: „Vér stór-
bændur“. Svo þroskað mont hefi
ég ekki fundið í minni sýslu, segir
Páll.
Skagfirzk og
eyfirzk ætf.
— Ef ég á að rekja ætt mína,
þá er föðurætt mín bæði skag-
firzk og eyfirzk. Faðir minn, Jón
Hinriksson, er fæddur Þingeying-
ur, en afi minn, Hinrik, var
kenndur við Tunguháls í Skaga-
firði. Var hann með vissu talinn
6. maður frá Hrólfi sterka í bein-
an karllegg. Ég afsaka mig með
því að vera 8. liðurinn. Amma
mín, Þorgerður Jónsdóttir, kona
Hinriks, var kennd við Ytra-Gil í
Eyjafirði.
Faðir minn ólst upp á hrakhól-
um. Fluttist 8 ára að Kálfaströnd
í Mývatnssveit. Segir hann svo í
ljóðabréfi á efri árum til vinar
síns:
Æskan flæmdist út á hjarn,
allt varð geðið þvingað,
þá ég átta ára barn
áður færðist hingað.
Effir maanvirðingum.
Við ferminguna var hann látinn
sitja neðstur. Þá var raðað eftir
mannvirðingum. Prestur sagði þó
á eftir: „Þú svaraðir bezt, Jón.“
Fermingarárið fluttist hann að
Grænavatni. Var þar fram yfir
giftingu, og fæddist þar hans elzta
barn, Jón, er síðar var kenndur
við Múla. Þá fór hann frá Græna-
vatni og byggði upp á Stöng. Var
það harðsótt, enga styrki að
sækja í ríkissjóð. A Stöng bjó
hann í 10 ár. Missti þar konu sína,
Friðriku Helgadóttur frá Skútu-
stöðum frá 6 ungum börnum.
Flytur síðan að Litlu-Strönd, gift-
ist þar annarri konu sinni, Onnu
Ásmundsdóttur. Missti hana eftir
stutta sambúð, einnig 3 ung börn,
er þau eignuðust. Þriðja kona
föður míns og móðir mín var Sig-
ríður Jónsdóttir frá Arnarvatni,
hálfsystir Þorgils gjallanda. Þau
voru sammæðra. Móðir þeirra
var Guðrún, laundóttir sr. Jóns
Þorsteinssonar í Reykjahlíð.
Hann fékk þá annan mann til
þess, stöðu sinnar vegna, að gang-
ast við faðerninu, en g'uggnaði
fyrir altarinu og fermdi hana sem
sína dóttur.
Póls-nafnið úr
Eyjafirði.
— Hvað voru systkini þín
mörg, og hvar ert þú í röðinni?
— Við vorum sex alsystkini,
Páll á Grœnavatni.
en alls fæddust föður mínum 15
börn, og er ég örverpið. Nú erum
við aðeins tvö á lífi, ég og Sól-
veig á Grænavatni.
Foreldrar mínir fluttust úr Mý-
vatnssveit að Hólum í Eyjafirði.
Sú ferð gafst þó verr en skyldi,
því að féð hrundi niður úr bráða-
pest. Hurfu síðan til baka að 3 ár-
um liðnum og settust að á Hellu-
vaði, og þar fæddist ég 3. septem-
ber 1890.
— Pestin hefir máske komið í
veg fyrir, að þú yrðir Eyfirðing-
ur?
— Má vera, en úr Eyjafirði er
nafn mitt komið.
— Hvernig þá?
— Jú, faðir minn kynntist
mörgum mætum Eyfirðingi, t. d.
Páli Steinssyni hreppstjóra á
Tjörnum, afa þeirra Páls í Einars-
nesi og Davíðs á Kroppi. Þarna
er nafnið. Síðar á lífsleiðinni hefi
ég notið nafns og mætt margri
vinsemd frá Eyíirðingum.
— Geturðu sagt mér nokkuð
sérstakt frá bernskuárunum?
— Nei, ekki minnist ég neins í
bili. Ég ólst upp við algengustu
sveitastörf. Fór í göngur, sat yfir
kvíám, var sendur milli bæja og
jafnvel til Húsavíkur. Árið 1899
brá faðir minn búi. Tók þá elzti
albróðir minn við, — Sigurgeir (
—, og var ég á hans vegum næstu
10 árin, til 19 ára aldurs.
50 króna
skuldasöfnun.
— Þú munt hafa notið ein-
hverrar skólagöngu?
— Já, haustið 1909 fór ég í
Gagnfræðaskólann á Akureyri,
og hafði þá ekki teljandi úr öðru
að spila en sumarkaupinu, er var
kr. 2.25 á dag fyrir 10 tíma vinnu
að vegagerð, og dugðu þá engar
setur. Þar af fór 1 króna í fæði.
