Íslendingur - 04.10.1977, Síða 8
Ný hljóm-
flutningstæki í
Samkomuhúsið
Loksins hefur bæjarráð I
samþykkt að festa kaup á
nýjum hljómflutningstækj-
um í Samkomuhúsið. Leik-
húsgestir muna eflaust eftir |
falska garginu í gömlu
tækjunum, sem smaug í
gegnum merg og bein. Er
gert ráð fyrir því að tækin
kosti um 8-900 þús. kr.
Rafveitustjórn
vill hækkun
á töxtum
Stjórn Rafveitu Akureyrar
hefur samþykkt að sækja
um 7.5% hækkun á töxtum
sinum vegna hækkunar á
heildsöluverði frá Laxár-
virkjun. Einnig var sam-
þykkt að sækja um 12%
hækkun þar að auki. með
þessum ráðstöfunum telur
stjórnin sig auka ráðstöf-
unartekjur Rafveitunnar
um 126 millj. kr. Þá var
einnig ákveðið að fækka
gjaldliðum í gjaldskránni.
Samtök
áhugamanna
um áfengis-
vandamálið
Á laugardaginn var hald-
inn í Háskólabíói stofn-
fundur samtaka um áfengis I
vandamálið, en samtökin |
eru ekki hugsuð sem bind-
indisfélag, heldur sem I
styrktarfélag í svipuðu |
formi og önnur styrktarfé-
lög í landinu. Er hér um að I
ræða landssamtök og á Ak-
ureyri stendur nú yfir undir I
skriftasöfnun, sem nokkrir
áhugamenn standa fyrir. [
Með undirskrift sinni lýsa
menn yfir stuðningi viði
samtökin og knýja um leiðl
á stjórnvöld til að skapaj
aðstöðu til að lækna þenn-
án sjúkdóm.
Kynningar-
fundur NLFAI
Kynningar- og útbreiðslu-j
dagur Náttúrulækningafé-j
lags Akureyrar verður hald |
inn sunnudaginn 9. okt.nk. [
í Húsmæðraskóla Akureyrj
ar kl. 3.oo síðdegis. - Mar-
teinn Skaftfells frá Reykja-
vík flytur erindi um holl-J
vörur og ef til vill verðurj
fleira á boðstólum. - Veittj
verður kaffi og te meðj
heimabökuðum kökum ogj
brauði úr heilhveiti. - Sýnd [
ur verður afstöðuuppdrátt-
ur af nýrri lóð fyrir heilsu-1
hæli félagsins við Kjarna-
skóg. Allir velkomnir. -
Stjórn NLFA.
AUGLVSINGASÍMIÍSLENDINGS
215 00
yNANGRUNARGLER
ISPAN HF. • FURUVÖLLUM 5 • AKUREYRI • SIMI (96)21332
íslendingur
Sláturtíðin stendur yfir
Meðalfallþungi 300 dilka frá félagsbúinu í Tunguseli á Langanesi
var yfir 19 kíló, en 80% dilkanna voru tvílembingar
Sauðfjárslátrun hófst á Norðurlandi eystra um miðjan sept-
ember, eins og víðast hvar annarsstaðar á landinu. Alls verð-
ur slátrað um 170 þús. fjár; 62 þús. á Akureyri, Dalvík og
Grenivík, 22.500 á Svalbarðseyri, 47 þús. á Húsavík, 32 þús. á
Kópaskeri og 15 þús. á Þórshöfn. A flestum stöðum hefur
gengið furðu vel að fá fólk til starfa í sláturtíðinni, en uppi-
staðan í þeim mannafla er fólk úr sveitunum. Á Kópaskeri
eru þó 8 manns í vinnu frá Reykjavík ofl. þéttbýlisstöðum, en
að sögn Jóhannesar Þórarinssonar, sláturhússtjóra þar, kem-
ur fólkið til að breyta til, kynnast liýju umhverfl og fólkinu á
staðnum.
Á vegum Kaupfélags Eyfirð-
inga verður slátrað um 62 þús.
fjár; 40 þús. á Akureyri, 7 þús. á
Grenivík og rúmlega 15 þús á
Dalvík. Er það heldur fleira en í
fyrra, að sögn Þórarins Hall-
dórssonar, sláturhússtjóra. Staf
ar það mest af því, að um 1500
fjár frá Ólafsfiri verður slátrað á
Dalvík, en slátrun lögð niður í
Ólafsfirði.
Til stóð að slátra ekki í slátur-
húsinu á Grenivík, sem er orðið
gamalt, en undanþága fékkst
fyrir starfsemi þess í ár amk. Þar
er slátrað um 300 fjár á dag, en
sláturafurðunum er ekið til fryst
ingar á Akureyri í bíl, sem sér-
staklega er innréttaður til þeirra
flutninga. Það kom einnig fram
í viðtalinu við Þórarinn, að að-
kallandi er orðið, að byggja nýtt
sláturhús á Akureyri, sem upp-
fyllti þær kröfur, sem nú eru
gerðar til sláturhúsa, en gamla
húsið er ekki í takt við tímann. -
Þrátt fyrir þetta hafa afurðir
okkar líkað mjög vel og hafa
staðist gæðamat í sambandi við
útflutning, sagði Þórarinn.
