Íslendingur


Íslendingur - 13.06.1978, Blaðsíða 6

Íslendingur - 13.06.1978, Blaðsíða 6
) ...íþrðttir•.,umsjon: Einar Pálmi árnason...íþrðttir... Þórsarar töpuðu stigi á Neskaupstað Gerðu j afntefli við Þrottarana Verða að taka sig á ef þeir œtla að endurvinna sœti í l.deild Annarardeildarlið Þórs í knattspyrnu lék sinn fimmta leik í Islandsmótinu í knatt- spyrnu á föstudagskv öldið er þeir léku við lið Þróttar á Neskaupstað. Ekki voru liðn- ar nema tvær mínútur af leiknum er Þórsarar höfðu tekið forystu með marki Sigurðar Lárussonar úr víta- spyrnu. Þrátt fyrir þessa úskabyrjun Þórsara voru það heimamenn sem stöðugt sóttu í fyrri hálf- leiknum og uppskáru laun erfiði síns er þjálfari þeirra Helgi Ragnarsson jafnaði metin, og er flautað var til leikhlés máttu Þórsarar vel við una. I síðari hálfleiknum snérist dæmið við og voru það nú Þórsarar sem réðu gangi mála, en þrátt fyrir nær stanslausa pressu vildi boltinn ekki inn og endaði leikurinn því með jafntefli eitt mark gegn einu. Þórsarar hafa nú hlotið fjögur stig úr fimm leikjum, og þau öll á útivelli. Ef lið Þórs ætlar sér að endur- heimta sæti sitt í fyrstu deild getur þetta varla talist nægielga góð byrjun. Helsta vandamál þeirra nú virðist vera að gera mörk, en úr þessum fimm leikjum hafa þeir aðeins gert þrjú mörk, þar af tvö úr vítaspyrnum. Sigurður Lárusson skoraði eina mark Þórs. Vormóti yngri flokkanna lokið - Þórsarar sigursœlir - er árangur Þrastar að koma í Ijós? Nú að undanförnu hafa staðið yfir leikir í Vormóti knattspyrnu félaganna og er keppni aðeins ólokið í tveimur flokkum, öðr- um fl. karla og í kvennaflokki. Ef litið er á úrslit þeirra leikja, sem búnir eru, kemur glögglega í ljós að lið Þórs í yngri flokkunum er mun sterkara en lið KA. Samúel Jóhannsson er sá maður er hvað mest veit um mál þessi, og var hann að því spurður hvað það raunverulega væri sem Þórsarar gætu þakkað velgengni sinni. Taldi Samúel að störf Þrastar Guðjónssonar væru nú að skila sér í ríkari mæli en nokkru sinni fyrr, en eins og flestir vita hefur Þröstur meira og minna þjálfað flesta yngri flokka Þórs undan- farin ár. Varðandi aðstöðumun félaganna sagði Samúel að ekki væri sá munur á aðstöðunni að bitnað gæti á leikjum liðanna. Það var því niðurstaða þessa stutta viðtals að þjálfari þessara stráka, Þröstur Guðjónsson, ætti þarna mestan heiðuraf.. En lítum þá á úrslit þeirra leikja sem lokið er. Allir þessir leikir fóru fram á Þórsvell- inum. 6. flokkur: Þór-KA A. 5-0. Þór-KA B. 4-0. Þér~KA C. 5-0. 5. flokkur. Þór-KA A. 2-1. Þór-KA B. 2-0. 4. flokkur. Þór-KA A. 4-1. Þór-KA B. 0-2. 3. flokkur. Þór-KA 2-2. 1. flokkur. Þór-KA 3-1. Þröstur Guðjónsson. Verða engar v ín- veitingar? Vorþing Þingstúku Eyjafjarðar haldið sunnud. 