Íslendingur - 30.06.1977, Síða 2
Markaregn í leik KA og
Reynis frá Sandgerði
KA og Reynir frá Sandgerði léku í 2. deild íslandsmótsins á
Akureyri á laugardaginn. Sannkallað markaregn varð í leikn-
um, en KA sigraði með 6 mörkum gegn 3. I hálfleik var stað-
an 2-1. Gunnar Blöndal skoraði „hat tric“ eða 3 mörk, Sig-
björn Gunnarsson, Ármann Sverrisson og Guðjón Harðarson
skoruðu 1 mark hver.
Varamark-
maðurinn
var bestur
Samúel bjargaði öðru stiginu
Sl. fimmtudag lék Þór við Fram í 10. umferð 1. deildar
íslandsmótsins í knattspyrnu og lauk leikmun með jafn-
tefli, 1-1. Virðast Þórsarar heldur vera að ná sér á strik
eftir fjögur töp í röð. Sigþór Ómarsson sagði í viðtali við
blaðið, sem birtist í sl. viku, að liðinu virtist vanta þann
baráttuneista, sem var til staðar í fyrstu leikjunum. Það
má segja, að þessi neisti hafi kviknað aftur hjá Þórslið-
inu í leiknum á fimmtudaginn, eftir að Jón Lárusson
skoraði glæsilegt mark með hjólhestaspyrnu. Þá var eins
og Þórsarar vöknuðu til lífsins og börðust þeir eins og
Ijón það sem eftir var leiksins.
Byrjunin var ekki efni-
leg hjá Þórsurum. Framar-
ar sóttu stíft til að byrja
mfeð og hefðu átt að skora
ein 2—3 mörk á fyrsfcu 30
m'ínútunum. En Samúel
var í miklu stuði í markinu
og varði hann oft stór-
glæsilega og hélt Þórslið-
inu „á floti“ þennan hluta
leiksins. Framarar urðu
fyrri til að skora, en Jón
Lárusson jafnaði og eftir
það var leikurinn í meira
jafnvægi og fengu bæði lið
in tækifæri til að skora og
tryggja sér sigurinn.
— Varamarkmaðurinn,
Samúel Jóhannsson, var
besti maður vallarins, en
hann hefur ekki leikið með
Þórsliðinu í sumar, að und
Samúel Jóhannsson.
anskildum tveim síðustu
leikjum, þar sem Ragnar
hefur vferið meiddur.
H.M.R.
Efnilegir ungir
knattspyrnumenn
Leikurinn var ekki nema 6
mín. gamall þegar Gunnar
Blöndal ákoraði fyrsta mark-
ið fyrir KA og var það jafn-
framt fyrsta mark Gunnars í
deildinn i í sumar. Skoraði
Gunnar eftir góða sendingu
frá Helga. Á 36. mín. skoraði
Guðjón annað markið. Sig-
björn átti þrumuskot að
marki, en boltinn lenti í Guð
jóni og þaðan í markið. Á 45.
mín. skoruðu síðan Reynis-
menn og var Pétur Sveinsson
þar að verki.
Síðari hálfleikur var ekki
nema rétt hafinn þegar Ár-
mann skoraði eftir góða send
ingu frá Gunnari. Stuttu síð-
ar skoraði Gunnar 4. mark
KA eftir að markmaður Reyn
is hafði hálfvarið hörkuskot
frá Armanni. Á 65. mín. var
Gunnar enn á ferðinni og
Skoraði fallegt mark úr lang-
skoti. Stuttu síðar skoraði Pét
ur Sveinsson aftur fyrir
Reyni eftir slæm mistök hjá
Magnúsi og Guðbergi. Á 72.
mínútu fékk KA víti, sem Sig
björn tók, en hann skaut him
in'hátt yfir. 10 mínútum síðar
bætti hann laglega fyrir mis-
tökin. Þá lék hann á þrjá
Reynismenn og renndi bolt-
anum í netið og var þetta eitt
fallegasta mark leiksins.
Reynismenn áttu lokaorðið í
leiknum er Ómar Bjarnason
skoraði á síðustu minútun-
um.
Leikurinn var oft skemmti
legur á að horfa. Mikill hraði
og oft gott spil og mörg mörk,
sum gullfalleg. Gunnar Blön-
dal átti sinn besta lei'k í sum-
ar, en Ármann, Haraldur og
Steinþór áttu einnig góðan
leik." H.M.R.
Um helgina léku Þór og Völs
ungur og KA og Tindastóll í
fslandsmóti yngri flokkanna í
knattspyrnu, F-riðli. Þór og
Völsungur mættust á laugar-
daginn. Þór vann í 5. flokki,
4-0, Völsungur í 4. flofcki, 2-
1, en Þór í 3. flokki, 3-0. f
öllum þessum flokkum er
mifcið um fríska stráfca, sem
eru flestir mjög efnilegir og
hafa gott auga fyrir spili.
Gætu jafnvel meistaraflokks-
menn mikið lært af þessum
strákum.
Á sunnudaginn léku KA og
Tindastóll. Eins og oft hefur
komið fyrir áður, vantaði dóm
arann þegar til átti að taka,
en Rafn Hjaltalín kom og
'bjargaði málunum, þegar hálf
tími var liðinn frá því að leik
urinn átti að hefjast. KA vann
í öllum flókkum, 3., 4. og 5.,
með sömu markatölu, 5-0.
H. M. R.
y
Dagsbrún
Um helgina léku Leifturs-
menn frá Ólafsfirði við Dags
brúnarmenn, sem er knatt-
spyrnulið ungmennafélagsins
í Glæsibæjarhreppi. Dags-
brúnarmenn máttu þola stór-
an skell. Leiftur sigraði með
10 mörkum gegn engu. Leik
KS og Magna var frestað.
H.M.R.
fyrir byrjendur á öllum aldri verður haldið á golf-
vellinum að Jaðri og stendur dagana 4. til 8. júlí.
Aðalkennari verður Björgvin Þorsteinsson.
Þátttaka tilkynnist í golfskálann, sími 2-29-74
fyrir nk. sunnudag. Þátttakendum verða lánuð
golfáhöld. Þátttökugjald er kr. 2.000 fyrir fullorðna
en kr. 500 fyrir börn og unglinga. Ekkert gjald er
fyrir þá sem ganga í klúbbinn.
GOLFKLÚBBUR AKUREYRAR.
ÆSKULÝÐSRÁÐ AKUREYRAR.
I
Shelltox
FLUGIMA
FÆLAIM
Hafið þér ónæði
af flugum?
Við kunnum ráð
við því
Á afgreiðslustöðum
okkar seljum við
SHELL flugnafæluspjaldið.
Spjaldið er sett upp og
engar flugur I því herbergi
næstu 3 mánuðina.
Spjaldið er lyktarlaust,
og fæst í tveim stærðum.
Olíufélagið Skeljungur hf
Sholl
2 — lSLENDINGUR