Íslendingur - 16.08.1963, Blaðsíða 4
ÍSLENDINGUR
BLAÐ SJÁLFSTÆÐISMANNA f NORÐURLANDMCJÖRDÆMI EYSTRA
Kemur út hvern föstudag. — Útgefandi: KJÖRDÆMISRAÐ. — Ritstjóri og ábyrgðar-
maður: JAKOB ó. PÉTURSSON. Fjólugötu 1. sími 1375. Auglýsingar og afgreiðsla:
BJÖRGVIN JÚLIUSSON, Helga-magra strœti 19, sími 2201. Skrifstofa og afgreiðsla
í Hafnarstræti 107 (Útvegsbankahúsið) III. hæð (innst). Sími 1354. Opið kl. 10-12
og 13.30-17.30. Laugardaga kl. 10-12. Prentverk Odds Björnssonar h.L, Akureyri.
VIÐREISN ÁFRAM
EINS og kunnugt er, leiddu alþingiskosningarnar í vor í
Ijós, að viðreisnarstjórninni hafði aukizt fylgi, en það er
eins- eða fádæmi um ríkisstjórn, sem setið hefur heilt kjör-
tímabil samfleytt að valdum og orðið að gera miðlungi vin-
sælar ráðstafanir til að fylgja fram stefnu sinni. Um þetta
segir Frjáls verzlun (3. hefti 1963):
„Úrslit alþingiskosninganna, sem fram fóru þann 9. júní
s.l. tryggja, að áfram verður haldið umbóta- og viðreisnar-
starfi ríkisstjórnarinnar. Því ber að fagna, enda vafasamt,
að nokkur íslenzk ríkisstjórn hafi starfað með jafngóðum
árangri og viðreisnarstjórnin, þjóðinni til heilla og hags-
bóta. Nú mun haldið áfram þeirri stefnu, sem rekin hefur
verið í efnahagsmálum og fjármálum ríkisins. Ætti það-að
verða mönnum hvatning til að ávaxta fé sitt í heilbrigðum
atvinnurekstri og leiða til enn aukinnar uppbyggingar í at-
vinnulífi landsmanna. Þeim sem við verzlun og viðskipti
fást er það og ánægjuefni að tryggt skuli áframhald frjáls-
ræðis í þessum starfsgreinum.
Frelsi í verzlun og viðskiptum manna á milli hefur vissu-
lega verið aukið til mikilla muna á undanförnum fjórum
árum. Samt eru bein og óbein afskipti opinberra aðila af
þessum málum enn of mikil. Ríki og bæjarfélög reka nú
margs konar atvinnufyrirtæki, sem betur væru komin í hönd
um einstaklinga og ber að stefna að því að svo verði fyrr
en seinna. Hin stærstu fyrirtæki í eigu ríkisins eru betur
komin í eigu almennings, og ber að stefna að því, að þau
verði rekin í formi almenningshlutafélaga".
Því verður ekki neitað, að hið aukna verzlunarfrelsi, sem
viðreisnarstjórnin hefur beitt sér fyrir, hefur haft stórkost-
leg áhrif. Aldrei hefur vöruúrvalið verið meira í verzlun-
um, svo að nú er enginn tilneyddur að kaupa lélega vöru af
því að’betri vara eða góð vara til sömu nota sé ekki til. En
slíkt er einkenni á tímum verzlunarhafta. Þó er það ekki
eingöngu vegna þessa, að fólkið vill að viðreisnarstjórnin
fari áfram með völd. Undir það renna margar fleiri stoðir.
SKIPULAG MIÐBÆJARINS
EINS og skýrt var frá í síðasta blaði, efndi Akureyrarbær
til hugmyndasamkeppni um skipan miðbæjarins á Akureyri
í tilefni af 100 ára afmæli bæjarins og hét glæsilegum pen-
ingaverðlaunum fyrir beztu tillögurnar. Var þátttaka í
samkeppninni svo góð, að eigi minna en 15 tillöguuppdrætt-
ir bárust.
