Íslendingur


Íslendingur - 16.08.1963, Blaðsíða 7

Íslendingur - 16.08.1963, Blaðsíða 7
 WjYJ 'JííZSm 1 ' — “ MESSAÐ verður í Akurevrar- kirkju n.k. sunnudag. Séra Benjamín Kristjánsson Lauga landi prédikar. Sálmar: 535, 1 245, 144, 318, 678. Sóknar- prestur. Ekið á hlið. Á miðvikudagsnótt- ina hefur bíll ekið á hlið- stólpa í mæðiveikigirðingu ■ við Lónsbrú og brotið, án þess að segja til óhappsins. Eru þeir, sem kynnu að hafa ' orðið varir við þetta, beðnir að gera lögreglunni eða varð- manni við girðinguna, Stefáni Steinþórssyni, aðvart. Vegna ónákvæmrar frásagnar um II verðlaun hugmynda- | samkeppninnar í síðasta blaði, 1 skal tekið fram, að :þau hlutu Helgi Hjálmarsson.cand. arch. I Reykjavík og Haukur Vik- torsson ,cand. arch. Akúreyri. ■SÖFNIN: Amtsbókasafnið er opið: Útlán og lestrarsalur mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 4—7 e. h. Matthíasarsafn opið á sunnu- dögum 'frá kl. 1 — 3 e. h. Náttúrugripasafnið (gengið frá kirkjutröppunum) sunnu- daga kl. 1—3 e. h. Nonnasafnið í Nonnahúsi 1 sunnudaga kl. 2—4 e. h. (Auk þess sem Nonnahús er opið ! eins og áður segir, geta ferða- mannahópar fengið að skoða : það á öðrum tímum, með því að hringja í síma 1396 eða 1574). •FRÁ Minjasafninu á Akureyri. Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 1.30—4 e.h. Sími safnsins er 1162, en sími safnvarðar, Þórðar Friðbjarn- arsonar, er 1272. RAFHLÖÐUR fyrir gripagirðingar ELEKTRO C0. H.F. Sími 1158 á Bændur athugið! Höfum takmarkaðar birgðir af MAKRASÝRb Fáum ekki fléiri sending- ar á þessu sumri. SAITSTEINN KAUPFÉLAG VERKAMANNA kjörbúð Sími 1075 (Framhald af blaðsíðu 2). vinna. Hann aðstoðaði þá við uppskurði á Sjúkrahúsinu, með an heilsa hans leyfði. Og þeir hafa litið með þökk og velþókn- un á framhaldandi læknisstörf hans, sem mörgum hafa líka komið vel. Síðustu missirin var hann oft illa haldinn og lasinn. Honum var ljóst að hverju fór. En jafn- skjótt og líðan hans batnaði hverju sinni, fór hanli allra sinna ferða, sótti fundi og stund aði starf sitt. Dauðann óttaðist hann ekki. Þegar síðasta þrauta kastið greip hann, settist hann fram á rúmstokkinn og sagði við ástvini sína, með fullri rænu og geðró: „Þessu er að verða lökið“. Augnábliki síðar var hann látinn. Og nú hljóma klukkur til kveðju. Bjöm Jósefsson kveður þetta líf, ástvini sína og samferða- menn, með þeirri ástúð og ljúf- leik, sem sál hans var rík af. Stórmikið eigum við honum að þakka. Og við þökkum hon- um, ástvinir hans og við öll hin. Hve margir eru þeir, sem blessa minningu hans og kveðja hann sem „lækninn elskaða"! Þegar .andlát hans bar að, rifj aðist upp fyrir mér hugsun, sem vaknaði hjá mér fyrir mörgum árum, einmitt á samleiðinni.með honum og við athugun á lífi hans og starfi. í raun og veru .á sú hugsun við alla lækna, en þó helzt um þá, er lengi starfa — og allt upp í hálfa öld —. í ritningunni er lýst himn- eskri sýn, sem hinn kunni sálmur Brorsons er ortur um: „Sjá þann hinn mikla flokk sem fjöll.