Íslendingur


Íslendingur - 13.06.1978, Side 1

Íslendingur - 13.06.1978, Side 1
22. TÖLUBLAÐ . 63. ÁRGANGUR . AKUREYRI . ÞRIÐJUDAGINN 13. JÚNÍ 1978 VÖRUSALAN SR • HAFNARSTRÆTl 104-AKUREVRI * VERZLAR í' VÖRUSÖLUNNI 'fcS----- -------------- I fyrramálið kemur fjölmennur norskur blandaður kór, „Vinjes songlag", í heimsókn til Akureyrar, en kórinn mun síðan dvelja á Norð- urlandi í fjóra daga. Með kórnum eru undirleikarar, þjóðdansaflokk- ur og einsöngvarar. Það eru fjögur kvenfélagasam- bönd, sem standa að heimsókninni og annast móttökurnar, hvert á sínu svæði. Fyrsta söngskemmtun kórsins verður á Dalvík annað kvöld. 15. júní syngur kórinn að Breiðumýri og 16. júní í Míðgarði í Skagafirði. Allar söngskemmtan- irnar hefjast kL 9 og verður að- gangur seldur á kr. 1.500. 17. júní verður kórinn síðan á Akúreyri og syngur þar í sambandi við þjóð- hátíðardagskrána. Daginn eftir fer hann síðan til Reykjavíkur, þarsem kórinn dvelur í 2 daga. i ■ I ■ I ■ I I ■ I ■ I i ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ ; Hestamannafél ögin við Eyjafj örð: Léttir, Akureyri, Funi, Eyjafirði, og Þráinn, Grenivík, gengust fyrir hestamannamóti á Melgerðismelum um helgina. Tókst mótið framar vonum, þrátt fyrir aftakaveður, rok og rigningu, fyrra dag | mótsins. En blíðuveður á sunnudaginn bjargaði málunum og þá tókst að ljúka í mótinu. Myndin er af seinni sprettinum í 250 m skeiði. Það er Matthías Eiðs- son, sem er á Hrímni nær á myndinni, en þeir lentu í 2. sæti á einu sekúndubroti | lakari tíma en Hremsa og Sævar Pálsson, sem eru fjær á myndinni. Nánar verður sagt frá mótinu í næsta blaði. Norskur kór í heimsókn Iðnskólanum slitið: 92 braut- skráðust Jón Sigurgeirsson lœtur a fskólastjórn 92 iðnnemar brautskráðust frá Iðn- skólanum á Akureyri þegar skól- anum var slitið 30. maí sl., en í vetur stunduðu 253 nemendur nám við skólann, þar af 9 konur. Kennt var í 15 bekkjardeildum og í vetur stunduðu konur í fyrsta skipti nám í Iréiðnadeild og bifvélavirkjun. Jón Sigurgeirsson, sem starfað hefur í 28 ár við skólann, þar af 26 ár sem skólastjóri, lætur nú af st örfum við skólann, eftir mikið og heilladrjúgt starf. Við skólaslitin töluðu Halldór Arason, formaður skólanefndar Iðnskólans, og Skúli Magnússon, kennari. Þökkuðu þeir Jóni ötula forystu og ánægjulegt samstarf og Skúli færði honum málverk að gjöf frá samkennurum. Það kom fram í ræðu skólastjór- ans við skólaslitin, að fastráðnir kennarar við skólann í vetur voru 12, auk skólastjóra, og 15 stunda- kennara. Kennt var í 15 iðngrein- um. Langflestir nemendur voru í húsasmíði, 51, en næstirogjafnfjöl- mennir voru bifvélavirkjar, ketil- og plötusmiðir og rafvirkjar, 21 í hverri grein. 35 m. kr. rekstrarafgangur Bókfœrður stofhkostnaður félagsins á árinu nam 561 m. kr. Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga var haldinn á Akureyri sl. f östudag og laugardag. Rétt til fundarsetu h öfðu 228 fulitrúar frá 25 félags- deildum. Af þeim mættu 220 frá 22 deildum. Auk þess sátu að venju margir starfsmenn félagsins og ýmsir félagsmenn fundinn. - I skýrslu Vals Arn þórssonar, kaup- félagsstjóra, kom fram, að rekstur félagsins hafði gengið vel á sl. ári. Heildarvelta jókst um 180 millj. kr. Rekstrarafgangur til ráðstöfunar á aðalfundi var 35.6 millj. kr. Formaður félagsins, Hjörtur E. Þórarinsson, Tjörn, minntist lát- inna félagsmanna og starfsmanna Kaupfélagsins og vottuðu fundar- menn þeim virðingu sína og þökk með því að rísa úr sætum. Síðar flutti formaður skýrslu stjórnar- innar fyrir liðið ár. Þar kom m.a. fram, að fjárfestingar félagsins á liðnu ári höfðu numið 355 milljón- um króna í fasteignum, vélum o.fl. Auk þess voru nú færð til stofn- kostnaðar vélakaup undangeng- inna ára vegna nýju mjólkurstöðv- arinnar, 206 millj. króna, þannigað bókfærður stofnkostnaður félags- ins á árinu var alls 561 millj. króna. Kaupfélagsstjórinn, Valur Arn- þórsson, las reikninga félagsins og gerði grein fyrir rekstri þess. Heild- arvelta félagsins og fyrirtækja þess jókst um 43.2% frá fyrra ári, eða úr 11.8 milljörðum króna í tæplega 16.9 milljarða króna. Heildarlauna greiðslur félagsins og fyrirtækja þess á s.l. ári námu röskum 1.9 milljarði króna, en fastir starfs- menn í árslok voru 788. Til ráðstöfunar á aðalfundi var rekstrarafgangur að upphæð 35.6 milljónir króna, en fjármunamynd- un ársins var alls u.