Íslendingur - 31.10.1974, Side 5
Útgefandi: íslendingur hf.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigrún Stefánsdóttir.
Auglýsingastjóri: Gísli Sigurgeirsson.
Ritstjórn og afgreiðsla: Kaupvangsstræti 4, sími 21500.
Prentun: Prentsmiðja Björns Jónssonar.
Áskriftargjald: Kr. 1200 á ári.
Verð í lausasölu: Kr. 35 eintakið.
Orkuskorfurinn
og Norðurland
Nú, eftir að farið er að hægjast um, eftir myndun
nýrrar ríkisstjórnar, og vetur er genginn í garð,
verður ábyrgum mönnum á Norðurlandi æ tíð-
ræddara um orkuskortinn, sem nú þrengir að öllum
byggðum í þeim fjórðungi. í stuttu máli er ástandið
þannig, að frekari upphitun húsa með rafmagni,
er ekki leyfð. Kröfur um nýjar díselrafstöðvar berast
frá mörgum byggðum og olíukostnaðurinn við raf-
orkuframleiðsluna er að verða svo gífurlegur, að
við liggur, að rekstrargrundvellinum hafi verið
kippt undan Laxárvirkjun. Enn hefur þó ekki
komið til þess, að takmarka hafi þurft notkun raf-
magns til iðnaðar.
Vegna skilningsleysis og aðgerðarleysis fyrrver-
andi ríkisstjórnar, er nú sýnt, að gufuaflsvirkjun
við Kröflu eða Námafjall verður ekki tekin í notkun
fyrr, en í fyrsta lagi árið 1978. Hlutur Magnúsar
Kjartanssonar, fyrrverandi orkumálaráðherra, í því
máli, er sannarlega' ekki fagur. Ár eftir ár var
synjað um fé á fjárlögum til nauðsynlegra virkj-
unarrannsókna við Kröflu, og á þessu ári fékk til-
laga Sjálfstæðismanna, um kaup á jarðbor, vegna
virkjunar Kröflu ekki afgreiðslu á Alþingi. Lá þó
fyrir, að slík kaup voru nauðsynleg, til þess, að
fullur hraði gæti orðið á virkjunarframkvæmdum.
Af þessum sökum, og vegna þess, að frekari
virkjun Laxár kemur ekki til álita, verður ekki hjá
því komizt, að leggja byggðalínuna margfrægu, til
þess, að bjarga því, sem bjargað verður. Sú lausn
er að sjálfsögðu mjög dýr, og er ekki fjarri lagi, að
reikna með, að kostnaðurinn geti orðið eitthvað á
annan milljarð króna. Þótt slíkri línulögn yrði
hraðað eftir föngum, er fyrirsjáanlegt, að hún mun
ekki koma Norðausturlandi að gagni, fyrr en síðari
hluta árs 1976, í fyrsta lagi. Við horfum því fram
á sama öryggisleysið í orkumálum í a. m. k. tvo
vetur enn.
Ekki verður hjá því komizt, að átelja harðlega
þau vinnubrögð, sem fyrrverandi orkumálaráðherra
viðhafði, í sambandi við byggðalínuna. Þannig lýsti
hann því yfir á sl. ári, að hafizt yrði handa um gerð
hennar í ársbyrjun 1974. Síðan lýsti hann því yfir,
að framkvæmdir hæfust sl. vor. Og loks var því lýst
yfir, að þær hæfust með haustinu. Allt var þetta
svikið og síðast svo kyrfilega, að lagning byggðalín-
unnar var meðal þeirra framkvæmda, sem fyrrver-
andi ríkisstjón skar niður á þessu ári.
Fyrrverandi ríkisstjórn og stuðningsmenn henn-
ar geta ekki skotið sér undan pólitískri ábyrgð á
því ástandi, sem nú er í orkumálum Norðlendinga.
Eins og rakið hefur verið var það ýmist að vinstri
stjórnin stóð gegn nauðsynlegum rannsóknum og
framkvæmdum eða þvældist fyrir eða skaut mál-
inu á frest með margvíslegum loforðum og fyrir-
heitum, sem aldrei var gerð nein tilraun til þess að
standa við. Það er að vísu rétt, að Norðlendingar
stóðu ekki nógu vel saman um lausn orkuvandans.
En í raun komu málin aldrei undir þeirra gerð.
