Íslendingur - 06.05.1981, Qupperneq 1
18. TÖLUBLAÐ . 66. ÁRGANGUR . AKUREYRI . MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1981
Um síðustu helgi var haldinn svæðisfundur Rauða kross deildanna á Norðurlandi eystra. Til
fundarins, sem haldinn var á Akureyri, voru mættir fulltrúar frá Akureyri, Ólafsfirði, Dalvík
og Húsavík og var megintilefnið að ræða samstarf deildanna. í lok fundarins veitti Kristín
Sigfúsdóttir, formaður Rauða kross deildarinnar á Akureyri, viðurkenningu fyrir stuðning
við Afríkusöfnunina 1980. Þessa viðurkenningu hlutu Barnaskóli Akureyrar, Glerárskóli,
Lundarskóli og Oddeyrarskóli auk Akureyrarblaðanna Dags og Islendings. Þá hefur Akur-
eyrardeildin eignast nýjan sjúkrabíl sem sýndur var við þetta tækifæri. Bifreiðin, sem er
Chevrolet Chevy Van, er sérstaklega búin til sjúkraflutninga og einkum er vinnuaðstaða góð
og betri en áður hefur þekkst. - Á myndinni eru talið frá vinstri: Kristján H. Jónsson og Jóhann
Helgason, Ólafsfirði, Sigríður Pétursdóttir, Húsavík, Bjarni Sigtryggsson, Kristín Sigfúsdóttir
og Bjarni Arthursson, Akureyri, Ómar Friðþjófssop, erindreki RKI, Óskar Jónsson, Dalvík,
Guðlaug R. Gunnlaugsdóttir, Ólafsfirði, Gísli Ólafsson og Ólafur H. Oddsson, Akureyri.
Ljósm. H. Hansen.
Kröfuspjöldin á 1. maí voru margvísleg svo sem eðlilegt er. Hér eru nokkrir sem halda uppi
meiningu sinni á Ráðhústorgi þar sem hátíðahöldin fóru fram, samkvæmt dagskrá. Var höfuð-
áhersla að þessu sinni lögð á réttindamál fatlaðra, fulla atvinnu handa öllum og baráttuna
gegn verðbólgunni.
Ljósmynd: H. Hansen.
• / opnu er fjallað um geð-
verndarmál og G- og T-
deildir Fjórðungssjúkra-
hússins í tilefni iðjuþjálf-
unar sem þar er nú verið
að koma á fót.
• Lesendur leggja orð í
belg í opnu.
• íþróttir, með síðustu
viðburðum á íþróttasvið-
um, eru á bls. 6.
• Leiðarinn fjallar um
samráðið sœla og efna-
hagsmál.
Mývetningar
hefja
trilluútgerð
frá Húsavík
Sex Mývetningar hafa nú fest
kaup á trillu og hyggja á útgerð
frá Húsavík. Trillan sem er úr
plasti og smíðuð hjá Mótun hf.
í Hafnarfirði ber nafnið Kvika
ÞH 345. Formaður hefur verið
ráðinn Samúel Samúelsson á
Húsavík, en auk hans mun einn
éigandinn vera á bátnum.
Einn eigendanna var að því
spurður á dögunum hvar hann
héldi að þeir fengju uppsátur
fyrir bátinn og svaraði hann því
til að hann hefði alltaf litið svo á
að Húsavík væri bara hafnar-
borg Mývatnssveitar.
Tæp þrjú hundruð á biðlista elliheimilanna
Geigvœnlegur skortur á hjúkrunarrými
Á Elliheimilinu Hlíð dvelja nú
110 manns en í Skjaldarvík eru
80 vistmenn. Að sögn Jóns
Kristinssonar,. forstöðumanns
heimilanna, eru nú um 250
manns á biðlista á Akureyri og
um 30-40 manns á biðlista í
Skjaldarvík. Af þessum tölum
má nokkuð ráða ástand þessara
mála.
Jón sagði að hjúkrunarpláss
fyrir aldraða væru nú 50, 33 á
Kristnesi en 17 á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu en könnun á þörf-
inni hefði leitt í ljós að slík legu-
rými þyrftu að vera um eitt
hundrað. Málið hefði því þró-
ast í þá átt að elliheimilin yrðu
í auknum mæli hjúkrunardeild-
ir og horfir til stórvandræða af
þeim sökum.
Þær áætlanir semgerðar voru
1972 um uppbyggingu Fjórð-
ungssjúkrahússins hafa hvergi
staðist en samkvæmt þeim átti
framkvæmdum að vera lokið
1982 og hefði þá skapast að-
staða fyrir hjúkrunar- og lang-
legudeild.
Þær hugmyndir höfðu komið
upp að sögn Jóns að taka
,,Systrasel“ til nota fyrir lang-
legusjúklinga, en þv.í húsi var
ætlað að vera heimavist starfs-
fólks en hefur nýst illa til slíks að
undanförnu. Nú hefur borist
bréf frá ráðuneytinu þess efnis
að það heimili notkun hússins
sem hjúkrunarheimilis og mun
það bæta að nokkru úr þeirri
brýnu þörf sem fyrir er.
Heldur fækkar á
atvinnuleysisskrá
106 atvinnulausir um s.l. mánaðarmót
Um síðustu mánaðarmót voru
106 á atvinnuleysisskrá á Akur-
eyri að sögn Heiðreks Guð-
mundssonar á Yinnumiðlunar-
skrifstofunni og hafði því fækk-
að nokkuð frá því sem var fyrir
mánuði síðan. Þar af voru 70
karlar og 36 konur.
Nokkur hreyfing hefur verið
að undanförnu, sagði Heiðrek-
ur, en ekki þó svo að um fjölda-
ráðningar einstakra fyrirtækja
væri að ræða. Einn og einn hef-
ur þó fengið atvinnu í bygginga-
vinnu auk þess sem nokkrir hafa
leitað eftir vinnu annars staðar á
landinu. Heiðrekursagðiaðtöl-
urnar gæfu að vísu ekki alveg
rétta mynd af ástandinu þarsem
nú hefðu bæst á skrá eldri menn
sem unnið hefðu á Sambands-
verksmiðjunum en yngri menn
horfið af skránni.
Nokkrar áhyggjur sagðist
Heiðrekur hafa af því skóla-
fólki sem nú kæmi á vinnu-
markaðinn og væri viðbúið að
þar mundu koma upp veruleg
vandamál.
Vinnuskóli bæjarins mundi
væntanlega taka við 13, 14og 15
ára unglingum en þeir sem eldri
ÍDAG
• Halldór Blöndal, alþm.,
skrifar í opnu „Af fœr-
eyskum sjónarhól“.
væru ættu ekki í neitt hús að
venda og kæmi þetta jafnan
verst niður á 16 ára unglingum
sem virtust verða útundan, ekki
tækir í vinnuskólann og ekki
taldir fullorðnir, þegar leitað
væri eftir fólki í vinnu.
’ .................
Vilja ekki
aðild
að
stálverk-
smiðju
Á fundi Bæjarráðs Akureyr-
ar 21. apríl s.l. var tekin af-
staða til bréfs frá Stálfélag-
inu h.f. Reykjavík þar sem
leitað er eftir hlutafjárfram-
lögum til þess að koma á fót
stálverksmiðju er vinna
myndi steypustyrktarjárn úr
brotajárni.
Niðurstaða bæjarráðs var
sú að það gæti ekki lagt til að|
Akureyrarbær gerðist hlut-|
hafi í fyrirtækinu.
...............
Akureyri:
Það er SPARNAÐUR fyrir Norðlendinga að drekka SMUkdrykki