“ Mikill er sá flokkur, sá fjöldi manna, sem læknir líknar og græðir á langri starfsævi. Nógu stór til að hylja.fjöll. ^ } Ég hreyfði þessari hugsun einu sinni, þegar safnazt var heima hjá Birni á afmæli hans. Ekki vildi hann undir þetta taka. Hann bað mig að minnast þess, hve margt sér hefði mis- tekist, hve mörgum hann hefði ekki getað hjálpað, hve mörg- um hann hefði ekki getað bjarg að frá ótímabærum dauða. Frammi fyrir slíkri reynzlu var hugur hans auðmjúkur og hryggur. Eigi að síður finnst mér, að þessi hugsun sé rétt og eftirtektarverð — að fjalli líkur sé sá flokkur, sem á þakkir að gjalda þeim manni, sem læknað hefir í hálfa öld. Ollum ber oss að birtast f.yrir dómstóli Krists, segir Ritning vor. Það eru líkingarfull orð, og þó án alls efa raunhæfrar merkingar. Enginn kemur fyrir þann dómstól með fullkomlega hreinan -skjöld. ÍEn hver kemur þar með brot sín svo mörg og vanmátt sinn svo mikinn, að hann eigi ekki :góðs að vænta, þegar þúsundir og tugþúsundir manna, kvenna ag barna, bera honum vitni, uppréttum hönd- um, um ástúðlega veitta líkn og lækning? í björtu trúartrausti horfum við á eftir látnum lækni okkar inn á hina huldu braut — og felum upprisinn anda hans eilífri elsku Gúðs Föður. Hrakningar á Mý- (Framhald af blaðsíðu 8) inn í gang, og var síðan háldið til byggða. í sambandi við þessa hrakn- inga vil ég minna á, að betur þarf að merkja öræfavegi en gert er. Vegur sá er þau villt- ust á, liggur að Selfossi, sem er nokkru ofar en Dettifoss. Eru þarna víða hjólspcrr eftir bíla og því erfitt að átta sig, ekki sízt fyrir ókunnuga og það í þoku. K. 5Þ. FRÆÐSLU- HG KYNNINGARMGT íSLENZKRA SKÓLASTJÓRA hið fyrsta í röðinni, stendur yfir þessa viku, og fer megin- hluti þess fram að Laugum í Reýkjadál. Er mótið það fjöl- mennt, áð ekki er rúm fyrir aðra gesti í gistihúsinu á Laug- um, meðan á mótinu stendur. Skólastjórafélag íslands, sem stofnað var í 'fyrra, gengst fyrir mótinu, en formaður þess er Hans 'Jörgensen. Tveir erlendir gestir sækja mótið, Ola Laukli, fræðslustjóri í Drammen Noregi, og er aðal-leiðb'einandi mótsins, — og rektor Lindgren frá Sigtuna í Svíþjóð. Mótið hófst með guðþjónustu árdegis á sunnudaginn, þar sem sr. Sig- urður Stefánsson predikaði, en eftir hádegið var mótið form- lega sett, og voru þá flutt ávörp og kveðjur. Þann dag fluttu og erindi báðir hinir erlendu gest- ir og Níels Dungal prófessor. Aðrir fastir ræðumenn á mót- inu eru: Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi, Guðmundur G. Hagálín bókafulltrúi, dr. Broddi Jóhannesson skólastjóri, Jónas Pálsson sálfr., Óskar Halldórs- son cand. mag., Heimir Áskels- son háskólakennari og Jónas B. Jónssorú'fræðslustjóri. .' Á miðvikudaginh fóru móts- fulltrúar í hringferð um Mý- vatnssveit, Grímsstaði, Detti- foss, Ásbyrgi um Tjörnes til Húsavíkur og sátu þar kvöld- verðarboð bæjarstjórnar, en um kvöldið flutti Sigurjón Björns- son sálfræðingur erindi í sam- komuhúsi staðarins. Á mánudag og þriðjudag var mestu af mótstímanum varið til námskeiðs hjá hr. Ola Laukli um ýmsa