Íslendingur - 21.02.1985, Page 8
Félagasamtök - Starfsmannahópar
Erutn farntr að taka á móti pöntunum
fyrir árshátíðir.
Draupnisgata 7:
Mannvonska
eða nauðvörn?
Blaðaskrif vegna aðgerða Hita-
veifu Akureyrar í Draupnisgötu 7
hafa vakið nokkra athygli. Sú
mynd, sem dregin hefur verið upp
af málinu í fjölmiðlum, er tiltölu-
lega einföld: i húsnæði, þar sem
einn inntakshcmill er fyrir fjóra
notendur, getur það gerst, að
lokað sé fyrir heita vatnið, ef einn
aðili er í vanskilum, þótt hinir
þrír hafi staðið í skilum. Aðgerðir
Hitaveitunnar fá þannig .. sig
ruddalegan blæ, sem erfitt virðist
vera að sætta sig við.
Þegar nánar er að gáð, er
málið ekki svo einfalt. Þegar
Hitaveitu Akureyrar var komið
á laggirnar, var ákveðið að nota
hemil til verðlagningar á vatn-
inu, og var einn reikningur scnd-
ur út til notanda hvers hemils.
Ef fleiri en ein íbúð voru í húsi
gátu menn valið um tvo kosti.
Annars vegar gat eigandi hverr-
ar íbúðar lagt í þann kostnað að
hafa eigin hemil og fá reikning
samkvæmt því. Hin leiðin >. >r
sú, að íbúar hússins kæmu ,ér
saman um að hafa einn hemil.
Skiptu þeir þá kostnaðinum í
samræmi við eitthvert sam-
komulag þeirra í millum, sem
yfirleitt tekur tillit til eignar-
hluta. Þessi leið varað sjálfsögðu
ódýrari fyrir notendur, þar sem
hemiliinn kostar talsvert fé.
í dag kostar hemlagrind um
50 þúsund krónur. í 10 íbúða
fjölbýlishúsi greiða íbúarhverrar
íbúðar kr. 5000 fyrir sameigin-
lega grind. í stað 50000, ef þeir
kjósa að hafa sína eigin hemla-
grind og fá sérreikning.
Talsverö samábyrgö hlaut að
vera forsenda þess, að þetta kerfi
væri nothæft, bæði að því er
varöar hugsanleg vanskil ein-
stakra notenda og sanngjarna
skiptingu vatnsskammtsins millii
íbúa. A hvorugan þáttinn getur
Hitaveita Akureyrar haft áhrif.
Tveimur árum eftir að Hita-
veita Akureyrar tók til starfa,
fóru aö berast beiðnir um skipt-
ingu reikninga, sem sendir voru
þeim aðilum, sem höíðu samein-
ast um hemlagrind. Þar sem
tölvukerfi bæjarins gat á auð-
veldan máta uppfyllt þessar ósk-
ir, var á sínum tíma samþykkt
að verða við þeim. Leit Hitaveit-
an á það sem aukna þjónustu
við notendur.
Almennt tíðkast það nú, að út
eru sendir aðskildír reikningar
og heldur Hitaveitan hjá sér
heildarreikningnum. Ef einhver
íbúanna stendur ekki í skilum,
þannig að heildarreikningurinn
er ekki að fullu greiddur, hefur
Hitaveitan ekki önnur ráö en aö
loka hemlinum, enda hefur
fullnaðargreiðsla fyrir notkun
hans ekki verið innt af hendi.
Hér er að sjálfstögðu um full-
komið neyðarúrræöi að ræða.
Þegar að er gáð, virðast því vera
til nærtækari skýringar á inn-
heimtuaðferðum H.A. en mann-
vonska, eins og ýjað hefur verið
að í blöðum.
Alliance Francaise á Akureyri:
„Söngfuglinn” í Sjallanum
Það er mat hitaveitustjóra,
Wilhelms V. Steindórssonar, að
ef þess aðhalds, sem lokanirnar
eru, nyti ekki við, mundi það
strax grafa undan innheimtu
Hitaveitunnar.
Sterk rök er því hægt að færa
fyrir því, aö ástæðan fyrir þeim
atburðum, sem urðu í Draupnis-
götu 7, sé sú ákvörðun upphaf-
legra eigenda hússins að notast
viö sameiginlega hemlagrind og
spara sér þannig talsverðan
stofnkostnað. Núverandi not-
endur og H.A. standa því uppi
með vandræði sem hafa hlotist
af þessu upphaflega fyrirkomu-
lagi.
Auðvelt ætti að vera, í tilviki
sem þessu, að leysta vandann
með því að notendur óskuöu
eftir því að fá hver sína hemla-
grind, með tilheyrandi kostnaði.
Sá kostnaður er aö vísu allmikill,
en blaðinu er kunnugt um, að í
stjóm H.A. hefur þaö komiö til
umræðu að lækka þennan
kostnaö og auðvelda þannig not-
endum að koma sér upp aðskild-
um hemla- og mælabúnaði.
