Íslendingur


Íslendingur - 21.02.1985, Blaðsíða 6

Íslendingur - 21.02.1985, Blaðsíða 6
6 jbleudinaur FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1985 Bakþankar Það er kunnara en frá því þurfti að segja að íslendingar verða ekki aldir upp með hefðbundn- um hætti svo sem í skólum eða öðrum uppeldisstofnunum né verða þeir, að því er virðist, ræktaðir til almennra manna- siða með venjulegum aðferðum að mati vísustu manna. Eina ráðið til að fá þá til að haga sér á almannafærí og á heimilum sínum og vinnustöðum þannig að sæmilegt sé og að þeir farí ekki sjálfum sér og öðrum að voða er að setja á þá sem flest lög og þaó svo þétt að þeir viti aldrei hvort þeir eru að bijóta lög eða hvort þeir eru l ara að skemmta sér. Margir djúphugsaðir laga- bálkar hafa veríð settir á síð- ustu árum i uppeldis- og slysa- vamaskyni og eru dæmi auð- grípin því til sönnunar. Má nefna lög um virðingu fyrír krónunni og niðurfellingu tveggja núlla af því tilefni og reyndust svo vel að nú stefnir allt í það að næst verði tekin af henni þrjú núll með lögum til enn frekari virðingarauka. Lög um notkun bílbelta hafa mjög eflt löghlýðni íslendinga og það með slíkum öfgum j ég rakst á mann í húsgagnaverslun á dögunum sem var að skoða hjónarúm, það var eitt svona rúm með öllu, bar, stereó, dýpt- armæli, útvarpi, sjónvarpi og miðunartækjum eða hvað sem þetta heitir nú allt saman og viti menn, blessaður maðurinn spurði hvort ekki væru öryggis- belti í slysavamaskyni. Svona em menn orðrJr vam'r því að vera niður reyrðir þegar þeir hugsa sér til hreyfings. Lengi hafa veríð lög í gildi sem banna sölu og bmggun venjulegs bjórs og em í háveg- um höfð og stefnir nú í það að í staðinn verði verði seldur brennivínsblandaður pilsner á öðm hvom götuhomi í virðing- arskyni við lögin. Nú síðast vom sett lög um tóbaksvamir og það var eins og við manninn mælt, annar hver reykingamaður kominn undir lás og slá og reyklaust land. Fjármálaráðherra auk þess svo skelfíngu lostinn, að hann segist engan þátt vilja í eiga að flytja inn eitríð, allir aðrir mega hins vegar taka við. Fjármála- ráðherra er að vísu óvenju við- kvæmur fyrir lögum sbr. reglu- gerð um bann við hundahaldi og lög um einkarétt ríkisins til útvarpsrekstrar. Eins og þessi fáu dæmi sanna em lög afar árangursrík til upp- eldis og þess vegna verður hald- ið áfram á þeirri braut löggjaf- ans enda tilefnin ærín allt um kríng. Ég hefi nú verið scttur, ásamt öðrum, af réttum yfírvöldum að gera tillögu að drögum að upp- kasti til nýrra laga sem miða skulu að frekarí hreinsun og löghlýðni íslendinga. Þessu markmiði teljum við eftir langar fundargöngur að eðlilegt sé að ná í fyrstu með aukinni hreyfíngu, minni kyrr- setu og styttrí vöku enda talið sannað öðm hvom að hreyfing- arieysi, kyrrsetur og syfja séu orðin höfuðmein þjóðarínnar. Við verðum Uka allra karia og keriinga elst og við svo búið má auðvitað ekki standa. En það er hér sem fyrr að tilgangslaust er með öllu að ætla íslendingum að sjá lagalaust til þess að bót verði á. Lög veróur að setja og þau í anda annarra laga af svipuðum toga — auðbrotin og óframkvæmanleg. Þótt lagasmíðin sé enn á fumstigi leyfi ég mér að kynna nokkrar greinar svo að rnenn geti faríð að búa sig undir það sem koma skal. í anda skipunarbréfsins verði 1. gein þannig: fslcndingar skulu vera and- lega og líkamlega heilbrígðir og ómengaðir. Þessi grein er stefnumarkandi og þarfnast ekki frekarí skýringa. Um við- urlög við brotum á þessari laga- grein er öllu erfiðara að ákveða. Þó þykir okkur hæfíleg refsing, þeirra sem veikjast td. sé, að þeir verði lagðir inn á sjúkra- hús, eða komið undir læknis- hendur með öðmm hætti. 