Íslendingur - 16.08.1963, Blaðsíða 8
Heytjón í Vopnafirði
Sæmileg útkoma hjá saltendum
Nýlega var 3ja tonna vélbáti hleypt af stokkunum hjá Kristjáni
Nóa Kristjánssyni. Er hann með Sab-dieselvél, lúkar og búinn
ýmsum tækjum, svo sem dýptarmæli. Eigendur bátsins eru lög-
regluþjónamir Kjartan Sigurósson og Sigurður Eiríksson. Bátur-
inn er nefndur SELÁ.. Ljósm.. K. Hjaltason.
Frá knattspyrnukeppni ÍBA og ÍBK s. I. sunnudag um „fallsætið“ úr I. deild. Markmaður Keflvík-
inga grípur knöttinn, en næstur honum er Kári Árnason IBA. Mikið fjölmenni fylgdist með leikn-
um, svo sem myndin sýnir. Um úrslit hans getur á öðrum stað. Ljósm. Gunnl. P. Kristinsson.
Eru Akureyringar að falla ofan í II. deild?
Vopnafirði 13. ágúst. í dag er
hér haugasjór og grátt af snjó
ofan í mið fjöll.
Síldarverksmiðjan hér hefur
tekið á móti 56 þús. málum sem
mun litlu meira en þriðjungur
þess, sem hún hafði fengið á
sama tíma í fyrra. Lýkur
vinnslu þess, sem komið var,
um hádegi í dag. Ekkert útlit
fyrir veiði að svo stöddu á nein
um miðum. Inni liggja 6 — 8
skip og bíða átekta. Afkoma er
sæmilegri hjá saltendum en
verksmiðjunni, en saltað hefur
verið hér á 17. þús. tunnur á
4 söltunarstöðvum.
Jökulleir í neyzluvatni.
Búið er að leggja háspennu-
línur að borholum fyrir neyzlu-
vatni (sem áður hefur verið frá
sagt í blaðinu), og er farið að
dæla vatninu til hreinsunar. í
því er nokkur jökulleir, og telja
sérfræðingar, að taka muni um
3ja vikna dælingu að hreinsa
leirinn, svo að vatnið verði hæft
til neyzlu.
Sumarið hefur verið skárra
til landsins. Góðir þurrkar og
bændur náð heyjum sæmilega
verkuðum, en um mánaðamótin
varð tjón á heyjum á nokkrum
bæjum undir fjallasíðunni
vegna roks, og munu hafa fok-
ið 50 — 100 hestar sumstaðar.
Nokkuð náðist þó saman aftur
með ærinni vinnu. Sj.
Gömul brú á ferðalagi
í DAG verður að forfallalausu
stödd hér í bænum gamla brú-
in á Öxnadalsá. Er hún á leið-
inni suður fjöll, og mun fara
hinn nýja veg um Hólafjall.
Leiðarendi er Kaldakvísl, en
þar á að leggja hana yfir, en
hún er 19 metra löng. Hjól eru
sett undir brúna, en dráttar-
vagn eða bíll dregur hana þessa
fyrirhuguðu leið, sem er á 3.
hundrað kílómetrar.
Búizt var við, að lagt yrði upp
i ferðina eftir hádegið í gær,
samkv. upplýsingum Guðmund
ar Benediktssonar yfirverk-
stjóra, en Vegagerðin annast
flutninginn. Bjóst hann við, að
komið yrði til Akureyrar með
brúna undir eða í morgun, ef
allt gengi að óskum. Hér verður
staldrað við og öll dráttartæki
vandlega athuguð, áður en lagt
verður á öræfin.
vona, að kraftaverk geti gerzt,
og dragið nú af ykkur slenið,
strákar, þótt seint sé!
G.
Staðan í 1. deild:
1 u j t mork st.
KR 8 5 1 2 20:13 11
Akranes 9 5 1 3 22:16 11
Fram 8 4 1 3 9:12 9
Valur. 8 3 2 3 16:17 8
Keflv.ÍBK 10 3 1 6 15:19 7
Akureyri 9 2 2 5 15:20 6
Reykjahlíðar, enda þurfti hún
þegar að komast til Húsavíkur.
Var búin að auglýsa komu sína
þangað. Sagði hún farir sínar
ekki sléttar og burthvarf sam-
ferðamannsins. Brá Pétur í
Reynihlíð skjótt við, fékk sér
bíl og fór norður að leita, og
fannst bíllinn skjótt. Einnig öku
maðurinn, sem kominn var að
bílnum. Hafði hann ekki getað
komið honum í gang, vegna
þess að rafgeymirinn var tæmd
ur. Gekk greiðlega að draga bíl
(Framh. á bls. 7)
Þing í Hlíðarfjalli
Aðalfundur Skógræktarfélags íslands befst
þar í dag og lýkur sennilega á sunnudaginn
Töpuðu 0:2 fyrir Keflavík sl. sunnudag
ÞAÐ er nú að verða all-algengt
að félög og stofnanir boði til
funda í Skíðahótelinu í Hlíðar-
fjalli, enda hefur það upp á rúm
góðan og vistlegan fundarsal að
S. L. SUNNUDAG léku Akur-
eyringar næstsíðasta leik sinn í
I. deildarkeppninni á þessu
sumri og töpuðu fyrir Keflvík-
ingum. Er þetta þriðji leikur-
inn í röð, sem lið ÍBA tapar á
heimavelli, og eru menn. mjög
farnir að undrast, hvað valdi,
því fyrr í sumar var frammistað
an svo góð, að hinir bjartsýn-
ustu gerðu sér jafnvel vonir um,
að Akureyringar léku til úrslita
um fyrsta sætið.
