Íslendingur - 31.10.1974, Blaðsíða 1
Mynd þessi sýnir nokkuð af þeim skemmdum, sem urðu á kirkjunni þegar. hún fauk af
grunni sínum fyrir tæpum tveimur árum síðan.
Möðruvallakirkja
- EIMIM UTAIM VIÐ GRUIMIM SIIMIM
Hvað verður um Möðruvallakirkju í Eyjafirði? Kirkjan, sem var smíðuð árið 1848, fauk af
grunni sínum fyrir tæpum tveimur árum síðan og fluttist til um 3 metra. Við raskið skckktist
neðri hluti kirkjunnar og einn veggur hennar rifnaði að hluta frá. Gólfið gekk víða upp,
altari skemmdist mikið og festing ræðustólsins raskaðist. Tjónið var metið á 1.2 milljónir kr.
— Strax eftir skaðann skoðaði þjóðminjavörður kirkjuna og mælti eindregið með því að við-
gerð færi fram á henni og bauðst jafnvel til að taka kirkjuna inn á fornleifaskrá. Það felur í
sér, að Þjóðminjasafnið tæki kirkjuna að sér og sæi um viðgerð og viðhald hennar. En þrátt
fyrir þetta stendur kirkjan enn utan við grunn sinn, óviðgerð.
skömmu og innti hann eftir
ástæðunni fyrir seinagangi máls
Möðruvallakirkja í Eyjafirði
er bændakirkja og er í eign Mar
teins bónda Jónssonar á Möðru-
völlum og systkina hans. íslend-
ingur hafði tal af Marteini fyrir
Efni í
blaðinu
í dag:
Þau æfa eftir norsku
landsliðskerfi
Grein eftir Bjartmar
Guðmundsson
Hvað er um að vera
í Ólafsfirði?
Fastir miðsíðuþættir
o. fl.
ins. Marteinn sagði að forsagan
væri í raun og veru sú að löngu
áður en kirkjan á Möðruvöllum
fank hefði verið farið að tala
um það í Saurbæjarhreppi að
byggja sameiginlega kirkju fyr-
ir þá 3 söfnuði, sem eru í hreppn
um, þ. e. a. s. Hólssöfnuð, Saur-
bæjarsöfnuð og Möðruvallasöfn
uð. En meiri hluti í tveimur
sóknum er hlynntur hyggingu
nýrrar kirkju, þar sem þeir telja
gömlu kirkjurnar ekki nægilega
stórar. Hefur þurft að leita til
Grundarkirkju, t. d. við ferm-
— Þegar Möðruvallakirkja
fauk þótti ýmsum alveg tilvalið
að reisa nýju kirkjuna á staðn-
um. Það var svo í janúar að
Þjóðminjavörður, Þór Magnús-
son, kom hingað norður og liéit
fund með heimamönnum og
hauðst til að sjá um viðgerð á
kirkjunni. Og ég tel að hug-
mynd hans hafi verið sú að hér
yrði messað áfram, sagði Mar-
teinn. — Ut af þessu boði spunn
ust deilur milli þeirra sem vildu
fá nýja kirkju á Möðruvöllum
og þeirra sem vildu láta gera við
gömlu kirkjuna. — Hálfu ári
seinna lningdi ég í þjóðminja-
vörð og tilkynnti honum fyrir
hönd sóknarnefndar Möðruvalla
sóknar að við óskuðum eftir að
taka boði hans um aðstoð við
lagfæringu. Þjóðminjavörður
sagði að of áliðið væri sumars
til þess að hægt væri að hefiast
handa á því ári, en lofaði að
láta heyra frá sér fljótlega. Síð-
an höfum við ekki heyrt naitt
frá honum, en ég hef heyrt utan
að mér að hann teldi sig ekki
hafa fengið fullnægjandi svar
frá okkur. Persónulega er ég því
hlynntur að gert verði við kirkj-
una og tel að viðgerðin eigi eWc
erl skylt við byggingu nýrrar
kirkju. Verði ákveðið að reisa
nýju kirkjuna á Möðruvöllum
mætti flytja þá gömlu á heppi-
legan stað, en verði nýju kirkj-
unni valinn annar staður vil ég
að gamla kirkjan standi hér
Ö
áfram,
í framhaldi af þessu samtali
hafði Islendingur samband við
Framhald á bls. 6.
Hitaveita á Akureyri:
Hveravellir heppi-
legir til virkjunar
Bcruiuim á jarðhitasvæði Suður-Þingeyjarsýslu með tilliti til
h taveitu á Akureyri er lokið og í nýútkominni skýrslu frá
Orkusícfnun segir, að ýmislegt bendi til þess að Hveravellir
céu heppiíegasti staðurinn til hitaveitu fyrir Akureyri. Á Hvera-
völlum fannst gnægð af góðu vatni, sem ætti að nægja bæði
fyr r Húsavík og Akureyri. Þörf Akureyrar er sexföld á við
þörf Húsavíkur.
