Íslendingur - 15.08.1978, Blaðsíða 8
Minningar-
leikurinn
í kvöld
Árlegur minningarleikur
um Jakob heitinn Jakobs-
son fer fram á grasvellinum
á Akureyri annað kvöld,
miðvikudagskvöld, og
hefst hann kl. 8. Það eru
Akurnesingar, sem koma
norður og leika við KA.
Akurnesingar eru með eitt
sterkasta lið landsins um
þessar mundir, eru í 2. sæti
1. deildar og komnir í úrslit
í Bikarnum. KA varð að
sætta sig við stórt tap gegn
Skagamönnum í heimaleik
sínum í 1. deildinni og hafa
eflaust fullan hug á því að
hefna þeirra ófara. Tekjur
af leiknum renna í Minn-
ingarsjóð Jakobs Jakobs-
sonar, sem er ætlaður til að
styrkja íþróttamenn. Sl. ár I
var einn styrkur veittur úr
sjóðnum, til Karls Frí-1
mannssonar, skíðamanns,
að upphæð 50 þús. kr. Var j
það eina umsóknin, sem
sjóðsstjórninni barst.
Nætursala í
Esso-nesti
Fins og áður hefur komið
fram í íslendingi, þá hafa
(iísli Jónsson, f.h. Ferða-
skrifstofu Akureyrar, og
Hótel Akureyri, sótt um
nætursölu í miðbænum á
Akureyri. Nú hefur Höld-
ur s.f. einnig sótt um leyfi til
nætursölu í einhverju Esso-
nestanna, sem eru Bíla-1
þjónustan. 'Fryggvabraut
14. Veganesti við Hörgár-1
braut og Krókeyrarstöðin.
Bæjarráð hefur oröið við
erindinu. að uppfylltum
nauðsynlegum skilyrðum.
Kveðja
Akureyri
F.ltir sex ára samfellt starf sem
deildarstjórar fyrir ísland og
Færeyjar. hafa brigaderarnir
Ingibjörg Jónsdóttir og Óskar
Jónsson fengið kveðjuskipun,
og hafa af Hjálpræðishernum
lengið skipun til Hamar í Nor-
egi. þar sem þau munu hafa
yfirumsjón með 19 flokkum.
Af þessu tilefni koma þau tii
Akureyrar fimmtudag 17.
ágúst. og verður kveðjusam-
koma haldin í Zíon (sjá aug-
lýsingu annars staðar í blað-
inu).
Það eru mikil og stór verk-
efni sem bíða þeirra, en
revnsla þeirra frá starfinu á ís-
landi, ásamt margra ára starfi í
Noregi, kemur þeim að góðum
notum. Flokkar, líknarstörf,
stofnanir og fangelsi hafa ver-
ið þeirra starfssvið, og þetta
allt er þeim mikil stoð fyrir
verkefni þeirra sem þau nú
eiga að vinna fyrir Guðs ríki.
Við væntum þess að sem
flestir komi í Zíon næsta
fimmtudag til að óska þeim
góðrar ferðar og blessunar-
ríkra ára í Noregi.
Um leið nefnum við að í
þeirra stað eru norsk hjón,
l.illy og Gudmund Lund,
komin til Reykjavíkur, og
munu þau verða boðin vel-
komin til Akureyrar seinna í
htiust.
AMR/HJ
Lögfræðiþjónusta
Benedikt Ólafsson hdl.
Hafnarstræti 94 - Simi 24602.
EtN?NGRUNARGUR
ISPAN HF. • FURUVÖLLUM 5 • AKUREYRI • SÍMI (96)21332
íslendingur
BUaklúbbiir Akureyrar efndi ti! hópaksturs
Vilja bæta
umferðar-
menninguna
- En þeir telja hana á lágu stigi í baenum
Bifreiðaklúbbur Akureyrar efndi nýlega til hópaksturs um götur
Akureyrar og tóku um 35 bflar af ýmsum gerðum þátt í akstrinum.
Var hópaksturinn farinn til að vekja athygli á klúbbnum og þörfum
hans fyrir landssvæði fyrir starfsemina, eða eins og Páll
Kristjánsson, formaður klúbbsins, sagði í viðtali við blaðið: Við
teljum það minnka slysahættuna í bænum, ef við fáum afmarkað
svæði fyrir starfsemi okkar. Þar geta félagar klúbbsins reynt tæki
sín án þess að valda slysahættu.
Bifreiðaklúbbur Akureyrar
var stofnaður 27. maí 1974 og
eru félagar orðnir 85. Það er
mesti misskilningur að menn
þurfi að eiga „átta gata tæki“ til
að fá inngöngu í klúbbinn, því
hann er opinn öllum bíleigend-
um, að sögn Páls.
Það hefur líka verið eitt af
meginverkefnum klúbbsins, að
dytta að gömlum bilum og
árlega hafa klúbbfélagar haldið
bílasýningu 17. júní. Þar hafa
verið sýndir bílar af ýmsum
gerðum og tegundum, en mesta
athygli hafa gömlu bílarnir
jafnan vakið. Hins vegar gat
Páll þess, að afturkippur hefði
orðíð á viðgerðum á gömlum
bílum á vegum klúbbsins, því
þeir hafi misst húsnæðið fyrir
verkstæðið. Það er brýnt fyrir
klúbbinn, að koma sér upp
húsnæði, en það verður ekki
hægt fyrr en landsvæði er
fengið. Sagðist Páll vongóður
Þeir voru af ýmsum gerðum og stærðum bílarnir í hópakstrinum.
um að úr þessu rættist, en málið
er í athugun hjá ráðamönnum
bæjarins. Hafa ýmis svæði
komið til greina, t.d. uppi á
Glerárdal, en ekkert hefur enn
verið ákveðið.