Vinstri stjórnin hafnaði samvinnu og samráði við
þá og samtök þeirra. Hennar er því ábyrgðin og
sökin á því, hvernig komið er.
H. 61.
4 - ÍSLENDINGUR
Bjartmar Guðmundsson:
Byggðasjóður
og
nýi sáttmáli
Byggðasjóður, hvað er það?
Atvinnubótasjóður hét hann
áður, ef ég man rétt, Atvinnu-
jöfnunarsjóður svo og nú þetta.
Hlutverk þeirra, sem honum
stjórna, er að styðja atvinnu-
rekstur þeirra, sem búa við lak-
ari aðstöðu í strjálbýli en aðrir
í þéttbýli og hlynna að nýjum
atvinnurekstri út um hinar
clreifðu byggðir, sem svo eru
nefndar. Skal þetta gert með
hagstæðari lánveitingum en al-
mennt gerast og ef til vill ein-
hverjum styrkjum. Nýja sátt-
mála má nú nefna einn þátt í
spánýjum ríkisstjórnarsamningi,
sem fjallar um það að Byggða-
sjóði skuli ætluð 2% árlega af
Ríkissjóðstekjum. Það ætti að
geta orðið talsverð fúlga, þegar
fjárlögin verða komin upp í 50
milljarða, eins og nú lítur út
fyrir að fljótlega verði, þó gildi
krónunnar okkar sé ekki orðið
neitt ýkjamyndarlegt.
Vel er það að þetta verði
fúlga. Og ekki síður hitt að
þessi árin eru samtök ungra
manna í báðum höfuðflokkun-
um, sjálfum stjórnarflokkunum,
farin að gera það að stefnumál-
um sínum að stuðla að sem
mestu jafnvægi í byggð lands-
ins og vaxa af. Ungdómurinn
hefur fundið sér verðugt verk-
efni ofar flokkadrætti að mestu.
Sama er að segja um landshluta
samtökin. Nú blæs því ekki eins
óbyrlega fyrir þeim, sem skiln-
ing hafa á gildi strjálbýlis, eins
og t. d. meðan miklir skýrslu-
raenn og hugsuðir voru að
reikna út óhagvöxtinn fyrir fá-
um árum og varla sást Alþýðu-
blað öðru vísi en grátandi yfir
því hvað strjála byggðin væri
orðin mikill baggi á öðrum
byggðarlögum. Kannske hefur
klifan sú bara haft öfug áhrif
og er gott að hún skyldi þó ekki
drepa alveg bæði blað og flokk
eins og nærri sýndist liggja fyr-
ir skemmstu í kosningum.
Þá var ekki nógu mikið á þá
hlustað, sem sögðu að telja yrði
til alvarlegrar óþróunar að fólki
fækkaði á öllu íslandi nema á
tilteknu svæði við Faxaflóa, en
þar fjölgaði aftur um of, báðum
hópunum til skaða og sumum
byggðarlögum til stórvandræða.
Sem dæmi um vandamál Stór-
Reykjavíkur af of hraðfara
fjölgun eru þrengsli í skólum,
íbúðaskortur og uppsprengt
verð á húsum. Sem dæmi um
staði sem fækkunin hefur verst
leikið má nefna Vestfirði alla,
Austfirði mestalla og mikinn
hluta Norðurlands.
Nú er aftur farið að bera þó
nokkuð á að útstreymi frá lands
byggðinni, sem svo er nefnt,
hafi heldur minnkað eða snúist
við á einstaka stað, og inn-
streymið á höfuðborgarsvæðið
minnkað að sama skapi. Senni-
lega má rekja þetta eitthvað til
hugarfarsbreytinga ungra ís-
lendinga og uppvaxandi, sem
meta meira manndóm og skikk-
Bjartmar Guðmundsson.
