Íslendingur


Íslendingur - 01.04.1981, Side 1

Íslendingur - 01.04.1981, Side 1
r Vinnuvikan á „Heklu“ stytt í 4 daga Minni sala og lagersöfnun I Flugvöllurinn í Ólafsfirði hefur komið í góðar þarfír mcðan Múlinn var lokaður. Ljósm.: H. Hansen. Bergþór Konráðsson, hjá Iðn- aðardeild Sambandsins, tjáði blaðinu að nú væri ákveðið að hverfa til fjögurra daga vinnu- viku í vinnufatadeild sauma- stofunnar „Heklu“. Verður þá lögð niður vinna á föstudögum. Það sem þessu veldur, sagði Bergþór, að væri minnkandi sala og lagersöfnun af þeim 1DAG • Fjallað er um frumsýn- ingu L.M.A. á „Er á meðan er“ í opnu. • / opnu rœðir Sigurður J. Sigurðsson um fjár- hagsáœtlun A kureyrar fyrir árið 1981. • Halldór Blöndal skrifar leiðarann, þar sem hann gerir úttekt á sfefnu nú- verandi ríkisstjórnar. • íþróttir eru á bls. 6 og þar m.a. skrifað um leik KA og Týs í handbolta og Hermannsmótið á skíð- um. völdum. Þá sagði hann að einnig kæmi það til að með auk- inni hagræðingu hefði fram- leiðslan aukist og stóðu menn þá frammi fyrir þeim vanda að þurfa að segja upp einhverju af starfsliðinu. í þess stað var rætt við „Iðju“ og síðan starfsfólkið, sem tók þessari breytingu vel og taldi betra, en að einhverjir misstu atvinnuna. Þá taldi Bergþór að þetta hentaði rekstrinum mun betur þar sem hér væri um þjálfað starfsfólk að ræða auk þess sem ákveðin ,,framieiðslukeðja“ væri viðhöfð og því slæmt ef einhverjir hlekkir hyrfu þar úr. Þessi tilhögun hefst nú um mánaðamótin og er gert ráð fyrir að þetta fyrirkomulag verði að minnsta kosti í apríl og maí en síðan verður málið skoð- að á ný og kæmu þá til tveir kostir annað hvort að stytta vinnuvikuna enn eða ef bjartara verður framundan að færa aftur til fyrra fyrirkomulags. Fjárhagsáætlun Húsavíkur afgreidd tíl síðari umræðu Fjárhagsáætlun Húsavíkur- kaupstaðar var afgreidd til síð- ari umræðu á bæjarstjörnar- fundi fimmtudaginn 26. mars s.l. Heildartekjur bæjarins eru áætlaðar rúmar 15 milljónir og er hækkunin frá áætlun fyrra árs 56.4%. Stærsti tekjuliður áætlunarinnar eru útsvör sem nema rúmum 8 milljónum, en áætlunin miðar að fullnýtingu útsvarsheimildar, það er 12.1%. Rekstrarkostnaður er áætlaður tæpar 12 milljónir og er hækk- unin 60.4% frá áætlun 1980. Stærstu útgjaldaliðir eru al- mannatryggingar og félagshjálp 2.5 milljónir, fræðslumál 1.8 milljónir og yfirstjórn kaup- staðarins 1.4 milljónir. Fjárfestingar eru áætlaðar rúmlega 11 milljónir og eru helstu framkvæmdaliðir götur og holræsi, og er þá m.a. stefnt að lagningu bundins slitlags á rúmlega tvo km af götum kaup- staðarins. Byggingafram- kvæmdir eru áætlaðar fyrir 3.5 milljónir og eru stærstu liðir bygging leigu- og söluíbúða og framkvæmdir við nýbyggingu íþróttahúss. Fjárfestingar vegna atvinnumála nema 2.7 milljónum. Helstu liðir þar eru framkvæmdir við dráttarbraut og framlag til togarakaupa. Eignarhlutar ýmiss konar nema 715 þúsundum en þar er stærsti liðurinn til dvalarheimilis aldr- aðra. Til fjármagnshreyfinga fara 763 þúsund. Askrifendagetraun Islendings Getraunaseðlarnir streyma nú inn. Við minnum á að síðasti skiladagur er 6. aprfl og verður þá hægt að birta nafn þess, sem hreppir Sólarlandaferðina, í næsta blaði. Komið lausnum ykkar til blaðsins eða