Íslendingur - 26.03.1965, Síða 8
s
■ í
SRi-S2»?v2a»
' * *•&*<*:#í: ^
STERKUR 1S er nú kominn á Pollinn, og leika unglingar sér þar á skautum og sleðum,
venjulegum reiðhjólum og þríhjólum. Á myndinni, sem tekin er af hafnarbakkanum sl. sunnu-
dag, eru unglingarnir á hjólum. í baksýn Vaðlaskógur og Vaðlaheiði. Ljósm. S. S.
Akureyri fylgist með midirbún-
ingi landsvirkjunar
Möguleika á aðild haldið opnum
Á FUNDI bæjarstjórnar s.l. þriðjudag var samþykkt svohljóðandi
ályktun með atkvæðum allra bæjarfulltrúa:
„í framhaldi fyrri samþykktar sinnar um virkjun Laxár væntir
bæjarstjóm Akureyrar þess, að í frumvarpi til laga um lands-
virkjun, sem lagt yrði fyrir Alþingi, verði ákvæði um, að Laxár-
virkjun geti gerzt aðili að landsvirkjun, þegar Akureyrarbær og
stjóra Laxárvirkjunar æskja þess.
Jafnframt æskir bæjarstjórn þess að fá að fylgjast með undir-
búningi lagasetningar um landsvirkjun.“
ÞRÍR MÖGULEIKAR.
Magnús Guðjónsson bæjarstj.
fylgdi úr hlaði samþykkt bæj-
arráðs, þar.sem lagt var til, að
bæjarstjórn tæki afstöðu til að-
ildar Akureyrar að væntanlegri
landsvirkjun. Rakti hann að-
draganda þessa máls og skýrði
frá því, að samvinnunefnd um
virkjunarmál, er skipuð er að-
ilum frá Reykjavík, Akureyri
og ríkisstjórn, hafi skilið álykt-
un bæjarstjórnar 10. febrúar s.l.
svo, að Akur-
eyri hefði á
kveðið að ger
ast ekki aðil
að landsvirkj
un að sv
stöddu, þa
sem farið hefc
verið fram i
nauðsynlegar lagaheimildir til
virkjunar Laxár, ef úr yrði, er
bæjarstjóri kvað hæpna álykt-
un. Síðan skýrði hann frá sam-
HÖFRUNGAVAÐA
FLÝR ÍSINN
Þórshöfn í gær: Þistilfjörður er
nú orðinn fullur af hafís til
lands. Undan honum flúði stór
höfrungavaða, og flutu höfrung-
arnir upp gegnum krap eða
þunnan ís uppi við land undan
Sauðanesi. Náðust um 30 höfr-
ungar upp á ísinn í dag, en
nokkrir fleiri drepnir til að
stytta þjáningar þeirra, en við j
þessar aðstæður lá ekki annað j
fyrir þeim en bíða dauða síns. i
þykkt samvinnunefndarinnar,
þar sem mælt er með því að
beinar samningaviðræður verði
teknar upp um Búrfellsvirkjun,
ef yrði, milli Reykjavíkur og
ríkisstjórnar. Ennfremur að Ak
ureyri geti gerzt aðili að lands-
virkjun síðar, ef henta þætti,
og loks er mælt með því, að
nauðsynlegar lagaheimildir
verði veittar til virkjunar Lax-
ár.
Síðar gerði hánn grein fyrir
frumvarpi er samið hafði verið
á sínum tíma um landsvirkjun,
þar sem m. a. var gert ráð fyr-
ir, að Sogsvirkjun, Laxárvirkj-
un og væntanlegri Búrfells-
virkjun yrði slegið saman, en
eignahlutföll yrðu 54—56% hjá
ríki, 35—37 hjá Reykjavík og
8—10 hjá Akureyri. Stjórn
hennar yrði skipuð 15 mönnum,
8 frá ríki, 5 frá Reykjavík og 2
frá Akureyri, — auk fimm
manna framkvæmdastjórnar, 2
frá Reykjavík, 2 frá ríkinu og 1
frá Akurej'ri.
Sagði hann, að þrír möguleik
ar væru hér fyrir hendi fyrir
Akureyri:
1. Að óska ekki aðildar.
2. Að óska aðildar.
3. Að óska ekki aðildar að
svo stöddu, en halda þeim
möguleika opnum, ef það
þætti síðar henta.
SAMSTAÐA UM MÁLIÐ.
Gísli Jónsson (S) kvaðst ekki
á þessu stigi mundu gera málið
efnislega að umræðuefni, en
lagði hins vegar áherzlu á, að
nauðsynlegt væri að ná algjörri
samstöðu um málið. Sagðist
hann hafa orð-
ið var við, að
það hefði vak-
ið athygli og á-
huga, sem ekki
væri nema
eðlilegt. Það
væri skemmst
að segja, að
þær raddir, sem heyrzt hefðu,
væru sammála um efnisatriði
málsins og því gerði hann það,
að tillögu sinni, að fjórir
bæjarfulltrúar, þeir Jón Sólnes,
Stpindór Steindórsson, Stefán
Reykjalín og Ingólfur Árnason,
reyndu að ná heildarsamkomu-
lagi, áður en málið yrði tekið
til endanlegrar afgreiðslu, en
hlé gert á fundinum á meðan.
