Íslendingur


Íslendingur - 01.04.1976, Side 12

Íslendingur - 01.04.1976, Side 12
„Krummagull" Á sunnudaginn var frumsýndi Alþýðuleikhúsið á Akureyri nýtt íslenskt leikrit „Krumma gull“ á Neskaupstað og er þetta jafnframt fyrsta verkið sem félagið sviðsetur. í þess- ari viku var leikritið síðan sýnt á Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og Breiðdalsvík, en í dag átti að sýna á Eiðum og síðan í Borg- arfirði, Seyðisfirði og á Egils- stöðum. Þaðan fer hópurinn til Þórshafnar, Raufarhafnar, Húsavíkur og loks verður sýnt á Akureyri. Eftir páska á að fara um Norð-Vesturland og Vesturland. Leikritið Krummagull er eftir Böðvar Guðmundsson, en Jón Hlöðver Áskelsson hef- ur samið tónlistina. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir en leikmynd og búninga hafa fé- lagar í Alþýðuleikhúsinu gert. — Fjórir leikarar eru fast- ráðnir hjá Alþýðuleikhúsinu, en það eru þau Arnar Jóns- son, Kristín Ólafsdóttir, María Árnadóttir og Þráinn Karls- son. Starfsemin er fjármögn- uð með framlögum styrktar- félaga. Alþýðuleikhúsið er umferðaleikhús sem sýnir leikverk um þjóðfélagsleg vandamál samtímans. Dræm þátttaka Nýlega ákvað áhugamanna- hópur, í samráði við Félags- málastofnun Akureyrarbæjar, að fara af stað með könnun um dagvistunarmál í bænum. Var ákveðnu úrtaki foreldra barna á aldrinum 0—6 ára send bréf með nokkrum spurn ingum þar að lútandi og var veittur 2 vikna frestur til þess að senda svör. Frestur þessi er nú liðinn og kom í ljós að þátttaka foreldra er heldur dræm. Þeir sem að könnun- inni standa hvetja þá foreldra sem ekki hafa enn sent inn svör, að bregðast fljótt við og senda svör, þannig að nægi- legur fjöldi svara berist til þess að hægt verði að byggja á niðurstöðum könnunarinn- ar. Svör sendist í umslagi merkt: Dagvistunarmál, póst- hólf 569. Bréf þessi má senda ófrímerkt. Um helmingur stauranna var settur á land á Akureyri og á myndinni hér að ofan má sjá yfir svæðið, þar sem þeim var komið fyrir norðan við Hraðfrystihús Utgerðarfélags Ak. Kostnaður við kaup og flutning staura I Kröflu- línu um 70 milljónir kr. í sl. viku komu um 1400 staurar til landsins, sem not- ast eiga í Kröflulínu. Staur- arnir eru keyptir frá Ame- ríku og er heildarkostnaður við kaup á þeim og flutning til Iandsins um 70 milljónir króna. Staurarnir voru settir í land á Húsavík og Akur- eyri. Samkvæmt upplýsingum Bent Scheving Thorsteins- sonar hjá RARIK þá eru staurar þessir af allra stærstu og lengstu gerð, eða svipaðir staurunum sem cz Að sögn Bjarna Kristjáns- sonar sótti vistheimilið um fjárveitingu upp á allt að 50 milljónir króna og var þá miðað við að hægt yrði að gera bygginguna fokhelda og hefja frágang innanhúss og halda áfram því verki næsta vetur. Þetta fékkst ekki og er því fyrirsjáanlegt að ekki verður unt að ljúka bygg- ingunni á áætluðum tíma, þ. e. 1. sept. 1977, nema auka fjárveiting fáist síðar á þessu ári. — Bjarni sagði að fyrsta áfanga byggingarinn- ar, þ. e. gerð kjallara og plötu, yrði lokið 1. maí nk., en annar áfangi yrði boðinn út í aprílmánuði. Áætlað er að húsið verði fokhelt 1. sept. nk. Sjúkradeildin er ætluð fyrir 20—24 vistmenn en grunnflötur byggingarinnar