Íslendingur


Íslendingur - 25.11.1965, Blaðsíða 5

Íslendingur - 25.11.1965, Blaðsíða 5
Jóliann Egilsson bankagjaldkcri í gjaldkerastúku Iðnaðarbankans á Akureyri. Ljósm.: jíarl Hjaltason. - íðnáðarbankiiin Nýr bókaflokkur á vegum Almenna bókafél. (Framhald af blaðsíðu 1.) hafa tekizt til með ráðningu starfsfólks að útibúinu, en þar yrðu fyrst um sinn þrír starfs- menn, Sigurður Ringsted útibús stjóri, áður um 20 ára skeið starfsmaður Landsbankaútibús- ins á Akureyri og síðustu árin aðalgjaldkeri, Jóhann Egilsson póstfulltrúi, gjaldkeri útibúsins og Guðrún Sigurðardóttir banka mær. Þá kvaddi Magnús E. Guð- jónsson bæjarstjóri sér hljóðs, bauð gestina að sunnan vel- komna og þakkaði þeim fyrir að hafa komið færandi hendi norður yfir fjöll, og þar sem Akureyri væri tiltölulega mest- ur iðnaðarbær á landinu vonað- ist hann til, að reynslan leiddi í ljós, að stofnun útibúsins hér væri þýðingarmikil og heilla- vænlegt spor fyrir bæjarfélagið. Enn fremur tóku til máls Vig- fús Sigurðsson, forseti Lands- sambands iðnaðarmanna, Gunn- (Framhald af blaðsíðu 1.) fyrir aldurs sakir. Annaðist þó allt fram á síðasta æviár ýmsa prestþjónustu, eigi sízt við út- farir. Sr. Bjarni var prófastur í Kjalarnesþingi árin 1932—38, dómprófastur í Reykjavík 1945 —51 og vígslubiskup í Skálholts stifti frá 1937 pg settur biskup yfir íslandi um stutt skeið. Var prófdómari í guðfræði við Há- skóla íslands í hálfa öld og var kjörinn heiðursborgari Reykja- víkur árið 1961, hinn fyrsti og eini, sem sú virðing hefur hlotn- azt. Kona sr. Bjarna var Áslaug Ágústsdóttir, og lifir hún hann auk þriggja barna þeirra hjóna. Árið 1952 var hann í kjöri við forsetakosningar og hlaut þá 45.5% atkvæða, og sýnir það mikið traust og álit. Sr. Bjarni var ástsæll og virt- ur kennimaður og kirkjuhöfð- ingi, ekki aðeins meðal safnað- ar síns heldur um land allt. Oft JSUEN2JINGUR ar J. Friðriksson form. Iðnrek- endafélags Islands, Sveinbjöm Jónsson iðnrekandi, og af heima mönnum Jón H. Þervaldsson, fyrir hönd Iðnaðarmannafél. Ak ureyrar, og Jóhann Ingimarsson og Albert Sölvason af hálfu iðnrekenda á Akureyri. Þá þakkaði Sigurður Ringsted útibússtjóri traust það, er hon- um hefði verið sýnt með því að ráða hann til þess að veita úti- búinu forstöðu og las upp heilla skeyti frá Jóhanni Hafstein iðn aðarmálaráðherra og Verzlunar- bankanum, en síðar bárust úti- búinu og útibússtjóra fleiri skeyti. Strax við opnun útibúsins á laugardaginn komu þar marg- ir viðskiptavinir, flestir úr hópi iðnrekenda og iðnaðarmanna. Afgreioslutími bankaútibús- ins er kl. 10—12 og 13.30—16.30, en auk þess á föstudögum kl. 17—19. Lokað frá hádegi á laug- ardögum. átti sr. Bjarni þung spor heim til kvenna í sókn sinni, er al- varleg sjóslys höfðu orðið, enda voru alvörustundirnar orðnar margar á 84 æviárum. Þó var hann gæddur ríku skopskyni, og eru hnyttin tilsvör hans og at- hugasemdir víða í minnum haft. Með sr. Bjarna Jónssyni er mikill kennimaður horfinn af sviðinu, sem sjónarsviftir er að. - STORF S. Þ. (Framhald af blaðsíðu 8). lögðu fundarmenn margar fyrir spurnir , fyrir hann, er hann leysti greiðlega úr. Formaður Varðbergs, Hjört- ur Eiríksson, ávarpaði fundinn í upphafi og sleit