- Það vinna um 120 manns
hérna núna, en ég gæti trúað að
það sé um 5 sinnum fleira fólk,
en hér vinnur dagsdaglega utan
sláturtíðar. það hefur tekist
furðanlega að fá starfsfólk og
mikið er það sama fólkið, sem
kemur ár eftir ár. Það er líka
mikið atriði fyrir okkur að fá
vant fólk, sérstaklega við slátr-
unina sjálfa, sagði Þórarinn að
lokum.
• 22.500 íjár verður slátrað á
Svalbarðseyri
Að sögn Karls Gunnlaugsson
ar, kaupfélagsstjóra á Sval-
barðseyri, verður slátrað um
22.500 fjár á sláturhúsinu þar.
Er það fé af Svalbarðsströnd,
hluta Höfðahverfis, Fnjóska-
dal, hluta Bárðardals og Kinn-
ar. Sagðist Karl reikna með að
sauðQárslátrun yrði lokið um
25. október, en þá tæki stór-
gripaslátrunin við. Um 100
manns vinna hjá Kaupfélagi
Svalbarðseyrar á meðan slátur-
tíðin stendur yfir, en það er um
helmingi fleira fólk, en starfar
þar þess utan.
• „Sláturhúsið hraðar hendur"
á Húsavík
1970 var tekið í notkun nýtt
sláturhús á Húsavík með svo-
kölluðu færibandafyrirkomu-
lagi, Er sláturhúsið mjög
afkastamikið, en þar er slátrað
um 2.000 íjár á dag, að sögn
Benonýs Árnórssonar, verk-
Clenjspeglon.
stjóra þar. Er áætlað að slátra
um 47 þúsund fjár í haust og á
því að ljúka 15. október. Um
130 manns vinna við slátur-
húsið.
• Reykvíkingar aðstoða við
slátrun á Kópaskeri
Á Kópaskeritalaði blaðamað
ur íslendings við Jóhannes Þór-
arinsson, sláturhússtjóra þar.
Hann sagði, að þar yrði slátrað
nákvæmlega 32.468 fjár, sem
yrði líklega lokið í kringum 20.
oktober. Þar er slátrað fé úr
Kelduhverfi, Axarfirði og aust-
an af Sléttu.
- Slátrunin hefur gengið
nokkuð vel, sagði Jóhannes, en
heldur erfiðlega gekk að fá fólk
til starfa. Kópasker er lítið þorp
og uppistaðan í mannskapnum
er sveitafólkið. Svo eru hér um 8
manns frá Reykjavík, Sand--
gerði og fleiri stöðum, sem hafa
viljað breyta um umhverfi og
kynnast nýju fólki. Jóhannes
sagði að meðalvigtin væri svip-
uð og undanfarin ár, það sem af
væri, þó væri hún ívið lægri.
Framhald á bls. 6
Eirikur Guðmundsson sagar niður
kjötskrokkana fyrir þá, sem kaupa
þá á sláturhúsinu.
Það er betra fyrir fláningsmennina að vera vel handsterka.
Nú er að fylla
frystikisturnar
Fólki eindregið ráðlagt að draga ekki
sláturkaupin fram á síðustu stundu
Slátursala stendur yfir hjá
siáturhúsunum, samfara slát-
urtíðinni, eins og venja er.
Verð á slátri með verkuðum
vömbum, vélindiskepp, sviðn-
um haus og mör er 1100 kr. hjá
öllum sláturhúsunum áaustan
verðu Norðurlandi, sem blað-
ið taiaði við. ffó er það talsvert
ódýrara á Þórshöfn, en þar eru
hausarnir ekki sviðnir og
vambirnar ekki verkaðar. Auk
þess fylgja sviðnar fætur hjá
kaupfélaginu á Svalbarðseyri
og ef til vill víðar.
Þórarinn Halldórsson hjá
sláturhúsi KEA á Akureyri,
sagðist eindregið vilja hvetja
fólk til að bíða ekki með að
taka slátrin, þar til á síðustu
stundu, til að forðast örtröð
síðustu sláturdagana. Sagði
Þórarinn að slátursalan hefði
farið hægt af stað, en það hafi
verið venjan á undanförnum
árum. ÞávildiÞórarinneinnig
benda fólki á að allar upplýs-
ingar um slátursöluna væri
hægt að fá í síma 23556.
Þá er kjötsalan einnig í
fullum gangi, en maður þarf
að borga 9 krónum minna
fyrir hvert kg. út af sláturhúsi,
en maður þarf að borga í búð.
Kostar 1. verðflokkur 817 kr.,
en 2. verðflokkur 754 kr. Eru
það margir, sem kaupa frekar
2. verðflokk, sérstaklega þeir
sem vilja ekki mikla fitu, en
þeir skrokkar eru yfirleitt
minni og magrari.
GARDÍNUBRAUTIR
Tréstangir og allir fylgihlutir
Ibúðin, Tryggvabraut 22