Íslendingur - 29.12.1966, Blaðsíða 3
- UR HUNAÞINGI
(Framhald af blaðsíðu 8)
I sumar var lokið við endur-
byggingu Ásbyrgis, félagsheim-
ilis Miðfirðinga, og það tekið í
notkun í nýjum búningi.
Á Laugarbakka hefur nú
einnig verið endurbyggt gróð-
urhús, sem rekið var um
skeið fyrir nokkrum árum.
Verður hafin starfsemi í því
innan skamms. Þá er verið að
undirbúa byggingu heimavistar
skóla á vegum a. m. k. fjögurra
hreppa í V.-Hún.
Á Hvammstanga er unnið að
byggingu tveggja læknisbú-
staða. Annar þeirra er fyrir
héraðslækninn, hinn fyrir hér-
aðsdýralækninn. Félagsheimili
hefur verið í byggingu undan-
farin ár og verður hluti þess
tekinn í notkun nú um ára-
mótin. Þar með verður gamla
Þinghúsinu lokað. Mikill hugur
er í Hvammstangabúum, að
halda áfram við byggingu Fé-
lagsheimilisins, en fyrirhugað
er að í því verði m. a. veitinga-
aðstaða fyrir gesti og gangandi
og jafnvel gistirúm.
Á Blönduósi eru nokkrar stór
byggingaframkvæmdir nýaf-
staðnar. Nú er verið að undir-
búa stækkun Barnaskólans,
byggingu Bókhlöðu og viðbygg
ingu við Héraðsspítalann, einn-
ig endurbyggingu Sláturhúss-
ins. Loks fer nú fram athugun
á viðbyggingu eða nýbyggingu
fyrir Póst- og síma, vegna sjálf-
virka símans.
Unnið er að byggingu heima-
vistarskóla á Reykjum við
Reykjabraut á vegum 6 hreppa
af 8 í Austur-Húnavatnssýslu.
í útgerðarplássinu Skaga-
strönd er minnst um fram-
kvæmdir, enda hefur útgerðin
þar barizt í bökkum um árabil,
vegna aflaleysisins á heima-
miðum. Þar e^- þó bjartara útlit
en um langt skeið áður og eru
vonir manna einkum tengdar
áframhaldandi og auknum síld-
arflutningum og framkvæmd
Norðurlandsáætlunar með end-
urnýjun útgerðartækja í huga.
Til Skagastrandar var nýlega
keyptur bátur frá Dalvík, sem
nú er að búast á rækjuveiðar.
Fyrir róa þaðan einn meðalstór
bátur og tveir litlir bátar.
Bygging Félagsheimilisins er
hálfköruð og hefur vinna við
húsið legið niðri um skeið.
KJALLABINN
stórlega misboðið að Bragi
skyldi talinn ofjarl ellcfu ann
arra samardagt.
Hvað urn það'. „Norðlenzkir
jafnaðarmenn“ liafa súrsað
„sóknina“ í bili. Kannski
drekka þeir af benni pækilinn
um áramótin.
j
Eitt og annað
-K Alþýðubandalagið, flokk
ur eða ekki ílokkur, á um
sárt að binda eins og fyrri dag
inií. Kommúnistar fönguðu
bandalagið með liúð og liári á
dögimum, þ. e. a. s. formlega,
og liafa þeir þar með reitt af
því allar skrautfjaðrir. Það
síðasta í sambandi við þetta
vesalings bandalag er að ann-
að aðal stuðningsblað þess um
árabil hefur svarið sig úr
tengslum við það.
-k Heyrzt hefur að kratar á
Akureyri liggi yfir svaðilfara-
sögum og kynni sér vamir
gegn „mönnunum með hníf-
inn“ í þeim tilgangi, að geta
þrátt fyrir allt spilað við þá
póker, ef í það færi.
Dýr viðskipti
Vetur konungur hefur ekki
verið billegur við fslendinga á
þessum síðustu tímum. Fáir
eru þeir almenningssjóðir,
sem ekki hafa þurft að blæða
fúlgum til snjómoksturs og
annars viðbúnaðar til að halda
við tengslum milli lands-
manna.
Þetta er náttúrlega óum-
flýjanJegt að vissu niarki. En
takmarkið er til, þótt allt of
margir virðist ekki hugsa út
í það á meðan á amstrinu
stendúij. „Það er dýrt að vera
fáíækur“, í þessu tilfelli dýrt
að vera vanbúinn af áhöldum
og skipulagi, eins og reyndin
er um alltof marga aðila.
Hugsum okkur til dæmis, ef
Akureyrarbær ætti öflugan
snjóblásara, til þess að blása
snjóinn af götunum á vöru-
bifreiðapalla. Slíkt tæki mætti
vera óheyrilega dýrt, til þess
að það sparaði ekki mikið fé
við að lireinsa snjó af götun-
um, að ótöldum flýtinum.