En á meðan Akureyrarbær
getur ekki séð af bletti undir
starfsemi Bílaklúbbsins, verður
hann að leita lengra til eftir
aðstöðu fyrir starfsemina. 27.
ágúst nk. er fyrirhuguð sand-
spyrnukeppni út á Dalvík. Þar
er gert ráð fyrir mörgum
keppendum víðsvegar að og
verður keppt í jeppaflokki,
fólksbíla og mótorhjólaflokk-
um. Einnig er fyrirhuguð tor-
færukeppni fyrstu helgina í
næsta niánuði.
Okkur í Bílaklúbbi Akureyr-
ar hryllir við þeirri slysaaukn-
ingu, sem orðið hefur á undan-
förnurn árum. Við viljum því
hvetja sem flesta, sérstaklega
unga fólkið, til að starfa með
okkurog stuðla að bættri um-
ferðarmenningu í bænum, en
hún er á mjög lágu stigi, sagði
Páll að lokum.
Hljómsveitir Tónlistar-
skólans á A kureyri
halda utan:
Tónleikar í
Akur-
eyrarkirkju
Um mánaðamótin halda hljóm-
sveitir Tónlistarskólans á Akur-
eyri í hljómleika- og kynningar-
ferð til vinabæja Akureyrar í
Noregi og Danmörku, Randers og
Alasunds. Til að kynna bæjarbúum
starf sitt og afla um leið fjár í ferða-
sjóð, halda hljómsvcitirnar tón-
leika í Akureyrarkirkju fimmtu-
daginn 17. og mánudaginn 21. þ.m.
kl. 20.30.
Á fyrri tónleikunum kemur eink-
um fram lúðrasveit skólans, ásamt
einleikurum á trompet og blokk-
flautur með strengjaundirleik. Á
síðari tónleikunum leikur blönduð
sveit og strengjasveit. Auk þess
verður orgelleikur á báðum hljóm-
leikunum. Á efnisskránni verða
sígild lög. létt tónlist, íslensk og er-
lend þjóðlög ofl.
Með tónleikunum vilja hljóm-
sveitirnar kynna starf sitt, en von-
ast einnig til að geta aflað nokkurs
fjár í ferðasjóð sinn, því um mán-
aðamótin halda þær í hljómleika-
og kynningarferð til vinabæja Ak-
ureyrar, Álasunds í Noregi og
Randers í Danmörku. Verða heim-
sóttir tóniistarskólar bæjanna og
tekið þátt í samleik nieð nemendum
þeirra.
Undirbúningur fyrir ferðina hef-
ur staðið í tæpt ár. Hafa meðlimir
hljómsveitanna, aðstandendur
þeirra og kennarar skólans, lagt á
sig ómælda vinnu til að allt mætti
takast sem best. Hafa æfingar ver-
ið a.m.k. tvisvar í viku ísumar. Það
er því ljóst að meðlimir hljómsvfeit-
anna hafa iagt kapp á að vera sem
best fyrir ferðina búnir. Eflaust
verða hljómsveitirnar verðugir full-
trúar Akureyrar á erlendri grund og
því ekki nema sanngjarnt, að Akur-
eyringar og bæjargestir fjölmenni
til tónleikanna.
1
GARDINUBRAUTIR
TRÉSTAIMGIR og allir fylgihlutir
Ibúðin, Tryggvabraut 22
liðið og Þorberg Atlason vin-
sælasta knattspyrnumanninn.
I verslun Brynjólfs Sveins-
sonar hf. er mikið vöruval en
þó lét Gunnar þess getið að
mikið af sumarvörunum væri
gengið til þurrðar. Meðal vöru
tegunda má nefna útbúnað
fyrir veiðimanninn, ýmiskon-
ar viðlegubúnað, t.d. útigrill,
hestamenn geta fengið ýmis-
legt við sitt hæfi, ökutæki fyr-
ir yngstu borgarana fást hjá
Brynjólfi, t.d. barnavagnar og
kerrur og bílstólar, svo nokk-
uð sé nefnt. Einnig má geta
þess að verslunin er með skíða
vörur yfir vetrartímann.
Þá er eftir að draga út tvo
vinningshafa í vinsældarkjör-
inu, sem fá 15.000 kr. úttekt í
Amaro og Vöruhúsi KEA.
Verða vinningshafarnir kynnt
ir í tveim fyrstu blöðum eftir
sumarfrí, en síðan verða úrslit-
in í vinsældarkjörinu kynnt.
Birtum við þá stórár myndiraf
þrem efstu Iiðunum og þrem
vinsælustu knattspyrnumönn-
unum. Vinsælasta liðinu og
vinsælasta knattspyrnumann-
inum verða síðan aÖientir verð
launagripir til varðveislu
næsta árið.
Hér dregur Gunnar Árnason úr atkvæðaseðlunum.
- Já, ég held ég kannist nú við
hana Hermínu, hún var einu
sinni afgreiðslustúlka hérna í
búðinni, sagði Gunnar Árna-
son í verslun Brynjólfs Sveins-
sonar hf., er hann hafði dregið
út þriðja vinningshafann í vin-
sældarkjöri Islendings um vín-
sælasta knattspyrnuliðið og
vinsælasta knattspyrnumann-
inn. Hann dró út nafn Her-
mínu Stefánsdóttur, Ægis-
götu 14, og getur hún snúið sér
til verslunarinnar og tekið út
vörur að verðmæti kr. 15.000.
Hermína kaus KA vinsælasta
Þriðji vinningshafinn í vinsœldarkjöri íslendings
Hermína kaus
Þorberg og KA