I almennum upplýsingum til keppenda segir:
„Samkeppnissvæðið er nálega 45 ha auk væntanlegra upp-
fyllinga. Gera má ráð fyrir, að gamla höfnin verði að mestu
lögð niður í núverandi formi, og hafnarkvíin jafnvel fyllt
upp. Gert er, ráð fyrir, að farþega- og stykkjavöruafgreiðsla
verði áfram innan Oddeyrartanga, og jafnvel bátageymslu-
kví, en þungavöruafgreiðsla og fiskihöfn verði hinsvegar við
togarabryggjuna. Ætlazt er til að gerðar séu tillögur að
auknum hafnarmannvirkjum og nýtingu þess svæðis, sem
fæst með uppfyllingu og tengingu þess við miðbæinn. Búast
má við því, að Akureyri fái aukna þýðingu í framtíðinni
sem umhleðsluhöfn fyrir Norðurland."
Þá var óskað eftir tillögum um staðsetningu eftirtalinna
mannvirkja: 1) Ráðhús Akureyrar, 2) Umferðamiðstöð fyr-
ir langferðabíla, fyrir fólks- og vöruflutninga og leigubíla,
3) Leikhús, 4) Félagsheimili, 5)Kvikmyndahús, 6) Hótel, 7)
Vörugeymsla og hafnarhús.
f greinargerð dómnefndar segir, að hinar 15 innsendu til-
lögur varpi á margan hátt „skýru ljósi á skipulagsmöguleika
bæjarins“, og margar athyglisverðar tillögur komi þar fram
um endurbyggingu og stækkun miðbæjarkjarnans, en þó sé
það álit hennar, að „engin einstök tillaga í heild geti óbreytt
myndað grundvöll að endanlegri skipulagningu samkeppn-
issvæðisins.“
HÚSMÓÐIR í innbænum skrif-
ar mér all-harðort bréf um lé-
leg vörugæði í „sinni" verzlun.
Fái hún þar ósjaldan „súran
rjóma, súrt skyr, úldin egg, þráa
matarolíu", er hún kaupi sem
fyrsta flokks vöru, og þýði ekkert
að reyna að endursenda hana.
Verði hún af þessum ástæðum oft
að taka sér fari með strætisvagni
út á Ráðhústorg til að komast að
almennilegri neyzluvöru. Þá telur
hún vigtina í búðinni ekki sam-
dóma eldhúsvigtinni sinni (en
raunar mun ekkert opinbert eftir-
lit liaft með eldhúsvogum), og
loks telur hún sig fá betra ánnars
flokks kjöt í kjötbúð, sem hún til-
nefnir, en 1. flokks kjöt í sínum
búðum.
MARGT HEFUR verið rætt og
ritað um gæðamat og gæði á
neyzluvörum, og þá ekki sízt kjöti
og kartöflum. Allir vita, að kjöt-
ið er keypt af bændunum í ýnts-
um verðflokkum, en í kaupfélágs-
kjötbúðum virðist ekki vera um
nema 1. flokk að ræða, er neyt-
andinn vilf fá sér ódýrari bita.
Ættu ]>ví verzlanir, sem selt geta
kjiit á 2. flokks verði, að auglýsa
það, svo að neytendur séu ekki
neyddir til að greiða allt kjöt því
verði, er úrvalsflokkar gera ráð
fyrir.
Þá eru það kartöflurnar. Þær
eiga að seljast flokkaðar, en það
rusl, sem verið er að selja sem
„prima“ vöru, leggja menn sér
ekki til rnunns erlendis, nema þar
sem hungursneyð ríkir. Þær eru
notaðar handa kúm og svínum.
Eins er það algjör óhæfa, ef verzl-
anir neyta að taka við skemmdri
vöru, sem svo fljótt er skilað, að
ekki leiki á tveim tungum um, að
hún hafi verið skemmd, er hún
var keypt í verzluninni.
VEGNA ÞESSA og margs íleira,
virðist timi til kominn, að
stofnuð verði hér í bænum neyt-
endasamtök, svo sem gert hefur
verið í Reykjavík með góðum ár-
angri. Fyrir slíkum félagsskap
ættu húsmæðurnar helzt að gang-
ast, því að bændur þeirra, sem
gefnir eru fyrir góðan mat, snúa
geiri sínum beint að þeirn, ef
þeim er borinn skemmdur matur.