Mörg ný og fullkomin tæki
eru til, sem henta myndu
langt um betur við að ryðja
burt snjónum af götum og veg
um, en þau sem nú eru notnð.
Þau tæki þurfa yfirmenn al-
menningssjóða að kynna sér
og íhuga, hvort þeir gætu
ekki notað sjóðina á hagkvæm
ari hátt en nú er gert — í
þessu sambandi.
„Neytandi á Akureyri“ hef-
ur skrifað blaðinu langt bréf.
Fara hér á eftir tveir stuttir
kaflar úr því:
„... með fiskverzlun lijá
KEA. Þvílík þjónusta þekkist
varla í öðrum bæjarfélögum á
landinu. Að minnsta kosti
kann ég ekki liagstæðan sam-
anburð fyrir KEA, eftir
nokltra reynslu af þeim mál-
um í þrem öðrum bæjarfélög-
um.
Það er að vísu rétt, eftir
því sem ég hef sannfrétt, að
erfitt er að fá nýjan fisk yfir
vetrarmánuðina hér á Akur-
eyri. Annars staðar er sá
skortur bættur upp að nokkru
leyti með því að bjóða mis-
munandi unninn frystan fisk.
Hér aðeins með frystum lengj
urn í ómerktum umbúðum, að
undanskilinni verðmerkingu.
Það er eini „standard“fiskur-
inn lijá KEA.“
„Ég vil að lokum taka það
fram, að ég er hlynntur sam-
vinnuhreyfingunni, sem slíkri,
og hef ekkert á móti KEA
búðunum, þegar þær veita þá
þjónustu, sem ég óska eftir
að fá. En það gera þær bara
ekki "'alltaf, ekki í öllum til-
fellum, og þess vegna er ég
óánægður. Dæmi um það eru
mjólkur- og fisksalan, eins og
ég hef rætt um hér á undan.“
Ekki krælir á halanum
„Norðlenzkir jafnaðarmenn
í sókn“ stilltu upp 1/12 af
framboðslista sínum í Norður
landskjördæmi eystra fyrir
hálfuni þriðja mánuði, nokkru
fyrir miðjan október S.L. Við
það tækifæri sagði blaðið Al-
þýðumaðurinn þann 13. októ-
ber: „Ekki er fullfrágengið
hverjir skipi önnur sæti list-
ans, en FRÁ ÞVÍ MUN GENG
1Ð INNAN TfÐAR“. (Lbr.
ísl.).
Auðvitað bjuggust menn
við stórmerkjum í framhaldi
af þessari „sóknar“kviðu,
minnugir lijns „glæsilega“ sig
urs krata á liðnu vori og „far-
sælla“ afleiðinga. Nú lilutu
þeir að skjóta á loft a. m. k.
liálfgerðri halastjörnu.
En nú við áramót má segja
um þctta, eins og sagt var
forðuin um ámóta tilburði:
„Fjöllin tóku jóðsótt — og
fæddist lítil mús.“ Það er orð
ið deginum ljósara, að stjömu
skotið hefur mistekizt, eins og
sum geimskot í austri og
vestri.
Það varð að vísu strax ljóst,
að eitthvað var bogið við
„generalprufuna“ í október.
Enginn af broddkrötum í kjör
dæminu féll í stafi, nema sá
uppstillti, og þótti flestum sér
ríSfandard”fiskurinn
hjá KEA
vocunvmnu
IMBISIBSIR iBEU HIRPB
Kannski finnst einliverjum það djörf
fullyrðing, en staðreyndin er sú,
að öllum ágóða af happdrættinu er varið
til að hjálpa sjúkum og bágstöddum
á braut til betra lífs.
Þegar þér kaupið miða í happdrætti
SÍBS hjálpið þér öðrum, en um leið
eigið þér ætíð von um góða vinninga —
vinninga, sem geta gjörbreytt lífi yðar.
Vinningaskráin í ár er óvenju glæsileg:
1 vinningur á 1.000.000,00 kr.
1 -
1 -
10 vinningar -
13 -
478 —
1000 -
14776 -
500.000,00
200.000,00
250.000,00
100.000,00
10.000,00
5.000,00
1.500,00
1.000.000,00
500.000,00
200.000,00
2.500.000,00
1.300.000,00
4.780.000,00
5.000.000,00
22.164.000,00
16280 - - kr. 37.444.000,00
GREIÐIIin KR.37.444.Q00.00
XI116200 UinmnGSHRFR
rM.
m'
W-
HUERJIR UERÐfl ÞEIR HEPPHU
mm
IRR? (aðeins þeir sem eiga miða.)
3 ISLENDINGUE