Íslendingur - 25.06.1965, Blaðsíða 4
ÍSLENDINGUR
BLAÐ SJÁLFSTÆÐISMANNA f NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA
Kemur út hvern íöstudag. — Útgeíandi: KJÖRDÆMISRÁÐ. — Ritstjóri og ábyrgðar-
inaður: JAKOB Ó. PÉTURSSON, Fjólugötu 1, sími 11375. Auglýsingar og afgreiðsla:
BJÖRGVIN JÚLÍUSSON, Helga-magra stræti 19, sími 12201. Skrifstofa og afgreiðsla
í Hafnarstræti 107 (útvegsbankahúsið) III. hæð (innst). Sími 11354. Opið kl. 10-12
og 13.30-17.30. Laugardaga kl. 10-12. Prentverk Odds Björnssonar h.f., Akureyri.
Egilsstaiasamþykktir
„FRJÁLS LJÓГ skýrir frá því nýlega, aÖ Sveinn á Egils-
stöðum hafa borið fram á aðalfundi Kaupfélags Héraðsbúa,
sennilega höldnum að Egilsstöðum, þótt þess sé ekki getið,
nefndarályktun um dóm Hæstaréttar í máli bænda vegna
„stofnlánasjóðsskattsins“, en þar með er átt við samþykkt
Alþingis á eflingu landbúnaðarsjóða, með 1% skatti á fram
leiðslu bænda og %% skatti af kaupum neytenda, sem þeir
liafa aldrei gert að blaðamáli.
Allir, sem með málum fylgjast á opinberum vettvangi,
vita, að við tilkomu núverandi ríkisstjórnar voru sjóðir þeir,
er styrkja áttu landbúnaðinn að þrotum komnir. Alþingi tók
þá þann kost, að leggja nokkra kvöð á framleiðendur land-
búnaðarafurða og þó jafnframt neytendur Jieirra til að efla
þessa sjóði, og brugðust þá Framsóknarmenn reiðir við,
enda höfðu þeir áður haft forgöngu um að skattleggja bænd
ur til að koma upp 130 millj. kr. gistihúsi í Reykjavík fyrir
erlenda ferðamenn, með hárgreiðslu- og rakarastofum, 3—4
vínbörum m.m. og hafa engar Egilsstaðasamjaykktir sézt þar
um. Þess mun enginn minnast, að neytendur landbúnaðar-
vara liaf i kvartað undan sínu álagi, í sambandi við stofnlána
sjóðinn og virðist Jró eftir eðli málsins eðlilegt, að uppsteit
liefði komið frá Jreim og þeir farið í mál út af skattinum
fremur en Hermóður í Árnesi.
Hvort Jrað heyrir undir sambandskaupfélögin í landinu að
gera slíkar ályktanir, sem Sveinn bóndi á F.gilsstöðum hefur
fengið samþykkta 8. júní, skal ekkert fullyrt um. Kannske
er Kaupfélag Héraðsbúa aðeins framleiðendafyrirtæki og
neytendur, sem greiða sín framlög í stofnlánasjóð landbún-
aðarins nokkurnveginn til jafns við þá, hafi jrar engan full-
trúa eða atkvæðisrétt. Það vitum við ekkert um. En Jressi
nýútsprungna „Egilsstaðasamþykkt“ gefur í skyn, eða segir
öllu heldur, að Hæstiréttur þjóðarinnar noti „hneykslanleg
sýndarriik til að komast fram hjá ákvæðum stjórnarskrárinn
ar um friðhelgi eignarréttarins . . .“ og „fundurinn telur al-
varlega liorfa með réttarfarið í J)jóðfélaginu, ef trúnaðurinn
við stjórnarskrána er ekki haldinn".
Víst hefur það áður komið fyrir, að ráðizt hafi verið á
Hæstarétt fyrir dóma hans, einkum á velmektarárum Fram-
sóknarmanna í ríkisstjórn, en slíkar aðfarir að dóminum
hafa aldrei fengið hljómgrunn, enda hafa til hans valizt
menn, sem dæma eftir undangengnum málflutningi með
lifiðsjón af íslenzkri löggjöf og Stjórnarskrá íslands, sem
Sveinn á Egilsstöðum fær fulltrúa á einum kaupfélagsfundi
til að samþykkja, að „trúnaðurinn við“ hafi ekki verið
haldinn.