2. grein: íslcndingar skulu aldrei á fætur né til vinnu á morgnana fyrr en þeir em vaknaðir. Hér er tilgangurinn ekki jafn augljós en okkur þykir sýnt, ef litið er yfir svið þjóðlífsins, að ómögulegt sé að afsaka ýmis- legt sem aðhafst er með öðm en því aó menn hafi farið ótímabært á fætur. Þessi grein hefur auk þess þá meginkosti að stytta mjög vinnudaginn. 3. grein: f samræmi við ný rísmál skal morgunleikflmi Jónínu koma í stað síðasta lags fyrir fréttir í hádegi. Vinnst þá einnig það, að talið er hollt andlegrí heilsu manna að þeir hlusti ekki á íslenska einsöngvara og kóra á fastandi maga. Æfingar Jórnnu skulu skylduæfíngar öllum þeim sem mega sig hræra. Einkum skulu menn leggja rækt við þá æfíngu sem Jónína otar óspart að fólki í uppörvunarskyni og kallar dauðateygjuna. Þá gæti menn þess að það er talið óhollt, að sögn Jónínu, að fá hjartaáfall á mcðan á líkamsræktinni stend- ur. Farí menn ekki að lagagrein þessari þykir hæfíleg refsing að þeir verði sendir í aukatíma til Jónínu. Þeir sem lifa af dauðateygj- una og aðrar heilsubótarteygjur skulu skokka í vinnuna. Opin- bemm starfsmönnum skal þó heimilt að nota hlaupahjól, enda til þess ætlast að menn geti notið síðdegiskaffítíma á vinnustað. 4. grein: Til þess að koma í veg fyrir kyrrsetur skulu stólar bannaðir á opinbemm vinnustöðum og stofnunum þar sem almenning- ur leitar aðgangs í sambandi við afgreiðslu eða þjónustu sem þar er veitt. Þó skulu klósettsetur leyfðar næstu 4 árín a.rn.k. eða þangað til annað verður ákveð- ið. Viðvörunarmerkingar skulu á öllum stólum sem seldir em í verslunum. Á þeim skal standa þessi hógværa hvatning: „Lát- um oss standa.” Þó skulu stólar leyfðir á sérstökum stöðum, skýrt merktum, en þess þó gætt að það séu vondir stólar. Að því skal stefnt að menn tvístigi við vinnu sína eða haldi áfram að vinna á hlaupum svo sem þeir vom vanir. Engar breytingar þarf í þessu sam- bandi að gera í Alþingishúsinu. Þar halda menn áfram að standa frammi á gangi og standa á sama meðan þingfund- ir standa. f öllum gmnnskólum og æðrí menntastofnunum skal við inn- réttingar tekið mið af hjarðfjós- um. Kennarastólar em bann- aðir með lögum þessum en með endurhæfíngu verði reynt að rétta úr kennumm og þeim smám saman kennt að standa uppréttum á eigin fótum. Vegna þessa aukna álags skal sumar- leyfi kennara lengt um mánuð. 5. grein: Hvers konar auglýsingar á stólum og öðrum setgögnum em bannaðar hér á landi. Bannað er einnig að sýna hvers konar meðferð eða notkun stóla eða annars þess er kynni að auka löngun manna til setu eða að láta sér líða vel yfiríeitt. Þó er heimilt sem fyrr að setja mönnum stólinn fyrir dymar og verður það gert í auknum mæli. 6. grein: Setur em óheimilar í far- þegarými almenningsfarartækja sem rekin em með gjaldtöku. Heimilt er þó forráðamönnum flugvéla í millilandaflugi að leyfa sæti fyrir einn flugstjóra en þó því aðeins að óþægindi skapist ekki fyrir þá sem standa. Ekki má sæti flugstjór- ans þó vera nálægt stjómtækj- um flugvélarínnar. 