TIO
Augnlœknadeild eflist að tœkjum
Síðastliðinn laugardag afhenti
framkvæmdanefnd söfnunar-
innar „Átak til sjónverndar - maí
1984” augnlækningadeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri
ljögur lækningatæki. Fram kom
við afhendingu tækjanna, að 39
Lionsklúbbar á svæðinu frá
Akranesi um Vesturland, Vest-
firði og Norðurland að Vopna-
firði hafa lagt söfnuninni lið,
auk fjölmargra annarra félaga-
samtaka og fyrirtækja ásamt
þúsundum einstaklinga.
Alls söfnuðust 2.140 þúsund
krónur og skilar söfnunin af-
gangi, miðað við kaupverð tækj-
anna fjögurra. Afgangurinn
verður notaður til að festa kaup
á tækjum, sem dreift verður til
heilsugæslustöðva á þjónustu-
svæði F.S.A.
Dýrasta tækið, sem
Fjórðungssjúkrahúsinu var af-
hent, er aðgerðasmásjá, sem
nýtist ekki aðeins til augnað-
gerða, heldur einnig við háls-,
nef- og eyrnaaðgerðir og tauga-
og æðaaðgerðir. Eitt af nýju
tækjunum, augnbotnvél, er að
sögn Ragnars Sigurðssonar
augnlæknis nauðsynleg við
rannsóknir á sjúklingum með
augnskemmdir af völdum sykur-
sýki og forsenda þess að hægt sé
að beita leysi-geislum við þess-
um fylgikvilla sjúkdómsins. Auk
þessara tveggja tækja er um að
ræða sjónsviðsmæli, sem er
notaður til að kortleggja ná-
kvæmlega sjónsvið sjúklinga
með gláku og sjúkdóma í heila,
og svokallaðan raufarlampa,
sem er smásjá til almennra
nákvæmisathugana á augum.
„Af öllum þessum ágætu
tækjum á aðgerðasmásjáin eftir
að breyta mestu fyrir okkur, að
mínu mati,” sagði Loftur
Magnússon augnlæknir um nýju
tækin.
Dalvík:
Kostnaður eykst
Eitt af hinum nýju tækjum
„Það er verið að vinna í fjár-
hagsáætlun,” sagði Helgi Þor-
steinsson, bæjarfulltrúi á Dalvík
þegar hann var spurður hvað
væri að frétta úr bæjannálun-
um. Hann sagði að ekki hefði
komið upp ágreiningur um fjár-
hagsáætlun og hann ætti ekki
von á því að svo yrði. Það liti
þannig út að ekki yrði úr miklu
fé að spila, tekjurnar væru ekki
nægar og föst útgjöld heföu vax-
ið verulega á undanförnum ár-
um. Ýmsir þjónustuliðir heföu
bæst við, heilbrigðiseftirlit,
heiisugæsla, Dalbær, dagheimili
og skólakostnaður. „Yfnbygg-
ingin hefur aukist án þess að
tekjur hafi aukist líka,” sagði
Helgi. GHF
Frá fyrsta fundi AUiance Francais eftir endurreisn félagsins
Þann 31. janúarsl. var Alliance
Francaise á Akureyri endur-
reist. Hér er um að ræða félag,
sem hefur að markmiði að efla
tengsl milli íslands og Frakk-
lands og kynningu á franskri
tungu og menningu.
Upphaflega var félagið
stofnað 25. mai 1939, en
heimsstyijöldin síðari varð til
þess að tengslin við Frakkland
rofnuðu og starfsemi félagsins
lagðist niður. Þeir sem gengust
fyrir því, að félagið var endur-
reist, voru þrír af stofnendum
þess, þau Áslaug Árnadóttir,
Amgrímur Bjamason og Gisli
Konráðsson.
I nýkjörinni stjóm Alliance
Francaise á Ákureyri eru:
Hrafnhildur Jónsdóttir for-
maður, Signý Pálsdóttir vara-
formaður, Lucien Messiaen
ritari og Gísli Konráðsson
gjaldkeri. Félagið á vísi að
bókasafni og sér Reynir
Antonsson um það.
Það er ætlun stjómar félags-
ins að standa fyrir kvikmynda-
sýningum og fræðsluerindum
um frönsk málefni, auk þess
sem í athugun er hvort félagið
getur efnt til kennslu í frönsku
á Akureyri.
Fyrsti kynningarfundur
félagsins verður haldinn í
Mánasal Sjallans í kvöld kl.
20.30. Þar segir Sigurður Páls-
son, leikstjóri og rithöfundur,
frá frönsku söngkonunni Edith
Piaf og sýnir myndbönd. Veit-
ingahúsið býður upp á smárétti
i tilefni kynningarkvöldsins.
Aðgangur er ókeypis fyrir
félaga í Alliance Francaise.
TIO
Edith Piaf.