En þetta er svo sem ekki eina „Egilsstaðasamþykktin“. Á
dögum klíkustjórnar Framsóknar á blómaskeiði hennar fyrir
hálfum mannsaldri eða meir, var kallaður saman fundur á
Egilsstöðum, Jrar sem samjiykkt var, að ríkissjóður væri skuld
laus! Og enn í vor koma verkalýðsfélög neðan af Fjörðum
á fund að Egilsstöðum og mótmæla samþykkt um kaup og
kjör, sem öll verkalýðsfélög á Norðurlandi höfðu gert með
samþykki velflestra verkalýðsfélaga á Austurlandi. Og svo
hafa þrjú verkalýðsfélög fyrir austan tekið upp stefnu héraðs
höfðingjans, Sveins á Egilsstöðum, og auglýst sjálf sinn kaup
taxta, sem gildir Jrað eitt, að síldarskipin sigla framhjá Jress-
um stöðum, þar sem vinuveitendur yfirleitt munu ekki fall-
ast á, að verkalýðsfélögin auglýsi sjálf einhverja taxta, eftir
að búið er að eyða vinnu og tíma fjölda manna í að ná samn-
ingum um kaup og kjör.
V'era má, að miklu fleiri „F.gilsstaðasamþykktir" séu til,
en hér verða ekki fleiri taldar. Við eigum góðar minning-
ar um ÁSHILDARMÝRARSAMÞYKKT“ frá eldri tímum,
en hinum erum við þegar búnir að fá nóg af.
MÉR HEFUR borizt brcf um
knattspyrniileik blaðamatina
og leikara 17. júní, sem höt. telur
lþróttasíðuna hafa neitað scr ttm
birtingu á vegna Jjrengsla, og sé
ég ekki ástæðu til að neita mann-
inum unr að fá inni í Jjessum
pistlum mínum. Og kemur hér
bréfið:
„EINN af helztu íþróttaviðburð-
um á þjóðhátíðardaginn var
knattspyrnukeppni blaðamanna
og leikara, setn fram fór á íþrótta-
leikvanginum í hagstæðu veðri.
Dómarinn, Níels Halldórsson.
hafði gleymt klukkunni heima,
svo að ekki er fullvíst, hve lengi
leikurinn stóð, en seinni hálfleik-
ur var nokkuð lengri en hinri
fvrri, en það gerði ekkert til, þar
sem heita mátti blæjalogn. Dt'ttn-
arinn sýndi talsverða röggsemi og
vann sér í jressum leik óviður-
kennd réttindi til aljjjóðadóm-
aratignar og að verða heiðursfé-
lagi í hinu gamla og gróna knatt-
spyrnudómaralélagi bæjarins. I
fyrri hálfleik gerðist fátt sögulegt.
Marktækifæri voru hverfandi lá
og nýttust ekki sem skyldi. Leik-
urinn l'remur þófkenndur, og var
eins og leikmenn væru eitthvað
að jjrcifa fyrir sér, sem Jjó mis-
tókst með öllu.
í síðari hálfleiknum (jr. e. jjeim
lengri) færðist nokkuð fjör í
mannskapinn. Var ntjög hörð hríð
halin að marki leikara, svo að
Eggert markvörður varð að standa
upp, en hann hafði setið lengst af
fyrri hálfleik. A 2. mínútu hófu
sóknarmenn blaðanna harða lotu,
með frábærri sendingu Árna
Hjarnarsonar yfir til Þorsteins
Jónatanssonar, sem átti að leika
á vinstri kanti (en leitaði of mik-
ið til hægri), og jjaðan gekk knött-
urinn milli Jreirra með innígrip-
um Blöndals, Vilhjálms og Sverris
Pálssonar allt upp undir mark-
teig, scm cnclaði með hiirkuskoti
Guttorms Bergs, sem var fjarver-
andi, en Bragi Hjartarson tók að
sér hlutverkið og var einn bezti
maður vallarins, en jró er ég ekki
alveg viss um, hver markið skor-
aði, en það var áreiðanlega ein-
hver úr sóknarliðinu. Þá liafði
góð samvinna Tírnans og Vísis
(Ingólfur og Sigurbjörn) sín áhrif,
og munu báðir hafa verið rétt
staðsettir.