þætti í starfi skóla- stjórans, en á kvöldum 'voru ýmis skemmtiatriði, svo sem Þingeyingavaka, Vestfirðinga- vaka og Kvennavaka, þar sem flutt var ein ræða, síðan sung- ið, lesið upp og kveðið. í dag er aðalfundur félags- ins haldinn, og í kvöld verður lokafagnaður að Laugum með kvöldvökusniði. Á morgun verð ur haldið til Akureyrar með viðkomu við Goðáfoss. Þá sitja fulltrúarnir miðdegisverðarboð menntamálaráðherra í 'Sjálf- stæðishúsinu og kvöldverðar- boð í boði baéjarstjórnar á sama stáð. Þess í milli háfa þeir dag- inn til frjálsrar ráðstöfunar. TJm kvöldið verður Eyfirðinga- váka í Sjálfstæðishúsinu, er Eiríkur Sigurðsson stjórnar. Verða það lok mótsins. Á þess- ari síðustu vöku flytur Þórar- inn Björnsson skólameistari ræðu, Jóhann Konráðsson og Smárakvartettinn syngja, Guð- mundur Frímann les ljóð og Einar Kristjánsson gamansögu. Almennur söngur verður milli atriða og dans að lokum. Ekki verður sagt, að veður- guðirnir hafi verið skólastjór- unum hliðhollir, en sú er bót í máli, að sjaldan þarf að kvarta um kulda í þeim húsakynnum, er mótið gisti. Um 300 bílar á söluskrá. Alls konar skipti mögu- leg og greiðsluskilmálar. Túngötu 2, -sími 1909 Tvo menn tekur út af síldar- bátum og nást ekki :Guðfinn Marelsson frá Reykjavik af Erlingi VE 30 og Sigurð Krist- jánsson frá Reykjavík af Jóni Oddssyni GK 14. 'Unglingspiltur á Seyðisfirði bíð- ur bana af rafstraumi frá bor- vél, -er hann hélt á. Hét Ívar Ivarsson, frá Raufarhöfn. TóK ;4ra drengur, Björgvin Vil- helm Kristjánsson, hrapar til bana .í Vogastapa. Var fallhæð um 25 metrar. Átta ára stúlkubarn úr Reykja- vik, Margrét Guðmundsdóttir fellur af hestbaki austur í Flóa, og andast af byltunni í sjúkra- húsi skömmu síðar. Fjórir Vestmannaeyjabátar •teknir og kærðir fyrir landhelg- isbrot. Vísitala framfærslukostnaðar í ágúst reynist 133 stig, og hefur þar með hækkað um 1 -stig frá júlímánúði. GSKARSSTÖÐ HÆST ámira (Framhald af bls. 1.) búið að aka að honum miklu grjóti. Þó er ekki búizt við, að hann verði fullgerður á þessu ári. Auk barnaskóla og félags- heimilis eru nokkur íbúðarhús í byggingu en miðar hægt áfram vegna manneklu. Hér inni hefur fjöldi skipa legið undanfama daga vegna veðurs, en í morgun fóru þau öll út. Þó er enn bræla á mið- unum og sáralítil veiði. Það slys varð hér fyrir hádeg- ið í dag, áð unglingspiltur, Hjalti Hjaltason, lenti með fing- ur í reimskífu á rafmagnsmótor í verksmiðjunni. Skaddaðist fingurinn .syo- illa, að Tryggvi líelgáso'n1 vaí ■ kállaður hingað til að fljúga með piltinn x F j órðungss j úkr ahúsið. ■St. E. Sig. BÚNAÐARSAMBAND EYJAFJARDAR heldur KJÖRMANNAFUNH að Hótel KEA, Akiireyri; mánudagmn 19. þ. m. Eundurinn hefst kl. 14. STJÓRNIN. UTGERRARMENN! Til sölu er 20 smálesta bátur í ágætu standi. Báturinn er með sem nýrri Caterpillarvél, ganghraði 10 til. 11 mílur. Línuveiðayfæri geta fylgt. — Upplýsingar gef- ur Jón Guðmundsson, sími 1336. Hagstæð kjör ef samið er strax. ISLENDINGUR

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.