Íslendingur - 31.10.1974, Síða 8
rngur
Ferðamálaráð-
stefna
IMorðurlands
Laugardaginn 9. nóv. n.k. verð-
ur haldin ferðamálaráðstefna
fyrir NorSurland í Félagsheimil-
inu á Húsavík. RáSstefnan verS-
ur haldin á vegum FjórSungs-
sambands NorSurlands, en hún
er ætluS öllum þeim, sem hafa
áhuga á ferSamálum á NorSur-
landi. RáSstefnan hefst kl. 10
f. h. og lýkur samdægurs.
Framsöguerindi verSa flutt af
LúSvík Hjálmtýssyni, fram-
kvæmdastjóra FerSamálaráSs,
Dr. Vilhjálmi LúSvíkssyni verk
fræSingi, Ragnari Ragnarssyni
hótelstjóra, Tómasi Zöega ferSa
skrifstofustjóra. AS .erindunum
loknum verSa flúttar greinar-
gerSir um ástand ferSamála á
NorSurlandi, en loks verSa
frjálsar umræSur.
I\ly stjórn
Á fundi Kennarasambands NorS
urlands eystra, sem haldinn var
11.—13. okt. sl. var kjörin ný
stjórn sambandsins. Hana skipa
eftirtaldir: Ingvar Ingvarsson,
Lundarskóla, Akureyri, Trausti
Þorsteinsson, Húsabakkaskóla
SvarfaSardal, Jóhanna Skafta-
dóttir, Barnaskóla Árskógs-
strandar, Sigmar Ólafsson,
Barnaskóla Akureyrar, og
Viktor GuSlaugsson, Stórutjarn-
arskóla.
Á fundinum voru mættir rúm
lega 90 kennarar frá flestum
skólum á NorSurlandi eystra.
Mjólkurfernur I
stað mjólkurpoka
Húsavik. — í þessari viku verS-
ur hafin framleiSsla á mjólk í
fernum í Mjólkursamlagi KÞ á
Húsavík, en fram til þessa hefur
samlagiS sent frá sér mjólk í
plastpokum.
Mj ólkursamlagiS hefur keypt
fernuvélar frá Tetrapak í Sví-
þjóS og undanfarna daga hafa
tveir menn frá fyrirtækinu unn-
iS viS uppsetningu vélanna. Af-
köst fernuvélanna eru 900 fern-
ur á klukkustund.
SamlagiS er nýlega byrjað að
framleiða ÓSalsost og er ostur-
inn fyrst og fremst ætlaður fyrir
Ameríkumarkað.
Afli triilubátanna hefur vcrið injög rýr í haust.
Er dragnótaveiði
að drepa trilluút-
gerð á Akureyri?
Afli trillubáta frá Akureyri hefur verið mjög rýr í haust og undanfar-
in haust, en á þessum árstíma sækja bátarnir mest á miðin við Arnar-
nesvík, Hjalteyri og inni á Skjaldarvíkum. Áður fyrr komu góðar ýsu-
og þorskgöngur inn á f jörðinn á þessum árstíma og þá voru haustin
besti aflatími ársins. Trillubátaeige ndur kenna sívaxandi dragnótaveiði
við Hrísey um aflabrestinn, en báðum megin eyjarinnar leggja nætur
sínar bátar frá Hauganesi, Árskógsströnd, Dalvík og víðar. Bátar þessir
eru frá 15—30 tonn að stærð.
Trillubátaeigendur innar í
firðinum eru mjög óánægðir
með þessa veiði, og telja liana
eyðileggja grundvöllinn fyrir
allri línuveiði smærri báta
innar í firðinum. Vilja þeir,
að dragnótaveiðin verði
bönnuð á svæðinu. Fyrir
tveimur árum skrifaði Smá-
hátafélagið Vörður á Akur-
eyri Sjávarútvegsráðuneyt-
inu bréf, þar sem það fór
fram á bann við veiðunum,
en aldrei barst svar við bréfi
þessu.
Islendingur hafði tal af
tveimur trillueigendum ný-
lega, og voru þeir báðir mjög
óánægðir með núverandi
reglur, sem gilda um veiði
innan fjarða.
Bergsteinn Garðarsson,
sem hefur atvinnu af trillu-
útgerð, sagði að um leið og
veður versnuðu á haustin og
dragnótabátarnir leituðu inn
á fjörðinn, hyrfi öll veiði hjá
línubátunum.
— ÁSur fyrr voru haustin
hesti veiðitíminn hér á Eyja-
firði. Undanfarin ár hefur
alll útlit verið fyrir góða ýsu-
og þorskgöngu, en þrátt fyrir
það bregst veiðin. Fyrir
nokkrum árum fékk ég yfir-
leitt 5—7 tonn á hverjum
haustmánuði, en nú kalla ég
það gott, ef ég slepp yfir 2
lonn. Ef ekki verður eitthvað
að gert, munu núverandi
reglur um veiðar á fjörðum,
drepa niður alla trilluútgerð
á Eyjafirði, sagði Bergsteinn
og bætti síðan við: Ég tel, að
eðlilegri þróun hefði verið
sú, að dragnótaveiðin hefði
verið bönnuð. Dragnótaveiði
á fullan rétt á sér utan fjarð-
ar, en innan fjarðar er um
hreinræktaða rányrkju að
ræða. Inni á fjörðum eru lín-
ur og færi réttu veiðarfærin.