er 450—500 fermetrar. — Bjarni sagði að samkvæmt kostnaðaráætlun sem gerð var fyrir einu og hálfu ári siðan hefði sjúkradeildin átt að kosta 59 milljónir króna, en samkvæmt endurskoðaðri kostnaðaráætlun frá 1. jan. sl. hefði kostnaður verið tal- inn 87 milljónir króna. Þegar byggingu sjúkra- deildar lýkur á eftir að byggja kennslu- og þjálfun- arhúsnæði, sem áætlað er um 500 fermetrar að grunn- keyptir voru í Byggðalínuna. Staurarnir verða nú fluttir út á línustæði Kröflulínu eft ir því sem bílar komast og verður byrjað að setja þá upp í næsta mánuði. Áætlað er að línan öll verði tilbúin fyrir áramótin. Fyrirsjáanlegar tafir á nýbyggingu Sólborgar nema aukafjárveiting fáist Vistheimilinu Sólborg á Akureyri hafa nýkga verið veittar 20 milljónir króna til bygg- ingaframkvæmda á þessu ári. Nægir það fé til þess að gera fokhelda byggingu þá sem byrjað var á sl. haust og hugsuð er sem sjúkradeild. fleti. Byggingin verður á tveimur hæðum. í kjallara er gert ráð fyrir sundlaug og aðstöðu til líkamsþjálfun- ar, en á efri hæð verður kennslurými. Áætlaður kostn aður þessa húsnæðis er um 100 milljónir miðað við nú- gildandi verðlag. Loks sagði Bjarni að þeg- ar nýju byggingarnar kæm- ust í gagnið yrði ekki um neina verulega fjölgun vist- manna að ræða, heldur verð- ur rýmkað um þá sem fyrir eru, en þrengsli há starfsemi Sólborgar verulega eins og húsnæðismálum vistheimil- isins er háttað í dag. Það sem af er þessum vetri hefur tíð verið með eindæmum góð norðanlands og færð á Ak ureyri liefur verið eins og á sumardegi vikum saman. Eins og mönnum er í fersku minni var sl. vctur aftur á móti sér- staklega snjóþungur, og kostn aður við snjómokstur á Akur- eyri var afar mikill. Hvernig er samanburðurinn á kostnað- arhlið snjómoksturs það sem af er þessu ári miðað við sama tímabil í fyrravetur? Stefán Stefánsson, bæj- arverkfræðingur, svarar: Fyrstu þrjá mánuðina á sl. ári var kostnaður við snjó- mokstur og sandburð samtals 10 milljónir króna, en í ár er kostnaður við þetta aðeins 2.6 milljónir króna. Þegar þessar tölur eru bornar saman ber að hafa það í huga að krónan í dag er ekki hin sama og krón- an fyrir einu ári síðan. Þessi vetur hefur verið Akureyrar- bæ mjög hliðhollur og það hve snjólétt er, hefur gert okkur kleift að nota tæki bæjarins við nýframkvæmdir í nýjum íbúðarhverfum. Samsöngur Karla- kórsins um helgina Karlakór Akureyrar heldur samsöng í Samkomuhúsinu á Akureyri 4., 5., 6., 7. og 8. apríl nk. Stjórnandi kórsins er Jón Hj. Jónsson, en undirleik ann- ast Sólveig Jónsdóttir. Ein- söngvarar með kórnum eru Kristján Jóhannsson og Helga Alfreðsdóttir. Félagar í Karla kór Akureyrar eru alls um 45 talsins. Meðal verkefna á söng- skránni eru frumflutningur á verki Áskels Jónssonar „Til Karlakórs Akureyrar 1975“, þá eru lög eftir Sibelíus, K. A. Kern, Birgi Helgason, Pál Isólfsson, Árna Thorsteinsson, H. T. Burleigh, J. Kern, Grieg, Lehar og fl. HAKUREYRIILGAR - NORÐLENDINGARI Áætlun Færeyjaferjunnar Smyrils er komin! Ferðaskrifstofa Akureyrar VITRATEX-plastmálning og HEMPALIN-lakkmálning á kynningarverði. íbúðin hf. Tryggvabraut 22

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.