Íslendingur - 14.06.1963, Blaðsíða 1
49. ÁRGANGUR . FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ . 26. TÖLUBLAÐ
Jónas G. Rafnar.
Magnús Jónsson.
Bjartmar Guðmundsson.
UNGA FÓLKIÐ VILL TREYSTA
ÖRYGGI FRAMTÍÐARINNAR
ISLENDINGUR
BIAI) SJÁLF STÆÐISMANNA í NOKÐURL ANÐ SK J Ö R D Æ M I EYSTR.A
r
Aform framsóknar til að kollvarpa efnahagskerfinu mistókst
ÞAKKIR
STJÓRN Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norð-
urlandskjördæmi eystra flytur hér með Jjakkir öllum
þeim mörgu, sem unnu ósleitilega að sigri flokksins
hér í kjördæminu í kosningunum á sunnudaginn var.
Þó góður málstaður skipti mestu, dugir hann ekki einn,
ef ekki kemur til óhvikul barátta fyrir framgangi hans.
Kjósendunum í þessu kjördæmi færir stjórn Kjör-
dæmisráðsins þakkir fyrir að taka ábyrga afstöðu og
láta óvenjulega ósvífinn áróður andstæðinganna sízt
á sér festa. Sigur D-listans í Norðurlandskjördæmi
eystra er skýr og ótvíræður, og með honum er veiga-
mikill þáttur snúinn til áframhaldandi viðreisnar og
aukinnar hagsældar lands og þjóðar.
ÞEIR SEGJA ...
Alþýðumaðurinn segir í fyrra-
dag': „Sigurvegarar kosninganna
urðu Framsóknarflokkur og
Sjálfstæðisflokkur“. Og „senni-
lega óbreytt stjórn“.
Dagur segir: „Síldin hefur
undanfarin ár hjálpað þjóðinni
til að bera byrðar „viðreisnar-
innar“. (Þá er að skeyta skapi
sínu á silfurfiskinum!) Og:
„Björguðu Alþýðubandalags-
kjósendur „viðreisninni“?“ Síð-
an er gefið í skyn, að Alþýðu-'
bandalagskjósendur í Norður-
landskjördæmi eystra hefðu átt
að koma til liðs við Framsókn
til að fá 4. mann kosinn, en það
hefði hinsvegar kostað banda-
lagið þingsætið í kjördæminu!)
Hljóðið úr „bandalagsblaðinu“
er ekki komið enn.
Stjórnarflokkarnir með 32:28
KOSNINGARNAR á sunnudaginn var voru sóttar nieð kezta móti,
enda þann dag eitt fegursta veður, sem vænta má í júnímánuði.
Áliugi fólksins var meiri en nokkru sinni, og munu flest kjördæmi
liafa náð betri kosningaþátttöku en títt var áður. Stjórnarflokk-
arnir unnu verulega á í kosningunum, þótt þeir töpuðu einum
þingmanni vegna kjördæmaskipunar, og sýna úrslitin þó eindreg-
inn vilja nýju kjósendanna til að styrkja efnahagskerfið, horfa til
framtíðarinnar og tryggja öllum atvinnu, sem vilja vinna og unnið
geta.
Einstök úrslit: (svigatölur frá síðustu alþingiskosningum).
Reykjavík:
A-listi
B-listi
Kjörnir
þingmenn
5730 (5946) 2
6178 (4100) 2
(Framh. á bls. 2).
Vaxandi fylgi Sjálfstæðisflokks
ins í kjördæminu
Framsókn og kommar skiptu þrotabúi
Þjóðvarnarflokksins á milli sín
Spjallað við formann kjördæmisráðs
S j álf stæðisf lokksins
BLAÐIÐ átti í gær tal við for-
mann kjördæmisráðs Sjálfstæð-
isflokksins í Norðurlandskjör-
Allmargir kjósendur í Norðurlandskjördæmi eystra biðu í spenningi eftir atkvæðatalningu úr kjör-
dæminu og þótti hún seint birtast. Hún liófst um 6-Ieytið s.l. mánudag og stóð yfir fram undir óttu.
Þó var unnið ósleitilega. Hér á myndinni sér yfir talningamenn, umboðsmenn lista og yfirkjörstjórn,
sem er að velta fyrir sér atkvæðaseðli, sem vafi leikur á um, hvort er gildur eða gildur ekki.
Ljósmynd: Gunnl. P. Kristinsson.
dæmi eystra, Gísla Jónsson
menntaskólakennara, og mæltist
til að hann léti í ljós álit sitt
á úrslitum kosninganna s.l.
sunnudag.
Átti stjórnin að sitja?
— Meginatriðið, sem um var
kosið, var það, hvort stjórnin
ætti að sitja áfram eða ekki. Eft-
ir æsispennandi talningu at-
kvæða, liggur nú staðreyndin
ljós fyrir, að meira en 55 af
hverju hundraði kjósenda vott-
aði ríkisstjórninni traust og vill,
að viðreisnin haldi áfram. Minna
en 45 af hverju hundraði kjós-
enda voru á gagnstæðri skoðun.
Þetta eru skýr svör.
Sjálfstæðisflokkurinn fagnar
sigri í þessum kosningum. Hann
hefur bætt við sig þúsundum at-
kvæða og aukið hlutfallstölu
sína verulega. Vegna óhagstæðr
ar skiptingar atkvæða andstæð-
inganna í Reykjavík nægði það
þó ekki til að auka þingmanna-
tölu flokksins. En þá verður jafn
framt að minna á, að fullur jöfn
uður hefur ekki náðst við út-
hlutun uppbótarsæta, en ef svo
væri, hefði flokkurinn hlotið 27
þingmenn.
Kommúnistar á undanhaldi.
— En hvað um hina flokk-
ana?
— Framsóknarflokkurinn hef
ur einnig unnið verulega á, eink
um á Suðvesturlandi, en at-
kvæðaaukning hans í Reykjavík
byggist sjáanlega á því, að hann
hefur hirt leifar Þjóðvarnar-
flokksins, sem kommúnistar ætl-
uðu sér að innbyrða. Athyglis-
vert er, að sá þingmaður flokks-
ins, sem bezta kosningu fékk,
var hinn hægri sinnaði Varð-
bergsleiðtogi, Jón Skaftason í
Kópavogi. (Frh. á bls. 2).
HAFNARGERÐINNI
MIÐAR VEL il
Raufarhöfn 12. júní.
Hér stendur nú yfir viðbótar-
bygging við síldarverksmiðju
SR, þar sem fram á að fara mót-
taka á mjöli, og verður það jafn
framt mölunar- eða kvarnarhús.
Hafnargerðinni miðar vel á-
fram, og er orðin gjörbreyting
á nálægum vegum, sem endur-
bættir hafa verið vegna aðdrátta
á efni til hafnargerðarinriar.
Skip er hér statt í dag, er los-
ar salt handa söltunarstöðinni
Óðni. Áður var mikið salt kom-
ið til annarra söltunarstöðva.
Það óhapp vildi til, er verið var
að losa salt á svonefnt Borga-
plan, að um 100 tonn af salti
fóru í sjóinn. Brast bryggjan
undan þunganum, og urðu á
henni verulegar skemmdir.
Sn.