7. grein: Setja skal reglugerð í sam- ráði við Áfengisvamarráð og Trésmíðafélag Reykjavíkur um setur í ráðherrastólum. 8. grein: Yfirstjóm mála samkvæmt lögum þessum skal í höndum orkumálaráðherra. Ráðherra skipar setuvamamefnd til fjögurra ára í senn. f nefndinni skulu standa þrír menn og skulu a.m.k. tveir þeirra hafa reglulega fótavist. 8. grein: Mál sem kunna að koma upp vegna brota á lögum þessum og reglugerðum settum samkvæmt þeim skal fara með að hætti opinberra mála og þau söltuð. Þess er sjálfsagt að geta að Norðmenn og raunar fleiri þjóðir hafa fylgst mjög náið með lagasmíð þessari og munu ekki láta á sér standa að taka upp meginákvæði laganna í sínu hcima. Þá verða fmmvarpsdrögin send 1020 aðilum til umsagnar, en eins og við aðra lagasmíð verður ekkert gert með það sem þeir segja, heldur leitað álits þeirra þríggja aðila sem ráða eiga slíkri lagasetningu, þ.e. Stórstúku íslands, Ungmenna- félags fslands og Kvenfélaga- sambands íslands. Kr. G. Jóh. Leikmannshugleiðingar: Um makalausa tónleika Fyrir nokkru hélt bandaríski píanóleikarinn Ruth Slecz- ynska tónleika á sal Tónlistar- skólans á Akureyri. I efnis- skránni var greint frá ferli lista- mannsins, sem á margan hátt er mjög sérkennilegur. Ruth Sle- czynska lék opinberlega mjög ung i ýmsum stórborgum Evrópu og naut almennrar við- urkenningar sem undrabam. Meðal kennara hennar má nefna Rachmaninoff, og var eitt af verkum á efnisskrá eftir þenn- an fyrrverandi kennara píanó- leikarans. Tónleikarmr voru mesti tón- listarviðburður, sem ég hef orðið vitni að á Akureyri. Má raunar segja að svo bergnuminn hafi ég ekki verið á tónleikum síðan ég hlýddi á Svjatoslav Richter fyrir aldarfjórðungi. Ruth Sleczynska er máttugur píanóleikari og ræður yfir ótrú- legri tækni. Túlkunin er einföld og yfirveguð. Hátindurinn á tón- leikunum var tvímælalaust túlk- un listamannsins á tveimur són- ötum eftir Scarlatti, einkum á sónötu í G-dúr.Heiðríkja og sí- gildur glæsileiki eru óhjákvæmi- lega þau orð, sem hæfa slíkum leik, og væri mikið gefandi fyrir, að hlýða á Ruth Sleczynsku leika Mozart. Túlkun píanóleikarans á nokkrum verkum eftir Chopin var máttug, en jafnframt á ein- hvern sékennilegan hátt ó- sveigjanleg og hispurslaus. Verð ég að viðurkenna, að þessi túlk- un kom mér á óvart, og ekki að öllu leyti þægilega. Litlaust verk eftir Virgil Thompson skyggði svolítið á síð- ari hluta efnisskrárinnar. En lokaverkið, Toccata eftir Prokof- ieff, þótti mér glæsilega flutt. Full ástæða er til að vera þakklátur fyrir að fá tækifæri til að hlusta á tónleika sem þessa. Reyndar er það makalaust, að það skuli vera mögulegt að bjóða svo litlu samfélagi sem Akureyri er upp á tónlistarvið- burð af þessu tagi. Tómas I. Olrich Tölvur Prentarar Hugbúnaður Tölvunámskeið Tölvuþjónusta Diskettur Disketturekkar Tölvupappír Félaosstarf\t Sjálfstœðskvenfélagið Vörn Fundur verður haldinn laugardaginn 23. feb. kl. 14.00 í Kaupangi við Mýrarveg. Gestur fundarins verður Halldóra J. Rafnar, formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna. Kosnir verða fulltrúar á landsfund. Skemmtiatriði. Boðið upp á veitingar. Félagskonur fjölmennið og takið með ykkur gesti Stjómin.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.