Íslendingur


Íslendingur - 21.10.1960, Page 2

Íslendingur - 21.10.1960, Page 2
2 1 SLENDINGUR Föstudagur 21. október 1960 Jarðarför eiginmanns míns Jóhannesar Arnar Jónssonar frá Steðja, sem anaaðist 15. okt., fer fram frá Akureyrar- kirkju laugardaginn 22. þ. m. kl. 2 e. h. Sigríður Agústsdóttir og börn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð við and- lát og jarðarför Herdísar Finnbogadóttur frá Fögrubrekku. Gísli R. Magnússon, börn, tengdabörn og barnabörn. ÉG ÞAKKA hjartanlega rausnarlegar gjafir. árnaðaróskir og hlýjar kveðjur, sem mér bár- ust á fimmtugsafmæli mínu. JÓN G. SÓLNES. Hjartans kveðjur og þakkir sendum við öllum þeim mörgu fjær og nær, sem á einn eða annan hátt hafa sýnt okkur sam- úð og veitt okkur margs konar hjálp, vegna hins sviplega frá- falls eiginmanna okkar og feðra Kristjóns Stefóns Jónssonar og Aðalsteins Árna Baldurssonar, sem fórust með vélbátnum Maí frá Húsavík 21. október síðastl. Síðast en ekki síst ber að þakka þá rausnarlegu fjársöfnun, sem hafin var okkur til styrktar og nú er að ljúka. Guð blessi ykkur fyrir drengskap og hlýhug. Ingibjörg Jósejsdóttir Anna Sigmundsdóttir og dœtur. og sonur. 61.7% KUSU í prestkosningunum sl. sunnu- dag voru 4454 á kjörskrá í Akur- eyrarsókn, og neyttu 2726 at- kvæðisréttar, eða 61.2%. I Lög- mannshlíðarsókn voru 371 á kjörskrá. Atkvæði greiddu 249, eða full 67%. Meðaltal í báðum sóknum ca. 61.7%. Var kosning því lögmæt. Atkvæði verða vænt- anlega talin í dag eða á morgun. Topoijj tW\ d útgerðinni Framh. af 1. síðu. Varð fyrir slysi. — Komu nokkur óhöpp fyrir þig í útgerðinni? — Nei, engin slys á mönnum á sjó. En sjálfur varð ég fyrir slysi í sambandi við útgerðina fyrir 16 árum. Ég var að vinna um borð í Svan við Torfunefsbryggjuna, þegar allt í einu gaus upp eldur í lúkarnum, þar sem ég var þá staddur. Er ég komst upp, loguðu ytri buxur mínar upp á læri. Ég hlaut allmikil brunasár á höndum og andliti og lá lengi í sjúkrahús- inu. Þegar Guðmundur Karl hafði gert að sárum mínum og vafið mig allan reifum, vildi ég fara heim. En við það var ekki komandi. „Ég er nú skipstjóri á þessari skútu,“ sagði Guðmund- ur, og þá vissi ég, að mér bar að hlýða. Deyfa móforskellirnir heyrnina? Meðan við sitjum að kaffi- drykkju og pönnukökuáti hjá þeim hjónum Filippíu Valdi- marsdóttur og Jakob, hefir hann orð á því, að aðalmeinsemd sín sé heyrnardeyfa, einkum á öðru eyra. Við spyrjum, hvort hann þekki nokkra ástæðu til hennar. Hann segir: — Ég hef grun um, að mótorskellirnir í gömlu vél- 'bátunum hafi ekki verið hollir fyrir eyrun. Það lét leiðinlega hátt í þeim. — Og er við kveðj- um hjónin, segir Jakob okkur, að ef við minnumst eitthvað á þessa heimsókn megi hafa það eftir sér, að án sinnar ágætu konu mundi hann ekki vera eins vel á vegi staddur og hann hafi hér látið í veðri vaka við okkur. Jakob Kristinsson fluttist hingað í bæinn með fjölskyldu sinni frá Hrísey árið 1926, og keypti þá húseignina Lækjargötu 4, þar sem hann hefir búið æ síð- an. Þau hjón eiga 5 syni og 1 dóttur, og hafa þrír synirnir haft skipstjórn með höndum. Jakob er enn vel ern og leynir aldri sínum, þótt við höfum nú orðið til þess að ljósta honum upp. Megi hon- um og heimili hans vel farnast hér eftir sem hingað til. J. Ó. P. Pétar Hannesson frá Skíðastöðum. Man eg þig Pétur rniklii betur mörgum öðrum á jornum jöðrum, garpinn liraustan, sem gullið traustan og góðhugs skraf, — rauðan með Kvasis rúnastaj. Beimi mörgum svo bragajjörgum barst þú aj. — Mig setur hljóðan og sáramóðan að sjá þig, bróður minn hugumgóða, hverja líjs í huliðshaf. 29. ágúst 1960. Örn frá Steðja. Smvglað tóbak á veitingastað Síðastliðið laugardagskvöld varð þess vart á kvöldskemmtun að Hótel KEA, að vindlingar voru seldir þar, sem ekki báru merki Tóbakseinkasölunnar. Var toll- gæzlunni gert aðvart, og fundust í hótelinu nokkrar lengjur af vindlingapökkum, er sýnilega voru ekki keyptar af Tóbakseinka- sölunni. Voru vindlingar þessir gerðir upptækir. Um mál þetta segir svo í grein- argerð, er blaðinu hefir borizt frá rannsóknarlögreglunni: Við rannsókn út af 6 vindlinga- lengjum, sem munu vera ólöglega | innfluttar og löggæzlumenn fundu og tóku í Hótel K. E. A. aðfara- nótt sl. sunnudags, eins og getið hefir verið um í blöðum, hefir það komið fram með skýrslu hót- elstjórans, að vindlingar þessir hafi verið einkaeign hans. Vindl- ingana kveður hótelstjórinn sig hafa fengið í skipi, er var hér í höfn í sl. viku. Vindlingalengjur þessar, sem hótelstjórinn kveðst hafa ætlað til heimilisnotkunar, sagðist hann hafa sett í birgða- skáp hótelsins, en á laugardags- eftirmiðdaginn hafi hann tekið þessar vindlingalengjur af óað- gæzlu ásamt fleiri til afgreiðslu við veitingasalinn. Rannsókn málsins er að mestu lokið. Vegna blaðaskrifa um málið skal það fram tekið, að löggæzlu- mönnum hér er eigi kunnugt um, að grunur hafi verið um að ólög- lega innfluttir vindlingar eða annar varningur væri seldur í nefndu hóteli. Bornoverodordagor Barnaverndarfélögin hafa val- ið fyrsta vetrardag til að vekja athygli á starfsemi sinni og afla sér fjár. Barnaverndarfélag Ak- ureyrar hefir fjársöfnun fyrir starfsemi sína næstkomandi laug- ardag. Fer þá fram merkjasala fé- lagsins, einnig verður þá seld hin vinsæla barnabók, Sólhvörf. Þess er vænst að bæjarbúar muni nú eins og jafnan áður taka vel á móti sölubörnunum. Þá verða kvikmyndasýningar á vegum fé- lagsins í Borgarbíó á sunnudag klukkan 3 og í Nýja Bíó á laug- ardag klukkan 5 og 9. Allur ágóði barnaverndardags- ins gengur til leikskóla félagsins — Iðavallar. Þar eru nú 45 börn. — Forstöðukona leikskólans er Dóróthea Daníelsdóttir. Enn skuldar félagið mikið eftir hið myndarlega átak að byggja hinn smekklega leikskóla á Odd- eyri. En það er trú forráðamanna félagsins, að bæjarbúar muni með velvild sinni hjálpa félaginu yfir þá erfiðleika. NÝKOMIÐ Kvenskór með lágum-, kvart- og háum hælum. Nýjar vörur daglega. Hvannbergsbræður

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.