Íslendingur - 26.03.1965, Page 1
ISLENDINGUR
I5I.AI) SJÁLFSTÆDISMANNA LNORÐIJRLANI)SK J <) RI) Æ M I EYSTRA
51. ÁRGANGUR . FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1965 . 12. TÖLUBLAÐ
Á miklu veltur að skilja náttúr-
una og umgangast liana á rétt-
an liátt,
segir Ólafur í Gróðrarstöðinni sjötugur
ÓLAFUR JÓNSSON er fæddur
Þau hjónin Ólafur og Guðrún Jónsdóttir hjá sæluhúsinu á Núpstað
mcð Ilannesi pósti Jónssyni sumarið 1963. — Ljósm.: B. Bessason.
Sitthvað frá lögreglunni i
Árás á stúlku - Þjófnaður - Ávísanafals
• • '
Olvun við akstur
að Freyshólum í Vallalireppi í
Suður-Múlasýslu liinn 23. marz
1895. Hann lauk prófi við Land-
búnaðarháskólann í Kaupmanna
höfn vorið 1924 og hóf þá þegar
að starfa hér á vegum Ræktun-
arfélags Norðurlands. .
Starf hans þar í fjóra áratugi
og sjálfstæðar vísindarannsókn-
ir á náttúru íslands er kunnara
en svo, að ástæða sé til að rekja
það hér, enda hvorki vettvang-
ur til þess né sá, cr þetta ritar,
maður til að gera því skil.
Eftir hann liggur fjöldi rit-
gerða og bóka, bæði vísinda-
legs eðlis, og einnig sögur og
kvæði. Umfangsmestu verk
hans eru „Ódáðahraun“ og
„SkriðuföII og snjóflóð“.
ÞAÐ ER SVO MARGT, SEM
ER MINNISSTÆTT.
Þau hjón tóku mér Ijúfmann-
lega, er ég kvaddi dyra til að
rabba við Ólaf, og geltk ég beint
að efninu:
— Hvað er þér minnisstæð-
ast frá langri ævi?
Valdimar Björnsson
á Akureyri
VALDIMAR Björnsson fjár-
málaráðherra Minnesota var hér
á ferð fyrir skömmu ásamt
konu sinni og flutti bráð-
skemmtilegt erindi á vegum ís-
lenzk-ameríska félagsins sl.
þriðjudagskvöld. Kom hann
víða við og rakti samband ís-
lands við Ameríku allt frá fundi
hennar árið 1000 og kryddaði
mál sitt skemmtilegum sögum
og fróðleikskornum. Að lokinni
ræðu hans söng Karlakórinn
Geysir nokkur lög undir stjórn
Árna Ingimundarsonar.
Var þetta hið ánægjulegasta
kvöld og mjög vel sótt.
Frost háir borunum
BORUN í Glerárdal gengur vel
e'ftir atvikum og komið niður í
60 m; nokkur velgja er í hol-
unni. Frost valda nokkrum erf-
iðleikum við boranirnar.
— Því treysti ég mér ekki til
að svara. Ég segi eins 'og séra
Bjarni: Það er svo margt, sem
mér er minnisstætt.
Ólafur heldur á sérkennilegum
steini úr Oskjuhrauni.
Ljósmynd N. H.
— Hvers vegna réðstu hing-
að til Akureyrar?
— Það er nú eiginlega ekkert
merkilegt við það. Ég fór í land-
búnaðarháskóla og lagði stund
á þessi algengu landbúnaðar-
fög. Þegar ég lauk námi og raun
ar fyrr, stóð mér til boða að
taka við framkvæmdastjóra-
starfi hjá Ræktunarfélagi Norð-
urlands, eins og það var þá kall-
að. Þar sem hugur minn stóð til
tilrauna og rannsóknarstarfa,
var mér ekki óljúft að taka það
að mér. Hitt er annað mál, að
ástæður voru slíkar þá, að ég
varð að beita mér að allt öðr-
um störfum fyrst.
— Hvað viltu segja mér um
þín tilraunastörf?
— Ég mundi vilja segja, að
þegar ég var að fást við tilraun-
irnar, fundust mér þær góðar og
merkilegar. En þróunin hefur
hlaupið svo frá mér, að þær eru
allar úreltar núna, og jafnvel
áður en ég lauk við þær. En
þetta gildir ekki sérstaklega um
mín tilraunastörf, heldur alla
rannsóknarstarfsemi, þegar um-
byltingin er svona ör. Því að
tilraunastarfsemi þarf alltaf
tímann fyrir sér, — en bylting-
in hefur ekki tíma til að bíða
eftir rannsóknarniðurstöðum.
