Íslendingur - 06.05.1981, Side 4
Útgefandi:
fíitstjóri og ábm.:
Auglýsingastjóri:
Gjaldkeri:
Dreifingarstjóri:
fíitstjórn, simi:
Auglýsingar, simi:
Askriftargjald:
Lausasala:
Auglýsingaveró:
Prentun:
Islendingur hf.
Kristinn G. Jóhannsson
Guölaug Siguröardóttir
Ottó Pálsson
Sigurlína Sigurgeirsdóttir
21501
21500
kr. 35.00 á árstjóröungi
kr. 4.00 eintakiö
kr. 36.00 dálksm.
Prentsmiöja Björns Jónssonar
Vaknað til
samráðs
Hið íslenska efnahagsundur er sífellt kraftaverkaf
þeim toga að á sér fáar hliðstæður. Það minnir á
ýmsa aðra leiki sem við finnum upp í fásinninu og
lifum okkur svo inn í að alit verður þetta eins og í
alvörunni.
Við göngum um grafalvarleg á svipinn rétt eins
og ekkert hafi í skorist og meira að segja eru þeir
til, sem geta rætt um íslensk efnahagsmál í dag
rétt eins og þau séu einhver meiri háttar vísindi.
Verðstöðvun, aðhald, niðurtalning á uppleið,
hjöðnun eða hvaða nöfn sem við gefum ringul-
reiðinni, þessum dúrótta svefni sem menn.vakna
upp af á þriggja mánaða fresti.
Vakna til að hafa samráð við aðila vinnu-
markaðarins, sem auðvitað hafa ekki heldur
hugmynd um hvert stefnt hefur fyrr en allt er búið
og gert og svefnhöfgi lagstur yfir á ný, að höfðu
samráði.
Menn ganga ábúðarfullir til samningaþjarks í
marga mánuði með alla ábyrgð alþýðu manna á
herðunum og þegar samningar síðan loksins nást
eru þeir umsvifalaust skertir með lögum, að höfðu
samráði væntanlega, og því svarað með þögninni.
Stjórnvöld kukla við vísitöluna í svefnrofunum
svona rétt á meðan verið er að reikna út og saína
bak við heimagerða stíflu öllum vandamálunum,
sem hrannast upp næstu þrjá mánuði, en að því
kemur auðvitað að stíflan brestur og holskeflan
steypist yfir þó ekki fyrr en samráð hefur verið
haft.
Atvinnurekstur berst í bökkum, atvinnuleysi
uggvænlegt ekki síst hér fyrir norðan á meðan
forsætisráðherra og vinnuveitendur þegja hver
framan í annan á fundi þeirra síðarnefndu og
menn fá launin sín í kvittunum fyrir sköttum sem
auðvitað voru lagðir á að höfðu fullu samráði.
Síðan er kjarabaráttan rekin af forystumönnum
sem telja það vænlegast að reka baráttuna með
mismunandi hætti eftir því hvaða stjórnmála-
flokkar sitja í stjórn hverju sinni og telja það best
hæfa hagsmunum umbjóðenda sinna, enda hafa
stjórnvöld auðvitað fullt samráð við launþega-
hreyfingarnar eins og nýjustu dæmin sanna.
Til eru þeir, jafnvel, sem furða sig á því að
dæmið skuli ekki ganga upp og allt vera í
lukkunnar velstandi þegar hugsað er til þriggja
mánaða í senn og engin langtímastefnumörk sór
dagsins Ijós.
En hvað erum við að ergja okkur nú þegar rótt
eitt rumskið er afstaðið, við skulum bara vaka og
vera góð og líta björtum augum tilframtíðarinnar,
enda ekki ástæða til annars því ekki er hætta á að
hið íslenska efnahgsundursofi yfirsig. Þaðvaknar
til að stöðva hávaðann í vekjaraklukkunni á
tilsettum tíma og að höfðu samráði við aðila
vinnumarkaðarins að sjálfsögðu.
Kr. G. Jóh.
Geðvernd er ein af meginui
Douglas Cummings og Philips Jenkins
Svo sem getið var stuttlega í síðasta blaði hefur nú skapast
aðstaða til iðjuþjálfunar á T-deildinni að Skólastíg 7 á
Akureyri og hefur það ekki síst tekist vegna framlags
Kiwanismanna til geðverndarmála.
Eins og kunnugt er skiptist starfsemi Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri í marga þætti. Meðferð sjúklinga fer
fram á ýmsum deildum eftir eðli sjúkdómanna. Ein af
deildum sjúkrahússins er T-deild, sem sinnir sérstaklega
öllum þeim á Norðurlandi eystra sem eiga við að etja viss-
ar tegundir geðsjúkdóma eða geðkvilla og hafa ekki fengið
viðhlítandi læknisþjónustu annarsstaðar í fjórðungnum.
Má nefna sjúklinga með sturlun, taugaveiklun eða
drykkjusýki svo að nokkur dæmi séu nefnd.
T-deildin hóf starfsemi sína 1. mars 1974. Hún var fyrsta
árið til húsa að Álfabyggð 13, en síðan Skólastíg 7, sem
Fjórðungssjúkrahúsið er nú búið að kaupa. Skólastígur 7
er hentugt húsnæði fyrir þessa starfsemi að mörgu leyti, en
verður fljótlega of lítið, þegar næstu þróunaráfangar sjá
dagsins ljós. Margt hefur áunnist á 7 ára sögu deildar-
innar og málefni geðsjúkra þokast í rétta átt hægt og hægt
þótt nokkuð vanti enn á að þeir njóti jafnréttis á við aðra
sjúklinga.