STYRKIR AÐSTÖÐU
LAXARVIRKJUNAR.
Sieindór Steindórsson (A)
tók undir með G. J., að æski-
legt væri að ná heildarsam-
komulagi. Síðan veik hann að
(Framhald á blaðsíðu 5).
5I.ARG. . FOSTUDAGUR 26. MARZ 1965 . 12. TBL.
Hafísinn ógnar enn
Siglufirði 25. marz. Hér hefur
verið mikið frost, 13 gráður árla
í morgun og 14 gráður í dag.
Hins vegar hefur verið sæmilegt
veður þessa daga, og sér til sól
ar. — Eg var að tala við Erlend
Magnússon bónda á Siglunesi í
morgun og sagði hann, að norð
ur af nesinu væri ísspöng, er
ræki hratt til vesturs og enn-
fremur nokkuð um lausa jaka
nær. Hins vegar taldi hann vel
fært skipum í björtu milli Siglu
fjarðar og Eyjafjarðar. Togar-
inn Hafliði kom hér inn um há-
degi í dag með um 30 tonn fiskj-
ar en þurfti að hætta veiðum
vegna ísreks á miðunum, en
hann var skammt norður af
Siglunesi. S. F.
Sauðárkróki 25. marz. Hér hefur
verið lítið um ís síðustu dagana,
en fyrir rúmri viku var allstór
ísspöng norður af miðjum Skaga
firði, sem nú hefur tvístrast.
Nokkuð er þó um íshröngl með
Reykjaströnd og Skaga. Sigling
ar hafa ekki teppst að neinu
verulegu leyti.
Ólafsfirði 25. marz. Hér er heið
skírt veður og mikið frost, en
engan ís að sjá.
Raufarhöfn 25. marz. ísinn mun
nú orðinn landíastur við Hraun
hafnartanga, að því er blaðinu
var sagt frá Raufarhöfn í gær,
og sér í mikinn ís skammt.und-
(Framhald á blaðsíðu 4).
ÍUh-
Þeir dorga á öllum aldri
ÞAÐ hefur verið tregt með fisk
metið að undanförnu hér í bæ,
og liggja til þess ýmsar ástæð-
ur. Fyrst og fremst mjög léleg-
Snarráð slúlka bjargar
dreng frá drukknun
S.L. MÁNUDAG var 3ja ára
drengur, Bjarni Hallgrímsson
Strandgötu 41, að leika sér á
þríhjóli á ísnum framundan því
húsi, er hann skyndilega hjól-
aði út á svo veikan ís, að hann
brast undan drengnum, og fór
hann þegar í kaf. Þrettán ára
frænka hans, Gíslína Benedikts
dóttir Strandgötu 43, kom í
sama bili út og sá hvað orðið
var. Hafði hún engin umsvif en
hljóp fram á ísinn, er brast
undan fótum hennar við vök-
ina. Náði sjórinn henni í mitti.
Tókst henni að seilast til drengs
ins og halda honum uppi, en
skörin brast jafnan, er hún
lyfti drengnum upp á hana.
Annað náið skyldmenni drengs-
ins, Ottó Snæbjörnsson, ók göt-
una í þessum svifum og sá
börnin í vökinni. Hljóp hann
fram til þeirra, tók drenginn og
hljóp með hann í hús hans.
Varð börnunum ekkert meint
af, þótt 10—12 stiga frost væri
þenna dag, en drengurinn hafði
sopið nokkuð á sjó.
Hin snarráða stálka er nem-
andi í GA og heíur mikið starf-
að í skátahreyfingunni.
ur fiskafli á Eyjafirði og yfir-
leitt fyrir Norðurlandi, í öðru
lagi eru trillubátar smábáta-
eigenda innifrosnir í bátakvínni
og í þriðja lagi hefur ágengni
hafíssins gert það að verkum,
að fiskimenn hafa ekki ýtt báti
sínum úr vör, sem ella hefðu
gert það. Fisk höfum við fengið
sunnan frá Akranesi og eitt-
hvað frá Húsavík, þá helzt
rauðmaga, en þetta er ekki
nema eins og „upp í nös á
ketti“ fyrir svo stóran bæ, sem
Akureyri er orðin.
Síðan manngengur lagís kom
á Pollinn, hafa nokkrir menn á
öllum aldri gert sér til gamans
að höggva göt á ísinn og fara á
„dorg,“ og með því getað náð
sjálfum sér í soðið, en engan
uppgripaafla fá menn með
þeirri veiðiaðferð. En eins og
myndin sýnir, eru þeir ekki
gamlir sumir, er dorgveiðina
stunda. — Ljósmynd: Karl
Hjaltason.