-— En þú ert samt ánægður
með árangurinn?
— Nei, síður en svo. En það
þýðir ekki að fást um það. Það
verður að láta það lönd og leið-
ir, úr því sem komið er.
ALLT UMTURNAÐ.
— Menn bera sig oft saman
við fortiðina. Það hefur margt
breytzt síðan þú hófst þitt ævi-
starf?
— Já, það er náttúrlega gjör-
breyting orðin frá þeim tíma,
þegar ég byrjaði. Mönnum datt
ekki annað í hug en vinna með
frumstæðum tækjum og hesta-
áhöldum þá, en nú kemur það
ekki lengur til greina. Vélmenn-
ingin var þó að byrja dálítið um
það sama leyti með tilkomu
þúfnabananna, en þeir voru
ekki notaðir nema um tíma sak-
ir.
Allt, sem snerti landbúnað-
inn, er umturnað á þessu tíma-
bili. Það, sem mér fannst mikils-
verðast, þegar ég byrjaði, var,
að nám mitt var ekki aðeins
„teoretískt,“ heldur kunni ég öll
algeng landbúnaðarstörf vel. En
eftir . dálítinn tíma var þessari
gömlu verkmenningu sópað al-
gjörlega burt, svo að ég var orð-
(Framhald á bls. 7).
STÚDENTAFÉLAGIÐ á Akur-
eyri efnir til Davíðskvölds í
Sjálfstæðishúsinu í kvöld, 26.
marz, og rennur ágóðinn til
kaupa á húsi skáldsins. Það
sem þarna fer fram, er:
1. Ávarp: Brynj. Sveinsson, yf-
irkennari.
2. Upplestur úr verkum Davíðs
Stefánssonar: Steinunn Jó-
hannesdóttir.
3. Tvísöngur: Jóhann Daníels-
son og Sigurður Svanbergs-
son. Undirleikari Guðmund-
ur Kr. Jóhannsson.
4. Upplestur: Gunnar- Stefáns-
son.
5. Einsöngur: Jóhann Konráðs-
son, undirleikari Jakob
Tryggvason. _
ADFARANÓTT sl. laugardags
réðst 18 ára piltur á unga stúlku
í Hrafnagilsstræti nálægt gatna
mótum við Þórunnarstræti og
fleygði henni í götuna. Nemandi
í heimavistarhúsi MA heyrði
köll hennar og hringdi í lögregl
una, er fór strax á vettvang.
Hafði pilturinn þá fylgt henni
eft-ir og ráðist á hana aftur.
Tók lögreglan árásarmanninn 'í
vörzlu sína. Hlaut stúlkan
nokkra áverka og taugaáfall.
6. Leikþáttur: úr „Gullna hlið-
inu“, lesarar:
Björg Baldvinsdóttir ......
kerlingin
Guðm. Gunnarsson...........
Jón bóndi
Jón Kristinsson ...........
Lykla Pétur
Steinunn Jóhannesdóttir . .
María mey
Þráinn Karlsson............
Páll postuli
Birgir Ásgeirsson .........
Óvinurinn
7. DANS.
Akureyringar og nærsveita-
menn! Fjölmennið á kvöld-
skemmtunina og styðjið jafn-
framt Davíðssöfnunina. ÖUum
heimill aðgangur.
Rannsókn málsins mun nú lok-
ið, og bíður árásarmaðurinn
dóms.
Nýlega var ýmsum hlutum
stolið úr bifreið hér í bænum,
og játaði ungur maður á sig
verknaðinn á mánudaginn.
Þá er ungur maður í ‘gæzlu-
varðhaldi vegna meintra ávís-
anafölsunar.
Nýlega var maðjur, sem svift-
ur hafði vefið ökuréttindum, tek
inn við akstur og jafnframt grun
aður um ölvun, og annar var
tekinn fyrir ölvun við akstur
um helgina.
ER GÖNGUFISKUR-
ÍNN KOMINN?
Húsavík í gær: Enginn fiskur
hefur fengizt hér í þessum mán-
uði fyrr en allra síðustu dag-
ana. Loðna er nú gengin í fló-
ann, og hefur fengizt nokkuð af
göngufiski í net og á línu. Nokk
uð hefur veiðzt af rauðmaga og
megnið af honum verið selt til
Akureyrar. Grásleppuveiði er
hinsvegar lítil.
ísinn hefur ekki heimsótt okk
ur þessa daga en kom hér inn
fyrir nokkru síðan, og tóku
menn þá upp hrognkelsanet sín.
Joðge.