Íslendingur


Íslendingur - 21.10.1960, Side 1

Íslendingur - 21.10.1960, Side 1
ENDURVÍGSLA GRENIVÍKURKIRKJU Undaníarið hafa staðið yfir margvíslegar umbætur á kirkj- unni í Grenivík, Höfðahverfi, og fer endurvígsla hennar fram nk. sunnudag kl. 13.30. Vígslubiskup- inn, sr. Sigurður Stefánsson, ann- ast vígsluna. TdpoDi ekki d útgerðinni Þó hneigðari fyrir biiskap en útgerð Lauslegf rabb við Jakob Kristinsson sjötugan. Jakob Kristinsson fyrrv. út- gerðarmaður, Lækjargötu 4 hér í bæ, varð sjötugur 2. þ. m. í til- efni af því fór fréttamaður blaðs- ins á fund hans hérna á dögunum og bað hann að segja lesendum eitthvað undan og ofan af bví, seni á daga hans hefði drifið. — Fyrst er að sjálfsögðu spurt ura uppruna. -— Eg er fæddur að Stóra-Eyr- Jakob Kristinsson. arlandi hér í bæ, segir Jakob, — og voru foreldrar mínir Ingibjörg Helgadóttir og Kristinn Jónsson vegaverkstjóri. .— Og hefir þú alltaf verið bú- settur á Akureyri? — Nei, daginn eftir að ég var fermdur, fór ég í vist til Hríseyj- ar. Það var ekki verið að draga það í þá daga, að unglingarnir færu að vinna fyrir sér. Ég fór með ÞRÁNI út eftir, fyrsta vél- bátnum, sem kom til Eyjafjarðar. Það var 6—7 smálesta bátur, er Björn Jörundsson og Óli Björns- son í Hrísey áttu. Ég fór til Þor- steins Jörundssonar hálfbróður míns og vann hjá honum fram undir tvítugt. Fyrst í landi, við smalamennsku og fiskaðgerð. Fór svo að róa á bát lians, Stíganda, 16 ára gamall sem háseti. Varð svo formaður á bátnum á 19. ald- ursáii. Úfgerð hafirt. — Og hvenær fórstu sjálfur að gera út báta? — Það var nokkru síðar, að við Helgi Pálsson hófum félags- útgerð á gamla SVAN, er Þor- steinn á Dalvík hafði átt. Síðar létum við byggja bátinn SVAN ÍI og gerðum þá báða út um tíma, frá 1924—32, en þá keypti ég út- gerÖina einn, ög voru þá synir mínir komnir á legg. Tók Viktor sonur minn þá bráðlega við Svan II, eða þegar hann hafði aldur til, og síðar Kristinn, en ég varð sjálfur landmaður. — Ilvernig gekk svo útgerð- in? — Ég tel hana hafa gengið vel. Við urðum aldrei fyrir töpum, sem talizt geta, enda öfluðum við alltaf vel, ef einhvers staðar var fisk að fá. Síðustu árin, eftir að Kristinn sonur minn tók við Svaninum, varð nokkur hagnaÖ- ur af útgerðinni, enda var hann heppinn aflamaður. Við geröum alltaf út frá Hrísey og höfðum skapað okkur þar tiltölulega góða aðstöðu til útgerðar. Hneigðari fyrir búskap. — Þú hefir verið fæddur út- gerðarmaður? — Nei, ég hafði meiri hug á landbúnaöi, og frá því ég var unglingur liefi ég alltaf átt nokkr- ar kindur. Ég tók þær jafnvel með mér til Hríseyjar. Og síÖan ég settist að aflur í fæðingarbæ mín- um, hefir hirðingin á ánum mín- um verið mín ánægjulegasta dægradvöl. En þetta er nú búið. Síðustu kindurnar mínar voru lagðar að velli í fyrrahaust. En þegar ég frekar af tilviljun en fyrirframgeröri ákvörðun leriti í útgerðinni, þá liföi ég mig að sjálfsögðu inn í hana og hef ekki ástæðu til að sjá eftir því. Framhald á 2. síðu. Hýtt skip til Úlafsfjoriar Á mánudaginn bættist skipa- flota Ólafsfjarðar nýtt og glæsi- legt skip, sem ber heitið „Ólafur bekkur“ eftir landnámsmanni Ól- afsfjarðar. Ber það einkennisstaf- ina ÓF 2. Þetta er 154 lesta stál- skip, knúið 580 ha Alfa-dieselvél og ganghraði þess 10—11 mílur. Skipið er smíðaö í Risör í Suöur- Noregi, og er það keypt á vegum Ólafsfjarðarbæjar, en ekki er ráðið ennþá, hvort bærinn gerir það út, eða það veröur selt ein- staklingum. SkipiÖ var 4,Vo sólar- hring frá Noregi til Ólafsfjarðar og reyndist hið bezta á allan hátt. Það er búið öllum nýtízku sigl- ingatækjum þ. á. m. japanskri miðunarstöð, mj ög fullkominni og nákvæmri, og er það fyrsta skipið í Ólafsfirði, sem svo full- ÖKUSLYS Eitt ökuslysið varð enn hér í bæ sl. föstudagskvöld, á mótum Geislagötu og Gránufélagsgötu. Fólksbíll og sendiferðabíll óku þar saman, og roskin kona, er sat í framsæti fólksbílsins, hlaut all- mikinn skurð á höfði og var flutt í sjúkrahúsið til aðgerðar á sár- um hennar en síöan heim. Báðir bílarnir skemmdust, og fólksbíll- inn svo, að hann var óökufær á eftir. komnu tæki er búið. Frágangur allur er stórvandaður ofan þilja sem neðan. Skipstjóri var Kristj- án Ásgeirsson en 1. vélstjóri Bjarni Sigmarsson, og var hann um tíma úti í Noregi til að fylgj- ast með niðursetningu vélanna og einnig sem fulltrúi kaupanda. Er skipið kom til Ólafsfjarðar var bærinn allur fánum skreyttur og því fagnað með ræðuhöldum og söng á bryggju. Mörg hundr- uð bæjarbúar skoðuöu skipið, og á eftir var öllum barnaskólabörn- um og nemendum gagnfræðaskól- ans boðið í stutta ferð út í fjarð- armynni með skipinu. Skipið mun kosta um 6 millj. króna. BLÓMLEGT ATVINNULÍF Ólafsfirði í gær. Mikið hefir verið róið hér und- anfarið, en afli er tregari en í fyrra, þótt hitzt hafi á allt að 11 tonn í róðri. Atvinnulíf er hér með miklurn blóma, og má telja liina einstöku haustveðráttu hafa að því stutt. Hafa allir vinnu, sem unnið geta. Verið er að leggja jarðsíma um bæinn og talsvert unnið að bygg- ingum. S. M.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.