Íslendingur - 24.04.1985, Page 13
2stcudu\aur
13
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1985
Það hefur löngum háó íslendingi,
að ritstjórar hafa haft stutta við-
dvöl á blaðinu, sumir naumast
tjaldaó nema til einnar nœtur.
Bílaleigan, Geysir flutti í nýtt
húsnæði sl. laugardag. Hún var í
Skipagötu 13 og flutti í hús við
Hvannavelli, sem skráð er Gler-
árgata 34, bakhús, að sögn
Kjartans Bragasonar, fram-
kvæmdastjóra og eiganda leig-
unnar. Við þessa flutninga
stækkar húsnæði ieigunnar mjög
verulega. Hún var í 30 fm. hús-
næði en er nú í 300 fm. „Við
erum með aðstöðu á þessum
stað til að gera við okkar bíla
sjálfir,” sagði Kjartan. „Við
verðum að fjölga bílum núna
vegna mikillar eftirspurnar.
Núna til dæmis eru allir bílar úti
utan einn, sem er bilaður.”
Kjartan sagði að fyrirtækið
væri í örum vexti, bílum hefði
að vísu ekki fjölgað sem skyldi
vegna þess að hann hefði verið
að fjárfesta í þessu nýja hús-
næði. Hann hefði keypt helming
þessa húsnæðis í nóvember sl.
og hinn helminginn í janúar.
Breytingar hefðu byrjað 1.
febrúar. Nú væru þeir vel búnir
undir aðalvertíðina í sumar.
Við opnunina sl. laugardag
komu um 250 manns. Það voru
að sögn Kjartans aðallega þeir,
sem höfðu unnið við bygging-
una, og helstu viðskiptavinir
fyrirtækisins.
Kjartan taldi að verð á bíla-
Tvœr milliónir
að gjöf
Náttúrulækningafélaginu á
Akureyri hefur borist stór gjöf
frá velunnara félagsins, sem ekki
vill láta nafns síns getið. Gjafa-
féð nemur 2 milljónum króna.
Félagið sendir gefandanum
sínar bestu þakkir fyrir höfðing-
lega gjöf og óskar honum vel-
famaðar um alla framtíð.
(Frá stjóm N.F.L.A.)
Bílaleigan Geysir
í nýtt húsnœði
leigubílum hefði lækkað að
undanförnu. Það væri t.d. til-
tölulega miklu ódýrara að taka á
leigu bíl en vídeótæki.
Ymislegt
Félagar Náttúrulækningafélags
Akureyrar
Tillaga um nafn á byggingu fé-
lagsins við Kjamaskóg óskast.
Vinsamlegast sendið tillögur ykk-
ar til formanns félagsins, Laufeyj-
ar Tryggvadóttur. Helgamagra-
stræti 2, Akureyri, fyrir 30. apríl
n.k.
Myndakvöld og kynning á ferð-
um F.F.A. í sumar verður haldið
í Lóni við Hrísalund fimmtudag-
inn 25. apríl kl. 20.30. Þórunn
Lárusdóttir framkvæmdastjóri F.f.
kemur norður og sýnir okkur
fallegar myndir frá Vestfjörðum,
úr Veiðivötnum, Landmanna-
laugum, Fjallabaksleið, úr Þórs-
mörk og e.t.v. víðar af landinu.
Lesið verður upp og sungið, hver
með sínu nefni. Á boðstólum
verður kafTi og bakkelsi eins og
hver getur í sig látið, enda kon-
umar í F.FA. þekktar fyrir að
veita vel. AUir eru hjartanlega
velkomnir.
Fyrirhuguð er ieikhúsferð til
Húsavíkur laugardaginn 27. april.
Þátttöku þarf að tilkynna á skrif-
stofu F.F.A. að Skipagötu 12,
sími 22720 þriðjudag og miðviku-
dag kl. 17.30-19.00. Alhr vel-
komnir.