Hvað sem um neytendasamtökin
má segja og áhrif þeirra, þá eru
þau þó mikilsvert aðhald um
vöruvöndun framleiðenda, ekki
sízt, jrar sem sala framleiðslunnar
er nær einokuð, þ. e. samkeppnis-
laus, svo sem gegnir hjá okkur
um þýðingarmestu neyzluvöru al-
mennings, þ. e. mjólkurvörur,
kjötvörur, egg og garðávexti. Eg
vona, að húsmóðirin, sem hóf
máls á þessu, virði mér á betra
veg, þótt ég birti ekki bréf henn-
ar í heild (enda sennilega skrifað
í nokkrum hita), en leggi stofnun
neytendasamtaka lið sitt hér, sem
ég efast ekki um, að hún vilji
gera.
NÝLEGA gaf danska blaðið Ak-
tuelt, málgagn danskra sósial-
demókrata, út sérstakt aukablað,
sem einvörðungu var helgað ís-
landi og íslenzkum málefnunt, og
var þvert yfir forsíðu þess skýr,
litprentaður uppdráttur af Is-
landi. Þá var blaðið hlaðið aug-
lýsingum frá íslenzkum fyrirtækj-
um, svo sem samgöngufélagsskap
í lofti og á legi, stærstu útflytjend-
um, gististöðum o. s. frv. Forsíðu-
greinin er viðtal við forseta Is-
lands, herra Ásgeir Ásgeirsson,
þar sem haft er eftir honum, að
sambúð íslendinga og Dana í dag
mætti vera öllum þjóðum heims
fyrirmynd. Onnur viðtöl eru þar
við framkvæmdastjóra flugfélag-
anna og ýmsa fleiri og aragrúi
ntynda. Allar greinar blaðsins
anda frá sér velvild í garð íslands,
og er það allt hin bezta landkynn-
ing.
EIN GREIN fjallar þar um lest-
ur erlendra blaða á íslandi. Segir
þIhkaseot
^flfCRÓFINNI
• VÖRUGÆÐI OG
VÖRUVAL
• HVÍ EKKI NEYTENDA-
SAMTÖK?
• VINSAMLEGT „ÍSLANDS-
BLAГ
• MIKIL KAUP HÉR Á
DÖNSKUM BLÖÐUM
• LESIÐ „KVIÐUR“
lestur fornbókmennta, datt mér í
hug, að benda líka á erlendar
bækur af sama eða líkum toga. Sá
sem les Njálu, Eglu og Grettlu,
má ekki ganga fram hjá ])ví að
lesa Hómerskviður (lllionskviðu
og Ódysseifskviðu), í lausmálsþýð-
ingu meistarans Sveinbjarnar Eg-
ilssonar. Ég las þær eitt sinn báð-
ar á einum mánuði, uppi í Gler-
árgili, og hafði að aukastarfi dund,
á öskuhaugum, sem voru þá, og
eru alltaf til skanimar bæjar-
stjórninni hér, þrátt fyrir það, að
eintómir ágætismenn hafi alltaf
skipað hana. Og er það merkilegt
íyrirbæri: Ágætir meiin lifðu líka
fall Rómaborgar, og — orsökuðu
það.
Kviður Hómers fást í útgáfu
Menningarsjóðs, sem líka hefur
gefið út Heimskringlu, Njálu og
Eglu, ásamt séð um söl'u á ágætri
útgáfu á Sturlungu. Bókaverzlun
Sigurðar Kristjánssonar gefur út
ýmis helztu fornritin íslenzku í
smábókabroti, að vísu nokkuð
dýrar bækur, miðað við stærð.
Fornritafélagið liefur gefið út
lúxusútgáfu og er henni enn eigi
lokið. Síðast en ekki sízt sér út-
gáfan Norðri uni fornritaútgáfu í
stórum stíl. Og ættu dagblaða-
Jjreyttir lesendur að' hafa sam-
band við þessa útgefendur, um
heilsusamlegt lestrarefni. Kemur
þá svo að lokurn, að höfuð standa
upp úr hálsmáli á hverri persónu
hérlendis — andlega skoðað, jafn-
vel likamlega.
