Íslendingur


Íslendingur - 29.09.1961, Page 5

Íslendingur - 29.09.1961, Page 5
Föstudagur 29. september 1961 ÍSLENDINGUR 5 - Haustnótl (Framhald af bls. 1) „Áður var hér bær enn framar. Sá hét Kóngs'garður, kominn í eyði fyrir löngu, en við nytjum túnið þar.“ — Eftir góðar veit- ingar kveðjum viið Guðmund og hans heimafólk, og höldum aftur til Stafnsréttar. Nú er farið fast að kvölda. Féð í hlíðinni framan árinnar, er nú á leið til réttar. Allir í góðu skapi. Er við félagar höfum snætt kvöldverð í tjöldum okkar, höld- um við til réttarinnar, því að hugboð höfum við um, að eitt- hvað muni hér um að vera í kvöld, þó að ekki sé það beint bundið réttarstörfum. Og um níu leytið, er við komum að réttinni, er þar fyrir allmargt manna, og eru sumir ríðandi, en aðrir nota bifreiðarnar. Þarna er einnig timburskúr, ætlaður til kaffi- veitinga. f öðrum enda hans er eldhús, en í hinum rúm fyrir um 20 manns við langborð. Hér inni er söngur og gleðskapur mikill. Gangnamenn og gestir súpa hér kaffið sitt, hafa gjarnan á boð- stólum einhverja lögg, og ekki vantar sönginn. Allir eru í góðu skapi, og vinir alls og allra. Dansað í skini bílljósa. Er við höfum staldrað við hér um stund, höldum við út í haust- myrkrið, þar hlýtur að vera eitt- hvað að gerast, því að einhvers staðar er unga fólkið. Sunnan. réttarinnar, nokkru vestar en veitingaskálinn, hefur verið raðað upp nokkrum bifreiðum. Ljós þeirra tendruð, og stefna þau öll í eina átt. Framan við allstóran mjólkurbíl hefur ungur maður komið sér fyrir, og þenur hann draggargan af mikum móð, en sveinar og meyjar svífa um graslága grundina úlpuklædd, og gjarnan með hettu dregna fram yfir enni. Bílljósin lýsa upp lít- inn flöt, og þar dansar fólkið, en kannske hverfur eitt og eitt par út fyrir takmörk bílljósanna. Haustnóttin er svört í Svartár- dal. Engir árekstrar, engin ólæti eru hér, allt fer fram með friði og spekt. Og upp úr mið- nættinu er dansinn dvínaður og llestir gengnir til náða. Þó má enn heyra söng úr veitingaskál- anum. Við hugsum sem svo: Ef allt þetta fólk verður hér í nótt, hvar hefur það þá náttstað? Svarið við þeirri spurningu fáum við hjá skagfirzkri heimasætu, sem við i Svarlárdal hittum nálægt veitingaskálanum. „Það, sem ekki er hér í tjöldun- um í nótt, verður í hlöðum á Fossum og Stafni.“ Og þá vitum við hvað af fólkinu verður, enda þurfa menn að sofa, þó í réttum séu. Séð af réttarveggnum. Árla er risið úr rekkju við Stafnsrétt, og um sjöleytið eru menn sem óðast að draga fé sitt. Margar hendur vinna verkið. Nú eru einnig börnin komin. Þau hafa fengið að fara í réttina í dag, Marka-Leifi (t. h.) er 89 ára, en þó cr liann ekki af baki dottinn mcð að sækja réttirnar. (Ljósm. St. E. Sig.). og það má sjá það á þeim, að þau vona innilega, að ærin þeirra og lömbin hafi nú komið af fjallinu. Þybbinn strákur, varla meira en 10 ára, þeytist um réttina, með vænan lambhrút milli fótanna. Hrússi kann þessu illa, vill fara sína leið, en stráksi vill einnig fara sína leið, hann á þessa skepnu og vill ráða henni. Að endingu velta þeir í hálf- gerðri bræðrabyltu inn um einar dilksdyrnar. Stráksi stendur þó furðu fljótt á fætur, og heldur að nýju út í almenninginn til fang- bragða við næsta hrút. Þetta er sjáanlega efni í dugandi fjár- bónda. Á réttarveggnum eru smáhópar yngstu barnanna, þau eru enn of ung til að hætta sér út í hringiðuna í almenningnum, en áhugi þeirra fyrir hinu lagð- prúða fjalla-fé leynir sér ekki. Fleiri njóta þó næðis hér en börnin. Sepparnir hafa átt erfiða daga undanfarið, og eru því fegnir að mega liggja hér og láta fara vel um sig. Kennið börnum SAMBAND ÆSKULÝÐSFÉ- LAGA kirkjunnar í Hólastifti hélt aðalfund sinn á Siglufirði 2. og 3. sept. sl. Fundinn sátu 9 prestar af félagssvæðinu, 15 ung lingar, fulltrúar æskulýðsfélag- anna, æskulýðsfulltrúi þjóðkirkj- unnar, sr. Olafur