Vörn blaðamanna var lika vel
upp byggð. Eftir „gróf mistök"
Munkanna á Möðruvöllum hrökk
boltinn út af, og dæmcli dómar-
inn tvær samfelldar vítaspyrnur á
mark blaðamanna. I>ar komu í
Ijós hin teknisku grip markvarð-
arins, Jakobs Ó., jrví hann varði
báðar af mikilli fimi. Fór fyrra
skotið 6 mctra ylir slá (sem mark-
vörður nær ekki upp í), en hitt í
stöng, og var Jrar að verki Oddur
ráðhúsbyggingameistari. — Hefði
hann skotið 5 tommum meir til
hægri varð úr J>ví óverjandi mark.
Aftasta vörnin í blaðamannalið-
inu var sívinnandi, þeir Jón Samú-
elsson, Gísli Jónsson og Jón OI
sen og áttu erfiðan dag.
1 liði leikaranna voru ]>eir
Kristján Kristjánsson og Jón
Ingimarsson langsamlega ágeng-
astir auk Oclds, sem áður er getið.
Að öðru leyti var erfitt að gera
upp á milli leikmanna, en J>að
var ósköp gaman að sjá Kjartan
og Jóhann í bakvörninni, j>essar
gömlu knattspyrnustjörnur, sem
settu allt á annan endann í gamla
daga á knattspyrnuvellinum. Mér
bíður í grun, að með 5 framan-
nefndum leikurum og 6—7 beztu
mönnum blaðamanna, megi koma
upp liði, sem íslandsmeisturum
vorum kvnni að stafa ógn af.
Tvö mörk voru gerð í leiknum
(ajjk eins ógilds vegna „rang-
stöðu"), og skipti dómarinn j>eim
á milli liðanna, svo að ]>au gætu
skilið.jöfn og færu ekki að rífast.
Áhorfendum ber að J>akka, að
S»1hKA8«öT
JÓttS‘G*0 F,NMI
• LEIKUR ARSINS
• NÝR ALÞJÓÐADÓMARI
f KNATTSPYRNU
• SAMRÆMING EINKUNN-
ARSTIGA f SKÓLUM.
]>eir kiilluðu engin ókvæðisorð að
liðinu, enda flestir farnir inn á
Ráðhústorg, er leikurinn hófst
eftir dúk og disk. Sem betur fer,
urðu ekki alvarlegar meiðingar á
liðsmönnum, enda hafði fyrirhug-
aður læknir, Guðmundur Knut-
sen, allt öðrum hniippum að
hneppa, annað hvort við hinn
„dýragarðinn", er starfaði sunnan
við í[>róttasvæðið, eða kannske
fjarverandi úr bænum. Leikmenn
voru mjög samhuga í því að reka
lappirnar frenuir í boltann en
leggina eða fésið liver á öðrum,
og mættu sumir ]>jálfaðri knalt-
spyrnumenn nokkuð af j>ví læra.
Þess má gela, að blaðamenn urðú
að grípa til varamanna, en leik-
arar ekki — þvi miður.
Leikurinn mun ekki verða end-
urtekinn, J>ótt Iiðin skilcht „jöfn“.
Sjáandi.
(Birt án ábyrgðar.)
EG LAS nýlega í sunnanblaði,
að hæsta einkunn á stúdents-
prófi frá Verzlunarskóla Islands
hefði verið 7.57, fyrsta ágætiseink-
unn, en í flestum iiðrum skólum
er 9.00 fyrsta ágætiseinkunn.
