Íslendingur


Íslendingur - 06.05.1981, Blaðsíða 8

Íslendingur - 06.05.1981, Blaðsíða 8
Auglýsingar 21500 Innritun hafln í sumarbúðimar að Vestmanns- vatni Innritun er nú hafin í sumar- búðir Þjóðkirkjunnar að Vestmannsvatni. Aðsókn að sumarbúðunum hefur ætíð verið mikil og því vissara að tryggja sér pláss í tíma. I sumar munu sex flokkar dvelja að Vestmannsvatni, 7- 9 ára verða þar 8,-16. j úní, 8- 10 ára 18.-28. júní, 9-ll ára 29. júní til 9.júlí og 10-13 ára 12.-21. júlí. Þá verður öldruðum boð- ið upp á dvöl að Vestmanns- vatni og verður fyrri hópur- inn 23-.-30.’ júlí og hinn síðari 3.-10. ágúst. Þá verður æskulýðsmót haldið dagana 12.-17. ágúst. Innritun fer fram á skrif- stofu Æskulýðsstarfs kirkj- unnar á Akureyri en þar er síminn 96-24873. Zontakonur þinga Landsfundur íslenskra Zonta klúbba var haldinn á Akur- eyri 24.-26. apríl sl. Fundinn sóttu 35 konur frá Akureyri, Reykjavík og Selfossi. Eins og er vinna Zonta- konur um allan heim að því að koma upp heilsugæslu- stöðvum í fátækustu héruð- um Colombíu í Suður- Ameríku í samráði við UNICEF, barnahjálp Sam- einuðu þjóðanna. Zontakonur veita líka ár- lega námsstyrki til fram- haldsnáms í vísindagreinum, sem snerta geimvísindi, til minningar um Zontafélag- ann og hæfileikakonuna Amelíu Earhart, sem var fyrsta konan sem flaug ein yfir Atlantshaf á mettíman- um I3y2 klst. Það var árið 1932. Árið 1937 reyndi hún fyrst allra manna að fljúga ein umhverfis jörðina við miðbaug, en átti ekki aftur- kvæmt úr þeirri ferð. Þessir námsstyrkir eru veittir kon- um frá öllum þjóðum. Zonta International er ráðgefandi aðili stofnana eins og UNESCO, UNICEFoglLO (International Labor Oegan- ization). Á heimavettvangi fást ís- lensku Zontaklúbbarnir við sitt hver. Klúbburinn á Sel- fossi hefurstutt málefni van- gefinna og sjúkrahúsið á staðnum, Zontakonur í Reykjavík eru fyrir löngu kunnar fyrir störf í þágu heyrnarskertra og Zonta- konur á Akureyri eiga Nonnasafn á Akureyri og sjá um rekstur þess. Eins og er styðja Zontakonur á Akur- eyri einnig málefni sjón- skertra. Landsfundurinn á Akur- eyri fjallaði m.a. um ýmis mál er liggja fyrir þingi Zontakvenna á Norðurlönd- um, sem fer fram í Ábo í Finnlandi H.-14. júní n.k. Ritstjórn 21501 Lögfræðiþjónusta BENEDIKT ÚLAFSSON HDL. Hafnarstræti 99-101. Sími 25566 RAFORKA HF. GLERÁRGÖTU 32 Slmar: 23257 og 21867 Raflagnir - viðgerðarþjónusta á raflögnum og heimilistækjum. íslendingur r „Hlíðarbúaru sýna handavinnu og selja kaffi Sýning verður n.k. sunnudag 10. maí á handavinnu vist- fólks á elliheimilinu Hlíð. Verða þar til sýnis ýmsir munir er unnir hafa verið á heimilinu í vetur. Þá verður einnig kaffisala og einnig verða þar til sölu munir sem vistfólkið hefur unnið. Sýn- ingin verður opin kl. 2-5 e.h. Að sögn Jóns Kristinsson- ar kemur kennari á heimilið íjóra daga í viku og leiðbeinir fólki um hannyrðir o.fl. Þessu kennslustarfi gegnir Elín Björg Jóhannsdóttir og hafa vistmenn kunnað vel að meta þessa þjónustu og sótt vel þó einkum konurnar. f Hlíð búa nú 110 íbúar. V J Námskeið fyrir trúnaðarmenn Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri og nágrenni hélt trúnaðarmannanámskeið í samvinnu við Menningar- og fræðslusamband alþýðu dagana 27.-30. aprfl sl. að Hótel KEA. Námskeiðið sóttu 17 trúnaðarmenn frá Akureyri, Dalvík og Ólafsfirði. En samkvæmt kjara- samningum frá 1977 hafa trúnaðarmenn rétt til að sækja eitt slíkt námskeið í eina viku á ári á launum. - Helstu viðfangsefni námskeiðsins voru m.a. vinnulöggjöfin, staða trúnaðarmanna, kjarasamningar, lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, almannatryggingar, skipulag og starfshættir Alþýðusambands Islands og Menningar- ogfræðslusambands alþýðu. Námskeiðsstjóri var Snorri Konráðsson, starfsmaður Menningar- og fræðslusambands al- þýðu, en auk hans voru leiðbeinendur þau Elís Adolphsson frá Verslunarmannafélagi Reykja- víkur, Margrét Thoroddsen deildarstjóri hjá Tryggingastofnun ríkisins, Reykjavík, og Björn Þórhallsson formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna. Ljósm.: H. Hansen. Matthíasarsafn afhent Akureyrarbæ Á fundi Matthíasarfélagsins þann 8. apríl s.l. afhenti félagið Akureyrarbæ eignir Matthías- arsafns. Eignirnar eru neðri hæð Sigurhæða ásamt þeim munum sem þar eru geyndir, munum úr heimili séra Matthí- asar og bókum úr eigu hans og öðru því sem Matthíasarsafni heyrir til. Þar með er lokið gerðum stjórnar Matthíasarsafns og M atthíasarfélags. Guðmundur Irímann í Rauða húsinu N.k. miðvikudagskvöld,þann 6. maí 1981 kl. 21.00 mun Guð- mundur Frímann skáld, lesa úr verkum sínum í Rauða húsinu. Guðmundur er kunnur fyrir skáldskap sinn, í bundnu og óbundnu máli, og hefur auk jjess fengist við þýðingar. Á liðnum vetri kom út bókin „Draumur undir hauststjörn- um“ eftir Guðmund. Sem fyrr segir hefst upplestur inn kl. 21.00 og er aðgaiígseyrir kr. 10.00. Guðjón Ketilsson sýnir Laugardaginn 9. maí kl. 15.00 mun Guðjón Ketilsson opna sýningu á eigin verkum í Rauða húsinu. Guðjón stundaði nám í Mynd lista- og Handíðaskóla íslands auk þess sem hann dvaldi erlendis um hríð. Hann hefur tekið þátt í og haldið margar sýningar víðsvegar um landið. Engin boðskort verða send út en allir eru velkomnir og hvattir til að líta inn í Rauða húsið. Sýningin mun standa til 17. maí og er opin frá kl. 15.00- 21.00 alla daga. Hvar er. nú hinn horski her? Mönnum er enn í minni það sem á gekk meðan Frakkinn Gervasoni dvaldi hér á landi um tíma. Gekk þá ýmislegt fólk fram fyrir skjöldu til að vernda hann gegn því að þurfa aftur að fara til Dan- merkur. Útifundir voru haldnir og jafnvel hótað stjórnarslitum og allt var þetta gert í nafni frelsis og réttlætis. Nú hefur hér fyrir skömmu dvaiist sovéski skáksnilling- urinn Kortsnoj sem býr við þau ósköp að fjölskyldu hans er haldið nauðugri í Sovét- ríkjunum ogsonur hans jafn- vel í fangabúðum. Hér var af því tilefni stofnað til nefndar, sem berst fyrir því að frelsa Ijölskyldu skákmeistarans og tilraun var gerð til að af- henda sovéska sendiráðinu í Reykjavík mótmælaskjal þar sem undir höfðu ritað um eitt hundrað velmetnir borgarar íslenskir, ekki þó forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, en móttöku var neitað. Það vekur hins vegar at- hygli, að þeir sem á stundum telja sig hiria einu sönnu málssvara frelsis og mann- réttipda skuli nú þegja þunnu hljóði. Ekki virðist fjölskylda Korstnojs og ánauð hennar verðugt tilefpi til útifunda af þeirra hálfu sem háværast börðust fyrir okkar ágæta Frakka, né hefur flogið fyrir að stjórnarslit væru yfirvof- andi ef ríkisstjórn fslands sýndi ekki fyllstu einurð í málinu. Hvar er nú hinn horski her mannréttindabaráttu, lýð- frelsis og réttlætis? Verndun sauðfjár Sauðfjárverndin sendir bændum æði oft þarfar og tímabærar tilkynningar í út- varpinu og sinnir störfum sínum greinilega af lofsverð- um áhuga. Stundum verða orðsend- ingar þessar ef til vill dálítið torráðnar a.m.k. fyrir þá sem ekki eru mjög kunnugir sauðfjárbúskap. f einni til- kynningunni á dögunum voru bændur t.d. til þess hvattir af sauðfjárverndinni að taka kaupstaðarbörn til sumardvalar og kemur þá annað hvort til að nefndin telji sig þurfa að færa út verk- svið sitt til kaupstaðanna eða þá hitt að unglingar úr þétt- býli séu taldir til þcss fallnir að hafa bætandi áhrif á sauö- ljárstofninn og er hvoru tveggja vel. I annari orðsendingu voru bændur minntir á hver væri kraftur og endurnýjunar- máttur „náttúrunnar“ og hefur þá vafalaust vakað fyrir þeim, sem sömdu, að sífellt þyrfti að endurnýja birgðir af smölum og smala- stúlkum og hefur átt að hvetja bændur til þess að láta ekki sitt eftir liggja við fram- leiðslustörfin. Er nú þess að vænta að þeir hall myndar- lega tekið til starfa við þessi vorverk, sauðfénu til bjargar á komandi árum. En hvað sem þessu nú líð- ur er máistaður sauðljár- verndar góður og drengi- legur. FASTEIGNASALA Strandgötu 1 Símar: 21820, 24647 Sölumaður: Stefán Gunnlaugsson Heimasími: 21717 1ÓH BMRNIISOM / ÚRSMIÐUR Nýjustu gerðir af QUARTZ-ÚRUM eru komnar, Kaupvangsstratl 4 - Siml 24175 - Akurayrl

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.