Fram vann Akureyri 2:1 og
Akranes 3:1 og frammistaðan
nú í leiknum við Keflavík var
slík, að Keflvíkingar verðskuld-
uðu sigurinn fyllilega. Furðu-
legt slen var yfir liði ÍBA. Það
vantaði leikgleði og baráttu-
vilja, elnkum í fyrri hálfleik.
Ekki er það nægileg skýring,
þó sumir leikmenn, eins og t. d.
Skúli Ágústsson, gengju ekki
heilir til leiks, og ekki heldur
þó nokkrar breytingar væru
gerðar á uppröðun liðsins, sem
sízt virtust vera til bóta.
Mjög snemma í fyrri hálfleik
skoraði Rúnar Júlíusson fyrra
mark Keflvíkinga úr þvögu rétt
við mark ÍBA, og í síðari hálf-
TOGARARNÍR
HINN 5. ágúst landaði Hrímbak
ur hér 160 tonnum, Svalbakur
þ. 8. ág. 110 tonnum og Kald-
bakur 12. — 13. ág. 233 tonnum.
Aflinn er mestmegnis þorskur
og karfi og fenginn á heima-
miðum.
Harðbakur er að koma úr
klössun og fer senn á veiðar
Sléttbakur hefur verið í höfn,
en er nú undirbúinn til veiða.
Afli togaranna á heimamið-
um hefur verið öllu betri í sum
ar en lengi áður. Erfitt hefur
verið að fá fólk til vinnu í hrað-
frystihúsi, Ú. A einkum karlm.
leik skoraði svo Hólmbert Frið-
jónsson, bæði mörkin óverjandi
fyrir Einar.
Nú þurfa Akureyringar að fá
a. m. k. 1 stig í leiknum við KR
til þess að vera ekki þá þegar
fallnir ofan í II. deild, en eftir
hinn ■ glæsilega sigur KR yfir
Val s. 1. sunnudag (7:2) eru lík-
urnar sannarlega ekki stórfeng-
legar. Ert ennþá verðum við að
bjóða. í dag verður aðalfundur
Skógræktarfélags íslands settur
þar, en síðan munu fulltrúar
skoða Lystigarðinn og Gróðrar-
stöðina. Á morgun mun verða
hlé á fundi, meðan fulltrúar
fara hringferð um Eyjafjörð, og
verður þá væntanlega komið
við í skógarreitum í Eyjafirði,
svo sem Grundarskógi, Leyn-
ingshólum, Vaðlaskógi og Garðs
árskógi. Fleiri skógarreitir
munu og verða skoðaðir. Fund-
inum verður sennilega lokið á
sunnudaginn.
Hrakningar á Mývatnsfjöilum
Björk í gær. Um síðustu helgi
lentu tvær manneskjur í hrakn
ingum austur á Mývatnsfjöll-
um, Eiríkur Ketilsson heildsali
í Reykjavík og frönsk kona,
fegrunarsérfræðingur. Lögðu
þau upp í bíl úr Mývatnssveit
á sunnudag og ætluðu að Detti-
fossi vestan Jökulsár. Fyrst er
farinn þjóðvegurinn austur um
18 km. að Austari-Brekku, en
þar þeygt til norðurs. Gekk
ferðin vel langleiðina, þar til
kom að vegamótum. Fór þá
Eiríkur út úr bílnum og hugð-
ist kanna leiðina. Gekk hann
spölkorn frá, en sú franska sat
kyr. Er Eiríkur hafði verið
burtu um hríð skall á svört
þoka, svo ekki sá út úr augun-
um. Er konan hafði setið
nokkra stund í bílnum og þeytt
flautu bífreiðarinnar án þess að
ökumaðurinn kæmi aftur, fór
hún að gerast vondauf um end-
urkomu hans. Skrifaði hún á
miða og skildi eftir í bílnum og
kvaðst halda til byggða veg
þann, er þau höfðu komið.
Segir ekki af ferðum hennar,
þar til á mánudagsmorgun, að
hún mætti bíl á þjóðveginum á
austurleið um 10 kílómetra frá
Reykjahlíð. Hafði hún þá verið
á gangi alla nóttina. Sneri bif-
reiðarstjórinn við með hana til
ÍSLENDINGUR
49. ÁRG. . FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1963 . 31. TBL.
AUGLÝSENDUR
ATHUGIÐ, að upplag blaðs-
ins liéfur á fám undanföm-
um mánuðum aukizt um
50%. Er það nú sem áður
eitt af fjöllesnustu vikublöð-
um landsins og því hag-
kvæmt að auglýsa í því.