Íslendingur


Íslendingur - 01.04.1976, Page 1

Íslendingur - 01.04.1976, Page 1
13. TÖLUBLAÐ . 61. ARGANGUR :■ ■■ í: akureyri FIMMTUDAGINN 1. APRIL 1976 VÖRUSALAN SH • HAFNARSTRÆTI 104- AKUREYRI Vdt 'VhMAÁ, b VERZLAR í / VÖRUSÖLUNNI & IJndirbúningur Islandsmótsins í fullum gangi — Jú, það verður örugglega haldið íslandsmót hér um pásk- ana og undirbúningur er í fullum gangi. Þetta sagði Ivar Sig- mundsson forstöðumaður skíðamiðstöðvarinnar í Hlíðarfjalli þegar hann var inntur eftir því hvort ekki væri liætta á að erfitt yrði um framkvæmd fyrirhugaðs íslandsmóts á skíðum á Akureyri, þar sem páskar eru svo seint í ár. ívar sagði að ástandið væri gott í svigbrautunum í fjall- inu eins og væri og sömu sögu væri að segja um stökkbraut- irnar, hins vegar hefði verið verra útlit með göngubraut- irnar, en nú virtist vera að rætast úr því, enda hefur snjó kingt niður hér undanfarna daga. Síðast var haldið íslands- mót á skíðum í Hlíðarfjalli ár- ið 1971. Gert er ráð fyrir um 100 keppendum á mótinu í ár og koma þeir frá Reykjavík, ísafirði, Ólafsfirði, Siglufirði, Húsavík, Akureyri, Fljótum og einnig koma væntanlega keppendur frá Austfjörðum og ef til vill víðar. ívar sagði, að það væri fyr- ir löngu fullbókað í gistingu í Skíðahótelinu yfir páskana og trúlega yrði allt gistirými á Akureyri fullnýtt í páskavik- unni. Keppnisfólkið mun í flestum tilfellum búa í bæn- um. Mótið hefst þann 13. apríl, sem er þriðjudagur, og þann dag verður keppt í göngu, 14. apríl verður keppt í stökki í norrænni tvíkeppni. Einnig verður keppt í stökki á laugar deginum fyrir páska. Á fimmtudeginn, 15. apríl, verð- ur keppt í stórsvigi, á föstu- dag verður haldið skíðaþing, á laugardag verður keppt í svigi og stökki, en á sunnu- dag, þ. e. páskadag, verður flokkasvig, 30 km ganga og 15 km ganga. Á mánudeginum verður síðan haldið brunmót Akureyrar ef aðstæður leyfa. Já, það er í mörg horn að sum hornin gleymast. Eitt af þeim sem hafa farið varhluta af hreinsun á þessu vori er liornið nyrst á íþróttasvæðinu við Glerárgötu. Þar liefur að undanförnu safnast mikið af af alls kyns rusli og eins og sjá má af myndinni hér að ofan er það síður en svo til prýði. Bjarni lætur af bæjarstjórastarfi Bjarni Einarsson, hefur sagt starfi sínu sem bæjarstjóri Akureyrar lausu og mun hann flytja ásamt fjölskyldu sinni til Reykjavíkur seinni part- inn í sumar. Bjarni liefur ver- ið ráðinn til þess að taka við nýju starfi hjá Framkvæmda- stofnun ríkisins og tengist það starf byggðamálum og því um líku. Bjarni Einarsson hefur verið bæjarstjóri á Akureyri í Hver fær Sólarferðina? Þriðja spurnmgin birtist í dag í dag birtist þriðja og næst síðasta spurning- in í getraunakeppni ís- lendings. Eins og áður hefur verið skýrt frá, þá hafa allir áskrifend- ur blaðsins rétt til þátt- töku, svo og þeir sem gerast áskrifendur fyr- ir 1. maí nk. Dregið verður úr réttum lausn um, en vinningurinn er hvorki meira né minna en sólarferð í sumar með Útsýn. Safnið svör unum saman og hring- ið þau inn, sendið í pósti eða afhendið þau á skrifstofu blaðsins þegar síðasta spurning hefur verið birt þann 8. apríl nk. Ef svörin eru send í pósti, þá er utanáskrift in: íslendingur (get- raun) Kaupvangs- stræti 4, Akureyri. Not- ið þetta einstæða tæki- færi. Gerist áskrifend- ur íslendings og öðlist þátttökurétt í keppn- inni um sólarferðina um leið. Áskriftarsím- inn er 21500. Og þá er það þriðja spurningin: Hvaða ár hlaut Dalvík kaup- staðarréttindi? Spurningarnar sem áður eru komnar eru: 1) í hvaða hreppi er Grenivík?, 2) Hvað heit ir bæjarstjórinn á Húsa vík? 9 ár, eða nákvæmlega jafn lengi og fyrirrennari hans, Magnús E. Guðjónsson. íslendingur hafði samband við Bjarna og innti hann eftir ástæðunni fyrir ákvörðun hans um að segja bæjarstjóra starfinu lausu. Hann svaraði því til að starf bæjarstjóra væri ekki í eðli sínu ævistarf og því væri atriði að maður skipti ekki um starf of gam- all. Með þetta í huga hefði hann tekið starfinu hjá Fram- kvæmdastofnun, enda væri þar á ferðinni starf sem hann teldi mjög áhugavert. Aðspurður sagði Bjarni að sér hefði líkað dvölin á Akur- eyri mjög vel. Bæjarstjóra- starfið hefði verið einstaklega lærdómsríkt og áhugavert og kvaðst hann mundu fara sátt- ur við Akureyri og sannfærð- ur um að hvergi væri eins gott að eiga heima og þar. Loks sagði bæjarstjórinn að þó svo að hann flyttist til Reykjavíkur þá væri hann ekki að kveðja Akureyri að fullu, þar sem hann ætti eftir að sjást hér oft vegna nýja starfsins. Til lesenda fslendingur er tólf síður í dag. Á blað- síðu 3 og 4 er listi yfir nöfn fermingarbarna á Akureyri, en fermt verður á sunnudag- inn kemur, 4. apríl; einnig 11. apríl, 15. apríl og 19. apríl. Fjórðungssjúkrahúsið: 2 verktakar buðu í kjarnabygginguna I sl. viku voru opnuð tilboðin, sem bárust í þann áfanga ný- byggingar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri að gera svo- kallaða kjarnabyggingu fokhelda og ganga frá henni að utan. Tvö tilboð bárust í verkið og þau voru frá Norðurverki og Aðal- geiri og Viðari. Tilboð Aðalgeirs og Viðars hljóðaði upp á 141.5 milljónir og er það 3.2% yfir kostnaðar áætlun sem gerð hafði verið, en tilboð Norðurverks hljóð- aði upp á 153.2 milljónir. Sam ið verður um verkið í þessari viku, og má búast við að fram kvæmdir hefjist innan skamms. Samkvæmt upplýsingum Stefáns Stefánssonar bæjar- verkfræðings þá veitti ríkið 75 milljónir króna til verksins á þessu ári og bærinn leggur 15% á móti. Þá var geymdur hluti fjárveitingar frá sl. ári, sem notaður verður í ár. Ráð- gert er að kjarnahúsið verði gert fokhelt og tilbúið að utan á tveimur árum. Framkvæmd- um við stigahús sjúkrahússins á að ljúka í maí nk. og þá verður sá áfangi tekinn í notkun.

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.