sendið í pósthólf 118. Er blaðið hafði samband við Þorkel Guðfinnsson á Þórshöfn s.l. föstudag höfðu þau tíðindi gerst þar að þak á fjárhúsi hjá Þórami Björnssyni á Hallgils- stöðum hafði brostið undan snjóþunga og drepið 9 ær og brákaði aðrar. Að öðru leyti sagði Þorkell að austur þar væri bókstaflega allt á kafi í snjó og nefndi sem dæmi að hann hefði ekki komist til vinnu fyrr en eftir hádegi, þar sem hann hefði þurft að moka sig út og skaflar svo miklir við norðurhlið húss hans að um 3-4 metrar væru niður að gluggum. Hann sagði að fjöldi húsa í þorpinu væru hreinlega í kafi. Þó var kominn hiti er samtalið fór fram og sagöist Þorkell vona að úr færi að rætast. Togarakaupin eru nú ákveð- in, loksins, og liggur nú næst fyrir að semja um afhendingar- dag en í öllu því þófi sem á undan var gengið hafði málið tafist fram yfir þann dag sem upphaflega hefði verið áætl- aður. HVAÐ ER FRAMUNDAN I' EFNAHAGSMÁLUM? Sjálfstæðisfélag Akureyrar efnir til stjórnmálafundar í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri, fimmtudaginn 9. apríl n.k. kl. 20.30. •Alþingismennirnir. Birgir ís- leifur Gunnarsson og Matthías Bjarnason, ræða um málefnin: ,,Hvað er framundan í efna- hagsmálum?" og „Hverjar eru líkur á sáttum innan Sjálf- stæðisflokksins?“ Allt sjálfstæðisfólk er hvatt til að koma á fundinn og taka þátt í umræðum, en framsögumenn munu svara fyrirspurnum sem til þeirra verður beint, að lok- inni framsögu. Snjóflóð gera usla í raf- magnslínum í Ólafsfirði Snjóflóðahœtta og mikill snjór í fjöllum Mikill snjór er nú í fjöllum um- hverfis Ólafsíjörð og mikil snjó- flóðahætta og hafa snjóflóð enda fallið. Svo sem fram hefur komið í fréttum féllu tvö snjó- flóð á Burstabrekkudal og tóku með sér staurasamstæður úr rafmagnslínunni yfir til Dal- víkur. Að sögn Jakobs Ágústssonar rafveitustjóra féll hið fyrra fremst á Burstabrekkudal og tók með sér tvær staurasam- stæður. Síðarféllannaðlítiðeitt framar og lagði eina samstæðu í viðbót. A þriðjudagsnótt í fyrri viku brotnuðu síðan þrír staur- ar i Skeiðsfosslínu í fjallinu fyr- ir ofan Bakka sem er fremsti bær í Ólafsfirði, þar féllu tvö stór snjóflóð og tóku m.a. með sér dráttarvél og stórskemmdu. Við þessar skemmdir á raf- magnslínunni var gert samdæg- urs. S.l. fimmtudag var síðan ,,snjóköttur“ fluttur frá Akur- eyri með Drang til að flytja við- gerðarmenn á staðinn, einnig voru staurar og annað efni kom- ið og var aðeins beðið eftir því að veðri slotaði á Burstabrekku- dal til þess að hægt væri að hyggja að viðgerð þar, en þar var mikil snjóflóðahætta og ekki hættandi á að fara þangað fyrr en veðri slotaði. En þá féll þriðja og stærsta snjóflóðið á þær staurasam- stæður er áður höfðu fallið auk tveggja annara, þannig að alls féllu fimm samstæður í þessum flóðum. Bráðabirgðaviðgerð lauk síð- an á föstudagskvöld og er nú kominn straumurs á línuna. Þó eru sumir staurarnir festir þann- ig að þeim er aðeins stungið nið- ur í snjóinn og verður ekki bet- ur gert fyrr en snjór minnkar. Jakob sagði að þau 30 ár sem hann hefði verið í Ólafsfirði hefði hann ekki séð jafnmikinn snjó í fjöllum og nú er. Það er SPARNADUR fyrir Norðlendinga að drekka SMiHdrykki Á

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.