Dvaiarheimilinu Hlíð hefur borist
ágóði af hlutaveltu kr. 1.312,65
frá Hrafnhildi. Helgu Jónu og
Eydísi Sigríði, Smárahlíð. Með
þökkum móttekið.
Forstöðumaður.
EDITll PIAF
Næstu sýningar:
fimmtud. 25. apríl
kl. 20.30
föstud. 26. aprfl
kl. 20.30.
laugard. 27. apríl
kl. 20.30.
UPPSELT
Kötturinn sem fer
sfnar eigin leiðir
eftir
Ólaf Hauk Símonarson
Frumsýning
sunnud. 28. aprfl
kl. 17.00
önnur sýning
miðvikud. 28. apríl
kl. 15.00.
Miðasalan opin í turninum við
göngugötu virka daga frá kl. 14-18.
Þar að auki í leikhúsinu föstudag
frá kl. 18.30, laugardag og sunnu-
dag frá kl. 14 og fram að sýningu.
Sími 24073.
Sætaferðir frá Húsavík
TOSHIBA
örbylgjuofnakynning
verður haldin föstudaginn 26. apríl
milli kl. 4-6 í versluninni Raf, Kaupangi.
Kynnir Dröfn Farestveit
Kaupangi v/Mýrarveg Sími 25951.
Kristnesspítali
Eftirtaldar stöður eru
lausar til umsóknar:
Hjúkrunardeildarstjóri
Staðan veitist frá 1. júní n.k. eða síðar eftir
samkomulagi.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
31100.
Yfirsjúkraþjálfi
Staðan veitist frá 1. júlí n.k. eða síðar eftir
samkomulagi.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri í síma
31100.
Hjúkrunarfræðingar
tii sumarafleysinga og í framtíöarstörf.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
31100.
Barnaheimili og fbúðarhúsnæði á staðnum.
Kristnesspítali.
Frá stjórn verkamannabústaða Akureyri
Könnun
Stjórn verkamannabústaða á Akureyri hefur
ákveðið að framkvæma könnun á húsnæðis-
þörf iáglaunafólks á Akureyri, samkvæmt lög-
um nr. 60 frá 1984.
ÞVÍ ER HÉR MEÐ AUGLÝST EFTIR
UMSÓKNUM FRÁ VÆNTANLEG-
UM UMSÆKJENDUM UM ÍBÚÐIR í
VERKAMANNABÚSTÖÐUM.
Réttur til kaupa á Ibúð í verkamannabústað
er bundinn við þá sem uppfylla eftirfarandi
skilyrði:
a) Eiga lögheimili á Akureyri þegar könnun fer
fram.
b) Eiga ekki íbúð fyrir eða samsvarandi eign í
öðru formi.
c) Hafa haft í meðaltekjur þrjú síöustu árin
áður en úthlutun fer fram eigi hærri fjárhæð
en senr svarar 219.000.- fyrir einhleyping
eða hjón og kr. 16.000- fyrir hvert barn á
framfæri innan 16 ára aldurs.
Með tekjum er átt við heildartekjur umsækj-
anda, maka hans og barna.
Með ailar uppiýsingar er farið sem trúnaðar-
mál.
Mjög mikilvægt er, að allir þeir sem
uppfylla fyrrnefnd skilyrði til kaupa
á íbúð í verkamannabústöðum og
hafa hug á að sækja um fbúðir taki
þátt í KÖNNUN þessari svo unnt
verði að áætla fjölda nýrra íbúða á
næstu árum.
Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsing-
ar eru veittar á skrifstofu stjórnar verkamanna-
bústaöa, Kaupangi við Mýrarveg.
Síminn er 25392 og opnunartími milli 9 og 12
mánudaga til föstudaga.
Umsóknarfrestur er til 14. maí n.k.
Akureyri, 23. apríl 1985
Stjórn verkamannabústaða, Akureyri.