Pétur Bjarnason, hafnar-
stj óri Akureyrarbæj ar, og
trillukarl í frístundum, sagði
í viðtali, að illmögulegt væri
orðið, að fara á handfæri
vegna netalagnanna.
— Um leið og vart verður
fiskjar, fyllist fjörðurinn af
dragnótum. Við Hrísey er al-'
veg þvergirt með dragnótum
og dragnæturnar eru lagðar
alveg inn að Oddeyrartanga.
Bátarnir láta sig engu skipta
línudufl, og leggja þvert yfir
línurnar, og valda oft tjóni
á þeim, auk sem þeir hreinsa
upp allan aflann. TrilluveiS-
ar eru aðalatvinnuvegur dá-
góðs hóps manna og frí-
stundagaman enn fleiri og ég
tel því, að reglur um veiðar
inni á fjörðum þurfi að end-
urskoða sem fyrst, eða áður
en trilluveiðarnar verða al-
veg drepnar niður, sagði Pét-
ur.
Trillubátum á Akureyri hefur
fjölgað mjög á síðustu árum
og eftir að smábátahöfnin við
Slippinn gat ekki tekið á móti
fleiri bátum, var aðstaða í
Sandgerðisbótinni í Glerár-
hverfi bætt og 40. trillubátum
úthlutað legufærum þar. —
Aldrei var fullgengið frá þess-
ari höfn ,og það sem verra var,
þá komust framkvæmdir aldr-
ei svo langt að vatn væri leitt
að verbúðunum. Eins og fram
hefur komið við rannsóknir,
er sjór í Akureyrarhöfn ónot-
hæfur til þrifa á fisklestum
vegna coligerla af saurupp-
runa. Þetta hefur í för með
sér, að bátaeigendur verða að
leita inn á Oddeyrartanga eða
í smábátahöfnina í Slippnum
til þess að þrífa báta sína. Eru
bátaeigendur í Sandgerðisbót
mjög óánægðir með þetta á-
stand. Er ætlunin að láta hér
við sitja, eða mega bátaeigend-
urnir eiga von á vatni á næst-
unni?
Pétur Bjarnason, hafn-
arstjóri Akureyrarbæj-
ar, svarar:
Vatn væri löngu komið í Sand
gerðisbót, ef þarna væri um
jafn einfalt mál og það virðist
vera fljótt á litið. Við vitum að
trillueigendurnir eru mjög
óánægðir með vatnsleysið og
vissulega skapar það þeim bein
óþægindi. Höfuðástæðurnar fyr
ir því að ekki er komið vatn
eru þær að mjög langt er í næstu
stofnæð og í öðru lagi er um
all kostnaðarsamt fyrirtæki að
ræða. En hitt er svo annað mál
að vatnið verða þeir að fá. En
Framhald á bls. 6.
Heimahjúkrun að hef jast
Heimahjúkrun á vegum Heilsuverndarstöðvarinnar er að hefj-
ast á Akureyri þessa dagana. Til að byrja með mun Hulda
Baldursdóttir hjúkrunarkona sjá um þjónustuna. Heimahjúkrun
felur í sér almenna umönnun á sjúklingum, böðun, umbúða-
skipti á sárum, lyfjagjafir o. fl., en heimahjúkrun er einungis
veitt eftir tilvísun frá heiinilislæknum. Heimahjúkrun á Akur-
eyri verður rekin í sama formi og heimahjúkrun á vegum
Reykjavíkurborgar og Kópavogs.
AKUREYRINGAR -
N ORÐLENDIN G AR!
Kanaríeyjaferðir vikulega.
Ferðaskrifstofa Akureyrar
fCUDO-
GLERHF.I
AKUREYRt
SÍMI96-21127
Hjúkrunarfélagið á Akureyri
átti frumkvæðið að því að koma
þessari jrjónustu í skipulegt
form. í viðtali við Guðfinnu
Thorlacius hjúkrunarkonu, sem
átti sæti í undirbúningsnefnd-
inni, kom fram að alltaf hefur
verið leitað meira og minna til
hjúkrunarkvenna um aðstoð við
sjúklinga í heimahúsum. Var því
ákveðið að reyna að skiþuleggja
jijónustuna. Sagði Guðfinna að
til að byrja með yrði aðeins um
hálft starf að ræða, en ætlunin
væri að auka Jrjónustuna eftir
því sem þörf krefur. Verður
bænum skipt niður í hverfi og
hvert hverfi falið einni hjúkrun-
arkonu til umsjónar.
Heimahjúkrunin er sjúkling-
unum kostnaðarlaus.