Skúlason, og nokkrir gestir, þar á meðal þrír amerískir unglingar, fulltrúar frá ungmennasamtökum kirkjunnar í Bandaríkjunum, en þeir dvelja hér árlangt á íslenzkum heimil- um á vegum kirkjunnar. Fundurinn hófst með því að sunginn var sálmur, en síðan flutti sr. Ragnar F. Lárusson, sóknarprestur á Siglufirði stutta hugleiðingu. Síðan setti formað- ur sambandsins, sr. Pétur Sigur- geirsson, fundinn og flutti ávai-p og skýrslu stjórnarinnar. Minnt- ist hann 2ja manna nýlátinna, er mikið hafa starfað að eflingu kristilegs starfs um langan aldur, þeirra sr. Friðriks Friðrikssonar og Valdemars V. Snævars. Rakti formaður síðan störf stjórnarinnar. Minntist hann æskulýðsdagsins, sem hann taldi hafa gefið góða raun. Greindi hann frá fermingarbarnamótun- um á Laugum í Reykjadal og á Sauðárkróki, einnig sumarmóti á Marka-Leifi. Meðfram réttarveggnum geng- ur aldraður maður, hann virðist þekkja hér alla og allir þekkja hann. Maður þessi er hress í tali og ræðir nokkuð um fjáreign bænda. Flljótlega komumst við að því, hver hann er. Hjörleifur Sigfús- son, nær níræður öldungur, kunnur réttamaður, og almennt kallaður hér um slóðir Marka- Leifi. Þessi maður er m. a. fræg- ur fyrir að kunna utanað marka- töflur þriggja sýslna, og er það meira en flestir aðrir geta sagt. Það var frægt um sýslur hér nyrðra, að þar sem Marka-Leifi væri á réttum, væri ekki þörf á markaskrá. Dvöl okkar félaga við Stafns- rétt er lokið. Við yfirgefum þennan stað með fullri vissu um það, að enn er stórhugur í sauð- fjárbændum í þessu landi og bú- skapur þeirra á mikla framtíð fyrir sér, ef rétt er á haldið. Einni haustnótt nokkurra flækinga við Stafnsrétt er lokið. S. að sækja kirkju Löngumýri. Tvö æskulýðsfélög hafa verið stofnuð á starfsárinu. Æskulýðsfélag Sauðárkróks- kirkju og Æskulýðsfélag Einars- staðakirkju í Grenjaðarstaða- prestakalli. Að lokum gat hann þess, að sambandið 'hefði fest kaup á kvikmynd um líf og starf Alberts Schweitzers, og yrði myndin frumsýnd í sambandi við fundinn, en síðan sýnd víða um land til ágóða fyrir sumarbúða- starfið. Sr. Olafur Skúlason ávarpaði fundinn og flutti fundinum kveðj ur biskups, fyrrverandi biskups og formanns æskulýðsnefndar. Rakti æskulýðsfulltrúinn helztu liði æskulýðsstarfsins og lagði á- herzlu á þýðingu þeirra. Því næst var rætt um næstu verkefni sambandsins og ýmsar tillögur komu fram, er nefndir fengu til íhugunar. Skýrt var frá því, að æskulýðs fulltrúi myndi koma á foringja- námskeiði í haust og var lagt til, að hvert félag reyndi að senda einn fullti'úa á slíkt námskeið. Þá flutti sr. Sigurður Guð- mundsson erindi um sumarbúðir og sagði frá því, hve langt væri komið undirbúningi sumarbúða í Aðaldal. Land er fengið og lagð- ur hefur verið vegur á staðinn. Og allar líkur benda til þess að hægt verði að hefja bygginga- framkvæmdir á næsta vori. Um kvöldið var kvikmyndin Albert Schweitzer frumsýnd í Nýja Bíói, Siglufirði. Var þetta mikil mynd, er sýnir vel lífsferii hins mikla mannvinar og trú- boða, sýnir hvernig hann hefur fórnað sér fyrir þá, er sátu í skugganum. Síðar um kvöldið sátu allir fundai-menn rausnarlegt boð prestshjónanna á Siglufirði, þeirra frú Herdísar Helgadóttur og sr. Ragnars F. Lárussonar. Fundur hófst að nýju sunnu- dagsmorguninn kl. 10. Sunginn var sálmur og sr. Ragnar hafði morgunbænii-. Því næst flutti sr. Árni Sigurðsson erindi um æsku- lýðsstarf innan sænsku kirkjunn- ar. En hann dvaldi í Svíþjóð sl. vetur, og kynnti sér þau mál. Sr. Sigurður Haukur Guð- jónsson sagði frá Æskulýðsblað- inu, en hann er, eins og kunnugt er, ritstjóri þess. Hvatti hann fundarmenn til að sýna blaðinu meiri ræktarsemi með því að skrifa í það og útbreiða það. Ýmsar tillögur voru samþykkt ar, sem hér er ekki rúm að rekja. (Framhald á bls. 7)

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.