Íslendingur - 29.12.1966, Page 8
BJARNI JONSSON úrsmiður
4 KULM
JÓN BJARNASON úrsmiður
ÍSLENDINGUR
BLAl) SJÁLFSTÆÐISMANNA í NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA
52. ÁRG. FIMMTUDAGUR 2Í). DESEMBER 1966 50. TBL
FRAMKOLLUN
KOPIERING
PEDROMYNDIR Akureyri
Á ÞRIÐJUDAGINN hafði
blaðið samband við nokkra
Húnvetninga heima og
lieiman, til J»ess að afla
frétta úr Húnaþingi nú í
árslokin. Upplýsingarnar,
sem blaðið fékk, fara hér á
eftir samandregnar.
Árferði hefur verið gott til
landsins almennt fram að þessu,
en að undanförnu hafa þó verið
miklir umhleypingar, svo að
sums staðar er að verða mjög
hart á jörð og erfið hrossabeit.
Til sjávar hefur aftur á móti
verið eindæma stirð tíð, og í
einu verstöðinni, Skagaströnd,
hafa bátar mátt liggja við lang-
tímum saman það sem af er
þessum vetri. Afli hefur verið
með betra móti, þá sjaldan að
gefið hefur að nokkru gagni.
Síðustu dagana hefur snjóað
Frá Blönduósi.
IHÚNAWNGIHEFUR ÁRAÐ VEL TIL LANDSINS
- unnið er að nokkrum meirihátlar framkvæmdum, mikiil áhugi ríkir á framgangi Norðurlandsáætlunarinnar
töluvert og á þriðjudaginn var
stórhríð. Snjóalög eru ekki
mjög veruleg, en svell og harð-
fenni mikið, vegna umhleyp-
inganna. Á vegum hafa víða
því sums staðar fljótt, þegar
skefur.
Unnið et- að ýmsum fram-
kvæmdum í Húnavatnssýslun-
um báðum, smáum og stórum.
þeirra meiriháttar fram-
kvæmda, sem staðið hafa yfir
eða eru á prjónunum.
í haust var tekin í notkun ný
heimavist í Reykjaskóla í Hrúta
upp byggðasafni þar á staðn-
um fyrir Húnavatnssýslumar
báðar og Strandasýslu. Því
verki er að Ijúka og verður safn
ið væntanlega opnað næsta vor.
myndazt traðir og teppast þeir Verður hér getið nokkurra firði. Unnið er að því að koma (Framhald á blaðsíðu 3)
Snjóbíll
Mývefninga
KÞ Vogum 29. 12. 66
ÞAÐ ER að verða alófært hér
um slóðir, enda hefur snjóað
mikið. Veður hefur þó ekki ver
ið vont síðan á jóladag, stillt og
frostlítið, en svo að segja stöðug
snjókoma.
Póstur kemur vanalega með
mjólkurbíl frá Húsavík, en nú
er orðið ófært fyrir hann.
Hér er til snjóbíll, sem er í
ólagi þessa stundina, en verður
vonandi komið í gang, þar sem
ekki er sjáanlegt annað en hann
verði eina tækið sem komizt
getur um, ef áfram snjóar.
Annars tel ég, að unnt væri
að halda einhverri umferð, ef
snjór á vegum væri troðinn með
jarðýtum. Mokstur er tilgangs-
laus á meðan ekki styttir upp.
Nokkuð er hér af fólki, sem
kom heim um jólin, en þarf að
komast burt aftur nú eftir há-
tíðir. Er það vandamál eins og
er. Getur verið að flugvöllur-
inn verði ruddur í því sam-
bandi.
SVEIIHALLÐÓRS HELGASONAR
í FORYSTU EFTIR 4 UMFERDIR
NÚ HAFA verið spilaðar fjórar
umferðir í sveitakeppni Bridge
félags Akureyrar. Sveit Hall-
dórs Helgasonar heldur foryst-
imni með 21 stig, en næstar
koma sveitir Knúts Otterstedt
mflð 18 stig og Soffíu Guð-
mundsdóttur með 17 stig.
Úrslit í 4. umferð urðu þessi:
Sveit Halldórs Helgasonar vann
sveit Óla Þorbergssonar 6:0,
sveit Mikaels Jónssonar vann
sveit Baldvins Ólafssonar 6:0,
sveit Knúts Otterstedt vann
sveit Óðins Árnasonar 6:0, og
sveit Soffíu Guðmundsdóttur
vann sveit Stefáns Gunnlaugs-
sonar 6:0.
•
Ekki var spilað í 1. flokki,
þar sem nokkrir þátttakenda
voru fjarverandi úr bænum.
Næst: verður spilað í sveita-
keppninni þann 10. janúar n. k.
YMIST OF EÐA VAN
Lifa menn ýmist of eða van.
Of feitir margir gerast.
Oflæti getur ofhraðan
akstur skapað og vitlausan.
Of margar fréttir oss um það berast.
Vanþróuð lönd eru víða enn,
vanræktar konur — og fleira,
vanþroska börn og vangefnir menn,
viljið þið meira heyra?
Vanefndir koma víða í ljós
á víxlagreiðslum hjá fleiri en einum,
vansvefta menn og vanhyggð fjós
og vanafesta í mörgum greinum.
Vanborguð laun og vanhaldin tryggð,
vansetnar margar jarðir,
vanpúkkuð gata í Vanabyggð,
vannærðar meralijarðir.
Vansköpuð er okkar velln'ka þjóð.
Vanhugsað þetta dæglirljóð.
P.S.: (Vangáður spyr ég vansæla menn;
er vanfenginn bæjarstjóri enn?).
Peli.
Sami.
Jólapósturinn í Oxarfjörð
barst ekki fyrr en í gær
S Sandfellshaga 29. 12. 66
HÉR ER orðið samgöngulaust
að kalla, vegna snjóa. Veðurfar
hefur verið hvikult og erfitt.
í gær kom snjóbíll frá Kópa-
skeri, sem flytur okkur póst nú
í ófærðinni. Að þessu sinni
kom með honum meu.-ið af jóla
póstinum.
Búskapurinn gengur vel,
enda þótt jarðlaust sé ''g fé á
húsi.
Á þessum árstíma hafa venju
lega verið einhverjar skemmt-
anir, einkum hjónaböll, en
ólíklegt er að af þeim verði að
þessu sinni, nema veðurfar
breytist að ráði.
RÓLEGT UM JÚLIN Á AKUREYRI
- nema hvað nær 40 bílar skemmdust í árekstrum
RÓLEGT var um jólin á Akur-
eyri, samkvæmt upplýsingum
Gísla Ólafssonar yfirlögreglu-
þjóns. Þó urðu allt að 20 bíla-
.árekstrar frá því á Þor'áks-
messu og þar til í gær. Þ?r af
urðu tveir harðir árekstrar,
annar í Brekkugötu, . hinn
skammt innan við Gróðrarstöð-
ina, og slasaðist fólk lítilsháttar
í þeim báðum.
Þessir árekstrar hafa flestir
orðið vegna slæmra aksturs-
(Framhald á blaðsiðu 7)
RÁTAUF ATÍIVIV f IIlili'V Hálíðisdagana liggur bátaflotinn í liöfn, en leggur sennilega á
11 1 ’ miðin strax eftir áratnót. í Akureyrarhöfn liggja bátar frá Akur-
eyri, Dalvík og Ólafsfirði, — og kannski víðar áð. Myndin er af nokkrum bátanna.