honum með þökkum fyrir fróðlega frásögn og fræðslu Steindórs Steindórs- sonar. Var fundur þessi allur lær- dómsríkur og félögum Varð- bergs minnisstæður. Á UNDANFÖRNUM árum hef- ur Almenna bókafélagið gefið út bókaflokkinn Lönd og þjóð- ir, þar sem einstök lönd, íbúar þeirra og landshættir, hafa ver- ið kynntir íslenzkum lesendum með aðgengilegum texta og fjölda mynda. Hafa þessar bæk ur verið gefnar út í samvinnu við 12 bókaútgefendur í ýmsum Evrópulöndum, en frumútgef- andi bókanna er Time-Life. Hefur þessi alþjóðlega sam- vinna gert kleift að ráðast í þessa útgáfu á íslenzku, en al- þjcðleg útgáfusamvinna sem þessi færist nú mjög í vöxt, þeg ar um er að ræða vönduð verk eða bókaflokka, sem einstökum útgefendum mundi annars um megn að gefa út í takmörkuðu upplagi. Nú þessa dagana er nýr bóka- flokkur að hefja göngu sína hjá Almenna bókafélaginu, og nefn ist hann ALFRÆÐASAFN AB. Þessar bækur eru gerðar með sama hætti og Landabækurnar, en eru þó stærri og efnismeiri en þær, og farið inn á ný svið og kynntar ýmsar greinar tækni og vísinda. Eru allar þessar bæk ur þannig úr garði gerðar að hinn almenni lesandi geti haft af þeim full not, og það jafnvel þó verið sé að segja frá flókn- ustu og nýjustu uppfinningum nútímans. Þessi nýbreytni, sem hófst með útgáfu Landabókanna, hef ur notið óvenjumikilla vin- sælda, og er nú svo komið, að þrátt fyrir að upplag þeirra hafi verið stórt á mælikvarða ís- lenzkra útgefenda þá eru 6 af þeim 12 bókum um lönd og þjóðir, sem út hafa komið þeg- ar uppseldar og hinar á þrotum. í hinum nýja bókaflokki, AL- FRÆÐASAFNI AB, er fjallað um vísindaleg og tæknileg efni. Fjallar hver bók um afmarkað svið, og einkum þau, þar sem vísindaleg þekking hefur auk- izt hvað mest á undanförnum árum, en að sjálfsögðu er ekki hægt að gera efni af þessu tagi full skil án þess að jafnframt sé gerð grein fyrir tengslum við aðrar fræðigreinar og um þær fjallað. Er með þessum bókum stefnt að því, að gefa lesendum nýja innsýn í þessa þekkingar- heima á tímum þar sem hver ný uppgötvun rekur áðra, og að þeir fái jafnframt tækifæri til að kynnast starfi og lífi vísinda- manna sem vinna að þessum mikilvægu verkefnum. Hefur einmitt á þessum þekkingarsvið um verið skortur á aðgengileg- um ritum á íslenzku, þar sem leikmönnum gæfist kostur á að afla sér grundvallarþekkingar um ýmis atriði, sem fyrir fáum áratugum eða árum, voru al- menningi þýðingarlítil og fjar- læg, en hafa í dag sívaxandi þýðingu fyrir hvert mannsbarn. Er það ætlun AB, að AL- FRÆÐASAFNIÐ bæti hér að nokkru úr miklum skorti fræði bóka og gefi íslenzkum lesend- um tækifæri til að kynnast stór stígum framförum á ýmsum sviðum. Má ætla, að þessar bæk ur séu sérstaklega fengur ungu fólki, sem mun verða að hag- nýta sér þessa auknu þekkingu í sívaxandi mæli í framtíðinni. Er þegar ráðið að gefa út 10 bækur í þessum bókaflokki og verða tvær þær fyrstu á ís- lenzkum bókamarkaði fyrir jól. Eru það bækurnar FRUMAN og MANNSLÍKAMINN. FRUMAN er þýdd af dr. Sturlu Friðrikssyni, jurtaerfða- fræðingi. Gerir hún ýtarlega grein fyrir frumunni, grund- vallareiningu alls lífs á jörðinni. Sagt er frá því, hvernig hún starfar sem sjálfstæð eining, og einnig hvernig hún