Þættu það hörð hlutföll nú. En
um sláttinn fékk ég 15 krónur urn
vikuna. Með þetta lagði ég upp
til Akureyrar til 8 mánaða dvalar.
Á ég enn bók yfir það, sem ég
eyddi, 245 krónum, og kom skuld-
laus heim.
— Ekki hefir þú nú haft mik-
ið um þig fyrir þetta fé.
— Ó-nei. Enda ekki búningur
né annað til þess fallið, mórauðar
vaðmálsbuxur, máske bættar, og
fleira eftir því. Samt sótti ég fyr-
irlestra og sást í leikhúsi.
— Það hefir ekki verið á
frumsýningu?
— Varla það. Annars voru
kröfur til fata ólíkar þá og nú.
— Svo varstu annan vetur í
skóla. Varstu jafn sparsamur þá?
— Nei, eyðslan var sýnu
meiri, eða 287 krónur, og skuld-
aði ég þá um vorið 50 krónur. Er
það eina teljandi skuldin, sem ég
hef stofnað til um dagana.
— Hvernig hefir þú farið að
því að verða efnalega sjálfstæð-
ur?
— Ég hefi aldrei varið tekjum
mínum í skuldavexti og haft
megna ótrú á ógætilegum lántök-
um, jafnt einstaklinga og ríkis.
— Hvað tókstu þér fyrir hend-
ur að lokinni skólavist?
— Þá leitaði ég eftir atvinnu
hjá Kaupfélagi Þingeyinga en
fékk eigi. Gekk þá á fund Aðal-
steins kaupmanns Kristinssonar
Húsavík, er síðar varð svili minn,
og lét hann mig fá vel launaða
vinnu fram að slætti.
Veikt'isl' af vosi.
Sumarið 1911 var kalt og vot-
viðrasamt. Var ég mest að hey-
skap fyrir sjálfan mig, þá aðal-
lega í útsköfum og startjörnum,
sem aðrir vildu ekki nýta. Um
haustið fór ég aftur til Aðalsteins
og hugðist fara í 3. bekk eftir
áramót. En í októberbyrjun veikt-
ist ég af svæsinni liðagigt, sem
stafað mun hafa af vosbúð sum-
arsins, og lá til áramóta. Lauk þar
minni skólagöngu, því að ég var
óvinnufær í hálft annað ár og
hefi varla á heilum mér tekið síð-
an.
Þegar hér var komið fluttist ég
að Grænavatni. Átti þar konu-
efni, Hólmfríði Guðnadóttur,
bónda þar. Fékk ég þar þá að-
hlynningu, að ég náði sæmilegri
heilsu.
Alltaf leiguliði.
— Hvenær giftust þið og fór-
uð að búa?
— Við giftumst 1913, árið eft-
ir að ég kom að Grænavatni.
Unnum sem vinnuhjú hjá tengda-
foreldrum mínum til 1922. Þá
hætti tengdafaðir minn búskap,
en ég fór að búa á % hluta jarð-
arinnar og bjó þar í 22 ár, til
1944, þó alltaf leiguliði. Keypti
þó jarðarhlutann um leið og ég
flutti burt og á hann enn. Konu
mína missti ég 23. júlí 1930.
■— Hvað eignuðust þið af
börnum?
— Tvö, Droplaugu og Þorgeir.
Droplaug hefir séð um heimili
mitt, síðan hún komst á legg. Áð-
ur voru það mágkonur mínar,
Guðfinna og Snjólaug, er gerðu
mér fært að halda áfram búskap.
Þorgeir er kvæntur og búsettur
hér á Húsavík.
— Hefir ekki sauðfjárbúskap-
ur verið þitt aðalstarf?
— Jú, vissulega, þó á ýmsu
hafi gengið, því árið, sem ég var
frá verkum, mátti ég farga flest-
um kindum mínum, er ég hafði
verið að basla við að koma upp.
— Hvað hafðirðu flest fé?
— Ég hafði aldrei margt, mest
um 130 á fóðrum, en reyndi að
láta hverja kind gefa sem mest af
sér.
— Þú munt varla hafa farið
varhluta af trúnaðarstörfum í
þinni sveit?
— Ekki voru þau mikil. Aldrei
hlaut ég hreppstjóra- eða oddvita-
tign, nema þá til vara. En í sveit-
arstjórn var ég 20—30 ár og
sinnti ýmsum ólaunuðum störf-
um.
Vildi breyttan
verzlunarrekstur.
— Hefir þú ekki alltaf verið
ákveðinn samvinnumaður?
— Jú, — það hefi ég sjálfur