S. D.
Jrar, að 75% af erlendum blöðum
og bókum, sem keypt eru og Iesin
á Islandi, komi frá Danmörku.
Þar seljist árlega 780 ])ús. diinsk
blöð. Mest keyptu blöðin séu
Hjemmet, Familic-Journalen og
Anders And (Andrés Önd). Tvö
hin fyrrtöldu hafi selzt í álika
mörgum eintökum fyrir heims-
styrjöldina síðari, en Andrés vað-
ið uppi síðustu árin og unnið
stórlega á. Alt for Damer og Fe-
mina segir þar að seljist í um 2
þús. eintökum og Billedbladet og
Se og Hiir í tæplega 1000 eintök-
um hvort. En hin fjöllesnustu,
fyrstnefndu í ca. 3 Jrús. eintökum
hvert.
Svo að lohum nokkrar línur
frá S. D.:
NÝLEGA var þess getið á öðr-
um stað hér í blaðinu, að
vegna ónógrar dagblaða-útkomu
sökutn verkfalls blaðamanna, væri
nú almennt farið að lesa fornbók-
menntir. Þetta var gott að heyra.
Og er vonandi að fornbók-
menntalesturinn haldi áfram þótt
dagblaðaruglið héfjist á ný, að
verkfalli loknu, höfundum sínum
til skammar og skaða. Væri rétt
að bæta Jteirri ósk við vonina,
þótt líkindi séu lítil á að rætist,
að blaðamenn breyti um tón, að
verkfalli loknu. Yrði Jrá kapítula-
skipti í íslendingasögunni og ár-
ið 1963 frægt, að öðru en slysum
og hörmum, sem rædd hafa verið
í blöðunum i smeðjulegum róm-
skala, santhliða níðinu um lifandi
fólk. Látið nú ermar standa frarn
af höndum í því efni að ljúga,
svíkja og stela mannorðinu af ná-
unganum, dagblaðamenn góðir!
Vinnið knattspyrnuna við vega-
málayfirstjórn Akureyrarbæjar! —
Og gefið íslenzkum íþróttamönn-
um fordæmi um mýkt, hreyfingar-
fegurð og drenglyndi. Virðist Jrað
varla vanþörf.
En Jregar ég hcyrði getið um
Slæmar upp-
skeruhorfur í
Kelduhverfi
Kílakoti 14. ágúst. Tíðarfar hef-
ur verið hér óhagstætt og lang-
varandi kuldar, sem valda því,
m. a., að háarspretta er mjög
lítil. Flestir hafa hirt fyrri-slátt-
artöðu, en ekki getað byrjað
síðari slátt fyrir grasleysi. Hins-
vegar er úthagi mjög vel sprott
inn, og hafa því sumir bændur
tekið upp engjaheyskap á ný.
Kartöfluspretta hefur verið
mjög hæg vegna kuldanna, og
fyrir fáum dögum féll kartöflu-
gras hér í hverfinu, svo að
uppskeruhorfur eru með lak-
asta móti.
Hér varð jarðhræringa vart
hinn 8. þ. m., en þær voru mjög
vægar. Bar meira á þeim í Axar
firði og grennd, og munu þær
hafa fundist þar nokkra daga á
eftir. Hvergi ollu þær skaða.
Björg Bjömsdóttir í Lóni
varð fimmtug 9. ágúst, en hún
hefur um langt skeið verið
organisti í Garðs- og Skinna-
staðarkirkjum. Var henni í til-
efni dagsins haldið samsæti í
Skúlagarði. Færðu kirkjukór-
arnir henni gjafir, og margir
fluttu ræður.
í dag er skólastjóraþingið á
Laugum á hringferð um Fjöll,
Axarfjörð og Kelduhverfi, og
hafa fulltrúar kaffisamdrykkju
í Skúlagarði. B. Þ. 1
ÍSLENDIN GU®.