anlega áreynslu en að liggja í
traföskjum. Einnig til áhrifa
Atvinnujöfnunarsjóðs eða
Byggðasjóðs, sem nú heitir svo,
og að síðustu en ekki síst til
skuttogaranna nýju. Allt sýnir
þetta að á þessu sviði er ekki
við óviðráðanleg vandamál að
elja. En viðfangsefnið er stórt
og margþætt. Það er svovstórt,
að flest styður þá skoðun, að
velferð alþjóðar geti oltið mjög
á því, hvernig til tekst, ekki síð-
ur en velferð einstakra byggðar-
laga. Mannlífið er nú einu sinní
þannig, að maður verður að
styðja mann og byggðarlag ann-
að byggðarlag. Ekki getur al-
þjóð misst eitt einasta byggðar-
lag að ósekju. Allir vita hversu
útgerðarmenn á Vestfjörðum
eru fengsælir, og sömu sögu er
að segja kringum allt land, að
Heimaey ógleymdri. Meginhlut-
ann af efnahagslegri velmegun
þjóðarinnar má rekja til sjávar-
aflans og sjávarplássin styðjast
mjög við næslu sveitir og þær
aftur við þua. Þannig tvinnast
all.t saman. Hvar væri til dæmis
Patreksfjörður staddur, ef ekki
væri Rauðasandshreppur, Þing-
eyri ef ekki væri Dýrafjörður og
Flateyri án Önundarfjarðar?
Hvar væri Þórshöfn, ef ekki væri
Þistilfjörður og Bakkafjörður,
eða Raufarhöfn án sveitanna þar
í kring? Hvernig væri Húsavík,
ef ekki væru dalirnir og fjalla-
drottningin? Hvað væri Reykja-
vík, án landsbyggðarinnar, og
landsbyggðin án hennar?
Hvernig gæti landbúnaðurinn
þrifist án þéttbýlis? Sveitirnar
styðja útgerðina og útgerðin
þær. Þegar lilið er á heildina,
er þetta lals staðar svona.
Það er margur ríkari en hann
hyggur, og sumir máske fátækari
‘en> þeir halda. Við vonum og
höldum að bráðum komist land-
helgin út fyrir alla anga land-
grunnsins og hólminn taki þar
með út vöxt sinn 200 mílur
vestur fyrir Látrabjarg og jafn-
langt norður fyrir Langanes. Þá
verður ísland orðið stórt og
landshornin verðmikil, hvernig
svo sein komandi tími kann að
líta á þau sem búsetulönd. Senni-,
lega þó með ágirndaraugum.
Bjarni Ásgeirsson sagði ein-
„Vertíðinni64 lokið hjá Amboðaverksmiðjunni
Smíða eina hrífu
fyrir hvern bónda
Hlutverk gömlu amboðanna verður æ ininna við heyskap á Is-
landi cg nú er svo komið að aðalframleiðendur amboða hér-
lend s sniíða aðeins rúmlega eina hrífu á hvern bónda á ári,
þ. e. a. s. um 6000 hrífur. Þá frainleiða þeir aðeins 200 orf á
ári cg fulinægja með því eftirspurninni á öllu landinu. Kom
þetía frnm í viðtali við Hannes Arason í Ámboðaverksmiðjunni
18;u við Kaldbaksgötu á Akureyri, en Iðja er eina fyrirtækið á
land nu, scm frainleiðir þessi vcrkfæri svo nokkru nemi.
— Framleiðsla á amboðum
hefur dregist gifurlega saman
frá því ^em áður var, en nú tel
ég að markðaurinn dragist ekki
meira saman úr þessu. Reynsla
síðustu 7 ára sannar þetla. Við
seljum nú sama magn af hrífum
og orfum á hverju ári og skapar
það tveimur mönnum næga at-
vinnu árið um kring, sagði
Hannes.
Hannes sagði að aðalanna-
tíminn liæfist um miðjan júní
og stæði fram á haustið, en yfir
vetrarmánuðina er rólegra á
verkstæðinu. Þá er reynt að
safna nægilegum birgðum fyrir
vertíðina, eins og Iðjumennirn-
ir kalla heyskapartíðina.
Á Iðju eru framleiddar hríf-
ur af ýmsum gerðum. Þar er um
að ræða hrífur úr áli eingöngu;
hrífur með álskafti og tréhaus
og loks hrífur úr tré eingöngu.
Tréð sem notað er í sköftin er
pantað inn af fyrirtækinu sjálfu
frá Finnlandi, en álið panta þeir
frá Englandi, svo og vír í tind-
ana. Hannes sagði að í seinni
líð framleiddi fyrirtækið meira
og meira af hrífum, sem eru
með þriðjungi fleiri tindum, en
jiað sem áður tíðkaðist. Eru
hrífur þessar sérstaklega ætlað-
ar til að raka gras, slegið af
garðsláttuvélum. Þá eru fram-
leiddar garðhrífur í mismun-
andi stærðum.