með öðrum frumum myndar vefi og líffæri og verður hluti af því lífkerfi, sem við nefnum plöntu eða lík- ama. Nákvæm athugun á því, hvernig frumui-nar afla sér nær ingar, hvernig þeim fjölgar og hvernig þær verjast árásum fel- ur í sér hina vísindalegu við- leitni til að lengja lífið og verj- ast sjúkdómum. MANNSLÍKAMINN er þýdd af læknunum Guðjóni Jóhannes syni og Páli V. G. Kolka. I þess- ari bók getur lesandinn kannað furður mannslíkamans. Hann kynnist líffærunum, líffæra- NÝLEGA hefur Bókaforlag Odds Björnssonar sent 4 bækur á markaðinn, en þær eru: Sjúkrahússlæknirinn og Feðg- arnir á Fremra-Núpi, hvort- tveggja skáldsögur eftir Ingi- björgu Sigurðardóttur, sem er einhver frjóasti kvenrithöfund- ur okkar í dag og slagar hátt upp í Guðrúnu frá Lundi. Þá er barnabók eftir Ingi- björgu Jónsdóttur, Jóa Gunna, (ævintýri litlu brúnu bjöllunn- ar) og Adda í kaupavinnu eftir Jennu og Hreiðar Stefánsson, í 2. útgáfu. Um margra ára skeið voru þau barnabókahöfund^r á landinu, og seldust Öddubækurnar eftir hendinni, sem kallað er. Nú hef kerfum, beinagrindinni, skiln- ingarvitunum, efnasamsetning- unni og hvernig þetta allt vinn- ur saman. Lesandinn kynnist einnig lögmálum fjölgunarinn- ar, og erfðanna og svar má finna við því af hverju við erum ung og verðum gömul. Auk þessara tveggja bóka er ákveðin útgáfa á eftirfarandi bókum: KÖNNUN GEIMSINS, M ANN SHU GURINN, VÍS- INDAMAÐURINN, VEÐUR, HREYSTI OG SJÚKDÓMAR, STÆRÐFRÆÐIN, EFNIÐ, FLUGIÐ. Hverri bók fylgir ýtarleg atriðaorðaskrá til að auðvelda uppflettingu á einstökum atrið- um. Ritstjóri hinnar íslenzku út- gáfu Alfræðasafnsins er Jón Ey- þórsson, veðurfræðingur. HÚN ANTÓNÍA MÍN Almenna bókafélagið hefur sent frá sér skáldsöguna Hún Antónía mín og er það septem- berbók félagsins. Hún Antónía mín eftir banda- rísku skáldkonuna Willa Cather kom fyrst út árið 1918 og vakti þá þegar mikla athygli, og var á næstu árum þýdd á fjölmörg tungumál. Á síðari árum hefur hún verið endurútgefin í fjölda landa og öðlast sess meðal klassiskra skáldsagna — en kemur nú út í fyrsta sinni í ís- lenzkri útgáfu. Viðfangsefni Willa Cather í þessari bók er saga landnem- anna í Nebraskaríki í Banda- ríkjunum, barátta þeirra sigrar og sorgir. Skeður sagan laust fyrir síðustu aldamót, einmitt á svipuðum tíma og fjöldi íslend- inga flytzt búferlum vestur um haf. Sögupersónurnar eru inn- flytjendur frá Norðurlöndum og frá Bæheimi í Tékkóslóvakíu. ur BOB gefið út 5 þessara Öddu bóka í 2. útgáfu, og má líklegt telja, að allar Öddubækurnar verði endurprentaðar. HEIMA ER BEZT, nóv. 1965. -t- Aðalgreinin er um Jón Sigurðsson í Yztafelli og ættir hans eftir Karl Kristjáns- son alþm. Af öðru efni má nefna: Fuglaveiðar Mýrdæl- inga, Gulnuð blöð frá Hawai, Hjónin á Hærukollsnesi, Afríka (meginland í fæðingu), Mennta setur í strjálbýlinu (Laugar- vatnsskóli), framhaldssagan stjóragrein er um samstarf þjóð anna og forsíðumynd af Jóni í Yztafelli. - Bjarni Jónsson vígslubiskup látinn | BÆKUR OG RIT | • •'(111111111111 iii ii ii iiiimiiiiiimiiiiin iiiiiiuiiiiii,„,iiiiti«i,»iiiin,ii,,,,„,* FJÓRAR BÆKUR FRÁ BOB hjónin vinsælustu hennar Ingibjargar o. fl. Rit-

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.