7. maí 1978, skorar á þá fulltrúa sem ná kosn ingu til bæjarstjórnar Akureyr- ar í komandi kosningum að af- nema með öllu vínveitingar á vegum bæjarins og stofnan hans. íslandsmót yngrí flokka - Þór keppti á Húsavík, en KA fékk Siglfirðinga í heimsókn Annar tlokkur Þórs lék sinn fyrsta leik í fslandsmótinu við lið Breiðabliks úr Kópa- vogi. Leikið var hér heima og máttu Þórsarar þola tap 2-0. Þórsarar héldu svo austur á Húsavík nú um helgina og léku þar við heimamenn í ís- landsmótinu (Norðurlands- riðli). Úrslit urðu þessi: 5. flokkur: Völsungur4*ór 3-2. 4. fkikkur: Völsungur-þór 3-2. 4. flokkur: Völsungur-Þór 4-4. Á sama tíma fengu KA- menn Siglfirðinga í heim- sókn i sama móti og urðu úrslit þeirra leikja þessi: 5. flokkur: KA-KS 7-0. 4. flokkur: KA-KS 4-0. 3. flokkur: KA-KS 1-0 NÆSTU LEIKIR f kvöld, priðjudagskv öld, fer fram hér einn leikur í bikar- keppni K.S.Í., er það viður- eign Þórs við lið H.S.Þ. Næsta dag, miðvikudag, leika KA- menn við Keflvíkinga í Kefla- vík. Sá leikur er liður í keppni íslandsmótsins í 1. deild. Á föstudag leika svo Þórsarar við Ármenninga hér heima í íslandsmótinu. Á sunnudag gæti svo orðið fyrsti leikur KA hér heima, en þá (ef veður leyfir) eiga Vestmannaeyingar að koma í heimsókn. Engín stórmót - en hreyflngin er aðalatriðið - segir Júlíana Tryggvadóttir, formað- ur íþróttafélags fatlaðra á Akureyri Vetrarstarfi í þróttafélags fatlaðra er nú lokið. Var starfsemi félagsins með iíku sniði og verið hefur. Voru æfingar tvisvar í viku og auk þess sundæfingar einu sinni í viku. Ovrmót var haldið að venju og keppt í Boccia, borðtennis og bogfimi. Félagið er aðili að ÍBA og ÍSI og fær styrki þaðan. - Eg vil geta þess, að félagið er öllum opið, sem við einhverja fötlun eiga að stríða um lengri eða skemmri tíma, svo og áhugafólki um íþróttir fatlaðra, sagði Júlíana Tryggvadóttir, formaður félagsins í viðtali við blaðið. - Á þessum æfingum okkar er ekki endilega verið að hugsa um einhver stórmót, sagði Júlíana, heldur er það hreyfingin, sem skiptir máli og allir hafa gott af. Enginn þarf heldur að gera meira en hann vill. Þá eru tillögur um nýjar íþróttagreinar vel þegnar. Þá gat Júlíana þess, að félaginu hafi vorist margar góðar gjafir á árinu. Lionsklúbburinn Hængur gaf félaginu 1 milljín kr. og Lionsklúbburinn Huginn 100 þús. Bað Júlíana fyrir þakkarkveðjur til félaga þeirra, svo og allra þeirra, sem lagt hafa félaginu lið með vinnu og fjárframlögum. Þjálfarar félagsins í vetur hafa verið sem fyrr ÞrösturGuðjónsson, íþróttakennari og Magnús H. Ólafs son, sjúkraþjálfari. Starfsemi félags ins hefst afutr í september en þeir sem vilja fá nánari upplýsingar um félagsskapinn og starfið næsta vetur geta hringt í síma 21186 út þennan mánuð. Bingóvinningur KA Nýlega var afhentur bingóvinningur í Blaðabingói Knatt- spyrnudeildar KA. Vinningur í bingóinu var FERGUSON LITASJÓNVARP frá Radíoverslun Axels og Einars í Kaup- angi. Á myndinni sjást vinningshafi: Gunnborg Gunnars- dóttir og Sigríður Olgeorsdóttir, en þær skiptu með sér vinningnum. Á milli þeirra er Siguróli Sigurðsson frá knatl* spyrnudeildinni. Verðlaunaafhendingin fór fram í Radío- verslun Axels og Einars. 6 - ISLENDINGUR

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.