Hvers vegna er einn og einn
skóli að hanga í gamla Örsteds-
kerfinu, j>egar flestir hafa tekið
upp nýju stigagjiifina með 10 að
hámarki? Ég tel sjálfsagt, að liig-
gjafinn grípi hér inn í og sam-
ræmi einkunnastiga allra skóla í
landinu, engu síður cn skatt- og
útsvarsstiga.
LEIÐRÉTTING:
í SÍÐASTA tbl. íslendings, þar
sem sagt var frá því, að Ragnar
Steinbergsson hefði hlotið rétt-
indi til að flytja mál fyrir Hæsta
rétti, slæddust inn tvær villur,
sem hér leiðréttast.
Ragnar Steinbergsson lauk
stúdentsprófi frá M.A. 1947 og
innritaðist þá um haustið í laga
deild Háskólans. Hann lauk lög
fræðiprófi 25. jan. 1952. Rétt-
indi sem héraðsdómslögmaður
hlaut hann í marz 1954, en 1958
hlaut hann réttindi til að vera
sækjandi í opinberum málum í
héraði.
Ragnar er kvæntur Sigur-
laugu Ingólfsdóttur Guðmunds-
sonar Seyðfjörð og eiga þau
þrjár dætur.
Tillap um markaðsleitarsjóð
ÁNÆGJULEGT er að sjá síld-
arskipin sigla drekkhlaðin að
landi, og mikil björg er svo
færð í bú þjóðarinnar. Hitt er
umhugsunarefni, hversu hið
dýrmæta hráefni er lítt unnið,
__áður en J>að er selt til útlanda.
Má þó vera, að ekki sé svo
saknæmt, meðan veiðin er yfr-
in.
Hugsum okkur hins vegar, að
síldveiðin sé sáralítil. Þá er þeim
mun brýnna að gera það litla,
sem veiðist, að sem verðmestri
útflutningsvöru, og kemur þar
til svokölluð niðurlagning síld
ar og niðursuða. Fyrirtæki þau
sem þessu sinna, eiga nú við
mikla örðugleika að etja, vegna
þess hve markaður er ótraust-
ur erlendis og sala stopul. Þá
er það heldur andkannalegt að
sjá hér á markaðnum erlendar
sardínur, en það hefur þó sann
fært mig um, að innlenda fram-
leiðslan er meira en samkeppnis
fær um verð og gæði.
En aðalatriðið er þetta: Það
þarf að verja miklu meira fé
til markaðsleitar, auglýsinga og
áróðurs erlendis, því að sam-
keppnin á markaðnum er ákaf
lega hörð og erfitt fyrir nýja
aðila að ryðja sér þar til rúms.
Þetta mikla fjármagn getur nið
ursuðuiðnaðurinn sjálfur auð-
vitað ekki látið í té, nema aS
litlu leyti.
Hér er um að ræða alþjóðar-
hagsmuni, en ekki sízt hags-
muni síldarútvegsins sjálfs. —
Fyrir því er þeirri hugmynd
komið hér á framfæri, hvort
ekki sé rétt og tiltækt, þegar
vel veiðist og skip hefur t.d.
fengið 15 þúsund mál, að bæði
útgerð og áhöfn greiði upp það-
an vissan hluta af tekjum sín-
um, segjum Vz—1% í MARK-
AÐSLEITARSJÓÐ, svo og út-
flytjendur síldarafurða sinn
hluta, og mun svo nú í einhverj
um mæli.
Markaðsleitin þarf að vera sí
felld og sleitulaus. Sérstaka
erindreka þarf að hafa í förum,
kynna vöruna og auglýsa, en
slíkt er mjög dýrt, ef myndar-
lega á að vinna.
Vissulega hefur öll skattlagn
ing sína ókosti, enda ærið af
slíku fyrir, en hér er til svo
mikils að vinna, að ég ætla, að
hugmynd þessi sé ekki með öllu
fráleit, og þess vænti ég, að þeir
sem hér eiga hlut, mundu fúsir
láta lítilræði af hendi rakna í
þessu skyni, þegar af miklu
væri að taka.
Gísli Jónsson.
ÍSLENDINGUl