— Annars eru hrífur og orf
verkfæri sem ekki breytast mik-
ið. Við getum því óhræddir
framleitt amboðin fyrirfram.
Tískusveiflur gera þau ekki
ósöluhæf. Hitt er svo annað mál
að alltaf verður að hafa í huga
að ný efni koma stöðugt á mark-
aðinn og ef þau virðast lienta
vel í verkfærin okkar, þá verð-
um við að gera tilraunir með
þau, sagði Hannes.
Amboðaverksmiðjan Iðja tók
til starfa árið 1930 og þá kost-
Hannes útbýr hrífuskaft.
aði ein álhrífa 9 krónur í smá-
sölu, að sögn Hannesar, en í dag
kostar hrífa 964 krónur. Ef tek-
ið er lillit lil launa eru hrífurn-
ar í dag því talsvert ódýrari mið
að við það sem þær voru áður,
enda farið að nota miklu meira
vélarafl við frameliðslu þeirra.
1 viðtalinu við Hannes Ara-
son í Iðju kom einnig fram að
fyrirtækið hefur verið að velta
fyrir sér útflutningi á hrífum til
Grænlands og Færeyja. íslensk-
ar hrífur henta vel fyrir hið fín-
Þeir geta óhræddir framleitt amboðin fyrirfram, því tískusveifl-
ur gera þau ekki ósöluhæf.
gerða gras sem vex á þessum vegna þeirrar óvissu sem stöð-
stöðum og hafa verið send sýn- ugt ríkir um verðlag hverju
ishorn til þessara landa, sem sinni.
hafa líkað vel. Enn hefur þó Hannes og Eyþór Gestsson
ekki orðið neitt af útflutningin- eru eigendur Amboðaverksmiðj
um og er það fyrst og fremst unnar Iðju.
Heilgómar eru þrautarlending
8. þáttur
Ótrúlega mikill fjöldi ungs
fólks hér á landi er með falsk-
ar tennur. Ástæðurnar fyrir
því eru margar, m. a. óhollt
mataræði, léleg tannhirða og
léleg tannviðgerðarþjónusta.
En oft er ástæðan hrcinlega
hverntíma í þingræðu eða blaði,
að vegalengdir milli bæja og
byggðarlaga yrðu síður en svo
galli, eftir að síminn væri kom-
inn til sögunnar; rafmagnið,
vegirnir, flugvélin og þráðlausar •
sendingar á orði og myndum.
Það er ekki langt síðan að blátt
vatnið var talið einskis virði,
nema sem uppeldisvatn fyrir
fisk. Nú er það að verða mun-
aðarvara og heilsulind og verð-
ur, svo lengi sem það er blátt
og hreint. Hreint loft stígur í
mati og strjála byggðin, sem
uppalandi vaskra manna og
batnandi. Óskemmd náttúrugæði
láðs og lagar og lofts í köldum
löndum og strjálbýlum, eru að
verða einhver mestu hlunnindi,
sýðan jarðarherrann eitraði út
frá sér með sóðaskap á flestum
þeim stöðum, sem áður þóttu
álitlegastir til búsetu.
En svo að aftur sé vikið að
hundraðshlutunum tveim, pró-
senlunum öðru nafni: Fyllilega
er það þess vert, að fagna nýja-
sú, að fólk hefur ekki gert sér
grein fyrir því, að það er hægt
að gera mikið fyrir lélegar
tennur annað en að draga
þær allar út og setja heila
góma í þeirra stað. Að vísu er
oft ódýrasta leiðin að setja
falska góma, en aðrar lausnir
bjóða aftur á móti upp á
ánægjulegri árangur, þar sem
sáltmála. Og vænta skulum við
þess í bláustu alvöru, að hann
verði miklú haldbetri en Gamli-
sáttmáli forðum tíð, sem reynd-
ist hið mesta snuð.
Ofan frá má þó enginn vænta
allra hluta. Heimamenn í héruð-
um þurfa ætíð að hafa sitt frum-
kvæði að leggja óskir og til-
lögur á borðið og hafa þá í huga
uin leið, að þótt sjórinn sé góð-
ur og verði vonandi gjöfull alla
líma, er liann hvergi einhlítur.