í skýrslunni, sem samin er af
jarðhitadeild Orkustofnunar,
segir að á Hveravöllum sé sjálf-
rennsli úr hveruln 52 sekúndu-
lítrar af 100 gráðu heitu vatni,
en úr 480 metra djúpri holu,
sem þar var boruð í haust,
fékkst viðbót, sem nam 42 sek-
úndulítrum án þess að vart yrði
minnkunar í rennsli hveranna.
Hiti í holunni hefur mælst tæp
126 stig. Þá segir ennfremur að
næstum öruggt sé að þarna megi
fá vatnsmagn, sem nægja mundi
til hitaveitu fyrir Akureyri, jafn
framt Húsavík og byggð á staðn
um, en gera þarf ráð fyrir að
bora þurfi 1000—2000 metra
djúpar vinnsluholur.
I viðtali við Karl Ragnars,
annan af tveimur höfundum
skýrslunnar kom fram að þrír
staðir koma til greina til hita-
veitu fyrir Akureyri. Það eru
Laugar í Reykjadal, Hveravellir
og loks er mögulegt að nota af-
fallsvatn Kröflu.
— Að óathuguðu máli virð-
ast Hveravellir henta hest, en
þar er vitað að nóg fæst af góðu
vatni. En áður en að hægt verð-
ur að velja endanlega milli þess-
ara staða þarf að gera verk-
fræðilega úttekt á legu staðanna
borið saman við hvern annan,
sagði Karl. — Það þarf að meta
livað leiðslurnar verða langar
og dýrar og eins þarf að kanna
hve hátt staðirnir standa í lands-
laginu. Eftir því sem staðurinn
er lægri í landslaginu, því meiri
verður dælingin að vera.
Síðan sagði Karl að úttekt
þessi ætti að geta verið afstaðin
um jól og teljist hitaveitan hag-
kvæm væri ekkert því til fyrir-
stöðu að hefja borun í vor.
Bæjarstjórn Akureyrar hefur
falið sérstakri hitaveitunefnd
undirbúningsframkvæmd máls-
ins frá bæjarins hálfu. Formað-
ur hitaveitunefndar er Ingólfur
Árnason. f viðtali við hann
kom fram að ríkið á hugsanlegt
hitaveitusvæði við Kröflu, og
verður því auðvelt að fá leyfi til
framkvæmda á þeim stað, þ. e.
a. s. verði ákveðið að staðsetja
hitaveituna þar. Hins vegar eru
það ábúendur í nágrenni Lauga,
sem eiga umrætt svæði í Reykja
dal og Hveravellir eru einnig í
eigu ábúenda i nágrenni þeirra
og Garðræktarfélags Reykhverf-
inga. Umræður eru þegar hafn-
ar við þessa aðila þar sem rétt
þykir að kanna afstöðu þeirra
á þessu stigi málsins. Ingólfur
sagði að umræðurnar hefðu far-
ið vinsamlega fram og allt benti
til þess að samningar tækjust.
Er þá ekkert því til fyrirstöðu
að hefja boranir í vor eða næsta
sumar.
Að lokum sagði formaður
hitaveitunefndar, að verði hita-
veitunni ákveðinn staður á
HveravöIIum mun vatnsleiðslan
liggja yfir Aðaldal og í gegnum
Gönguskarð milli Köldukinnar
og Fnjóskadals og síðan gegn-
um Víkurskarð milli Fnjóska-
dals og Eyjafjarðar. Síðan Verð-
ur leiðslan lögð inn Svalbarðs-
strönd og til Akureyrar. Er
hugsanlegt að taka út úr leiðsl-
unni vatn á leiðinni, þannig að
byggðin austan Eyjafjarðar
njóti einnig góðs af hitaveit-
unni.
Símnotendur — kastið aukaskránni
i
i
x
x
X
x
X
X
Iílukkan átta á mánudags-
morguninn verða 1000 ný
símanúmcr tengd inn á
sjálfvirku símstöðina og
geta þá Akureyringar loks-
ins kastað litlu sérsíma-
skránni með gömlu númer-
unum. Stækkun sjálfvirku
símstöðvarinnar er lokið
og hefur verkið tekið rúmt
ár. I viðtali við Maríus
Hclgason umdæmisstjóra
Landssímans kom fram, að
allmiklar tafir hafa orðið á
verkinu, m. a. vegna efnis-
skorts. Upphaflega var
gert ráð fyrir að verkinu
yrði lokið um mánaðamótin
júlí-ágúst.
koma í þeirra stað tölustaf-
irnir 23. Þannig verður síma
númerið 11500 t. d. 23500,
og 12499 verður 23499.
fyrir sveitabæina í
an
Gömlu númerin sem nú
verða lögð niður byrjuðu
öll á tölustöfunum 11 eða 12,
en frá og með mánudeginum
»:♦ »:»*:**:**:**:**v*:* *:**:—:—:* •** **• *.* *.* •♦**.* •♦♦*** *.**:♦*•*♦:* ♦:* •♦•*.**♦**♦—:*^**:**.**
Li»-Í
ná- Y
grenninu breytist úr 12100 í *»*
23100. — Frá og með mánu- *»*
deginum verða aðeins 500 ?
númer eftir á Akureyri, sem |
byrja á 1 og er ætlunin að
þau hverfi einnig í framtíð-
inni.