Íslendingur - 25.11.1965, Qupperneq 1
ISLENDINGUR
ÍJL/U) SJÁLFSTÆDISMA.NNA í NORÐUHLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA
51. ÁRGANGUR . FIMMTUDAGUR 25. NÓV. 1965 . 41. TÖLUHLAÐ
Berklasmit helur ekki
fundizt á þessy ári
Heilsufar með bezta móti í haust í héraðinu
IÐNAÐARBANKINN OPNAR
BLAÐIÐ ATTI íyrir nokkrum dögum stutt viðtal við .Tóhann Þor-
kelsson hóraðsíœkni um heilsufarið í hcraðinu o. fi., og bar þá
fyrst á góma, hverjir kvillar hefðu helzt angrað liéraðsbúa undan-
farna mánuði.
ÚTIBÚ hér í bæ
r
Utibússtjóri er Sigurður Ringsted
SL. LAUGARDAG var opnað hér á Akureyri útibú frá Iðnaðar-
fcankanum, og cr það til húsa í Sjálfstaiðishúsinu á Oddeyri nieð
inngangi frá Glerárgöíu.
Bankastjóri Iðnaðarbankans á Akureyri, Sigurður Ringsteð, á
skrifstofu sinni. Ljósm.: Karl Hjaltason.
Á laugardaginn var opnunar-
jnnar minnzt með kaffidrykkju
í Sjálfstæðishúsinu, og komu
hingað að sunnan aðalbanka-
stjóri Iðnaðarbankans, bankaráð
hans og margir fyrirmenn iðn-
aðarmála, alls um 20 manna hóp
ur. Héðan úr bænum voru í hóf-
inu bæjarstjóri, bæjarráð, bæj-
arfógeti, forustumenn iðnaðar-
samtakanna og stór hópur iðn-
rekenda og iðnaðarmanna bæj-
arins. Enn fremur fréttamenn
og Ijósmyndarar.
Formaður bankaráðs Iðnaðar-
bankans, Sveinn Valfells, ávarp
aði gestina við kaffiborðin og
sagði ágrip af sögu þessarar láns
stofnunar, sem nú hefði stofnað
2. útibú sitt.
Kvað hann Iðnaðarbankann
hafa verið stofnaðan árið 1953
með það markmið í huga að
verða mætti hann lyftistöng fyr-
ir hverskonar iðju og iðnað hvar
sem væri á landinu. Hefði bank
inn að ósk iðnaðarmanna í Hafn
arfirði stofnað þar útibú árið
1964, en á því sama ári hefðu
eindregnar óskir borizt héðan
um annað útibú, og hefði það
þegar verið tekið til velviljaðr-
ar athugunar, einkum þar sem
Akureyri væri um margt for-
ustubær í iðnaði og að tiltölu
við stærð hans lifðu hér fleiri á
iðnaði en ar.nars staðar.
Þá var húsnæðismálið eftir,
en á sl. vori hafði bankanum
borizt tilboð frá Akri h.f. um
að selja Iðnaðarbankanum hluta
af neðstu hæð Sjálfstæðishúss-
ins við Geislagötu til starfsemi
sinnar. Samningar um kaupin
hefðu fljótlega tekizt og þá strax
hafizt handa um innréttingar s
húsnæðinu eftir teikningu Hall-
dórs Hjálmarssonar arkitekts,
en iðnfyrirtæki á Akureyri
hefðu að langmestu leyti annazt
verkið. Þá gat hann þess, að
hlutabréf í bankanum yrðu til
sölu í útibúinu næstu daga. Þá
kvað formaður bankaráðs vel
(Framhald á blaðsíðu 5).
Húsavík 22. nóv.
í FYRRADAG kom til Húsa-
víkur nýr sjúkrabíll, sem er
eign Rauðakrossdeildar Húsa-
víkur. Hefir Bílasmiðjan í Rvík
smíðað yfirbyggingu bílsins og
er hann hinn vandaðasti og mun
vera einn bezt útbúni sjúkra-
bíll, sem nú er í landinu. Hann
er m. a. búinn sterkum ljósköst-
urum til leitar á landi og við
sjó. Á næstunni mun verða sett
í hann talstöð, sem getur haft
samband við stöðvar á landi og
báta á hafi úti. Á að geta farið
allmiklar torfærur.
Hefir Rauðakrossdeildin beitt
sér fyrir fjársöfnun til kaupa á
bílnum bæði hjá einstaklingum
og fyrirtækjum. Hafa margir
— Miðað við árstíma, októ-
ber og nóvember, segir héraðs-
læknir, — hefur heilsufar í hér-
aðinu verið tiltölulega gott. Bor
ið hefur lítilsháttar á kvefi og
hálsbólgu, en engar farsóttir
gengið. Vart hefur að vísu orð-
ið við einstök tilfelli af skarlats-
sótt, en enginn kíghósti heíur
gert vart við sig í bænum, þótt
um það hafi komið orðrómur.
BERKLAR ÚR SÖGUNNI
— En hvað getið þér frætt
okkur um ógnvaldinn gamla, —
berklaveikina?
— Hér er nú, sem betur fer,
sjaldan á þánn sjúkdóm minnzt,
enda heyrir hann fortíðinni til. j
Þegar ég kom fyrst hingað mátti
heita, að á hverjum einasta bæ
í heilum hreppi í héraðinu væru
berklasjúklingar, einn eða fleiri.
brugðizt vel við, m. a. hafa slysa
varnadeildirnar á Húsavík stutt
þetta mál drengilega. En bíll-
inn mun ekki aðeins notaður í
Húsavík, heldur og Þingeyjar-
sýslum báðum.
Væntir Rauðakrossdeildin
þess, að héraðið allt muni veita
þessu mikla öryggismáli lið, en
enn skortir nokkuð á, að nægi-
legt fé sé fyrir hendi til að
greiða bifreiðina.
Umsjónarmaður bifreiðarinn-
ar hefir verið ráðinn Jónas Egils
son.
Stjórn Rauðakrossdeildar
Húsavíkur skipa:. Sigurjón Jó-
hannesson formaður, Daníel
Daníelsson ritari og Gunnar
Karlsson gjaldkeri. Joðge.
Nú fyrirfinnast þeir þar ekki
lengur.
— Og eru horfnir úr sögunni?
— Svo má segja. Berklasmit
er nú orðið sjaldgæft fyrirbæri,
og hefur ekkert korriið upp í hér
aðinu á þessu ári, og enda þótt
þau l'.afi komið fyrir, er sjúk-
dómurinn vel viðráðanlegur,
þegar hans Verður vart í tæka
tíð. Venjulega verða berklasmit
aðir menn alheilir á 4—6 mán-
(Framhald á blaðsíðu 2).
SL. FÖSTUDAG lézt í Landa-
kotsspítala sr. Bjarni Jónsson
vígslubiskup eftir stutta sjúk-
dómslegu 84 ára að aldri. Sr.
Bjarni var einn af þekktustu og
virtustu kennimönnum landsins
um marga undanfarna áratugi,
hóf starf sitt sem skólastjóri á
ísafirði, en var kjörinn prestur
við dómkirkjuna í Reykjavík ár
ið 1910, var þar aðalprestur árin
1924—51, er hann lét af starfi
(Framhald á blaðsíðu 5).
Nýfízku sjúkrabíil til Húsavíkur
Ljósm.: Níels Hansson.
Frá opnunar-hófi Iðnaðarbankans í Sjálfstæðishúsinu. Forniaður bankaráðs, Svéinn Valfells (fyrir miðju) flylur ávarp.