þ.b. 180 millj. krófta. Aðalfundurinn samþykkti, pð úthluta og leggja í stofnsjóð félagsmanna 3% af ágóðaskyldri út^ekt þeirra 1977 og að leggja skyldi 4 milljónir króna af rekstrar- Skjaldhamrar í Samkomu húsínu í tilefni Listahátíðar hefur Leik- félag Reykjavíkur boðið Leikfé- lagi Akureyrar að sýna í Iðnó og var fyrsta sýningin á sunnudaginn á Galdralandi eftir Baldur Georgs. I kvöld verður sýning á Hunangsilmi og eru fyrirhugaðar 3-4 sýningar á því verki. En þetta verður gagn- kvæm heimsókn, því um helgina kemur leikhópur frá Leikfélagi Reykjavíkur til Akureyrar og sýnir Skjaldhamra Jónasar Árnasonar í Samkomuhúsinu. Verður fyrsta sýningin á sunnudaginn, en sú síð- asta 24. júní. Skjaldhamrar hafa slegið öll fyrri sýningarmet hjá Leik félagi Reykjavíkur og er þetta 3. leikárið, sem verkið er í sýningu hjá félaginu. Einnig hefur verkið verið sýnt hjá áhugamannafélögum víðs vegar um land, í Ólafsfirði, Húsa- vík, Skagaströnd, Bíldudal og ef- laust víðar. afgangi í Menningarsjóð KEA að meðtöldum tekjuafgangi frá Efna- gerðinni Flóru. Ennfremur sam- þykkti fundurinn að úthluta og greiða út 4% arð af úttekt félags- manna í Stjörnu Apóteki. í skýrslu Menningarsjóðs KEA kom fram, að úthlutað hafði verið 8 styrkjum að upphæð samtals 1.4 millj. króna á nýafstöðnum fundi sjóðsstjórnarinnar. Voru styrkirn- ir veittir ýmsum aðilum, einstakl- ingum og félögum á félagssvæði KEA. Stjórn félagsins var öll endur- kjörin. Fjórði bekkur var nú kenndur við skólann í síðasta sinn sam- kvæmt gamla kerfinu. Brautskráð- ust úr honum 58 nemendur og nokkrir eiga ólokið einstökum námsgreinum. Hæstu einkunn hlutu Vigfús Sigurðsson, húsa- smiður, 9.12, sem er ágætiseink- unn, og Skarphéðinn Sigtryggsson, bifvélavirki, 8.72. Einnig brautskráðust nú í fyrsta sinn 34 nemendur úr 3. áfanga nýja kerfisins. Hæstu einkunn þarhlutu Hringur Hreinsson, húsasmiðurog Kristján Jóhannesson, vélvirki, báð ir með 8.8. Framhald á bls. 7. Stefán gagnrýnir eigin ríkisstjórnir f rammaklausu á forsíðu Dags getur að líta dæmigerða fram- sóknarr ökfræði sem Stefán Valgeirsson bregður stundum fyrir sig. Þar er reynt að láta líta svo út að núverandi fjár- málaráðherra og ef til vill for- sætisráðherra beri einir ábyrgð á ríkisbúskapnum frá því núverandi ríkisstjórn var mynduð! Sjálfstæðismenn hafa aldrei sagt að öll skuld ríkissjóðs, sem hann er í við Seðlabank- ann hafi myndast í tíð vinstri stjórnarinnar. Þeir hafa sagt eins og satt er að TVÖ Síð- USTU ÁRIN hafi tekizt að rétta ríkisbúskapinn við og ríkissjóður rekinn með þolan- legri afkomu, þrátt fyrir ýmsa aukapinkla sem á hann hafa verið lagðir utan fjárlaga, t.d. í tengslum við kjarasamninga. Skuld ríkissjóðs við Seðla- bankann var orðin 4187 millj. króna í árslok 1974. Þetta jafngildir 13-14 milljörðum króna á núverandi verðlagi. Vitanlega stafaði þessi skuld algjörlega af ráðslagi vinstri stjórnarinnar því ríkisbú skapnum er ekki unnt að kippa í liðinn á nokkrum mán- uðum. Það er rétt hjá Stefáni að ekki tókst heldur að reka ríkissjóð hallalaust á árinu 1975. Ástæðan fyrir því ætti ekki að dyljast Stefáni Val- geirssyni sem stjórnarþing- manni. Áföll þjóðarbúsins af völdum olíukreppu og versn- andi viðskiptakjörum komu þungt niður á ríkiskassanum. Valið stóð á milli samdráttar og atvinnuleysis eða reka ríkis sjóð með halla. Á árinu 1976 og 1977 tókst samt að jafna metin betur. Þetta er í hnot- skurn það sem Sjálfstæðis- menn hafa að segja um þetta mál. Niðurstaða: Stefán Valgeirs son ber fulla ábyrgð á skulda- söfnun ríkissjóðs bæði í vinstri stjórn og stjórn Geirs Hall- grímssonar. Hann studdi báð- ar ríkisstjórnirnar og ráðherra Framsóknarflokksins í þeim báðum. Honumláhinsvegará að koma höggi á núverandi samherja sína. Þess vegna sást hann ekki fyrir. Um hann má segja: „Ekki sér hann sína menn . . . svo hann ber þá líka!“ KIÖRBUD !Bj)£IQftE>áI HF 2-3802 3*19810 KAUPANGI STÆRRI BÚD MEIRA VÖRUVAL - BETRI ÞJÓNUSTA

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.