Hlutverk T-deildar
T-deild er ætlað það hlutverk að
sjá um meðferð á veikum eða
illa höldnum einstaklingum
með bráða geðlæga sjúkdóma
hvenær sem þess er óskað. Það
hefur tekist mjög vel að skil-
greina þetta hlutverk og gera
það ljóst, og þess vegna m.a.
hefur aldrei myndast biðlisti svo
heitið geti. öllum hjálparbeiðn-
um er sinnt jafnóðum og þær
berast, en þá er líka rétt að geta
þess að veikustu sjúklingarnir,
þeir sem eru óðir eða örvita
vegna sturlunar og þurfa með-
ferð á lokuðum geðdeildum
meðan veikindi þeirra eru í há-
marki, eru sendir á spítala í
Reykjavík, en koma yfirleitt
hingað á T-deild í- framhalds-
meðferð eftir að þeir eru komnir
það vel til sjálfra sín að geta ver-
ið á opinni geðdeild.
Sjúklingar og starfsfólk
Deildin getur hýst 7 sjúklinga
í einu. Auk þess er hugsað fyrir
þörfum dagsjúklinga sem geta
verið mismargir, þó aldrei fleiri
en 5 alls, ef hin plássin eru full-
setin. Enn má nefna eftirmeð-
ferð og göngudeild, sem þjóna
ótilteknum fjölda, enda er þar
lang oftast um að ræða eitt við-
tal í viku eða sjaldnar. Að öllu
samanlögðu eru það um 150 til
250 manns á ári", sem notfæra
sér þjónustu T-deildar að meira
eða minna leyti.
Á T-deild vinna nú rúmlega
10 manns, sumir eru í hluta-
starfi, stöðugildi eru alls 8. Á
deildinni vinnur einn geðlæknir,
Brynjólfur Ingvarsson, einn geð
hjúkrunarfræðingur, einn fé-
lagsráðgjafi í /2 starfi, einn
kennari í hálfu starfi, sjúkra-
liðar, einn geðsjúkraliði, einn
uppeldisfræðingur auk annarra.
Gestir við opnun iðjuþjálfunar að Skólastig 7.
með tónleika í
Douglas Cummings - sellóleikari og
Philip Jenkins - píanóleikari eru á
tónleika ferð um landið í byrjun maí.
Þeir leika á vegum Tónlistarfélags
Akureyrar í Borgarbíói n.k. laugar-
dag 9. maí og hefjast tónleikarnir kl.
17.00. Tónlistarfélagið hefur haldið 5
áskriftartónleika á vetrinum, sem
hafa verið vel sóttir.
Tónleikarnir á laugardaginn eru
aukatónleikar, en þeir sem hafa verið
félagar í vetur fá aðgöngumiða á
niðursettu verði við innganginn, og
eiga allir félagar að hafa fengið
fréttabréf þar að lútandi.
Listamennirnir leika einnig á
tónleikum í Reykjavík, Njarðvík og
á ísafirði í þessari ferð.
Á efnisskrá þeirra verða sónötur
eftir Beethoven, Britten, Debussy
og Shostakovitch.
Douglas Cummings hefur hlotið
margsháttar viðurkenningu sem
sellóleikari og er í hópi fremstu
sellóleikara Bretlands. Á náms-
árum sínum við Royal Academy og
Music í London vann hann öll
verðlaun, sem þá voru veitt fyrir
sellóleik. Framhaldsnám stundaði
hann hjá André Navarra í París og
Gregor Piatogorsky í Kaliforníu.
Tuttugu og þriggja ára gamall var
hann valinn sem fyrsti sellóleikari í
Lundúna - Sinfóníuhljómsveitinni
og hefur nú gegnt því í 12 ár.
Douglas Cummings var einn af
stofnendum „London Virtuosi“
ásamt James Galway, Georgiadis
o.fl.
Borgarbíói á laugardaginn
Á efnisskránni eru sónöíur eftir Beethoven
Britten, Debussy, Shostakovitch
Douglas Cummings.
Philip Jenkins er velþekktur
hérlendum tónleikagestum, bæði
fyrir einleikstónleika sína og marga
ónleika með ýmsum af okkar
kunnustu hljóðfæraleikurum. Philip
starfaði um árabil sem pianó-
kennari við Tónlistarskólann á
Akureyri, en er nú professor við
Konunglegu Tónlistarakademíuna
í London. Á námsárum sínum hlaut
hann ýmis verðlaun fyrir framúr-
Philip Jenkins.
skarandi námsárangur, þ.á.m. gull-
verðlaun kennd við Mc farren og
Dove. verðlaunin. í alþjóðlegri
keppni píanóleikara vann hann
verðlaun kennd við Harriet Cohen.
Fyrir rúmu ári lék Phili'p inn á
hljómplötu verk eftir Szymanowsky
Ravel og Prokofiev og fékk þessi
plata frábæra gagnrýni, m.a. i
hljómplöturitinu „Record and
Recording“.
4 - ÍSLENDINGUR