Og í sveitunum er hjarðmennsk-
an og inatjurtagarðurinn ein
saman orðin úrelt þing. Fleira
verður til að koma sem atvinnu-
greinar. Að þess konar fjöl-
breytni á Byggðasjóðurinn að
stuðla meðal annars, til þess að
draga fólk að byggðarlögum,
sem of fámenn eru.
Vonum svo, að guðir Byggða-
sjóðs samkvæmt iiýj asáttmála,
bjálpi strjálbýlinu vel, og að
það reynist fyllilega þess um-
komið að hjálpa sér líka sjálft.
allar nothæfar tennur eru nýtt
ar, en gerfitönnum bætt við
þar sem tennur vantar.
f mörgum tilfellum er hægt
að hjálpa sjúklingi mikið með
því að setja í hann svokallaðar
brýr. En brú er fest milli
tveggja tanna, sem útbúnar eru
með gullkrónum og tennurnar
sem vantar þá lóðaðar við þær
og síðan límdar fastar, þannig
að brúin er sem líkust að vera
eigin tennur, þar eð ekki er
hægt að taka þær út úr munn-
inum eftir límingu. Brú krefst
þess að tennur séu báðum meg-
in við tannlausa hlutann.
Þegar alla jaxla vantar t. d.
þá er ekki hægt að notast við
brú, en þá má búa til gómpart
í staðinn. Gómpartar eru festir
með krókum utan um tennur,
sem eftir eru í tanngörðunum
eða eru festir með sérstökum
smellum, sem faldar eru inn í
gómunum, þannig að þær sjást
ekki. Kostir þessara gómparta
fram yfir heilgóma, eða svokall-
Framhald á bls. 7.
Brú er fest milli tveggja tanna, sem útbúnar eru með gullkrónum
‘♦HXM«H«**«***MX'*XHXHXH*MX**»MX**X**«*,X****4»**»***H******X**»*,**,*,'X,,*********«M«**íMt*,X,*«*'^*t**tMtM!
I
I
Y
t
y
y
y
y
4
|
t
4
4
4
y
y
4
4
i
x
I
1
t
t
t
y
1
|
'i
t
t
y
t
t
x
t
t
t
t
t
y
|
4
4
t
t
t
t
y
t
y
i
i
t
t
4
4
y
4
t
4
4
I
I
y
y
y
y
y
4
4
4
y
I
I
I
I
Gott í
gráum
hvers-
dagsleik-
Að áskorun Ásgerðar Snorra-
dóttur og Ingva Þórðarsonar
koma hjónin Guðbjörg Bald-
ursdóttir og Sveinbjörn Vig-
fússon hér með uppskrift vik-
unnar.
Filet Maxim
Nautabuff m/kryddsósu
4 þykkar sneiðar af nautakjöti.
Smjör eða smjörlíki, salt og
pipar.
2 teskeiðar fínt saxaður laukur.
200 gr. sveppir.
1 dl. rauðvín eða portvín.
1 Vz dl. rjómi.
- 2 dl. sterkt soð eða teningasoð.
matskeið hveiti.
1 dós grænar baunir.
1 dós aspargus.
Berjið sneiðarnar lítið eitt.
Steikið sneiðarnar nokkrar mín-
útur á báðum hliðum. Kryddið
með salti og pipar. Brúnið svepp
ina og laukinn örlítið. Hellið
soði og víni yfir. Jafnið sósuna
með hveitinu. Hellið sósunni
yfir og berið fram með baunum
og aspargus, ásamt steiktum
kartöflum.
Nougatfromage
Brúnið 125 gr. sykur og 125
gr. saxaðar möndlur á pönnu
Hellið á smurða plötu og mylj
ið, þegar það hefur kólnað
Hrærið saman fjórar eggjarauð
ur, Yi I. rjóma og Vi I. mjólk
Bætið 10 bl. af hræddu matar
lími út í, og hrærið vel. Því
næst tveim vel þeyttum eggja-
hvítum og 4 dl. af þeyttum
rjóma. Að lokum er nougat
hrært út í. Hellið ekki fromage
í ábætisglös fyrr en það er byrj-
að að stífna. Ábætinn má
skreyta og bragðbæta með nið-
ursoðnum perum, ferskjum eða
jarðarberjum.
Að lokum skora þau á hjónin
Aðalbjörgu Jónsdóttur og
Tryggva Pálsson að koma með
næstu uppskrift.
y
i
t
i
i
!
!
4
I
4
l
I
y
y
I
y
X
fSLENDINGUR